Pressan - 30.09.1988, Blaðsíða 12

Pressan - 30.09.1988, Blaðsíða 12
12 Föstudagur 30. september 1988 Síðastliðinn vetur kom til sálfræðings Menntaskolans við Hamrahlíð á annan tug stúlkna sem höfðu einkenni sjúkdómanna „anorexia nevrosa“ eða „bulimia nevrosa“. í bæklingi sem skólinn hefur gefið út um þessa sjúkdóma og ber yfirskriftina „Þekkir þú ein- hvern sem hefur óeðlilegar matarvenjur?“ er talað um að „faraldur hafi gengið yfir“. Dr. Sölvína Konráðs, námsráðgjafi og sálfræðingur við skólann og höfundur bæklingsins, segir að hún hafi enga ástæðu til að ætla að ástandið sé betra í öðrum skólum og telur ekki líklegt að tilfellin verði færri nú í vetur. „Það fer ekkert milli mála að þetta er alvarlegasta vandamálið sem kom hingað inn til mín í fyrravetur og ég held að eiturlyfja- og áfengisneysla hér í skólanum sé miklu minna vanda- mál miðað við þetta,“ segir Sölvína. Sjúkdómurinn anorexia er mun algengari en sjúkdómurinn sem hefur hlotið heitið bulimia, enda sýndu mun fleiri stúlkur í MH ein- kenni fyrrnefnda sjúkdómsins. Þessi sjúkdómur hefur verið kall- aður „sultarstol" á íslensku, en Sölvína undirstrikar að það sé í raun rangnefni, því sjaldgæft sé að einstaklingursem þjáist af anorexiu ntissi raunverulega matarlyst, heldur afneiti hann þörfinni fyrir að nrerast á eðlilegan liátt. Að sögn Sölvínu er sjúkdómur- inn í raun af félagslegum toga á upphafsstigi sínu, en verður að geð- rænni meinsemd þegar hann áger- ist. Sölvína segist ekki vera i vafa um að tíðni sjúkdóntsins hafi aukist hér á landi síðustu 2—3 árin, þótt ekki séu til neinar áreiðanlegar töl- ur sem staðfesta það. Þetta virðist vera sjúkdómur sem kemur í sveifl- um, til dæmis sé ekki langt síðan slíkur faraldurgekk yfir Danmörku og Sviþjóð. Árið 1984 var talið að ein af hverjum 250 stúlkunr í Bandaríkjunum hefði einkenni anorexíu, en þremur árum síðar var talið að þær væru mun fleiri eða ein af hverjum 100. Talið er að 21% af þeim sem veikjast deyi. En hvernig getur staðið á þvi að sjúkdómur sem er geðræns eðlis gengur yfir eins og faraldur? Jú, að sögn Sölvínu virðist fjöldi tilfella á ári liverju mjög háður tísku. Ef tískuheimurinn heimtar að konur séu horaðar virðist það andi af hinu góða að læknar skuli í auknurn mæli vera farnir að starfa við þessar heilsuræktarstöðvar. Menn fara þá vonandi að sjá að líkamsrækt er til þess að byggja likamann upp, en ekki ræna hann því sem hann hefur." Anorexia leggst aðallega á stúlk- ur á aldrinum 11 til 18 ára, enda voru það eingöngu stúlkur sem greindust nteð einkenni sjúkdóms- ins í Menntaskólanunr við Hamra- Itlíð. Sölvína segir að ástæðurnar fyrir því að þær rak á fjörur hennar séu eins misjafnar og þær eru rnarg- ar. Öll tilfellin eigi það sameiginlegt að einstaklingurinn hafi byrjað megrun, sem síðan verður stjórn- laus. Þessar stúlkur séu yfirleitt góðar námsmanneskjur, duglegar og hæfileikaríkar. Fullkomnunar- árátta og sjálfsagi séu mjög áber- andi í fari þeirra, þær vilji gera allt vel sem þær taka sér fyrir hendur — líka það að megra sig. Þær stúlkur sem veikjast hafi yfirleitt aldrei átt við offituvandamál að stríða. Lö' Á annan tug tilfella kom upp i MH síðast- liðmn vetur. Ekki ástæða til að ætla að ástandið sé verra hjá okkur en í öðrum skólum, segir Sölvína sálfræðingur i MH. geta komið af stað anorexiu-far- aldri. Slíkur faraldur var fyrst skráður á sjöunda áratugnum þegar tískufyrirsætan Twiggy var fyrirmynd ungra stúlkna. Síðan þá hefur hver anorexiu-faraldurinn af öðrum gengið yfir, nú síðast með mikilli áherslu á líkamsrækt. „Ég efast ekki um að óábyrgar auglýsingar og umfjöllun frá ýms- urn líkamsræktarstöðvum hafi átt stóran þátt í þessu," segir Sölvina. „Það hefur meira að segja verið rekinn áróður fyrir því hvað það sé hollt að fasta, taka