Pressan - 30.09.1988, Blaðsíða 26

Pressan - 30.09.1988, Blaðsíða 26
26,, PteRífcgíWl. 9aa--i „Hættur að geta farið á skemmtistaði" Viðtal við tœplega e/lefu ára leikara, Björgvin Franz Gíslason. É6.ER EKKERT „PROFESSJOHAt' Björgvin Franz Gíslason er fullgildur leikari í NÖRD, þó hann sé ekki hár í loftinu. Hann leikur son hjóna, sem eru reyndar foreldrar hans í raun og veru. Og bakt- erían virðist arfgeng, því Björgvin getur ekki hugsað sér að verða neitt annað en leikari. borga gjöld i svona mörgum félög- um? „Jú, það er það. En fyrir mér er þetta bara eins og hver önnur greiðsla til samneyslunnar. Þessum peningum er mun betur varið en þeim sem lara i skatta. Þeir lara í andstyggðar utanríkisþjónustu, skriffinna og kerfiskalla, a.m.k. alltof mikið af þeim. Annars er ég Irekar hlynntur skattheimtu og er mikill aðdáandi Jóns Baldvins, sem er eini fjármálaráðherrann í langan tíma sent hefur reynt að reka rikis- sjóð án halla.“ OFSTOPA MANN- OG DÝRARÉTTINDAMAÐUR — Hefurðu skoðanir ú ollu, Magnús? „Ég er lyrst og fremst ofstopa mannréttindamaður og ofstopa dýraréttindamaður. Og ég er of- stopa andstæðingur ríkisrekstrar. Ég vil að einkaaðilar reki atvinnu- vegina og ég held að einkaaðilar geti rekið menntakerfið og heil- brigðiskerfið líka. Ríkisvaldið á hins vegar að setja þeim leikreglur um samskiptin á markaðnum og ríkisvaldið á að vernda neytendur, fólkið og dýrin í nátlúrunni og náttúruna sjálfa. Eins og stendur þarf ríkisvaldið að reka þetta allt saman, en ég er sann- fíerður um aö þeir tímar korna að það verður hægt að slaka á klónni og færa þetta smátt og smátt ylir lil einkaaðila.“ — Erlu þá frjálshyggjumaður? „Ég er það. En hins vegar vil ég mikla skatlheimtu og tekjujöfnun. Ég vil að einkaaðilar reki atvinnu- vcgina, græði mikið og vel, en síðan vil ég ná obbanum af þeim tekjum inn í sköttum og deila þeim i sam- neysluna. Ég vil lá ókeypis menntun og heilsugæslu, en undir handarjaðri einkaaðila, því ríkisrekstur er alltaf óhagkvæmur. Embættismenn sem ekki vinna undir samkeppnisþrýst- ingi eru undantekningarlítið al'ar óskilvirkir. “ — En nú þykjasl menn vila að. einkarekstur og frjálshyggja hafa í för með sér ákveðið Hfsgœðakapp- hlaup. Varla Irúir þú á það? „Kannski er ég í mótsögn við sjálfan mig þegar ég held því fram að stressið og hraði þjóðfélagsins sé að eyðileggja fólk. Allt spanið stytt- ir líf þess um ár eða jafnvel áratugi. Fólk sefur ekki nóg, það hvílist ekki nóg, fólk vinnur of hratt, ekur of hratt, hugsar of hratt, gerir of margt. Þessi lífsmáti er skilgetið af- kvæmi samkeppninnar. Menn þurfa að fara að gera það upp við sig í eitt skipti fyrir öll hvort þeir vilja þjóðfélag sem hefur mikinn hagvöxt og mikla framleiðni, en slæmt, stutt og stressað líf þegn- anna. Mikið af sjúkdómum. En vandamál mannkynsins eru svo yfirþyrmandi að ég held að það þurfi að spenna bogann svolítið til að ráða bót á öllum sjúkdómunum og umhverfisvandamálunum. Síð- an held ég að við verðum að hægja mikið á þessu.