Pressan - 30.09.1988, Page 19
Föstudagur 30. september 1988
19
I
ÞRÓUN BRÚTTÓTEKNA FRÁ STOFNUN STÖÐVAR 2
Uppgangur Stöðvar 2 hefur m.a. komið fram í stórauknum tekjum.
Þessum fjármunum hefur verið varið í rekstrarkostnað, afborganir
lána og innlenda dagskrárgerð. Ólafur H. Jónsson er ábyrgur fyrir
því að ekkert fari úrskeiðis.
jgtB* tttíte
J tktti iiw tXMGUHÍi}**' *V$-J*M***
LANDSUÐS-
MÓRALUNN
TFYGGÐI
STOÐ2
Ólafur H. Jónsson, fjárhagsstjórí, afgreiddi
rekstrarvandann með þekktu leikkerfi:
„Sóknerbestavörnin“
Margir spáðu því í upphafi að dagar Stöðvar 2 yrðu ekki margir. Efb'r
nokkurra mánuða rekstur voru sögur um yfirvofandi gjaldþrot á hvers
manns vörum. Og kannski var sitthvað til í því. Auðvitað voru
fæðingartiríðir Stöðvar 2 erfiðar og þeir dagar komu sem starfsemin gekk á
bjartsýninni einni saman.
Þegar Ólafur H. Jónson gerðist meðeigandi í Stöð 2 og tók að sér
fjármál hennar varþví ærinn starfi framundan. Viðskiptafræðimenntun úr
Háskóla íslands, löng reynsla af sjálfstæðum atvinnurekstri og margra
á handboltavellinum sem fyririiði Vais og íslenska
landsliðsins reyndist traustur bakhjari. Fjármál Stöðvar 2 vorn á við marga
landsleiki við Sovétmenn og Svía og baráttan stóð frá morgni til miðnættis í
marga mánuði og leiknum er enn ekki lokið.
„Það er landsliðsmórall á Stöð 2. Hópurinn er stór og samhentur.
Það leggjast allir á eitt. Ég er fyrirliði á mínu sviði í rekstrinum. En fyrirliðinn
vinnur ekki leikina. Það gerir liðið. Markmiðið í dag er ekki bara að vera á
toppnum áfram. Við þurfum að vera þar vegna eigin verðleika en ekki
vegna þess að andstæðingurinn er veikur fyrir. Þá fyrst verð ég ánægður".