stólpípu eða lyf sem valda vökvatapi. Þetta tel ég að sé afskaplega óábyrgt. Það er í raun hrikalegt að fólk sem kennir leik- fimi skuli ekki vita meira um þessa hluti. Slík líkamsrækt á ekkert skylt við heilsu og hollustu, það er eitt- hvað öfugsnúið þegar konur sem eru innan við kjörþyngd fara að stunda leikfimi til þess eins að losa sig við einhver kíló. En það er von- Nú telur Sölvína semsagt að vandamálið sé komið á svo alvar- legt stig að hún hefur útbúið áður- nefndan bækling, senr fyrst og fremst er ætlaður til leiðbeiningar fyrir nemendur og kennara við MH. „Ég tel að það sé mjög áríð- andi að koma þessum skilaboðum áleiöis,“ segir Sölvína. „Krakkarnir sem eru hérna í skólanum tilheyra einmitt þeim aldursflokki sem er í mestri hættu. Kennararnir hafa tækifæri til að sjá ef eitthvað er að fara úrskeiðis, þeir umgangast unglingana oft meira en margir for- eldrar. Gamalreyndir kennarar eru líka oft mjög næmir á allar breyt- ingar og sveiflur í bekknum. Kenn- ararnir hér hafa tekið þessu mjög vel, ég held að algengustu viðbrögð- in hafi verið undrun og óhugnaður yfir því hvernig þessi sjúkdómur tengist neyslugildum, hvernig er hægt að miðstýra heilsu fólks gegn- urn tísku.“ ÞEKKIR ÞU EINHVERN SENI HEFUR OEÐLILEGAR MATARVENJUR? „Það sem er mest áberandi í fari þeirra sem þjást af anorexíu er áköf hræösla við offitu, brengluð mynd af eigin líkama, mjög áberandi þyngd- artap, afneitun á að halda lág- markslíkamsþyngd. Þegar sjúkdómurinn er kominn á alvarlegt stig finnst einstakl- ingnum jafnvel húðin vera merki um fitu, löngun til að hverfa líkamlega kemur fram...“ „Einstaklingursem þjáist af anorexíu vill ekki leita sér hjálpar, finnst hann ekki þurfa á því að halda, því er innlögn eða annars konar meðferð þvíngun. Þegar sjúkdómurinn hefur náð alvarlegu stigi eru líkamleg einkenni þrálátur bjúgur, hraður hjartsláttur, svitaköst, hár blóðþrýstingur og hár verður líflaust og fín- gert eins og á nýfæddu barni...“ „Ef anorexia er í uþpsigl- ingu komafljótt fram einkenni sem fylgja ekki venjulegri megrun. Ahersla á líkamlegt erfiði eykst, og sá tími sem varið er til þess lengist til muna...“ „Einstaklingurinn verður uppstökkur þegar líður að matartíma, heldur tölu um óhollustu þess matar sem á boðstólum er. Gerir allt til þess að koma af stað rifrildi til þess að komast f rá matarborð- inu á kostnað annarra í fjöl- skyldunni. Segist ekki geta matast undir þessum kring- umstæðum. Ef spurt er um svengd eða hvort einstakling- urinn hafi nærst kemur fram mikil reiði. Einstaklingnum finnst í raunaðslíkt séofsókn- ir. En á sama tíma kemur fram óeðlilegur áhugi á öllu sem viðkemur mat, nema að sjálf- sögðu að borða hann...“ „Því fyrr sem brugðist er við því betra. Ef fljótt er gripið inn í þetta ferli má komast hjá inn- lögn, og einstaklingurinn getur stundað nám eða vinnu jafnframt meðferð. Meöferðin er þá stunduð af geðlæknum eða sálfræðingum, oftast er fjölskyldan og jafnvel vinir fengnir til að styðja einstakl- inginn. Það er ekki auðvelt fyrir einstaklinginn að komast út úr þessum heimi ranghug- mynda og leyfa sér að borða eðlilega. Á sama tíma og verið er að aðstoða einstaklinginn til að ná heilsu þáglymurdýrk- un á horuðum líkömum alls staðar í þjóðfélaginu..." „Ef þú þekkir einhvern sem á við þetta vandamál að etja hlutastu til um að hjálp fáist! Ef þig grunar aö vinkona sé að byrja feriið talaðu um það við hana og fleiri vinkonur. Þú skalt ganga svo langt að ræða grun þinn við foreldra viðkom- andi. Þetta er ekki óþarfa af- skiptasemi, heldur ertu að gera þitt til að koma í veg fyrir að manneskja og fjölskylda hennar verði fyrir miklu áfalli. Ýmsar afleiðingar anorexiu geta verið ólæknandi!" (úr bæklingi Dr. Sölvinu Konráös)

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.