Pressan - 04.05.1989, Blaðsíða 9
9
Fimmtudagur 4. mai 1989
Biarni P. oq
Sigrún með
100 þúsund
•
Vilhjálmur Þ.
með tæp 200
þúsund
BORGARSTJÓRNARMANNA
Borgarfulltrúarnir Bjarni P. Magnússon, Alþýðuflokki, og Sigrún
Magnúsdóttir, Framsóknarflokki, hafa rétt rúmar 100 þúsund kronur
ó mánuði fyrir störf að borgarmálum. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
S jálfstæðisf lokki, er með yfir 170 þúsund á manuði. Munurinn þarna á
milli er sá að Vilhjálmur Þ. starfar í mun fleiri og „feitari" nefndum en
þau Bjarni P. og Sigrún.
Borgarstjórnarmenn, sem einnig
sitja í borgarráði, hafa rúmar 100
þúsund krónur í lágmarkstekjur á
mánuði. Það fer síðan eftir nefnda-
setu hversu háar samanlagðar tekj-
ur borgarfulltrúa verða. Oftast fá
menn greitt mánaðarlega fyrir setu
í nefndum og ráðum borgarinnar.
Reykjavíkurborg greiðir borgar-
ráðsmönnum sínum mánaðarlega
75 prósent af þingfararkaupi al-
þingismanna. Það má þess vegna
líta svo á að starf borgarráðsfull-
trúa sé á milli þess að vera hluta-
starf og fullt starf. Það kemur heim
og saman við þá staðreynd að sumir
borgarráðsmanna sitja í fáum
nefndum en vinna önnur störf með-
fram starfi í borgarráði á meðan
aðrir vinna eingöngu að borgarmál-
um og starfa í tiltölulega mörgum
nefndum.
Alþingismenn fá greitt sitt þing-
fararkaup, 137 þúsund á mánuði,
og fá ekki aukagreiðslur fyrir setu í
nefndum á vegum þingsins. Aftur á
móti eru margir þingmenn duglegir
að komast í nefndir framkvæmda-
valdsins og þiggja peninga fyrir.
í borgarstjórn eru kosnir 15 full-
trúar i sveitarstjórnarkosningum á
fjögurra ára fresti. Borgarstjórn
heldur fundi tvisvar í mánuði og
tekur sumarfrí í júlí og ágúst. Borg-
arstjórnarfulltrúar fá 30 prósent af
þingfararkaupi.
EFTIR PÁL VILHJÁLMSSON
Borgarstjórn kýs fimm borgar-
ráðsmenn til eins árs í senn og auk
þess sitja borgarráðsfundi tveir
áheyrnarfulltrúar. Borgarráð held-
ur fundi einu sinni í viku og er í raun
framkvæmdastjórn Reykjavíkur-
borgar.
Háannatími borgarráðs er í des-
ember og janúar þegar unnið er að
gerð fjárhagsáætlunar fyrir borg-
ina. Fundir eru þá haldnir tvisvar í
viku og stundum unnið á laug-
ardögum.
Nefndir sem starfa á vegum borg-
arinnar krefjast mismikillar vinnu
af þeim sem þær sitja. Fjórir taxtar
eru í gildi fyrir setu í ráðum og
nefndum borgarinnar og er um að
ræða mánaðargreiðslur.
I. flokkur 17.933 krónur
II. flokkur 12.804 krónur
III. flokkur 7.683 krónur
Fjórði taxtinn er notaður til að
greiða fyrir setu í nefndum sem
funda óreglulega. Þá eru greiddar
2.560 krónur fyrir hvern fund.
Pressan tók saman greiðslur til
fimm borgarráðsmanna. Upplýs-
ingar um taxta fengust hjá Gunnari
Eydal borgarritara og nefndaseta
borgarráðsmanna miðuð við skrá
sem borgin gaf út í janúar 1988
undir heitinu „Stjórnkerfi Reykja-
víkurborgar”. Skráin er úrelt, því
ýmsar breytingar hafa verið gerðar
á nefndaskipan síðan hún var gefin
út og sumar nefndir raunar lagðar
af, til dæmis launamálanefnd.
Engu að síður gefa þessar upplýs-
ingar til kynna hvernig nefndaseta
skiptist á milli borgarráðsmanna og
hvaða laun þeir þiggja fyrir.
Árslaun eru reiknuð á þeim taxta
sem gildir í dag og inn í meðallaun-
in eru aðeins reiknaðar greiðslur
sem koma til vegna borgarfulltrúa-
starfsins.
VILHJALMUR Þ.
VILHJÁLMSSON MAGNÚS L. SVEINSSON SIGURJÓN PÉTURSSON
Sjálfstæðisflokki Sjálfstæðisflokki Alþýðubandalagi
Borgarstjórn: 494.647 Borgarstjórn: 494.647 Borgarstjórn: 494.647
Borgarráð: 741.971 Borgarráð: 741.971 Borgarráð: 741.971
Bygg.nefnd aldraðra: 92.196 Atv.málanefnd: 92.196 Stjórn Sparisj. Rv.: (ca.) 324.000
Hafnarstjórn: 153.648 Innkaupst., form.: 258.235 Veitustofnanir: 153.648
Launamálanefnd: (ca.) 153.648 Samtals krónur 1.587.049 Launamálanefnd: (ca.) 153.648
Stjórn sjúkrastofn.: 153.648 Meðallaun á mán. 132.254 Stjórn Landsvirkj.: 224.823
Skip.nefnd, form.: 258.235 Onnur störf: Stjórnarformaður VR Samtals krónur 2.092.737
Samtals krónur 2.047.993 Meðallaun á mán. 174.394
Meðallaun á mán. 170.666 Önnur störf: Á skrifstofu Trésmiðafé-
Önnurstörf: Engin lags Reykjavlkur
SIGRÚN MAGNÚSDÓTTIR BJARNI R MAGNÚSSON
Framsóknarflokki Alþýðuflokki
Borgarstjórn: 494.647 Borgarstjórn: 494.647
Borgarráð: 741.971 Borgarráð: 741.971
Nefnd um löggæslum: (ca.) 15.360 Svæðist.málefn. fatl.: 12.000
Nefnd Rvík.prófastsd.: (ca.) 15.360 Samtals krónur 1.248.618
Samtals krónur 1.267.338 Meðallaun á mán. 104.051
Meðallaun á mán. 105.611 Onnur störf: Vinnur hjá Skjásýn
Onnur störf: Kaupmaður