Pressan - 30.09.1988, Blaðsíða 6

Pressan - 30.09.1988, Blaðsíða 6
6, í íiti't ** .il m 88fif isdmeJqea OC upsbuíácH \Föstadagitr-'30..*öéþtfe>mbéM988 , Þegar sýktu börnin voru orðin 5 þrjú fóru læknar að efast um að um ftilviljun gæti verið að ræða og var íþá strax hafin mikil rannsókn á jmálinu á vegunt sjúkrahússins. Leitin að sýkingarvaldinum beind- ist fljótlega að mjólkinni, sem börnunum hafði verið gefin, vegna •greinar um hugsanlegar sýkingar af þeim völdum í útlendu læknatíma- riti. Erlendis hafði mönnum hins vegar aldrei tekist að sanna tengslin þarna á milli með óyggjandi hætti, en það hal'a íslenskir læknar nú gert og er í smíðum grein um efnið til birtingar í erlendu visindariti. Niðurstaða rannsóknarinnar á Landspítalanum varð sent sagt sú, að veikindi barnanna þriggja mtetti : rekja til mjólkurinnar, sent löguð hafði verið úr erlendu NAN- jmjólkurdufti. NÝBURUM HÆTTAST VID SÝKINGU • Margar bakteríur er raunar að , | finna í allri þurrmjólk, eins og í mat . r almennt. Það er óframkvæmanlegt ‘ að framleiða gjörsamlega sýkla- laust mjólkurduft. Um það gilda hins vegar ákveðnar reglur hvenær ||duftið telst komið yfir leyfileg niörk og er þess vandlega gætt að ‘MÍeinungis vara í hæsta gæðaflokki sé II flutt hingað til lands. ;; Þarmabakterían, sem olli heila- himnubólgunni hjá nýburunum, ij nefnist Enterbacter sakazaki. Þessa harðgeru bakteríu er að finna í mörgum tegundum mjólkurdufts, en hingað til hefur hún verið álitin ineinlaus með öllu. Að sögn lækna á Landspítalanum getur bakterían heldur ekki skaðað fullorðið fólk og börn eru talin óhult fyrir henni um leið og þau hafa náð 2—3 vikna aldri. Fram að þeim tíma er ónæmiskerfi þeirra hins vegar við- kvæmara, þar sem þau eru ekki komin með eðlilega bakteríuflóru í líkamann. Eins og fyrr segir er engin hætta á að börn vejkist undir venjulegum kringumstæðum af því að drekka þurrmjólkurblöndu. Greinilegt var þess vegna að einhverjar þær að- stæður höfðu skapast á sjúkrahús- inu, sem gerðu það að verkum að bakterían kom fram í mjólkinni í svo miklu magni að sýking hlaust af. Læknarnir, sem rannsökuðu þetta mál, kynntu sér því meðferð mjólkurinnar á spítalanum. Niður- staðan var sú, að ekkert væri athugavert við það hvernig duftið var blandað vatni í mjólkureldhús- irtu. Beindust því grunsemdir að meðhöndlun mjólkurblöndunnar á barnastofunni, þar sem hún var geymd í kæli og hituð upp. OF LENGI í HITARA í Ijós kom að bakterían Enterbacter sakazaki getur fjölgað sér í pela inni í kæli og einnig í pelum, sem hitaðir eru lengur en leiðbeiningarnar á þurrmjólkur- umbúðunum segja til um. Gunnar Biering yfirlæknir sagði í samtali við Pressuna að mjólkurpelarnir hefðu „væntanlega ekki lengið full- nægjandi meðferð“ á barnastof- unni. Það „gæti verið“ að ein- hverjir pelar hefðu verið hitaðir lengur en í þær þrjátíu mínútur, sem framleiðandinn tiltekur utan á umbúðunum. Þar gæti því „hugs- anleg orsök“ sýkinganna legið. Um leið og þetta mál kom upp var skipt um þurrmjólkurtegund á fæðingardeildinni, þó svo nú sé Ijóst að umrædd baktería getur verið til staðar í hvaða dufti sem er. Síðar voru ráðstafanir gerðar til að kaupa frá útlöndum dauðhreinsaða og tilbúna mjólkurblöndu í litlum glösum, sem hituð eru í örbylgju- ofni jafnóðum og þeirra er þörf. Það er því tryggt að bakteríusýking- arnar munu ekki geta komið upp aftur á Landspítalanum. Þegar niðurstöður Itinnar farald- ursfræðilegu rannsóknar innan sjúkrahússins lágu fyrir höfðu læknar samband við foreldra barn- anna þriggja. Samkvæmt upplýs- ingum Gunnars Biering var það m.a. gert til þess að fólkið gæti leit- að réttar sins í málinu. Stjórn Land- spítalans ákvað líka að setja málið í hendur ríkislögmanns. Einnig hafði landlækni verið tilkynnt um sýkingarnar og rannsóknina á or- sökum þeirra, svo hann gæti varað aðrar sjúkrastofnanir á landinu við hættunni af rangri meðhöndlun mjólkurblöndunnar. Hættan er hins vegar mun minni í dreifbýlinu, þar sem einungis eru lagaðir pelar fyrir eitt eða tvö börn i einu og þá oftast jafnóðum og þeirra gerist þörf. Gunnar Biering lagði ríka áherslu á að þau sýkingartilfelli sem hér um ræðir væru algjör undan- tekning. Milljónum barna um heim allan hefði verið gefin þurrmjólk- urblanda — áratugum saman — án þess að tilefni hefði gefist til hræðslu