Pressan - 09.09.1988, Síða 8
PRESSAN
VIKUBLAÐ Á FÖSTUDÖGUM
Útgefandi Blað hf. — Aiþýðublaðið
Framkvæmdastjóri Flákon Hákonarson
Ritstjóri Jónína Leósdóttir
Auglýsingastjóri Hinrik Gunnar Hilmarsson
Ritstjórn og skrifstofur: Ármúla 38, sími: 68 18 66. Auglýsingasími:
68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 38, sími 68 18 66. Setning og
umbrot: Filmurog prent. Prentun: Blaðaprent hf.
Áskriftargjald: 400 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressan og Alþýðu-
blaðið: 800 kr. á mánuði. Verð í lausasölu: 100 kr. eintakið.
Út i óvisstma
Það væri synd að segja að ró og friður ríktu í þjóðfélaginu þessa
fallegu haustdaga. Úr fjármálaheiminum berast slæm tíðindi fyrir
þá, sem eitthvert pund áttu til að ávaxta. Hverjir þeir aðilar eru er
hins vegar svolítið óljóst. Oft hefur gamla fólkið verið nefnt í því
sambandi, en erfitt hefur reynst að finna hina forríku ellilífeyris-
þega. Fáir kannast a.m.k. við það að í þeirra fjölskyldum liggi mörg
gamalmenni andvaka af áhyggjum yfir öllum aurunum sínum.
Miklu fremur hið gá|nstæða.
Það hafa þó eflaust fleiri áhyggjur af bramboltinu á peninga-
markaðnum en hinir fjáðu í þessu litla samfélagi okkar. Margir
þykjast nefnilega hafa rekið sig á það í gegnum tíðina að mennirnir
með breiðu bökin séu ótrúlega lagnir við að koma byrðunum yfir
á hina veikbyggðari.
Þrátt fyrir allt megum við þó vara okkur á þeim áhrifum, sem
ólgan í þjóðfélaginu hefur á hugsunarhátt okkar. Það er auðvelt að
sjá drauga í hverju horni, þegar kreppa er sögð vofa yfir. Menn
hræðast atvinnuleysi og mögur ár og þá er stutt í óttann við að ein-
hverjir aðrir sleppi betur en maður sjálfur. Öfundin býr innra ineð
flestum, þó auðvitað sé misgrunnt á henni. Það síðasta, sem íslend-
ingar þurfa á að halda þessa dagana, er hins vegar togstreita og met-
ingur manna á milli. Við verðum að standa saman — ekki síður í
stríðu en blíðu. Ella verður illt ástand verra.
Stjórnmálamennirnir hafa svo sem ekki verið þegnunum góð
fyrirmynd hvað þetta varðar að undanförnu. Deilur þeirra hafa far-
ið fram í fjölmiðlum engu síður en fyrir Iuktum dyrum og það hefur
ekki verið sérlega ánægjulegt leikrit á að hlýða og horfa. Það er
ekkert tilhlökkunarefni ef stjórnarslit verða á næstu dögum —
hvorki fyrir stjórnarsinna né andstæðinga. Þá tækju við nokkrar
óvissuvikur fram að kosningum og hver veit hve margar að þeim
loknum. Á meðan væru mál látin reka á reiðanunr, ef marka má
fyrri reynslu, og ný stjórn fengi því énn meiri vanda að leysa úr en
sú núverandi.
Þjóðin hlýtur að gera kröfu til þess að ríkisstjórn Þorsteins Páls-
sonar leysi þann vanda, sem þjóðarbúið stendur frammi fyrir og
hún hefur m.a. átt þátt í að skapa. En það er ekki þar með sagt að
stjórnarandstaðan sé „stikkfrí“ og geti hallað sér makindalega
afturábak og fylgst með því, sem fram fer. Þegar mikið liggur við,
eins og núna, verða meðlimir stjórnarandstöðunnar að sýna
ábyrgð. Slíku samstarfi á maður hins vegar ekki að venjast hér á
landi og er það eflaust tóm draumsýn að svo mikið sem leiða hug-
ann að þannig fyrirkomulagi. Allir telja stjórnmálaflokkarnir sig
hafa hina einu sönnu lausn. Það eru bara hinir, sem þvælast fyrir
og spilla öllu. „Bara ef þið veitið okkur brautargengi, þá... “ Þannig
hljómar rullan.
