Pressan - 04.05.1989, Blaðsíða 10

Pressan - 04.05.1989, Blaðsíða 10
10 Fimmtudagur 4. maí 1989 DAGSKRÁRGERÐARMÖNNUM Bjarna Degi Jónssyni var sagt að taka pokann sinn klukkustund áð- ur en útsending átti að hefjast á þætti hans, Af líkama og sál, mánu- daginn 3. apríl. Bjarni Dagur, sem er einn af fyrstu dagskrárgerðar- mönnum Stjörnunnar, telur sig hafa átt tvær vikur eftir af samningi við Stjörnuna. Jörundur Guðmundsson kom heim úr páskaferðalagi og var sagt að þátturinn sem hann var með á Stjörnunni, í hjarta borgarinnar, yrði ekki framar sendur út í loftið. Jörundur og sjö samstarfsmenn hans töldu sig hafa samning til 14. maí um vikulegan skemmtiþátt. í bæði skiptin var það Þorgeir Ástvaldsson sem tilkynnti dag- skrárgerðarmönnunum samstarfs- slitin. „Deilan snýst um það hvort í gildi hafi verið samningar við Bjarna Dag og Jörund. Ég tel svo ekki vera,” segir Þorgeir, en bætir við: „Ég ber samt fulla ábyrgð í þessu máli og vil ekki skjóta mér undan henni!’ Þorgeir viðurkennir að það hafi verið „talað um það” að Jörundur og félagar héldu þættinum áfram til vors, „en það var ekki fastmælum bundið”. Þorgeir veit minna um mál Bjarna Dags, enda gerði hann ekki samning við Bjarna Dag heldur meðeigandi Þorgeirs á Stjörnunni, Jón Axel Ólafsson. „Púkaleg framkoma" Samningarnir við Bjarna Dag og Jörund og félaga voru munnlegir. Að sögn Þorgeirs tíðkaðist ekki að gera skriflega samninga á Stjörn- unni. „Mér finnst þetta púkaleg fram- koma. Ég var með samning um að gera klukkustundarþátt fimm daga vikunnar og það voru ekki nema tvær vikur eftir af samningstíman- um. Þorgeir Ástvaldsson hafði samband við mig og spurði hvort ég vildi vinna þáttinn fyrir lægra kaup en um var samið. Ég féllst ekki á kauplækkun og þá sagði Þorgeir að Jón Ólafsson neitaði að þátturinn yrði sendur út. Þorgeir var miður sín út af þessu, en hann ræður litlu eftir sameininguna;’ segir Bjarni Dagur Jónsson. Bjarni Dagur fékk 5000 krónur fyrir hvern þátt og innifalin var undirbúningsvinna, sem oft tók þrjár til fjórar klukkustundir. „Uppsögnin er fruntaskapur og við ætlum ekki að sætta okkur við þetta” segir Jörundur Guðmunds- son. Jörundur og Guðmundur Ól- afsson, Magnús Ólafsson, Árni Scheving og fjórir aðrir hljóðfæra- leikarar unnu við þáttinn „i hjarta borgarinnar” og gerðu samning um vikulegan þátt á Stjörnunni til 14. maí. Jón Óddsson hæstaréttarlög- maður hefur tekið að sér að inn- Tveir vinsælir þættir á útvarpsstöðinni Stjörnunni, „Af líkama og sól" og „í hjarta borgarinnar", voru fyrirvaralaust teknir af dagskrá skömmu eftir að Stjarnan sameinaðist Byigjunni. Þeim starfsmönnum sem ekki fengu sparkið er gert að vinna fyrir lægri laun en áður. EFTIR: PÁL VILHJÁLMSSON — MYND: EINAR ÓLASON heimta peninga sem þeir eiga inni hjá útvarpsstöðinni. „Við gefum ekkert eftir í þessari deilu og ætlum okkur að fá þá peninga sem við eig- um inni, jafnvel þó það kosti máls- höfðunj’ segir Jörundur. „Þorgeir Ástvaldsson sagði mér að þættirnir væru teknir af dagskrá að kröfu Jóns Ólafssonar. Við fengum engan fyrirvara og þetta kom sér mjög illa fyrir okkur. Menn voru búnir að ráðstafa tekj- um sem samið var um og gerðu ráð fyrir að hafa þessa vinnu franr í miðjan maí. Ég sé heldur enga ástæðu fyrir því að þættinum var slátrað. Auglýsingar gerðu betur en að standa undir þættinum og hann skilaði hagnaði” segir Jörundur. „Ekki mitt mál" Pressan bar þessi mál undir Jón Ólafsson, stjórnarformann ís- lenska útvarpsfélagsins, en svo heit- ir hlutafélagið sem rekur Stjörnuna og Bylgjuna. „Þetta er ekki mitt mál. Talaðu við Þorgeir Ástvalds- son. Hann er maðurinn sem réð Jörund og félaga og hann