Pressan - 04.05.1989, Blaðsíða 28
r
■ addir eru uppi um að á næsta
aðalfundi Vinnuveitendasambands
íslands muni formaðurinn, Gunnar
J. Friðriksson, láta af þvi starfi.
VSÍ-menn munu vilja fá hvassari
talsmann og hefur nafn bjargvætt-
arins l.inars Odds Kristjánssonar
frá Flateyri oftast borið á góma...
I nýju fréttabréfi starfsmanna
Kíkisútvarpsins er greint frá þeim
tíðindum að Baldur Hermannsson
liafi verið ráðinn sem sérstakur
starfsmaður fyrir verkefnið „bú-
ferlaflutningur sjónvarpsins af
Laugavegi í Efstaleiti". Baldur var
sem kunnugt er hægri hönd Hrafns
Gunnlaugssonar er hann gegndi
starfi dagskrárstjóra innlendrar
dagskrár sjónvarpsins, en hvarf úr
starfi við brottför Hrafns í byrjun
árs. Hefur sérstakur forkönnunar-
hópur verið skipaður til að gera
frumdrætti að verkáætlun þegar
sjónvarpið færir sig á milli húsa, en
Baldur er sem fyrr segir skipaður
sérstakur starfsmaður þessarar
nefndar. Hefur ráðning hans í þetta
starf vakið ftirðu starfsmanna hjá
RÚV, sem vita lítt hvað staða þessi
felur í sér og hvort um fullt starf er
að ræða. Ekki var staðan auglýst
laus til umsóknar...
L
Bótelstjórarnir á Hótel Örk í
Hveragerði eru með ýmislegt á
prjónunum. í sumar ætla þeir t.d.
að halda bæði tennis- og golfnám-
skeið og einnig hefur heyrst að
hugsanlega verði efnt þar til þriggja
daga blústónlistarhátíðar með
haustinu...
yrir skömmu hætti Ólína Þor-
varöardóttir hjá fréttastofu ríkis-
sjónvarpsins og mun nú m.a. starfa
við málverndarátak menntamála-
ráðuneytisins. Þá flýgur sú saga
víða að framsóknarmenn hafi orð-
að við hana sæti á framboðslista
flokksins í Vestfjarðakjördæmi við
næstu þingkosningar, en Ólína er
ísfirðingur að uppruna . . .
Til þess að kynnast landi og þjóð er nauðsynlegt að leita út fyrir borgirnar.
Á bílaleigubíl, með lestum eða rútum, siglandi eftir skurðum og síkjum
eða jafnvel gangandi.
Norður-England og þjóðgarðarnir Lake District, North York Moors,
Yorkshire Dales og Peak District búa yfir heillandi ósnortinni
náttúmfegurð ásamt fjölskrúðugu jurta- og dýraríki sem löngum hafa heillað
göngugarpa og náttúruunnendur.
Cornwall. Að aka milli litlu fiskiþorpanna á Cornwallskaganum er eins
og að skjótast aftur í aldir. Myndræn fegurð t.d. Clovelly, Lynton og
Lynmouth er ógleymanleg og Jamaica-kráin á Bodmin Moor er jafn
dulúðug og í samnefndri sögu Daphne de Maurier.
Suður-England hefur sannarlega margt að bjóða þeim sem njóta vilja
sólar og skemmtunar. Einkar milt loftslag, ljós strandlengja, pálmatré og
annar suðrænn gróður hafa gert suðurströndina að einum vinsælasta
sumarbaðstað í norðanverðri Evrópu.
Wales. Óvíða er að fmna jafnmarga sögufræga kastala og kastalarústir og
í Wales. I grasi grónum hlíðunum, innan um sauðfé á beit eða sitjandi við
\ lítið vatn með stöng, gætirðu haldið að þú værir eina manneskjan í
\ heiminum.
Skotland. Skosku hálöndin hafa árum saman dregið að ferðamenn, með
hinu dularfulla Loch Ness, undurfagra Loch Lomond og hinu sérstæða
Great Glen, ekki síður en hinir heimsþekktu skosku golfvellir.
Leitaðu ekki langt yfir skammt. Fáðu nánari upplýsingar hjá
söluskrifstofum Flugleiða, Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni,
eða hjá ferðaskrifstofum og umboðsmönnum um land allt.
FLUGLEIDIR
BRESKA FERÐAMÁLARÁÐIÐ