Pressan - 30.09.1988, Blaðsíða 7
Föstudagur 30. september 1988
7
Betra að vera
örvhentur
Þaö eru mun meiri líkur á því
aö örvhentu fólki gangi vel í líf-
inu en rétthentu, ef marka má
niðurstöður breskrar rann-
sóknar á skólakrökkum. Örv-
hentir nemendur eiga vissulega
stundum erfitt meö aö meö-
höndla penna og skæri, en þeir
standa sig mjög vel í stærö-
fræði, tónmennt og íþróttum.
Og í hópi afburðanemenda er
þaö alltaf minnihluti, sem skrif-
ar meö hægri hendinni.
Ekki vitum viö hvernig þess-
um málum er háttaö hér á landi,
en samkvæmt glænýjum upp-
lýsingum fer örvhentum ört
fjölgandi í Evrópu. Álitiö er aö
þeir séu nú um tíu prósent
Evrópubúa, en veröi orönir um
fjörutíu prósent innan tíu ára.
Astæóan ertalin sú, aö börn eru
ekki lengur neydd til aö nota
hægri höndina, þegar þau sýna
tilhneigingu til aó nota fremur
þá vinstri.
Fraeg hljómsveit
með símatíma
Hljómsveitin Bros, sem er
afskaplega vinsæl meóal ungra
stelpna á Englandi, græöir ekki
bara á plötum og kassettum.
Piltarnir hafa tekið upp á þvi aö
tala inn á segulband, sem
áhangendur þeirra geta síöan
fengiö aö heyra ef hringt er í
ákveðin símanúmer. En síma-
gjaldið er mun dýrara en þegar
um venjulegt símtal er aö ræöa.
BlaðiðSunday Mirrorslóáþráð-
inn um daginn og komst aö
þeirri niðurstöðu aö þetta væri
vafasamt peningaplokk hjá
strákunum í Bros. Á segulband-
inu voru nefnilega ekki bara
raddir átrúnaöargoöanna.
Tónlist var látin lengja sím-
tölin og síðan komu stúlku-
raddir, sem hvöttu „hringjand-
ann“ til að hringja í öll hin núm-
erin. Kvenraddir heyröust líka
ræóa um hvernig það væri aó
komast í sturtu meö gæjunum i
hljómsveitinni. Aö lokum heyrö-
ist í strákunum sjálfum og þá
voru þeir m.a. aö ræöa um nær-
buxurnar, sem þeirværu í — eöa
væru ekki í. Þetta framferði
þykir svona um þaó bil síðasta
sort hjá mönnum sem vilja láta
taka sig alvarlega og hefur einn
þingmaður Verkamannaflokks-
ins hafið baráttu gegn þessu
uppátæki Bros.
Langar að leika
bangsa
Rokkstjarnan og leikarinn
Phil Collins afþakkaði um dag-
inn aöalhlutverkiö í kvikmynd-
inni The Phantom of the Opera,
sem margir kollegar hans heföu
gefiö mikiö fyrir aö fá. Collins
vildi frekar fá aö leika í mynd,
sem til stendur aö gera efti
ævintýrinu um Gullbrá og birn
ina þrjá. Væntanlegir mótleif.
arar hans eru heldurekki af ver i
endanum. Hinn enski Bob
Hoskins mun víst leika bangs ,
mömmu og hinn ameris><i
Danny De Vito leikur bangr
barniö. Phil Collins vonast sem
sagt til þess aö fá hlutvem
bangsapabba og er ekki aö
aö þetta verður athyglisverð
mynd.
NIS5AN
SUIMNY
BILASYNING
LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 2-5
Ingvar
i Helgason hff.
sýningarsalurinn,
Rauðagerði
Q) 91-3 35 60
SUNNY ER FAANLEGIIR:
SUNNY 3JA DYRA - SUNNY 4RA DYRA,
BlEÐI FRAMHJÓLA- OG FJÓRHJÓLADRIFIN
SUffMY 5 DYRA - SUNNY COUPÉ, SPORTBÍLL,
SUNNY skItbíll, BÆÐI FRAMHJÓLA- og fjórhjó
GETUt AFGREITT STRAX - JAFNVEL Á MEÐAN ÞÚ ÍÐUR
3JA ÁRA ÁBYRGÐ
KOMDU og|pjallaðu við okkur því kjörin eru hreint Iendanleg
PG
ADRIFINN