Pressan - 09.09.1988, Side 12
12
Föstudagur 9. september 1988
skotmarkið
Jón Baldvin Hannibalsson
fjármálaráðherra
Hvað gerðist í ríkisstjórninni?
Hafið þið Steingrímur rcett uppstokkun?
' *
Hvaða öfl vinna gegn ykkur á bak við tjöldin?
Stjórnarslit?
UPPSTOKKUN í STJÓRN-
INNI KENIUR
FYLLILEGA TIL GREINA
— Var ríkisstjórnartundurinn í
gær sá afdrifaríkasti sem þú hefur
setið?
„Nei, það var hann ekki, hvað
sem seinna kann að verða.“
— Hvað gerðist á fundinum?
„Eftir fund formanna í fyrradag
ákvað forsætisráðherra að leggja
tillögur sínar fyrir þennan ríkis-
stjórnarfund. Það væri þó ofmælt
að kalla það tillögur sem hann lagði
fram. Þetta var greinargerð á
minnisblaði um verðlags- og launa-
mál og vexti. Eftir er öll vinna við
að útfæra það nánar. Formaður
Framsóknar lagði líka fram sínar
tillögur um niðurfærsluleið og lét
færa þær til bókar. Þær hafði hann
raunar lagt fram á formannafund-
inum í fyrradag. Þeim er hins vegar
algerlega liafnað af sjálfstæðis-
mönnum. Þar með eru þær komnar
út af borði þessarar ríkisstjórnar
eins og Steingrimur reyndar sagði
sjálfur. Niðurfærslan heyrir því
sögunni til í anda rómversku dæmi-
sögunnar um ferðina sem aldrei var
farin.“
— Er þá öll vinnan í kringum
niðurfærsluna farin til einskis?
„Nei, vinna ráðgjafarnefndar-
innar hefur gert sitt gagn við að
stöðva gengisfellingarkórinn í tæka
tíð.“
— Atburðarás síðustu vikna
bendir þó til þess að ekkert hafi
miðað?
„Það er margt írónískt við
atburðarás seinustu vikna. Frá ára-
mótum og fram á síðsumar hefur
ekki linnt kröfurn um gengisfell-
ingu. Tvívegis var látið undan. Eftir
á séð var það upphaf þess atvinnu-
ástands, sem ríkt hefur seinustu
mánuði. Síðan þá hefur ríkt upp-
lausnarástand í efnahagsmálum, en
það hefur allt gengið eftir sem við
sögðum um að gengislækkun er
ekki efnahagsúrræði heldur deyfi-
lyf. Eftirminnilegast er dæmi Sam-
bandsins. Fulltrúar SÍS hafa verið
harðastir í gengislækkunarkröfum
en þegar forstjórinn gerði upp
dæmið eftir gengisfellingarnar sá
hann að SÍS hafði tapað 600 mill-
jónum á tiltækinu. Þegar forstjóra-
nefndin settist á rökstóla var meiri-
hluti hennar skv. fréttum á gengis-
fellingarleiðinni. Það tók þá aðeins
nokkra daga að sjá að sú leið myndi
leiða í óeönaur.
— Voru sjálfstæðismenn ein-
hverntíma tilbúnir í niðurfærslu?
„Það er hafið yfir allan vafa að
áhrifamiklir menn úr atvinnulífinu
og máttarstólpar í Sjálfstæðis-
flokknum vildu fara þessa Ieið.(
Önnur öfl voru andvíg og höfðm
betur.“
— Hvaða öfl ertu að tala um?
„Þau er að finna í viðskiptaheim-
inum, bankakerfinu og innsta hring
forystunnar."
— Vildu þeir stjórnarsamstarfið
feigt?
„Sumir faraekki dult með það og
þar fer fremstur í t'lokki borgar-
stjórinn í Reykjavík."
— Er liann stjórnarandstæð-
ingur?
„Já. Og er þar i félagsskap með
Ólafi Þ. Þórðarsyni og fleiri traust-
um framsóknarmönnum."
— iÆgðuð þið eitthvað fram á
ríkisstjórnarfundinum í morgun?
„Já. Eftir formannafundinn í
fyrradag þegar ljóst varð að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafnaði endan-
lega niðurfærslu undirbjuggum
við okkar tillögur til að leggja fyrir
þingflokksfundinn í gær. Við höfð-
um ekki beinlínis ráðgert að leggja
þær fram á þessum ríkisstjórnar-
fundi sem við töldum að myndi ein-
göngu snúast um tillögur forsætis-
ráðherra. En í Ijósi þess að klukkan
tifar, tími yfirlýsinganna er liðinn
og tími aðgerðanna kominn og að
menn voru sammála um nauðsyn
þess að vinna hratt töldum við rétt
að leggja þessar tillögur fram og
gerðum það.“
— Hvernig var þeim tekið?
