Pressan - 04.05.1989, Side 18
18
PRESSU
lc
BvÉkeppnin um Ungfrú ísland
fer fram á Hótel íslandi á annan í
hvítasunnu. Erlendir aðilar hafa
sýnt þessari keppni áhuga eftir að
Hólmfríður Karlsdóttir gerði garð-
inn frægan 1985 og ekki ætti
áhuginn að hafa minnkað eftir sig-
ur Lindu Pétursdóttur í vetur. Aðr-
ar stúlkur sem þátt tóku í keppninni
í fyrra hafa heldur ekki orðið til
annars en auka hróður íslenskrar
fegurðar á erlendri grund. Guðrún
Margrét Hannesdóttir er nýkomin
úr keppninni Miss Wonderland á
Taiwan, þar sem hún komst í úrslit
af 80 keppendum. Miss Wonder-
land er sama keppnin og Miss Yo-
ung International sem Henny
Hermannsdóttir sigraði í árið 1970
en í fyrra sendu íslendingar í fyrsta
sinn keppanda í Miss Wonderland,
Sigríði Guðlaugsdóttur, sem náði
þriðja sætinu. Guðbjörg Gissurar-
dóttir, sem varð númer tvö í Fegurð-
arsamkeppni íslands í fyrra, hefur
haft í nógu að snúast, því þar sent
Linda sigraði í sinni fyrstu keppni,
Miss World, kom það í Guðbjargar
hlut að sækja tvær keppnir. Hún
komst í tíu stúlkna úrslit í keppn-
inni Miss International, sem haldin
var í Tokýó í haust, og í lok maí tek-
ur hún þátt í keppninni Miss Uni-
verse. Guðbjörg getur átt von á enn
frekari ferðalögum því Ungfrú
Reykjavík 1988, Guðný Elísabet
Óladóttir, varð móðir fyrir
skömmu og hefur því um annað að
hugsa í bili...
Íréttir um myglað nautakjöt,
sem fór á markað á Reykjavíkur-
svæðinu eftir að hafa fengið bless-
un yfirvalda, hafa vakið verðskuld-
aða athygli. Það er í raun ekkert
nýtt að óneysluhæft kjöt berist suð-
ur, sérstaklega frá fámennari stöð-
um langt frá suðvesturhorninu, sem
þurfa að nota seinvirk og óviðeig-
andi samgöngutæki. Eitt sýni sem
tekið var af yfirborði kjötsins leiddi
í ljós, samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR, 800 þúsund
óæskilega gerla á einum fersenti-
metra, — þrátt fyrir vísindalega
meðhöndlun SÍS og hins opinbera.
Þetta „girnilega“ kjöt mun hafa
komið frá Vopnafirði. Talað er um
að kjötið hafi skemmst á leiðinni,
en aðrar raddir herma að kjötið
hafi verið 10 daga gamalt þegar það
lagði af stað . . .
FJOLBREYTT URVAL POKKUNARVÉLA • LOFTTÆMINGARVELAR OG -POKAR
fjármálaráðherrann Ólaf Ragnar
Grímsson. Hámarki náði óánægj-
an eftir hinn harðvítuga fund sem
ráðherra átti með HÍK-kennurum á
þriðjudaginn. Þá eru þeir sagðir
sérlega óánægðir með hve mál-
gagnið, Þjóðviljinn, hefur lítt tekið
undir kröfur þeirra en fylgt eftir
sjónarmiðum ólafs Ragnars. Er
okkur tjáð að margir þeirra hafi
tekið sig til og sagt upp áskrift að
Þjóðviljanum í mótmælaskyni...
'kafmiðahappdrættið Fjark-
inn heldur aðalfund á næstunni.
Fjarkamenn eru að rétta úr kútnum
eftir ýmis áföll undanfarið. Meðal
annars voru skafmiðar prentaðir í
stóru upplagi í Bandaríkjunum, en
það reyndist nær ómögulegt að
skafa af miðunum auk þess sem
táknin voru ólæsileg. Núna horfa
eigendur Fjarkans, HSÍ og Skák-
sambandið, björtum augum á
framtíðina enda salan stigið undan-
farna mánuði...
TOLEDO VOGIR
FRÁ TOLEDO-USA GETUR
PLASTOS HF BOÐIÐ VOGIR FRÁ
LITLUM RANNSÓKNARVOGUM í
STÓRAR BÍLVOGIR OG NÁNAST
ALLT ÞAR Á MILLI.