“ VÍSINDALEGIR MIDILSFUNDIR — / símsvaranum þínum segir ekki bara að í þessu númeri búi Magnús Skarphéðinsson, heldur líka að þarnu sé aðsetur THraunafé- lagsins og Lífstefs. Hvaðu félög eru þetta? „LJfstef er útibú frá þessum fé- lögum sem við rekum hérna nokkr- ir saman, meðal annars Músavina- félaginu. Við flytjum til dæmis inn músagildrur sem hafa þá sérstöðu að þær drepa ekki mýsnar. Við lent- unt í því að það komu mýs í híbýli okkar og við vildum ekki fá mein- dýraeyði til að deyða þessi grey á kvalalullan hátt með arseniki. Við skriluðum út til nokkurra náttúru- verndarsamtaka og spurðum hvort ekki væri til einhver önnur leið til að losna við mýsnar. Þeir sendu okkur sýnishorn af músagildrum, plaslboxum sent mýsnar lokast inni í en bíða ekki neinn skaða af. Því- næst geta menn bara farið með þennan bauk út á víðavang og sleppt innihaldinu. Þetta helurgef- ið góða raun og Músavinafélagið ætlar að fara að hefja innflutning á þessum ágætu gildrum í stórum stíl. “ — Tilraunafélagið? „Tilraunafélagið hefur með eitt mitt stærsta hugðarelni að gera. Markmið þess er að skoða lífið í al- hcimi í víðu samhengi og samband alls lífs í alheinti. Ég er þeirrar skoð- unar að alheimurinn sé fullur af lífi og að allt þetta líf sé samkynja, við séum aðeins hlekkur í mikilli keðju. Ég tcl eins og forn-Grikkir að lílið hér á hnettinum sé komiö I rá stjörnunum og fari þangað aft- ur. Ég held að framlif jarðarbúa fari Iram í elnislegum líkömum á öðruin hnöttum, svo segja að minnsta kosti viðmælendur mínir á miðilsfundum sent við stundum i Tilraunalélaginu. Félagið heitir þessu nafni vegna þess að það stundar miðilstilraunir, sambands- fundatilraunir. Við getum náttúr- léga ekki kallað þetta annað en til- raui\ir, því maður veit ekkert fyrir víst, en ég segi bara eins og margir raunvísvndamenn sem Itafa rann- sakað þessi mál — yfirgnæfandi Ifkur bendá til þess að framhaldslíf sé til, að einstaklingsvitundin lifi af likamsdauðann. Tilraunalélagið reynir að vinna visindalega að þessu. Við tökum alla miðilsfundi upp á segulband, samræðurnar eru kerfisbundnar — yfirheyrslur mikl- ar ylir sambandsvinum okkar — og færum niðurstöðurnar inn á tölvu. Það er mjög merkileg heimsmynd sem kemur út þegar lagt er saman. í gegnum þá siðl ræði hef ég reynd- ar fengið flestar þær meinlokur sem ég geng með, þegar það fór að renna upp fyrir niér hver væri tilgangur Hfsins og alheimsins, að við erum bara gestir á þessum stað í stutta stund og að það hljóti að vera pláss fyrir allt líf á þessum hnetti. Eftir því sem ég hef skoðað þessi mál bet- ur hef ég sannfærst uni að það sé hægt að lifa hér á jörðinni án þess að drepa svo mikið sem eina einustu hagantús eða síld eða loðnu eða þorsk. Samt ætla ég ekki að halda því fram að það sé kominn tími til að leggja niður þorskveiðar. Ég held að þær verði að halda áfram um óvissan tíma, en eftir einhverja áratugi eða aldir — ég vona að ég lifi þann tíma — verður þeim hætt.“ — Þú ert algjör grœnmetisœta sjálfur? „Ja — mér finnst reyndar tómur skepnuskapur að éta grænmeti, þótt ég láti mig hafa það. Ég ét helst bara ávexti, því grænmeti finnur líka til, en ávextir eru fræ trjánna sem finna ekki sársauka. Ég hef ekki borðað kjöt eða fisk í sextán ár, drekk ekki mjólk og borða ekki ost eða sntjör. Ég geng ekki í leður- fatnaði, klæðist ekki afurðum dýra og borða þær ekki.“ EKKI ALLIR SORGMÆDDIR YFIR ÁKEYRSLUNNI — Hvað er annars að.frétta úr baráttunni gegn hvalveiðum? „Það er stund milli stríða, þótt mikið sé um að vera vestanhafs. Þar vinnur hcill her manna frá hinum ýmsu náttúruverndarsamtökum að því að hvetja fólk til að kaupa ekki íslenskan fisk. Þessi barátta ber rnjög mikinn árangur, ntun meiri árangur en sagt er hér. Ég hef það eftir áreiðanlegum heimildum að mjög fáir nýir samningar hafi veriðt gerðir við fisksölufyrirtækin vestra og að þrýstingurinn á þá sem hafa samninga við Islendinga aukist stöðugt. AUtaf gengur