„Endanleg afstaða liggur ekki
fyrir enda eru þær nú til umfjöll-
unar í þingflokkum."
— Hvað fela þær í sér?
„Nú eru um 100 fyrirtæki í fisk-
vinnslu, sum hver svo illa stödd að
rekstrarstöðvun og lokun með til-
heyrandi atvinnuleysi blasir við.
Stærðargráða vandans er sú að
veiðar og vinnsla eru rekin með 6%
halla til jafnaðar. Það þýðir 1700
milljónir á ári fyrir veiðar og
vinnslu. Frystingin ein sýnir 8%
halla miðað við rekstrartekjur. Ef
aðgerðirnar eiga einungis að forða
rekstrarstöðvun næsta misseri, á
meðan ráðist er að rótum verð-
bólguvandans og menn reyna að
stemma stigu við þenslu, liggur
vandinn á bilinu 5—600 milljónir
króna. Þetta er svipuð upphæð og
Davíð ætlar að verja í hringleikahús
í borginni.
— En hvað felst þá í tillögunum?
„Þetta er hluti þeirra. Ef þú
frystir launahækkanir sem þessi
fyrirtæki geta ekki borgað, fram-
lengir verðstöðvun og fylgir því
eftir með tiltækum ráðum þá dreg-
ur mjög hratt úr verðbólgu. Með
algerri frystingu verðlags og launa
yrði verðbólguhraðinn kominn í
4—6°7o í lok ársins. Þar með má
keyra niður vexti og þar með raun-
vexti og draga úr mun á fjármagns-
kostnaði innanlands og erlendis og
sefa hungrið eftir erlendum lánum.
Fyrst ekki er unnt að leysa allan
vanda í einu lagi þá verður að leysa
úr vanda fyrirtækjanna um sinn
með því að færa til fé til þeirra.
Verðjöfnunarsjóður var á sínum
tima góð hugmynd. Hann ætti nú
að vera sneisafullur af fjármunum
eftir uppgangstíð síðustu ára. Það
er ekki svo gott en þó eru þar 1300
milljónir í dag en frystingin á lítið
sem ekkert af því fé. Til greina kem-
ur að afla frystideildinni lánsfjár
með ríkisábyrgð til að hún geti freitt
verðbætur. Til endurgreiðslu kemur
þegar úr rætist á erlendum mörkuð-
um. Hugsanlega einnig með gjald-
töku á útflutningsafurðir. Þá er
unnt að leysa þennan vanda til
skamms tíma en skynsamt fólk
horfir lengra en til hálfs árs eins og
gert er ráð fyrir I þessurn nýju tillög-
um okkar. Svarið felst í því hvort
þeir sem standa að ríkisstjórninni
eru gæddir þeim pólitíska kjarki að
fara að taka til heima hjá sér.
Stjórnin leggi fram fjárlagafrum-
varp með tekjuafgangi sem byggist
á verulegri lækkun ríkisútgjalda og
fylgi því eftir með lánsfjárlögum
þar sem erlendar lántökur ríkisins
verða stöðvaðar og jafnframt lokað
á erlendar lántökur fjárfestingar-
lánasjóða. Hún fylgi því svo eftir
með stöðvun á óarðbærum fjárfest-
ingum hjá ríki, sveitarfélögum og í
atvinnulífinu, þá er dregið úr þensl-
unni og reynt að stuðla að jafn-
vægi.“
— Gefurðu sjálfstæðismönnuni
færi á að fara með ykkur þessa leið
sem þú hefur lýst eða er Þorsteinn
endanlega á leiðinni út? Eru nýjar
stjórnarmyndunarviðræður að fara
af stað?
„Það er nokkuð til í því að póli-
„ tíska vandamálið í samstarfi flokk-
anna virðist vera erfiðara en þessi
efnahagsvandi gefur tilefni til.
Hann gefur ekkert tilefni til stjórn-
arslita og k’osninga og pólitískrar
upplausnar nema þá vegna þess að
það er eitthvað annað að. Menn
muna að ég þótti ekkert sérstaklega
blíðmáll um hlut Framsóknar-
flokksins sem hagsmunavörslu-
flokks fyrir kosningar. Ég taldi lík-
legra að við alþýðuflokksmenn
gætum fremur náð samstöðu með
sjálfstæðismönnum um nauðsyn-
legar aðgerðir þegar stjórnin var
mynduð.“
— Var það vanmat á flokknum?
„Ég hef lært mikið á þessu rúma
ári og neita því ekki að ég hef að
mörgu leyti orðið fyrir vonbrigðum
með málafylgju sjálfstæðismanna.
