Pressan - 09.09.1988, Side 11
nr
11
ÓLÉTTA OG ASPERÍN
Auglýst hefur verið eftir þús-
undum ófrískra kvenna í Bret-
landi, sem tilbúnar eru að taka
asperín á degi hverjum á með-
göngunni. Þetta er liður i rann-
sókn áþví hvort lyfið kemurí veg
fyrir fósturlát, en álitið er að
asperín stuðli að jöfnu blóð-
renrisli á milli móður og barns.
Einnig er hugsanlegt að konur,
sem taka þetta verkjalyf reglu-
lega, fæði síður fötluð börn
vegna þess að fóstrin skaddast
þá síður af völdum truflana á
blóðrennsli. Ekki eru samt allir
sáttir við þessa tilgátu og hina
yfirvofandi könnun og er hart
deilt um málið. Helmingur fæð-
ingarlækna í landinu hefur þó
samþykkt að aðstoða við könn-
unina.
ÓVÍGÐ SAMBÚÐ ENGIN
TRYGGING
Margir halda því fram, að best
sé fyrir fólk að búa saman áður
en það giftir sig. Þannig geti
þaö kynnst hvort annars kostum
og göllum og viti betur hvort
eitthvert vit er í því að ganga í
heilagt hjónaband. Óvígð sam-
búð er hins vegar ekki svo klók-
ur leikur, ef marka má erlenda
könnun, sem við lásum um fyrir
skemmstu. Þar kom fram að pör,
sem búa saman fyrir giftingu,
eru 80% líklegri til að skilja en
önnur.
Nýbylgjan
í matargeróariist er
Ert þú einn af þeim sem
ekki hafa kynnt sér kostina
við örbylgjutæknina?
Hér er bent á að í PHILIPS M -734 og M -705
örbylgjuofnunum er hægt aö koma fyrir heilu
fati af mat með meðlæti og öllu, því hjá
PHILIPS ersnúningsdiskurinn í toppi
ofnsins, sem tryggir jafna dreyfingu á
örbylgjunum og auðveldar einnig þrif á
ofninum. PHILIPS örbylgjuofnarnir eru öflugir en orkusparandi. Smekklegir í útliti og fyrirferðalitlir.
Veggfestingar fáanlegar, heil hurð er í PHILIPS örbylgjuofnunum, sem opnast niður. Þrjár orkustilling-
ar og sérstök stilling fyrir afþýðingu.
Kennslubók og námskeið er innifalið í
kaupum á PHILIPS örbylgjuofni.
Heimilistækí hf
Sætúni 8
SÍMI: 69 15 15
Hafnarstræti 3
SÍMI: 69 15 25
Kringlunni
SÍMI: 69 15 20
/tó t/uutoSvetíjfjajiílegt/i, í SOMuttíjju/H
PHILIPS örbylgjuofninn — styttir
undirbúning og flýtir matseld —
Leitið nánari upplýsinga.
o°o° ;oí^
KYNORKUBJOR lr
Nú er stóra spurningin eftir-
farandi: Hver hefur nælt sér í
umboð fyrir franska bjórinn frá
Michel Debus, sem kallast 3615
Syndgarinn? Það er nefnilega
enginn venjulegur bjór.
Framleiðandinn fullyrðir að
sér hafi tekist að framleiða bjór,
sem kyndir heldur betur undir
ástríðuhita neytendanna.
Hvorki fleiri né færri en 300 pör
hafa aðstoðað Debus við að
prufukeyra mjöðinn og sérfræð-
ingar i kynlífsmálum hafa síðan
fylgst með tilraunadýrunum til
að sannreyna áhrifamáttinn.
Kærustur og eiginkonur eiga
víst ekki orð til að lýsa frammi-
stöðu strákanna sinna eftir að
þeir fóru að drekka ölið, en
gætið að einu, herrar mínir:
Drykkjan eröll unnin fyrirgýg, ef
hún fer yfir fjórar litlar flöskur á
KRAARDRYKKJA
MINNKAR
Bretar hafa löngum verið
þekktir fyrir kráarmenningu
sína, sem á varla sinn líka i
heiminum. Þetta er þó kannski
að breytast, ef marka má nýj-
ustu tölur. Fyrir nokkrum árum
seldust nefnilega 83% af öllu
áfengi á Bretlandi á krám, en nú
eru einungis 78% af víni kneyf-
uð á knæpum. Hitt drekka menn
heima hjá sér. Bretar eyða
annars að jafnaði helmingi
þeirrar upphæðar, sem þeir
verja i matvælakaup, til áfengis-
kaupa.
SKRÍMSU LEIKUR
LAUSUM HALA
Fólk í Suður-Karólínufylki í
Bandaríkjunum hefur áhyggjur
af því að skrímsli nokkurt sé á
svæðinu. Ungur ökumaður varð
fyrstur var við þennan ófögnuð
og lýsti sjóninni á eftirfarandi
hátt: Fyrirbærið er grænt og
hreistrað, blautt, með þrjá fing-
ur, rauð augu, um sjö fet á hæð
og getur hlaupið á 60 km hraða
á klukkustund. Tveir lögreglu-
þjónar fundu síðan risastór
fótaför í námunda við staðinn,
sem maðurlnn benti þeim á.
Margir halda að ungi ökumað-
urinn hafi annaðhvort séð bjarn-
dýreðadrukkinn mann, en aðrir
trúa sögunni um skrimslið.
Fjöldi mannö hefur lika gefið
sig fram jáð' undanförnu og
sagst hafa séð fyrirbærið.
Sumir segjast hafaskotið á það,
aðrir segja það hafa „étið“ bíl-
skúr og annað i þeim dúr. Nú
hefur skepnunni verið gefið
nafnið „eðlumáðurinn" og eru
70 veiðimenn á hælum hennar.
Ferðamennirnir, sem streymt
hafa til fylkisins af þessum
sökum, eru hins vegar mun
fleiri.