einn og einn úr skaftinu. Þetta getur ekki endað nema á einn veg, þvi þessi náttúru- verndarsamtök munu ekki unna sér hvíldar fyrr en þau eru búin að korna íslendingum í skilning um að þcir verði að viðurkenna alþjóðalög eins og aðrar þjóðir. Ég er þeirrar skoðunar að það vátri gjörsamlega óbúandi á þess- um hnetti ef aðrar þjóðir höguðu sér eins og við íslendingar í hvala- málinu. í mínum huga er ekki til efi um að þetta mál vinnst, ef ekki næsta sumar, þá þarnæsta sumar... Það væri mjög óskynsöm stjórn sem veiddi hvali næsta sumar ineð allt þetta yfir hausamótunum á sér, stóra hluta markaðarins ónýta og enn meira hrun framundan." — En baráttan hér heima? „Við hittumst reglulega og ræð- um málin, nokkur hópur. Mest okkar orka fer í samskipti við út- lendinga. Viðerum spurðir ráða um ýmislegt og égget ekki neitað því að við höfum ekkert latt þetta fólk aö setja þrýsting á verslun með íslensk- ar fiskafurðir erlcndis." — Nú ert þií frægasti talsmaður þessu óvinsœla málstaðar á Islandi. Er það ekki erfitt hlutskipti? „Jú, því miður hef ég orðið full- trúi þessa málstaðar. Þetta er skrautlegt lif sem hefur sínar ljósu hliðar, en náttúrlega sinar dökku hliðar líka. Ég hefði gjarnan viljað kjósa mér annan lífsstíl, kannski hefði það verið ágætt hlutskipti að verða embættismaður í þægilegri stöðu með góð laun. En einhverra hluta vegna gengur mér verr en öðr- um að bæla samvisku mína í þessu máli. Þetta er einhver eiginleiki sem ég hef og er vísast ekkert eftirsókn- arverður. En ég fer að minnsta kosti úr þessum heimi með góða sam- visku og bros á vör. Ég er ekki viss um að alveg allir muni geta státað af því.“ — Verðurðu fyrir aðkasti? „Já, all's staðar. Það líöur ekki sá dagur að ég fái ekki einhvern skæt- ing yfir mig, j>ó það sé ekki nema þetta þrungna augnaráð sem ég fæ þegar ég kem inn í verslanir eða á opinbera staði. Á skemmtistaði er ég alveg hættur að fara, því íslend- ingar verða svo klárir og gáfaðir þegar þeir eru komnir í þriðja glas að þeir eru algjörlega óviðræðu- hæfir um svona mál sem snerta þjóðrembuna. Ég nenni ekki lengur að hlusta á röflandi fyllibyttur. Og þó þetta virðist stundum saklaust gaman, einhverjir fimmaurabrand- arar, þá er auðvitað óskaplega leið- inlegt fyrir þolanda málsins að þurfa að hlusta á þetta árið út og ár- ið inn. Hundleiðinlegt. Svo eru auðvitað verri uppákont- ur eins og í mars þegar maður ók á mig í þrígang. Hann er örugglega ekki einn unt að hugsa þannig. Og þeir eru ýmsir sem eru ekkert sorg- mæddir yfir því að það skyldi hafa verið ekið á mig. Það hafa margir sagt það við mig — farið hefur fé betra...“ Flest börn hafa gaman af að bregða sér i ýmis gervi. Þau njóta þess að klæðast skrítnum búning- um og þykjast vera einhverjar allt aðrar persónur. Fæst þeirra Itafa hins vegar tækifæri til að leika „í al- vörunni". Oftast er það bara full- orðna fólkið, sem tekur að sér lilut- verk í leikritum — og þá er það líka vinna! Surnir eru þó heppnari en aðrir, eins og gerist og gengur í lífinu. Einn þeirra er Björgvin Franz Gíslason. Hann leikur i uppsetn- ingu Griniðjunnar á NÖRD, sem nú hefur verið tekið til sýningar í Gamla bíói, en er þó einungis tæp- lega ellefu ára gamall. Pressan hitti Björgvin að máli fyrir skemmstu. Hann var fyrst spurður uin tildrög þess að hann gerðist leikari. „Ég var nú bara fjögurra eða fimm ára, þegar ég lék fyrst. Það var í auglýsingu fyrir Meistarakök- ur. Seinna bað Magnús L>ór pabba minn (Gísla Rúnar