Pressan - 30.09.1988, Side 5
5
Föstudagur 30: september 1988
Þrír nýburar á fœðingar-
deild Landspítalans sýkt-
ust fyrir tœpum tveimur
árum vegna rangrar með-
höndlunar þurrmjólkur-
blöndu.
Fyrir tæpum tveimur árum kom upp sú staða á
fæðingardeild Landspítalans að þrír nýburar veikt-
ust alvarlega vegna bakteríusýkingar. Eitt barnið er
látið, en tvö hlutu varanlegan skaða af heilahimnu-
bólgunni, sem sýkingin olli. Barnið, sem dó, var
raunar veikt fyrir og ekki hugað líf, en heilbrigðis-
ráðherra og fjármálaráðherra hafa viðurkennt bóta-
skyldu ríkisins vegna sýkingar allra barnanna
þriggja.
Það var mjólkurduft
af gerðinni NAN,
sem var i notkun á
fæðingardeild
Landspitalans,
þegar börnin þrjú
sýktust. Það er þó
ekki þar með sagt
að þessi gerð þurr-
mjólkur sé eitthvað
verri en aðrar.
Bakteria sú, sem
olli veikindum
nýburanna, hefur
fundist i yfir 100
tegundum mjólkur-
dufts.
►