við sýkingar. Foreldrar ungra barna þyrftu því ekkert að óttast. Þeim væri óhætt að halda áfram að nota mjólkurduftið, af hvaða tegund svo sem það væri. Þrjú börn sýktust alvar/ega á fœðingar- deild Landspítalans vegna þess að þurrmjólkurblanda var ekki meðhöndluð á réttan hátt og hœttuleg baktería fékk tœkifœri til að fjölga sér í pelunum. Augljóst að ekki var farið að settum reglum segir Ólafur Ólafsson landlceknir. „Það fer ekki á milli mála að þarna urðu ákveðin mistök við meðferð þurrmjólkur. Það er alveg augljóst að það var ekki farið að settum reglum. Þetta var niður- staða landlæknisembtettisins sem send var í álitsgerð til heilbrigðis- ráðherra vegna þessa hörmulega máls,“ segir Ólafur Ólafsson land- læknir i samtali við Pressuna. Landlæknir segir að embætti hans hafi fyrir u.þ.b. einu og hálfu ári sent sjúkrastofnunum bréf þar sem bent var á hætturnar af með- ferð þurrmjólkur. „Þetta gerðum við strax eftir að þetta mál lá ljóst fyrir,“ segir Ólafur. „Það sem þarna gerðist er mjög óvenjulegt og ekki vitað til þess að slíkt hafi gerst áður. En þetta er stórt mál og við töldum að ekki hefði verið farið að settum reglum. Því sendum við ættmennum barn- anna þetta álit embættisins,“ segir Ólafur. — Nú hefur Landspitalinn grip- ið til þess ráðs að hœtta að gefa þessa þttrrinjólk og flytja þess í stað inn dauðhreinsaða tnjólk. Hafið þið beint því lil annarra sjúkrahúsa að gera slíkt hið sama? „Nei, en aftur á móti gera þessar stofnanir þær ráðstafanir sem nauðsynlegar eru og þetta á ekki að geta komið fyrir aftur ef farið er að settum reglum. Við verðum Iíka að gera okkur það alveg Ijóst að ævin- lega má búast við einhverjum mis- „Landlæknisembættið sendi sjúkrastofnunum bréf á siðasta ári þar sem bent var á hættuna af meöferð þurrmjólkur." Ólafur Ólafsson landlæknir. tökum hvar og hvenær sem er og þetta tiltekna dæmi, sem er senni- lega einsdæmi í heiminunt, sýnir að mistök geta alltaf átt sér stað.“ — Telurðu einhverja hœttu stafa af notkun þurrmjólkur í heimahús- um? „Það held ég að sé alveg útilokað. En þetta sýnir bara það að menn verða alltaf að vera vel á verði.“ Róðherrar haffa viðurkennt bótaskyldu segir Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra „Það er ljóst að þarna hafa orð- ið mistök. Það liggur fyrir álit ríkislögmanns á málinu og hefur hann gert það að tillögu sinni að bótaskylda ríkissjóðs sé viður- kennd,“ segir Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra. „Hins vegar segir ríkislögmaður að bótauppgjör sé e.t.v. ekki tíma- bært, þar sem ekki er ljóst hvernig fer með endanlegt heilsufar barn- anna þar sem enn er það skammt um liðið frá því að þetta gerðist. Þetta verði auðvitað gert með samkomulagi við foreldra barn- anna eða forráðamenn.“ Hafa heilbrigðisráðherra og fjármála- ráðherra þegar samþykkt bóta- skyldu vegna þeirra þriggja barna sem veiktust. Ráðherra segir að forráða- mönnum hafi þegar verið gert ljóst hvert málin séu komin. „Það er álit ríkislögmanns að bíða eitt- hvað með sjálft bótauppgjörið og eftir að bæði heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra samþykktu þessa tillögu og málsmeðferð rík- islögmanns fyrir u.þ.b. mánuði gerði hann foreldrum og forrráða- mönnum barnanna grein fyrir þessari niðurstöðu okkar,“ segir ráðherra. „Ég ætla ekki að setjast í dóm- arasæti yfir því sem þarna gerðist en það liggur fyrir að þarna hafa orðið mistök með hörmulegum afleiðingum og staðan í dag er sú að fjármálaráðherra og heilbrigð- isráðherra viðurkenna að bóta- skylda sé tvímælalaust fyrir hendi af hálfu ríkissjóðs. Eftir því sem ég best veit hefur foreldrum þegar „Heilbrigðisráðherra og fjármála- ráðherra samþykktu tillögu og málsmeðferð rikislögmanns um bótaskyldu rikisins." Guðmundur Bjarnason heil- brigðisráðherra. verið kynnt þetta og jafnframt sú tillaga að rétt sé að bíða með samninga um hugsanlegar bæt- ur. “ Ráðherra segir að þegar hafi verið gerðar ráðstafanir til að fyrirbyggja að svona atvik geti endurtekið sig, „en þetta kallar kannski á að menn hugi enn frek- ar að varúðarráðstöfunum á öðr- um sviðum og hefur þegar verið rætt við forstjóra ríkisspítalanna um þau mál“. Að sögn ráðherra hefur stjórnarnefnd ríkisspítal- anna einnig fylgst með þessu máli.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.