Pressan - 30.09.1988, Blaðsíða 21

Pressan - 30.09.1988, Blaðsíða 21
Föstudagur 30. september 1988 21 BJARNIFEUXSON FRÆGARIEN VIÐ Sykurmolarnir, elsku litlu englakrúttin sem allt varð vitlaust út af í Bretaveldi og síðan hér, ég endurtek síðan hér á íslandi, eru loksins komnir heim. Heim frá stóru Ameríku og öllum hótelunum og hamborgurunum, öll- um uppunum og unga fólkinu með öll hlutverkin. En er gott að vera kominn heim? Þór Eldon og Magga hljómborðs- leikari verða f'yrir svörunr: „Kalt.“ „En það er gott að vera konrinn aftur til Reykjavíkur, samt veit maður ekki hvort maður á nokkuð heima hérna lengur. Jú, annars er það ágætt, kælir mann aðeins niður. Annars erum við ekki „lent“ almennilega ennþá.“ — Voru þau orðin vön þessu tónleikaliferni? Þór Eldon svarar fyrir sjálfan sig: „Persónulega var ég orðinn mjög sáttur við þetta allt saman, mér finnst vanta eitthvað í líf mitt núna.“ Magga heldur áfram: „Það varð hálfgert spennufall þegar við komum heim, kunnum eiginlega ekki að taka það rólega lengur og bíðum spennt eftir næstu ferð.“ — Söknuðuð þið einhvers héðan? Þór er snöggur til: „Matarins og morgunverðarins." Magga bætir því við að Ameríkanar kunni ekki einu sinni að rista brauð hvað þá annað. Henni finnst líka ágætt að hvíla sig á Ameríku og það að fara heim orsaki ekki sáran söknuð. Þór biður Möggu að rétta sér sykur- mola út í heitt kaffið. Bætir því við að það sé ekki frá miklu að hverfa og að þau líti á þetta sem nýja reynslu. — Fyrstu tónleikarnir? „Það var í Washington, höfuð- borginni sjálfri. Frábær borg, með hvítan forseta í hvítu húsi og milljón svertingja allt í kring. Það er mesta hlutfall svertingja í Ameríku í Washington og maður tekur strax eftir því að hver og einn einasti þeirra er í þjónustustörfum. Við spiluðum þarna í smáholu sem heitir 930 og þarna var samankomið allt þetta lið sem maður sér í Evrópu, ungt fólk með hlutverk. Allir í réttu fötunum og með réttu greiðslunai" — Tónleikar á viku að meðal- tali? „Sennilega þrennir eða fernir og við fórum alveg í stóran hring um Ameriku; byrjuðum á vestur- GUNNAR H. ÁRSÆLSSON ströndinni, þaðan til Kanada þar sem við spiluðum tvo konserta, síð- an þvert yfir og spiluðum á austur- ströndinni, því næst suðurríkin og Flórída og síðan fórum við aftur upp og enduðum i New York þann 11. september. — Er eitthvað sérstaklega tninnis- stcett úr þessari ferð, eitthvað spaugilegt? „Það er náttúrulega svo margt, Ameríka er öll svo spaugileg, eigin- lega einn risastór en langsóttur brandari. Við hittum t.d. prinsessu í Hollywood sem rnálar portrett- myndir af frægu fólki. Hún varð svona ofsalega hrifin af okkur að hún stillti sér upp á svölum á tón- leikum með okkur í Los Angeles og málaði tvö portrett af okkur þetta kvöld. Við eigum annað. — Svona Uf að þeytast borga á tnilli, búa á lióteluin, er þetta skemintilegt líf? „Þetta er allt í lagi meðan maður getur þetta, en við vildum ekk vera að þessu um fimmtugt. Svo lengi sem við skemmtum okkur við þetta er allt í fína lagi. Samt sem áður er þetta ekkert áhugaverðara en 9—5- vinna hér heima, það er afstaðan til þessarar vinnu sem skiptir máli.“ — A þessari hringferð um Aineríku, var einhver inunur á áhorfenduin frá borg til borgar? þegar það var þannig að okkur fannst áhorfendur alveg ömurlegir, að okkur fannst við vera að „erfiða“. Það var kannski svona í mesta lagi fjórum sinnum sem við fundum fyrir því og það er lágt hlutfall að við höldum." — Urðuð þið vör við Islendinga á tónleikunum hjá ykkur? „Þeir voru á hverjum einasta konsert, alltaf einhverjir. í Holly- wood hittum við t.d. V-Islendinginn Karl Guðmundsson, sem er um sjötugt. Þarna var hann ásamt konu sinni og þau voru einmitt að halda upp á gullbrúðkaup. Af því tilefni ákváðu þau að fara og sjá þessa íslensku hljómsveit. Reyndar ætlaði bróðir hans að koma líka, en hann dó úr elli í vikunni fyrir tón- leikana." — Voru upphitunarhljómsveitir í för með ykkur? „Við höfðum tvær slíkar með okkur, Miracle Legion á vestur- ströndinni og í suðurhlutanum en Hugo Largo á austurströndinni. Það kom til tals áður en við fórum út að hljómsveitin Living Colors hitaði upp fyrir okkur í New York en það var gjörsamlega út í hött, því hún á svo eldheita aðdáendur að við hefðum haft Iítið að gera inn á svið- „Já, t.d. er Iiðið i New York rrijöa ið á eftir þeim.“ svona kalt, vanir heimsborgarar — Áttuð þið von á að uppselt sem hafa séð allt, en suðurfrá, í minni borgunum i Kaliforníu, kom fólk hinsvegar til þess að skemmta sér, sleppti sér miklu meira.