Pressan - 09.09.1988, Page 32
PRESSU
|ón Óttar Ragnarsson, sjón-
varpsstjóri Stöðvar 2, tók upp á því
svona á gamals aldri að trúlofa sig.
Það þykir nokkuð óvenjulegt að
hafa þennan háttinn á, svona þegar
fólk er komið af gelgjuskeiðinu.
Flestir drífa sig beint til prestsins
eða borgardómarans. Sú heppna,
þ.e.a.s. tilvonandi eiginkona Jóns
Ottars, heitir Elfa Gísladóttir og er
eínnig starfandi á Stöð 2.
£fl
síðasta þingi voru margir
formenn nefnda úr öðrum flokki en
sá ráðherra, sem fór með viðkom-
andi málaflokk. T.d. var Ragn-
hildur Helgadóttir formaður i heil-
brigðis- og trygginganefnd neðri
deildar, Alexander Stelansson lor-
maður í félagsmálanefnd sömu
deildar og Guómundur G. Þórar-
insson í menntamálanefnd. Þetta
fyrirkomulag mun ekki hafa gefið
góða raun og telja sumir að þing-
störf hafi tafist töluvert af þessum
sökum. Nú eru því uppi raddir um
að breytt verði um nefndarformenn
svo þeir verði undantekningarlaust
flokksbræður ráðherranna.
^fyrrum stjórnarformaður Goð-
gár hf., Róbert Árni Hreiðarsson
Iögfræðingur, virðist ekki ætla að
láta Helgarpóstinn úr greipum sér
ganga, þótt skiptaráðandi hafi fé-
lagið til meðferðar. Hann mun hafa
fest kaup á útgáfuréttinum á HP og
jafnframt keypt allt innbú — tölvu-
búnaðinn, nryndasafnið og fleira.
Róbert Árni er sagður hafa gefið 1,4
milljónir fyrir pakkann...
o
^^^lafur Ragnar Grímsson
hefur verið í sviðsljósinu í tengslum
við umræðuna um verðbréfasjóð-
ina og Ávöxtunarmálið. Ekki er
vitað hvort Ólafur Ragnar átti
nokkuð inni hjá Ávöxtun, enda
ólíklegt miðað við þá einkunn sem
hann hefur gefið þessari fjármála-
starfsemi og afskiptum stjórnvalda
þar af. Menn velta hins vegar fyrir
sér hvernig hann komst á snoðir
um, að eitt eða tvö fyrirtæki ættu
ekki fyrir skuldbindingum gagn-
vart eigendum innstæðna. Ótrúlegt
er talið að bankaeftirlitið hafi lekið
nokkru í Ólaf, þó mál Ávöxtunar
hafi verið tekið til skoðunar þar
þremur mánuðum áður en Ólafur
lét móðan mása. Ein skýring er
sögð sú að málefni Ávöxtunar hafi
komist inn í Alþýðubandalags-
kreðsur eftir að forsvarsmaður líf-
eyrissjóðs hafði átt viðskipti við
S SólstöfúM
arkitektaf, uml
S Viö útvegum þér iðnaðarmenn,
til allra verka og sérhæföa
viðgerðarmenn á öllum sviðum
S Gula línan er ekki „bílskúrsfyrir-
tæki". Hjá Gulu línunni vinna
reyndir fagmenn sem veita þér
persónulega þjónustu um allt milli
himins og jarðar.
Varahlutir, viðgerðir, sæta-
áklæði, ökukennarar, umboð -
allt fyrir bilinn.
illur, nuddpottar,
oðsaðilar.
Qarðyri^imenn, landslagsarki-
tekt^n-, gróöur. 'áburður, bílaplön,
hitalagnir, snjómöfstur, hieðslu-
JTlenn' .vinnuvélar, leiktæki,
garðhúsgögn; allt fyrir^arðinn og
..••úmhverfið. /
;ilýsing, innilýsing, raflagnir
bg rafmagnsviðgerðir. Við
útvegum vana menn á stundinni.
S Ritvélar, tölvur, diskettur, j s Gluggar.'gler, gluggatjöld
húsgögn, þýðingar, bókhalds- þjófavarnarkerf?;-gfuggaþvottur
Mónus,a • • • allt á skrá hjá Gulu
éppi, dúkar, stólar og borö,
ískápar, eldavélar.
Vörur og þjónusta
með einu símtali
Hvað er Gula línan?
Gula línan er upplýsingabanki um þjónustu,
vörur og umboð, Dæmin hér að ofan eru aðeins
brotabrot af því sem við bjóðum upp á.
Hvernig notar þú Gulu línuna?
Þú hringir bara í síma 62 33 88 og við gefum þér
án tafar traustar upplýsingar um hverjir geti
veitt þér þá þjónustu sem þú þarft á að halda,
hvar þú fáir þær vörur sem þig vanhagar um og
hverjir hafi umboð fyrir tiltekna vöru, vöru-
flokk eða vörumerki.
Hverjir eru á skrá hjá
Gulu línunni?
