Pressan - 09.09.1988, Síða 22

Pressan - 09.09.1988, Síða 22
I I I í^ost y'dagu r‘9.' §e£férfibfeV ^88 Tom Tom Club me5 nýja plötu ingar s-afrísku lögreglunnar í sept- ember 1977 eða fyrir rétlum ellefu árum. Þegar líða tók á lagið fóru svo meðlimir hljómsveitarinnar að tínast út af sviðinu einn af öðrum þangað til trommarinn var einn eftir. Sá liann um að enda stórkost- legt framlag Peters Gabriel á þess- um tónleikum. Nú var komið að Tracey Chap- man. Þessi unga negrastelpa frá Bandaríkjunum hefur á síðustu vikum og mánuðum verið að slá hressilega í gegn víða um heim og hefur fyrsta plata hennar rokselst. Tracey var vel fagnað þó svo margur tónleikagesturinn notaði tækifærið til að fá sér fljótandi veitingar sem á enskri tungu kallast „beer“ eða bjór. Enn fleiri notuðu tækifærið og losuðu sig við áðurnefndan vökva í þartilgerð tæki. Tracey spil- aði í hálftima og voru þetta lög á borð við Talkin’ About a Revolut- ion, Fast Car, Free, Free, Free og fleiri. Var mjög þægilegt að hlusta á einfaldan gítarleik og Ijúfsára rödd stúlkunnar þennan stutta tíma sem hún spilaði. Aðdáunarvert var hvað henni tókst vel að „halda“ áheyr- endum, því það hlýtur að vera andsk... erfitt að spila fyrir þvílíkan fjölda sem þarna var -saman kom- inn. Þá var komið að Sting og um kl. hálfátta birtist hann ásamt hljóm- sveit sinni. Sting byrjaði á gömlu Police-lagi, The King of Pain. í kjölfarið fylgdi If You Love Some- body (Set Them Free) af fyrstu sólóplötu Sting, Draumi bláu skjaldbökunnar, og tileinkaði hann lagið öllum börnum í S-Afríku. Me. Þess má geta að útlenda hliðin er tekin upp á dansiböllum með Sálinni á Hótel Akranesi og í Bíó- kjallaranum. En hvor hliðin er nú betri? Ég hallast að þeirri útlendu, því á henni ber minna á leiðindasöng- kvillum Stefáns, en aftur á móti heyrir maður smáfeilpúst í hljóð- færaleik á stöku stað. Því er hins- vegar ekki fyrir að fara á íslensku hliðinni þar sem hér eru mjög sjó- aðir spilarar á ferð. Hvernig sem Sálinni tekst að semja lög í sálarstíl (sem eru einungis þrjú, vel að merkja) þá held ég að þeir sleppi bara sæmilega frá því miðað við að þeir eru allir snjóhvítir íslendingar og blóðþáttinn vantar algerlega. Að vísu er Jón Ólafsson hressi- lega krullhærður, en það virðist ekki duga til. Ég er hræddur um að næsta plata frá Sálinni hans Jóns míns verði að vera miklu betri til að hlustendur lendi ekki í meiriháttar sálarþrengingum. GHÁ Þetta er hljómsveit sem inniheldur tvo meölimi Talking Heads, hjónin Tinu Weymouth og Chris Frantz, sem fasta- meölimi en aðrir meölimir TH, þeir David Byrne og Jerry Harrison, koma einnig viö sögu á þessari nýju plötu Tom Tom Club, sem á víst aö heita því furöulega nafni Boom Boom Chi Boom Boom. Á plöt unni verður lag Lou Reed, Femme Fatale, en þaö er um þýsku söngkonuna Nico, sem lést úr hjartaslagi fyrr í sumar. Einnig mun trommari sveitar- innar, Chris Frantz, syngja lag eftir Bob Dylan. Það mun vera frumraun hr. Frantz sem aðal- söngvara og verður mjög fróö- legt aö heyra hvernig til tekst. Smiths á tónieikum Þann 5. september kemur út langþráð tónleikaplata frá bresku hötuðu/elskuðu sveit- inni The Smiths. í fyrstu átti platan sú arna aö heita Live at the National en nú hefur þvf verið breytt í Rank, hverjar svo sem ástæðurnar kunna aö vera. Á þessari plötu veröa flest af betri lögum sveitar- innar, s.s. Big Mouth Strikes Again, The Boy with the Thorn in his Side, Panic, Ask, The Queen is Dead og I Know It’s Over. Hér er því kærkominn glaöningur fyrir Smiths-aðdá- endur á ferö. Blóðþáttinn vantar! vert rólegra en hin. A undan My Hometown fengu svo áheyrendur „When-I-Was-a-Little-Kid“ræð- una margfrægu. Þar talaði Bruce um frelsið sem rokktónlistin hefði gefið honum og hvað frelsið væri okkur mönnunum mikilvægt. Satt og rétt hjá Brúsa! Bruce Springsteen og E-Street Band spiluðu hrátt og hresst rokk í klukkutíma og um klukkan tíu end- aði „The Boss“ svo dagskrá sína með hinu frábæra Born to Run. Krafturinn og keyrslan meiriháttar, stuðið geigvænlegt, fólk öskraði, stappaði, klappaði. Sannarlega