Pressan - 04.05.1989, Side 13

Pressan - 04.05.1989, Side 13
Fimmtudagur 4. maí 1989 13 PRESSAN spyr nokkra karlmenn hvað þeim finnst Hvað gerir konur kynþokkafullar í augum karl- manna? Sjö karlmenn svara beirri spurningu og ?|reinilegt er að þeir hrífast eklci allir af því sama í ari kvenna. Sem betur fer! VIÐTÖL: JÓNÍNA LEÓSDÓTTIR — MYNDIR: EINAR ÓLASON Smekkur manna er sem betur fer misjafn. Það, sem mér finnst fal- legt, þykir þér kannski forljótt. Og öfugt. Svona er þessu t.d. farið með smekk karla og kvenna á fólki af gagnstæða kyninu. Sumir leggja mikið upp úr andlitsfegurð, aðrir hrífast helst af fallegum augum og svo framvegis. En skyldi vera hægt að finna ein- hvern samnefnara yfir það, sem telst „sexý“ eða kynþokkafullt? Við könnuðum málið með því að spjalla við sjö karlmenn og kanna hvað það væri helst í fari kvenna, sem þeim þætti gera þær aðlað- andi. Svörin voru misjöfn, en mennirnir voru þó allir á því að framkoma og persónuleiki skipt meira máli en einhver ákveðin út- litseinkenni. kynþokkafull. Eiginlega fer það fyrst og síðast eftir því hvernig kon- an ber sig. Hvort hún ber sig eins og kona, sem þorir að vera kona. „Hráefnið“ er sem sagt ekki aðal- atriðið, heldur hvað konan gerir úr því!“ GESTUR ÚLAFSSON arkitekt: EMIL ÖRN KRISTJANSSON hjá Nor- rænu ferðaskrifstofunni: Skynjunaratriði „Það er eins með konur og borg- ir. Það er ekki nóg að þær séu heill- andi í fjarska, heldur verða þær líka að vera áhugavekjandi, þegar nær dregur. Eg fæ strax á tilfinninguna hvernig persónuleiki einhver mann- eskja er, bara af því að sjá hana og tala við hana nokkur orð. Þessi „til- finning" hefur sjaldan brugðist mér, því persónan geislar oftast út frá fólki. Þetta er þess vegna skynj- unaratriði. Það er hins vegar ljóst að kona er tæpast áhugaverð, ef það er ekkert í höfðinu á henni. Hver vill bók með einungis einni blaðsíðu?! Kvenleikann má heldur ekki vanta. Ein uppáhaldsleikkonan mín, Jeanne Moreau, er dæmi um konu með gífurlegan kvenleika. Maður þarf ekkert að velta því fyrir sér hvort þetta sé kvenmaður eða ekki! Hún bókstaflega geislar af kvenlegum töfrum. Þegar ég hitti konu í fyrsta sinn reyni ég að horfa mjög vel á hana og taka eftir þessum smáatriðum í fari hennar. Það er afar mikilvægt að menn séu með skilningarvitin opin, þegar þeir hitta fólk, ef þeir ætla að komast að einhverju um viðkom- andi. Annars er ég farinn að halda að ísland bjóði eiginlega ekki upp á það að konur þroskist hér almenni- lega. Þetta á raunar líka við um karla. í stærri og fjölbreyttari þjóð- Hún verður að bera sig vel „Það eru auðvitað margir sam- verkandi þættir, sem valda því að kona er kynþokkafull, en mér finnst augun skipta þar miklu máli. Þau eru það fyrsta, sem ég tek eftir í fari kvenna. Það getur hins vegar aldrei verið bara eitthvert eitt atriði, sem skiptir öllu máli. Það er t.d. ekki hægt að slá því fram að allar konur með stór brjóst og stundaglasvöxt séu sexý. Kona, sem alls ekki Iíkist þeirri stöðluðu ímynd, getur verið mjög

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.