Upplýsingabrunnur Gulu línunnar er nánast
óþrjótandi. Uppflettiorðin á skránni okkar eru
nú 7665 talsins og þeim fjölgar stöðugt. Þar á
meðal eru hundruðir vöruflokka, einstaklinga,
fyrirtækja og þjónustuaðila sem bíða eftir því að
greiða götu þína hratt og örugglega, vinna fyrir
þig stór og smá verkefni af öllum toga og selja
þér eða leigja þá hluti sem þörfm kallar á hverju
sinni.
við kunningjana o. s. frv. En Gula línan gefur
þér svarið strax; eitt símtal og vandinn er leyst-
ur. Þú notfærir þér háþróaða tölvutækni nútím-
ans en færð samt hlýleg og persónulega þjón-
ustu. Hjá Gulu línunni vinnur nefnilega vinur-
inn þinn sem veit allt.
Traust fyrirtæki - fagþekking
- gæðaeftirlit
Gula línan er rekin af Miðlun hf., traustu
fyrirtæki sem hefur margra ára reynslu af upp-
lýsingaöflun og upplýsingavinnslu. Bakhjarlinn
er því traustur, starfsmennirnir vanir og vinnan
vönduð. Við höldum t. d. uppi ströngu gæða-
eftirliti með öllum þeim þjónustuaðilum sem
við beinum viðskiptum til. Þeir sem ekki
standa sig eru afskráðir.
Ókeypis þjónusta
Þjónusta Gulu línunnar kostar þig ekki neitt.
Þú bara hringir i síma 62 33 88 og við afgreiðum
málið. Einfaldara og þægilegra getur það ekki
verið.
Geymdu símanúmerið
á góðum stað
Við ráðleggjum þér að klippa út þennan gula
miða og varðveita hann á öruggum stað þar sem
auðvelt er að grípa til hans. T. d. í dagbókinni,
á skrifborðinu eða við símtólið. Það gæti enn
frekar sparað þér tíma.
x...
fVWWt
60IA
62-33 88
k ;
X
—-x
Tímasparnaður - nútímaleg
þjónusta - hlýleg afgreiðsla
Þú átt vitaskuld um fleiri leiðir að velja en Gulu
línuna til að afla upplýsinga. Þú getur flett
símaskránni, leitað í auglýsingum, ráðfært þig
Opnunartími
Gula línan er opin virka daga frá kl. 8 til 20 og
laugardaga kl. 10-16.
GUIA LÍNAN GEFUR ÞÉR RÉTT
SVAR, ÓKEYPIS OG ÁN TAFAR
Ármann Reynisson. Flestum ber
saman um að lífeyrissjóðum sé
óheimilt að ávaxta fé með slíkum
hætti, en þessi hugdjarfi forsvars-
maður er sagðúr hafa Iagt fimm
milljónir inn hjá Ávöxtun, án þess
að leita álits stjórnar sjóðsins. Á
næsta stjórnarfundi var hann hins
vegar beðinn að draga þessi við-
skipti til baka, og það strax. Fór
hann á fund Ármanns, sem þá
stundina hafði ekkert lausafé, enda
búinn að ráðstafa milljónunum
fimm. Mun hann m.a. hafa sýnt
manninum lista yfir 43 aðila sem
höfðu „notið góðs“ af lífeyrispen-
ingunum. Gekk srðan i brösum, en
Ármanni tókst næstu daga að nurla
saman peningum til að bjarga
heiðri hins hugdjarfa...
Bíl^íiklar breytingar gætu
orðið á forystu Alþýðuflokksins á
landsfundinum í byrjun október.
Það er nefnilega talið nær fullvíst
að hvorki Jóhanna Sigurðardóttir
varaformaður, Árni Gunnarsson
ritari né Geir Gunnlaugsson, gjald-
keri flokksins, ætli að gefa aftur
kost á sér til þeirra embætta...
I nnan verkamannasambandsins
er að losna staða fulltrúa, sem
sumir vilja telja „kratastöðu" sam-
kvæmt hefðinni. Lárus Guðjóns-
son hefur sagt upp og mun upp-
sögnin taka gildi þann 1. október
næstkomandi. Enn hefur þó ekki
komið í ljós hver muni taka við af
honum.
V aldabaráttan í SÍS fer að
verða klassískt umræðuefni. Nýj-
asta sagan segir að Axel Gíslason
aðstoðarforstjóri sé á leiðinni út úr
framkvæmdastjórninni og muni
taka æðsta stól í Samvinnutrygg-
ingum. Axel er sagður langþreyttur
á toppnum með Guðjóni forstjóra.
Þá er talið að SÍS-forstjórinn ætii
einum dyggasta samstarfsmanni
sínum, Kjartani P. Kjurtanssyni
fjármálastjóra, forstjórastólinn í
Olíufélaginu. í framhaldi af því
hafa menn velt fyrir sér hver taki við
embætti fjármálastjóra og er
Halldór Guðbjarnason, fyrrum
bankastjóri Útvegsbankans, talinn
líklegastur. Enn treysta menn sér
hins vegar ekki til að spá fyrir um
arftaka Axels Gíslasonar, ef af
verður. Búast má við að andstæð-
ingar Guðjóns vilji hafa þar „sam-
vinnuþýðan“ mann...
I