“ — Getið þið gert upp á milli áhorfenda eftir borgum? „Almennt var góður mórall í allri ferðinni og það var alveg tilfallandi yrði 'á-alla konsertana neina einn? „Alveg eins. Þegar maður lítur á stærð staðanna sér maður að meðalstærðin hefur verið svona átta hundruð manns, stærstrstað| urinn var 1.800 manna staður.' — Var grundvöllur fyrir að spilc| á stœrri stöðum? „Alveg hiklaust, 3.000 manna staðir hefðu verið mátulegir fyrir okkur í rúmlcga helmingi þessara borga sem við spiluðum í. Það var uppselt á tónleikana langt Iram i tímann og svo voru langar biðraðir lyrir hverja tónleika. Þó mega stað- irnir ekki vera of stórir, vegna þess að við höfum ekki áhuga á að spila á einhverjum fótboltavöllum eða slíku. Við viljuni ná sambandi við áhorfendur.“ — Nú hafa bœði breska og bandurísku pressan verið að reyna að búa til itnyndaf Sykurmolunutn, in.a. með því að kalla Björk „sex- gyðju“ o.s.frv. Finnst ykkur þetta allt í lagi? „Þetta skiptir okkur engu máli, fólk vill hafa sína litlu guði sama hvort það er Björk, einhver kvik- myndaleikari eða steingeldur pólitíkus. Við höfum ekkert verið að ýta undir þetta og ekki heldur slegið á móti. En hvað varðar Björk þá sér hún sjálf um að afgreiða þá blaðamenn sem koma alveg slef- andi með stjörnur í augunum. Við erum að leika okkur með allt þetta lið. En við höfum hitt skemmtilega blaðamenn og lika alveg hrikalega heimska og leiðinlega. Þeir apa oftar en ekki hver upp eftir öðrum, t.d. með tónleikadómana." — Það hefur talsvert verið talað um að þið vœruð orðin moldrík og möluðuð gull. Er það svo? „Nei, alls ekki, og fólk má ekki í dag fer af stað hér I Rokkpress- unni tónlistargetraun sem fram- vegis mun birtast i síðasta tölu- blaði Pressunnar í hverjum mán- uði. Það eru þrjár spurningar í hverri getraun og best að vinda sér i þetta: 1. Hvaö heitir söngvari skosku hljómsveitarinnar Prefab Sprout? 2. Með hvaða hljðmsveit var að koma út plata sem ber nafnið „RANK“? 3. Eitt laganna úr íslensku kvik- myndinni Foxtrot heitir „Frosen Feelings11. Hver syngur þaö? Þar hafió þið það. Verðlaunin fyrirrétt svöreru ekki af verri end- anum. Fyrstu verðlaun eru Bond- stec BT 280 CD-geislaspilari með fjarstýringu að verðmæti 16.000 krónur frá versluninni Ópus. Önnur verölaun eru ACIKO- ferðaútvarpstæki með tvöföldu segulbandi að verðmæti 7.000 frá Ópus. Þriðju verðlaunin eru svo ACIKO-vasadiskó með útvarpi og, gleyma því að núna erum við aö uppskera eftir margra ára vinnu hér á landi og veru í hljómsveitum sem spiluðu kannski lyrir 15 mannseinu sinni í viku. Vissulega eru þetta við- brigði." —• En stendur til uð Sykurmol- arnir mali gull í framtíðinni? „Það cr náttúrulega fullur vilji hjá útgáfufyrirtækinu, en við erum ekki spennt fyrir því. Höfum ekki áhuga og þeir hjá útgáfufyrirtæk- inu vita það. Samt vilja þeir að viö spilum á stærri stöðum næst.“ — Frœgðin: Finnsl ykkur þið vera fræg? „Við finnum ckki neitt rosalega fyrir því hérna heima en meira úti. Það kom fyrir að lólk sneri sér við, gekk jafnvei upp að okkur og spurði hvort við værum í Sykurmol- unum. Það var ekki mikið um þelta og Bjarni Felixson cr örugglega frægari en við.“ — Og platan lieldur áfrctm að seljasl. Vitið þið hvað hún er komin hátt í sölu? „Það er um 350.000 eintök, þar af 250.000 i Bandaríkjunum. Senni- lega á hún eftir að seljast eitthvað meira svona hægt og bítandi, alveg eins og við erum ennþá að kaupa fyrstu ABBA-plöturnar!“ En lialdið þið að það verði áfram þessi mikla umfjöllun um ykkur eins og verið hefur, t.d. þegar nýja platan kemur út? „Ekki í bresku rokkpressunni en sennilega munu Ameríkanar hafa meiri áhuga á næstu plötu. Bret- arnir eru sennilega búnir að af- skrifa okkur, því ef einhverjum gengur vel í Ameríku þá loka þeir á þann sama.“ — Verður farið i að taka upp þessa plötu núna? „Nei, við förum fyrst til Banda- ríkjanna í október og verðum þar í tíu daga, en síðan förum við að taka upp. Vonandi verður hægt að taka sem mest upp hér. Og í byrjun des- ember verður farin tónleikaför um Evrópu.“ — Þannig uð það verða lítil jól lijá Sykurmolunum? „Þeir sem vilja mega fara heim og fá sér hangikjöt. Þeim verður ekki bannað það.“ Tónlistargetraun Rokkpressunnar upptöku aö verómæti 4.970 kr„ einnig frá Ópus. Þá er bara að svara sem réttast og senda úrlausnirnar hið snar- asta til okkar: ROKKPRESSAN C/O PRESSAN ÁRMÚLA 36 108 REYKJAVÍK Úrlausnir mega ekki berast seinna en mánudaginn 10. októb- er.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.