En mikið væri gaman að eiga einu sinni eftir að sjá eitthvert
annað leikrit en stólaslaginn margendurtekna, þegar stórviðri bylur
á léikhúsinu.
Stórkostlegar
móttökur
Því fylgir óhjákvæmilega nokkur óvissa og ekki lítil eftirvænt-
ing, þegar nýjum fjölmiðli er hleypt af stokkunum. Menn hafa
ákveðnar hugmyndir um það hvers konar miðil þjóðin vill, en vita
þó aldrei fyrir víst hvernig gengur fyrr en viðtökur lesenda koma í
ljós. Ekki er hægt að hugsa sér betri móttökur en PRESSAN fékk
i síðustu viku, þegar fyrsta tölublaðið leit dagsins Ijós. í fyrsta lagi
seldist blaðið eins og heitar lummur og í öðru lagi hafði mikill fjöldi
fólks samband við ritstjórninaog lýsti yfir ánægju sinni með árang-
urinn. Þeir, sem fá slíkar viðtökur, þurfa sannarlega ekki að kvarta!
P^ESSAN þakkar hlý orð, blóm og skeyti, sem yljuðu okkur um
hjartarætur.
hin pressan
„Séra Gunnar Björnsson er
fyrsti presturinn sem komið hefur
mér til að hlæja undir stóiræðu.“
— úr lesendadálki Morgunblaðsins.
„Mörkin voru ekki merkileg og
komu upp úr þurru.“
— Birkir Kristinsson knattspyrnu-
maður eftir leikinn Fram/Barcelona.
„...að ég hef engan áhuga á að
sitja í ríkisstjórn sem er aðgerða-
laus og getulaus og endar uppi i
óðaverðbólgu.“
— Jón Baldvin i samtali við Morgun-
blaðið.
„Þetta er enginn kóngur, hann
hefur bara hatt.“
— ung stúlka hafði þetta að segja
um Ólaf Noregskonung.
„Átti fyrst aö vera sveppur."
— Ásthildur Ceoil Þórðardóttir i
samtali við DV.
„Það má eiginlega segja að ef
SAÁ hefði ekki verið til þá væri ég
ekki til, ábyggilega dauður úr
drykkju."
— Rúnar Þór, tónlistarmaður.
„Ég hef engar tillögur séð af viti
frá fjármálaráðuneytinu. Ég hcf
séð sundurlaust hænsnaspark."
— Ólafur Þ. Þórðarson I samtali við
Timann.
„Það er þó bót í máli að
schaefer-hundarnir hér eru geð-
góðir.“
— Guðrún Guðjohnsen, formaður
Hundaræktarfélags íslands.
„Mér finnst Múlinn ekki mjög
hentugur staður fyrir álfa til að
búa á. I Kúhagagili eru sifellt snjó-
flóð og aurskriður. Það hlýtur að
vera ónæöissamt fyrir þá.“
— Bjarni Grímsson, bæjarstjóri á
Ólafsfiröi.
„Bændur og þeir í Bændahöll-
inni hafa verio sinnulausir og
dregið lappirnar. Þeir hafa
hugsað með öfugum enda.##
— Jónas Þór Jónasson, framkvæmdastjóri Kjötvinnslu Jónasar.
„ Viðskiptaumhverfið
á íslandi er eitthvert
hið miskunnar-
lausasta á byggðu
bóii. “
— Guðjón B. Ólafsson, forstjóri SIS, I
Mannlifi.
„Stuðlað verði að tilfærslu full-
virðisréttar úr sauðfé í mjólk á
þeim svæðum sem eru gróður-
farslega veik...“
— Úr ályktun aöalfundar Stéttar-
sambands bænda.
„Ég fæ alveg jafnmikiö af
blómum og miöum frá sætum
stúlkum sem vilja kynnast mér af
þvi aö ég er svo „dangerously
handsome“. Allir i hljómsveitinni
fá sama skarnmt."
— Einar Örn Benediktsson, Sykur-
moli, i Alþýðublaðsviðtali.
„Vald á íslandi byggist á
skömmtun."
— Jónas Kristjánsson, ritstjóri Dag-
blaðsins-Visis.