Pressan - 30.09.1988, Side 31
siénvarp um helgina
ISLENSKUR
STÖÐ 2
Föstudag kl. 21.45
PERFECT *
Bundarísk 1985. Leikstjórn:
Jantes Bridges. Aðalhlutverk: John
Travolta, Jainie Lee Curtis, Jann
Wenner, Anne De Salvo.
Heimskuleg frásögn af blaða-
manni hjá Rolling Stone
(Travolta) sem safnar efniviði í
grein um heilsuræktarstöðvar í
Los Angeles og verðuryfir haus
ástfanginn af þjálfara (Curtis).
Mynd byggð á vöðvadellunni og
miklum líkamshnykkjum. Það
eina sanna í myndinni er
Wenner, sem leikur sjálfan sig
sem ritstjóra popptímaritsins
Rolling Stone.
SJÓNVARPIÐ
Föstudag kl. 22.00
ÓGNVALDUR
UNDIRDJÚPANNA
(Shark Kill) ★ ★
Bandarísk sjónvarpsmynd 1976.
Leikstjórn: William A. Graham.
Aðalhlutverk: Richard Yniguez,
Philip Clark, David Huddleston,
Jennifer Warren o.fl.
Enn ein stælingin af JAWS;
tveir náungar fara að veiða stóra
hvita hákarlinn með stóru tenn-
urnar, að hluta til vegna
persónulegra hefnda við dýrið,
að hluta til vegna 10 þúsund
dollara verðlauna. Góðar neðan-
sjávartökur, verri myndataka
ofansjávar. Meðalmynd.
STÖÐ 2
Föstudag kl. 00.25
LITLA DJÁSNIÐ
(Little Treasure) ★
Bandarísk 1985. Leikstjórn: Alan
Sliarp. Aðalhlutverk: Margot
Kidder, Ted Danson, Burt Lancast-
er, Joseplt Hacker o.fl.
Nektardansmær ferðast til
Mexíkó í því skyni að hafa upp á
föður sínum sem hún hefur
löngu misst sjónar á. Ferðin
snýst hins vegar upp í leit að
týndum fjársjóði með banda-
rískum utangarðsmanni.
Hræðilegt handrit eyðilagði að
miklu leyti fyrstu kvikmynd
Sharps. Danson skástur leikar-
anna.
STÖÐ 2
Föstudag kl. 02.00
HETJUR FJALLANNA
(Mountain Men) ö
Bandarísk 1980. Leikstjórn:
Richard Lang. Aðalhlutverk:
Charlton Heslon, Brian Keith,
Victoria Racimo, Stephan Macht,
ofl.
Loðdýraveiðimenn í indiána-
hasar. Blóöug, heimskuleg og
þreytandi mynd í anda „góðu
gæjarnir — vondu indíánarnir".
Afleit.
SJÓNVARPIÐ
Laugardag kl. 21.15
EIN Á HREINU
(The Sure Thing) ★ ★
Bandarísk 1985. Leikstjórn Rob
Reiner. Aðalhlutverk: John
Cusack, Daphne Zuniga, Anthony
Edwards, Boyd Gaines o.fl.
Tveir háskólanemar, sem ekki
eiga skap saman, enda engu aö
síður saman á ferðalagi yfir
Bandaríkin. Ekki erfitt að geta
sér til um endinn, en sæt mynd
engu að síður í gamansömum
tón eftir leikstjóra STAND BY
ME.
STÖÐ 2
Laugardag kl. 21.50
1941 ★*
Bandarísk 1979. Leikstjórn:
Steven Spielberg. Aðalhlutverk:
Dan Aykroyd, Ned Beatty, John
Bestur árcmgur
STÖÐ 2
Sunnudag kl. 13.15
(Personal Best) ★ ★ ★
Bandarísk 1982. Leikstjórn:
Robert Towne. Aðallilutverk:
Mariel Hemingway, Scott Glenn,
Patrice DonneUy, Kenny Moore,
Jim Moody o.fl.
Ágæt viðbót við sendingarnar frá Ólympíuleikunum:
Tvær frjásíþróttakonur æfa hlaup fyrir Ölympíuleik-
ana 1980, verða ástfangnar og hefja lesbískt sam-
band sem þær reyna að halda leyndu. Grípandi kvik-
mynd með viðkvæmum leik. Leikstjórnin er dálítið á
afturfótunum og alltof margar nærmyndir af nökt-
um leggjum.
PERRY MASON
Mjög nýstárleg þáttaröd,
Röcld J'ólksins, liefsl á Stöð 2
nœstkomandi tnánudag. Efni
verðitr til nokkurs konar réttar-
halda um ákvedid málefni
hverjtt sinni, eða eins og segir í
nýiítkomnimt sjónvarpsvísi
stöðvarinnar: „Þátturinn er
hugsaður sem réttarhöid
borgarans og veróur sambland
afvitnaleiðshmi, líkt og þekkist
í réttarsölum, og umrœðuþœtti
þarsem þjarmað erað mönnum
tneö ágengum spurningum.