TOLEDO-6400
U-pallur vogarþol að 3 tonnum
Með heilum palli
Fyrir sekki og kassa
Með brettastækkun fyrir
bretti stærri en Euro
Með uppkeyrslu-
braut
Meðal stórir vagnar
Hæð upp á vogina aðeins 30mm
Með uppkeyrslubraut
Stórir vagnar
KRÓKHÁLSI 6 SÍMI 671900
.BAR-CODE" STRIKAMERKIVELAR • KASSABINDIVELAR • KASSALIMBANDSVELAR L’
maður haldið að ferðaskrifstofur
væru lokaðar, en Ferðaskrifstofan
Útsýn hefur auglýst „opið hús“ og
er þar hægt að sinna öllum ferðaer-
indum jafnt og á virkum dögum.
Mun vera komin nokkurs konar
ii
m kvöldmatarleytið á
sunnudag upphófst mikill eltinga-
leikur lögreglu við ökumann vegna
meintrar ölvunar (hins síðar-
nefnda). Leiknum lyktaði á þann
veg að lögreglubíllinn ók inn í bif-
reið ölvaða mannsins á Kringlu-
mýrarbraut. Þeir sem vitni urðu að
eltingaleiknum telja hins vegar vafa
leika á hvort lögreglan hafi gert sér
fyllilega grein fyrir þeirri hættu sem
gangandi vegfarendum og öðrum
ökumönnum stafaði af þessum elt-
ingaleik. Sá sem eltur var ók á
fleygiferð inn Rauðarárstíginn og
sveigði þar upp á gangstétt, þar sem
hópur fólks var að fara inn á gang-
brautina við Hlcmnt. Víðaerlendis
fara lögreglumenn hægt í sakirnar
við stöðva ölvaða ökumenn með því
að elta þá með sírenuvæli og log-
andi ljósum, enda reynslan kennt
þeim að þá fyrst er hinn almenni
borgari í stórhættu . . .
ramtíð fjármálastjóra Bylgj-
unnar og Stjörnunnar mun vera í
mikilli óvissu. Enn sem komið er
gegna fjármálastjórarnir gömlu
stöðunum sínum, Sigurður Thorar-
ensen fyrir Stjörnuna og Ólafur
Njálsson fyrir Bylgjuna. Þeir eru að
ganga frá fjármálum stöðvanna
hvor í sínu lagi, en á meðan stýrir
Jón Ólafsson, stjórnarformaður ís-
lenska útvarpsfélagsins, fjármálum
sameinuðu stöðvanna. Jón rekur
ennfremur fyrirtæki sitt Skífuna og
verður því væntanlega fjármála-
stjóri í skamman tíma. Þá þarf að
ráða nýjan fjármálastjóra í ís-
lenska útvarpsfélagió og þá er eðli-
legt að fólk velti því fyrir sér hvort
annaðhvort Ólafur eða Sigurður fái
þá stöðu, eða hvort ráðinn verður
nýr fjármálastjóri sem við hvoruga
stöðina hefur starfað...
1^1 ýtt kvikmyndagerðarfyrir-
tæki hefur litið dagsins ljós. Nefn-
ist það Kvikmyndafélagið Nýja bíó
hf., en aðstandendur þess eru kvik-
myndagerðarmennirnir Guðmund-
ur Kristjánsson, Hilmar Oddsson
og Þorgeir Gunnarsson, ásamt
Sonju B. Jónsdóttur, fyrrum frétta-
manni hjá ríkissjónvarpinu...
Itl k pólitiskur urgur er
kominn upp innan raða alþýðu-
bandalagsmanna í BHMR vegna
kjaradeilunnar við formanninn og
I dag, fimmtudag, er uppstign-
ingardagur — hefðbundinn Iokun-
ardagur verslana og flestra annarra
fyrirtækja. Samkvæmt því gæti
Fimmtudagur 4. maí 1989
hefð fyrir því í ferðabransanum að
hafa þessi svokölluðu „opnu hús“ á
fridögum, en það virðist vera nýtt
orðalag yfir það að skrifstofurnar
séu einfaldlega opnar, eins og það
heitir á hvunndagsmáli...
FÓTBOLTAR FÓTBOLTASKÓR
IÞRÓTTASKÓR
IÞRÓTTATÖSKUR MARGAR GERÐIR
IÞRÓTTABÚNINGAR ÆFINGAGALLAR
TRIMMGALLAR
Topp gaeðt og verð
ÁRMÚLA 36, REYKJAVÍK, SÍMI 82166 OG 83830.