Jónsson) um að leyfa mér að vera með á hljóm- plötu, sem hann ætlaði að gera. Ég söng inn á tvær plötur, Óla prik og Óla prik — besta vin barnanna. En mér finnst meira gaman að leika en syngja." — Hvaða tilsögn hefurðu fengið í leiklistinni? „Ég æfi mig eiginlega ekkert Pabbi minn hefur bara kennt mér með tímanum hvernig leikarar eiga að vera. En ég er ekkert „pró- fessjonal" leikari eða svoleiðis." — Geturðu nefnt mér einhverja reglu, sem góður leikari verður alltaf að hafa í huga? „Maður verður t.d. alltaf að tala fram til áhorfendanna og passa sig að snúa ekki baki í þá.“ — Er þetta fyrsta leikritið, sem þú kemur fram í? „Já. Áður hafði ég bara leikið í auglýsingum og svo í einni kvik- mynd. Það var Stella í orlofi." — Fœrðu ekki svolitla maga- pínu, þegar þú leikur uppi á stóru sviði og fjöldi fólks horfir á þig? „Ég fann mest fyrir þessu fyrst, en eftir því sem sýningunum fjölg- aði hvarf þetta alveg. Maður venst þessu og núna er ég bara eins og heima hjá mér á sviðinu. Við erum líka búin að leika þetta mjög oft. Fyrst vorum við á Hótel íslandi, svo fórum við með leikritið til Akureyr- ar og núna ætlum við að leika i Gamla bíói.“ — Þarftu að muna heilmikinn texta, Björgvin? „Nei, það er eigin- lega ekkert mikið. Á fyrstu æfingunum lásum við bara hlutverkin og fljótlega þurfti ég næstum aldrei að vera með text- ann. Ég mundi mest af þessu." — Hefurðu einhvern tímann gleymt hvað þú áttir að segja í miðri sýningu? „Það hefur aldrei gerst hjá mér. Ég vil nú ekki vera að monta ntig, en ég man stundum leikritið betur en allir hinir leikararnir. Það kemur fyrir að þeir gleyma öllu.“ — Hvernig finnst þér leikritið? „Æðislega skemmtilegt. Pabbi hefur líka bætt svo mörgu inn i það.“ — Hvað segja krakkarnir í skól- anum um það að þú skulir vera al- vöru leikari? „Ég veit það ekki. Þau segja ekk- ert sérstakt.“ — Ertu ákveðinn í því að verða leikari, þegar þú verður stór? „Já. Éngin spurning. Ég ætla Iíka kannski að verða töframaður eða leikstjóri. Það er a.m.k. allt i sant- bandi við leiklist.“ — Nú ertt bœði pabbi þinn og mamma (Edda Björgvinsdóttirj leikarar, svo þú þekkir starfið nokkuð vel. Er þetta ekki ógurlega þreytandi? „Ég vinn nú ekki eins mikið og þau á kvöldin. Pabbi þarf að gera peningamálin og svoleiðis, en ég get bara slappað af. Þegar ég verð orð- inn stór getur samt verið að ég þurfi líka að hringja mikið og svoleiðis. Svo er ennþá erfiðara að vera leikstjóri. Þetta er oft ansi erfitt fyrir pabba. Hann þarf að hringja í alveg ofsalega marga og borga mikla peninga. Það getur verið fúlt. “ — Heldurðu ekki að það sé van- þakklátt starf að vera leikstjóri og þurfa að skamma leikaranu og segja þeim til? „Pabbi minn er a.m.k. ekki þann- ig „týpa“. Hann reynir að vera mjög blíðlegur.“ — Hefurðu nokkurn tímann búið sjálfur til leikrit? „Já, stundum, en ég skrifa þau ekkert niður. Stundum eru þau nefnilega svo löng.“ — Manstu eftir einhverju sér- staklega eftirminnilegu frá sýning- unum á NÖRD? „Fyrsta kvöldið, sem við sýndum á Akureyri, gerðist fullt af mistök- um. Sumir gleymdu einhverju, sem þeir áttu að segja, og svo biluðu hátalararnir. En það kom ekkert fyrir mig.“ — Hvernig er persónan, sem þú leikur? „Þetta er mjög óþekkur strákur, sem á foreldra sem kunna ekki að ala hann upp. Hann hefur greini- lega horft á margar hryllingsteikni- myndir, því hann intyndar sér að NÖRD-inn sé skrímsli úr einhverri sögu.“

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.