Réttað verður í eintt ágreinings-
mátli í hverjum þœtti og oft
vé'rður ein ákveðin spurning
brotin til mergjar og leitað svars
við henni. Máiefnin verða við-
vurandi deilumál á borð við
hvalveiðimá/ið, herstöðvar-
málið, einkavæðingu ríkisfyrir-
tœkja eða textun erlends efnis í
Jjöhniðlum. Einstakir menn og
stofnanir, jafnt opinberar sem
óopinberar, geta ált von á að
verða leidd fyrir réttinn. “ Þessi
réttarhöld munu Jara Jram á
Hótel Islandi annan hvern
mánudag klukkan 20.30 og er
aðgangur öllum heimill meðan
húsrúm leyfir. Dómari og um-
sjónarmaður verður sjónvarps-
stjórinn, Jón Óttar Ragnarsson,
en auk þess eru tólfmenn valdir
í kviðdóm sem fellir úrskurð í
þátlarlok.
Belushi, Treat Williains, Nancy AII-
en, Robert Stack og margir/leiri.
Stórbrotin gamanmynd frá
Spielberg-verksmiðjunni, þar
sem stærðin og „effektarnir"
skipta mestu máli. Stórkostleg-
ar senur, eins og múgæsing i
Los Angeles eftirárásinaá Pearl
Harbour. Myndin kafnar þó í
eigin þunga.
STÖÐ 2
Sunnudag kl. 22.15
SYNIR OG ELSKHUGAR
(Sons and Lovers) ★ ★ ★ ★
Bresk 1960. Leikstjórn: Jack
Cardiff Aðalhlutverk: Trevor
Howard, Deun Stockwell, Wendy
Hiller, Mary Ure, Heather Sears,
Williani Lucas o.fi
Frábær kvikmynd eftir sí-
gildri sögu D.H. Lawrence um
ungan, viðkvæman mann
(Stockwell) sem hvattur er af
móður sinni til að yfirgefa fá-
tæklegt heimili í kolaþorpinu og
drykkjusjúkan föður (Howard) i
því skyni að leita eigin framtíð-
ar. Freddy Francis hlaut Óskars-
verðlaun fyrir kvikmyndatöku.
Meistaraverk.
STÖÐ 2
Laugardag kl. 00.20
DRAUGAHÚSIÐ
(Legend of Hell House) ★ ★ ★
Bresk 1973. Leiksljórn: John
Hougli. Aðalhlutverk: Roddy
McDowall, Pamela Franklin, Clive
Revill, Gayle Hunnicutt.
Vel gerð spennumynd um
fjóra visindamenn sem dveljast
í húsi þar sem vart hefur orðið
við reimleika. Ekki venjuleg
draugamynd, en framkallar eigi
aðsíðurkaltvatn milli skinnsog
hörunds. Handrit eftir Richard
Matheson.
STÖÐ 2
Laugardag kl. 01.55
LAGASMIÐUR
(Songwriter) ★ ★
Bandarísk 1984. Leikstjórn: Alan
Rudolph. Aðalhlutverk: Willie Nel-
son, Kris Kristofferson, Melinda
Dillon, Rip Torn, Lesley Ann Warr-
en o.fj.
Ljúf söngvamynd, laus i rás-
inni og afslöppuð, um tvo sveita-
söngvara, annar er hættur í
bransanum en kemur til sög-
unnar þegar gamli félaginn
hans biður um aðstoö til að
klekkjaá illmenni nokkru. Ágæt
afþreying og mikið um góða
kántri-tónlist.
STÖÐ 2
Sunnudag kl. 23.55
MEISTARI AF
GUÐS NÁÐ
(The Natural) ★ * ★
Bandarísk 1984. Leiksljórn:
Barry Levinson. Aðalhlutverk:
Robert Redford, Robert Duvall,
Glenn Close, Kim Basinger, Wil-
ford Brimley o.fl.
Ævintýrasaga um ungan
mann úr sveitinni sem á alla
möguleikaáað verðastórstirni í
hornabolta. Hann flækist óvart
inn í ástamál og verður fyrir
byssuskoti, sem virðist binda
enda á ferilinn áður en hann
hefst. Stjörnunni skýtur aftur
upp og er þá orðinn roskinn
maður en kemur samt á óvart
með frábærum leik og rífur von-
laust lið sitt í úrslit. Vel gerö
mynd í örlitlum draumastil.
Kvikmyndatakan ofhlaðin og
myndin næraldrei heild en inni-
heldur margar frábærar senur.
Redford er hinn síungi Redford.
Duvall frábær sem harðsoöinn
íþróttaf réttaritari.
-*