rak þá’’ Bylgjustjór- inn Jón Ól- afsson rœð- ur öllu eftir sameiningu við Stjörn- una. Máls- höfðun yfir- vofandi. sagði Jón. Aðspurður sagði Jón að íslenska útvarpsfélagið bæri ekki ábyrgð á þeim samningum sem Stjarnan gerði fyrir sameiningu. Jón kannaðist við að hafa fengið bréf frá lögmanni Jörundar, en hann hefði vísað því til Hljóðvarps, sem var rekstraraðili Stjörnunnar fyrir sameiningu. Þorgeir Ástvaldsson kannast ekki við að hafa sagt við Bjarna Dag og Jörund að Jón Ólafsson væri maðurinn sem ákvað að taka af dagskrá þættina „Af líkama og sál” og „í hjarta borgarinnar”. „Eftir sameininguna var stofnuð rekstrarstjórn og hún fer með dag- legan rekstur útvarpsstöðvanna. í rekstrarstjórninni sitja Páll Þor- steinsson, Jón Ólafsson og ég,” seg- ir Þorgeir. Hann sagði rekstrar- stjórnina sameiginlega bera ábyrgð á málum stöðvanna tveggja. Bylgjan innbyrti Stjörnuna Það fréttist af sameiningu Bylgj- unnar og Stjörnunnar helgina 11. og 12. mars. Á baksíðu DV mánu- daginn 13. rnars birtist mynd af út- Jörundur Guðmundsson á góðri stundu með Kristjáni Jóhannssyni söngvara í þætt- inum „í hjarta borgarinnar". Jörundur og aðrir aðstendur útvarpsþáttarins telja sig hafa orðið fyrir samningssvikum og háta málaferlum. Mynd/Einar Ól. varpsstjórunum Páli Þorsteinssyni á Bylgjunni og Þorgeiri Ástvalds- syni á Stjörnunni þar sem þeir skál- uðu fyrir átburði helgarinnar. Stjarnan varð undir í samkeppn- inni við Bylgjuna og var komin í þrot. Eigendur Stjörnunnar voru Ólafur Laufdal veitingamaður, sem átti þrjár milljónir af fimm milljón króna hlutafé, Þorgeir Ástvaldsson, Jón Axel Ólafsson plötusnúður, Gunnlaugur Helgason plötusnúður og Ólafur Axelsson, hver skráður fyrir 500 þúsund króna hlutafé. Þeim sem þekkja til ber saman um að Jón Ólafsson, aðaleigandi íslenska útvarpsfélagsins, sem rek- ur Bylgjuna, sé höfuðsmiður að sameiningunni. Það er reyndar vafasamt að tala um sameiningu því hlutafélagið sem núna á Bylgjuna og Stjörnuna heitir íslenska út- varpsfélagið. Það sem gerðist í raun er það að Stjarnan var sett undir- yfirstjórn Bylgjunnar gegn þvi að eigendur Stjörnunnar fengju 30 prósent hlut I íslenska útvarpsfélag- inu. Þessi skipti voru staðfest á hluthafafundi 21. mars og Jón Ól- afsson og hans menn fengu þrjá fulltrúa af fimm í stjórn. Jón var kosinn stjórnarformaður og jafnframt ráðinn til að sjá um rekstur útvarpsstöðvanna. Núna gerðust hlutirnir hratt. Þrælasamningar Starfsmönnum var sagt upp á stöðvunum tveim. Þeir sem var boðið að koma aftur til starfa máttu sætta sig við mun verri kjör. Helgi Rúnar Óskarsson var starfsmaður Stjörnunnar. Honum var boðið að halda starfinu en fá minna kaup og vinna meira. „Mér var boðinn samningur þar sem ég hafði þriðjungi lægra kaup, en átti að bæta við mig fjórðungi meiri vinnu. Mig grunar að fleiri hafi fengið svipað tilboð!’ segir Helgi. Helgi féllst ekki á að vinna fyrir þau kjör sem í boði voru og hætti störf- um. Svo var einnig um fleiri starfs- menn. „Ég er ekki tilbúinn til að ræða um innviði okkar félags, það er mál félagsins sjálfs” er svar Jóns Ólafs- sonar við spurningu blaðamanns um lækkuð laun starfsmanna. „Það er ömurlegur mórall á Bylgjunni og Stjörnunni eftir sam- einingu!’ segir dagskrárgerðarmað- ur sem hætti stöfum nýverið. Jóni Ólafssyni er kennt um hvernig komið er fyrir vinnuandan- um á útvarpsstöðvunum og hann sagður óþarflega þjösnalegur í framkomu. Bjarni Dagur segist alltaf hafa borið blak af Jóni, enda þekkt hann frá fyrritíð. „Það segja flestir hann skíthæl, en ég hef hald- ið uppi vörnum fyrir hann|’ segir Bjarni Dagur.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.