mjög góður punktur yfir mjög gott i! Að lokum komu svo listamenn- irnir fram og sungu samsöng, rétt eins og í byrjun. En þar sem ég hafði yfirgefið leikvanginn til þess að ná mér í almenningsfarartæki frá leikvanginum til miðborgar Lundúna heyrði ég aðeins óminn af samsöngnum. Það gerði svosem ekkert til, tónlistarvíman gat ekki orðið meiri. Human Rights Now-tónleika- ferðin er farin í þágu góðs málstað- ar með frábæra listamenn í farar- broddi. Því skora ég á alla þá sem eiga möguleika á að sjá þessa tón- leika að hika ekki andartak við að fara á þá, því þetta er hópur af bestu popp- og rokktónlistarmönnum samtímans. Nýlega sendi Sálin hans Jóns míns (Ólafssonar) frá sér sína fyrstu breiðskífu og er það Steinar hf. sem gefur hana út. „Þessir fimm ofurhressu kappar bera sálarheill þjóðarinnar fyrir brjósti og leggja sig í líma við að örva gleðistrauma meðal landa sinna með leik og söng“ (úr fréttatilkynningu). Einn- ig segir í þessari sömu fréttatilkynn- ingu að platan sé kjörinn gleðigjafi fyrir þá sem viljaNtunda músíkleg- ar sálarrannsóknir á andlegu eða líkamlegu sviði. Hér er semsagt komin hljómsveit sem reynir að skapa stemmningu sem kennd er við bandaríska soul-tónlist. Sálina skipa þeir Jón Ólafsson (píanó, orgel, bakraddir), Rafn Jónsson (trommur, bakr.), Guðmundur Jónsson (gítar, bakr.), Haraldur Þorsteinsson (bassi) og júróvisjón- kempan okkar Stefán Hilmarsson, sem er aðalraddari Sálarinnar. Að mínu mati er það líka hjá Stefáni sem hnífurinn stendur í kúnni eða réttara sagt sálinni því frammistaða hans á plötunni er alls ekki nógu góð. í fyrsta lagi hefur hann ekki þá miklu rödd sem sálarsöngvari þarf að hafa þannig að söngurinn verði áheyrilegur. í öðru lagi beitir hann röddinni þannig að oft á tíðum er hræðilegt að hlusta á manninn, eins og til dæmis í laginu Alveg ham- stola, þar sem meirihluti söngsins er bara væl og skrækir. En ég held að sökin liggi ekki bara hjá Stefáni sjálfum heldur hjá hljómsveitinni allri, því hún sá um upptökustjórn og útsetningar. Góður upptöku- stjóri hefði sennilegast tekið öðru- vísi og líklega betur á hlutunum. Syngjandi sveittir inniheldur átta lög, fjögur íslensk og fjögur útlend. Þau íslensku heita; Á tjá og tundri, Kaninan (10 ára gamalt lag, samið og flutt af ísfirsku hljómsveitinni Ýr meðan hún var og hét), Syngj- andi sveittir og Alveg hamstola. En þau útlendu heita Louie, Louie, When a Man Loves a Woman (inni- heldur gott gítarsóló Guðmundar gítarleikara) Mercy, Mercy og Show Þegar Sting hafði lokið við One World Is Enough splæsti hann saman tveim lögum af sinni nýjustu plötu, Nothing Like the Sun; Fragile og They Dance Alone, en hið síðara fjallar um mæður og eiginkonur þeirra manna sem horf- ið hafa sporlaust á blóðugum valdatíma Pinochets í Chile. Mjög fallegt og áhrifamikið lag, sem Sting flutti óaðfinnanlega. Þrjú síðustu lögin voru svo öll í eldri kantinum, fyrst Fortress Around Your Heart af Draumi bláu..., og síðan tvö Police-Iög, Bring on the Night og When the World is Running Down, bæði í nýrri útsetningu. Sting var stórkost- legur á sviði. Það var hrein unun að hlusta á hann og var hljómsveitin geysilega þétt. Fengu áhorfendur að heyra frábæra sólókafla hjá snill- ingum eins og Kenni Kirkland hljómborðsleikara og Brandford Marsalis, sem lék á blásturshljóð- færi. Þegar Sting hafði Iokið leik sínum var tekið að rökkva á Wembley Stadium og á heiðum himni sáust stjörnur skína. Og fljótlega átti ein eftir að bætast í hópinn. Þessi stjarna heitir Bruce Springsteen og þegar hann stökk fram á sviðið um klukkan níu, vopnaður Fender Telecaster- gítar, gengu áhorfendur gjörsam- lega af göflunum. Ef spurt er um „The King of Rock’n’ Roll“ í dag hlýtur svarið að vera Bruce Spring- steen. Maðurinn er „Born in the USA“ eins og fyrsta lagið sem hann flutti gaf til kynna. Brúsi er rokkari af guðs náð og til sönnunar því keyrði hann af fítonskrafti í gegn lög eins og Cover Me, Glory Days, Caddilec Ranch, War og að sjálf- sögðu The River, þó það sé nú tals-

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.