Mér finnst of mikið bil milli orða og
efnda hjá þeim. Þar þykir fínt að
vera á móti sköttum og boða ráð-
deild í ríkisrekstri. En það er tví-
skinnungur að afneita bæði tekju-
öflun og niðurskurði útgjalda. Það
er pólitísk hentistefna.“
— Hafið þið framsóknarmenn
frekar náð saman upp á síðkastið?
„Okkur hefur ekki tekist að leysa
ágreininginn um landbúnaðar-
málin og fiskveiðistefnuna. En við
vissum það þegar stjórnin er mynd-
uð að búvörulög og samningur við
bændur eru í gildi frá tíð fyrri
stjórnar og það bindur helstu
stærðirnar. Við fengum fyrirheit
um breytingar um ýmsa áfanga á
leið frá þessu kerfi og um aðhald á
þessum sviðum. Jafnvel þegar við
náum samkomulagi við fram-
sóknarmenn um slíkt þá er það
nánast óbrigðult að surnir þing-
menn Sjálfstæðisflokksins koma
og sprengja það í loft upp með yfir-
boðum.“
— Þegar svona er komið, að til-
lögur standa gegn tillögum, er þá
ekki annaðhvort að fara út í upp-
stokkun eða stjórnarslit?
„Það er viðtekin venja víða um
lönd að stokka upp í ríkisstjórnum.
Ekki síst við ákv. tímamót. Enginn
er frægari fyrir það í samtímanum
en Magga Thatcher, en það eru
hægari heimatökin í eins flokks
ríkisstjórn. Fyrri ríkisstjórn gerði
þetta þó — þ.e. innan Sjálfstæðis-
flokksins — eins og menn muna um
mitt kjörtímabil. Mér finnst það
fyllilega koma til greina, vilji menn
leggja fyrri væringar að baki og
halda þessu stjórnarsamstarfi til
streitu að fylgja þeim vilja eftir með
uppstokkun innan ríkisstjórnar-
innar.“
— Með óbreyttri flokkasamsetn-
ingu?
„Forsætisráðherra hefur sjálfur
skýrt frá því að hann hefði á fundi
formannanna beint því til okkar
Steingríms hvort við vildum mynda
minnihlutastjórn, sem beitti sér
fyrir framkvæmd niðurfærslu eftir
þeim leiðum sem við höfum Iýst.“
— Verðið þið við þessu boði?
„Mig minnir að Steingrímur hafi
vakið athygli forsætisráðherra á því
að svo væri komið að stærsti þing-
flokkurinn hafnaði þessari leið og
öll stjórnarandstaðan reyndar líka.
Það yrði því að teljast ólíklegt að
pólitískar forsendur væru fyrir því
að slík minnihlutastjórn kæmi svo
róttækum tillögum fram. Líkleg-
asta niðurstaðan yrði þá kosningar
í upplausnarástandi í atvinnu-
lífinu. “
— Blasir þá annað en stjórnar-
samstarf á nýjum grunni við?
„Það er pólitískur eyntingja-
skapur og ábyrgðarleysi að gefast
upp fyrir ekki stærri efnahags-
vanda en við er að fást. Fleiri taka
undir það, en ég ræð ekki einn för.
Ef við getum ekki bætt samstarfið
þar sem mest hlýtur að reyna á
frumkvæði og pólitískt örlæti for-
sætisráðherrans og flokks hans, ef
ég má orða það svo, þá stoðar Iítt
þótt ég og mínir menn hafi vilja. “
— Hefur uppstokkun komið til
umræðu?
„Ekki nema með vísan til þess
sem Þorsteinn bauð í fyrradag. Að
öðru leyti vil ég ekki svara því.“
— Má þá rekja vandann til skorts
á verkstjórn hjá Þorsteini?
„Trúlega er forsætisráðuneytið
ekki nógu sterkt í okkar stjórnkerfi.
Um verkstjórn í samsteypustjórn er
það að segja að hún hlýtur að
byggjast á því, að sá sem stýrir liði
sé reiðubúinn að fórna einhverju til
þess að halda saman ríkisstjórn og
sýna skilning á sjónarmiðum sam-
starfsflokka. Að fórna „sérhags-
munum“ síns flokks, ef nauðsyn
krefur. Það þarf mjög öfluga máls-
vörn fyrir ríkisstjórnina í heild og
úrræði hennar — ekki síst á erfið-
um tímum.“
— Verða stjórnarslit á næstunni?
„Enginn veit sína ævina fyrr en
öll er.“
„Öfl inncm Sjálfstæðis-
fíokksins vinna gegn rikis-
stjórninni. Sumir fara ekki
dult með það oq þar fer
fremstur i flokki borgar-
stjórinn í Reykjavík##