Pressan - 04.05.1989, Qupperneq 25
Fimmtudagur 4. maí 1989
39r ism .iMupsduímmH
spáin
vikuna 4. maí—11. maí.
(21. mars — 20. april)
Vinna sem þú innir af hendi á næstu
dögum gæti skilað þérvænni launaupp-
bót. Hafóu hugfast aöyfirmenn þinireru
að leggjamat á vinnuna, þannig að aukin
tilþrif koma sér mjög vel. Passaðu þig á
þvi að Ijúka verkefnum þínum á áætlun
og helst fyrr. Helgin gæti orðið mjög
vænleg fyrir rómantiskt stefnumót.
(21. april — 20. mai)
Taktu daginn snemma á næstunni.
Morgunstundin er heppilegust til að
hrinda nýjum áætlunum i framkvæmd.
Reiknaðu líka með að fá mikilvægt sím-
tal á þessum tíma. Núna er einnig rétti
tíminn til að hressa upp á útlitið. Gæti
jafnvel borgað sig að kaupa sér ný föt, því
þú geturátt von áað þurfaað heilla mikil-
vægan aðila meö framkomu þinni og út-
liti.
\ (21. mai — 21. júni)
Núna er sérlega góður timi til að
gleðja ástvin meó gjöf eða jafnvel blóm-
um. Tilefnið þarf ekki að vera neitt sér-
stakt, og slik gjöf myndi gleðja enn meir
en ella. Hafðu það hugfast að þér gæti
gengið mjög illa að fá fjárhagslega
skuldbindingu frá mikilvægum við-
'skiptaaðila á næstu dögum. Þvi gæti
borgað sig að leita eitthvert annað.
WW (22. júní — 22. júlí)
Láttu vanabundin störf ganga fyrir á
næstunni. Þetta er slæmur timi til
ákvarðanatöku og betra væri fyrir þig, ef
þú gætir falið öðrum slíka hluti. Þetta er
heldur ekki góður timi til að stofna til
nýrra kynna við gagnstæða kynið. Ef þú
ert einstæður skaltu frekar gefa þér tima
til að ná áttum i lifinu áður en þú skuld-
bindur þig.
(23. júlí — 22. ágúst)
Varastu eins og heitan eldinn að lenda
i vafasömu ráðabruggi i vinnunni. Það
borgar sig alls ekki að taka málstað ann-
ars aðilai vinnudeilu, nemaþú sért sann-
færóur um rétt þeirrar manneskju. Það
kann að vera, að einhver standi í bak-
tjaldamakki sem þú veist ekki af. Samn-
ingar sem virðast veraof góóir til að geta
verió ekta eru það að öllum likindum.
i framhjqhlaupi
Rannveig Guömundsdóttir
aöstoöarmaöur félagsmálaráöherra
Roluqanqur fer mest í
tauqamar i mérí
— Hvaöa persóna hefur
haft mest áhrif á þig?
„Ef ég á að miða við þroska
minn sem manneskju held ég
að systkini mín hafi haft mest
áhrif á mig. Ég er alin upp í
stórum systkinahópi og við
vorum mjög samhent. Uppeldi
mitt í þessum hópi hafði án efa
mjög mótandi áhrif á mig sem
manneskju."
— Hvenær varöstu hrædd-
ust á ævinni?
„Ég held ég hafi orðið
hræddust þegarég varstödd á
hóteli úti i Finnlandi og vakn-
aði upp klukkan hálfsex um
morgun við barning frammi og
hélt að þar væri fyllerí. Þegar
ég hringdi niður í afgreiðslu til
að vitahvaðaónæði þettaværi
varmérsagtaöþað væri kvikn-
að í hótelinu og ég skyldi
reyna að koma mér niður sem
fyrst! En það fór allt vel.“
— Hvenær varöstu glöö-
ust?
„Maðurverðursvooft „glað-
astur“. Ég held ég hafi orðið
glöðust í hvert skipti sem ég
eignaðist börnin mín þrjú, ynd-
isleg og heilbrigð. Að sama
skapi varð ég glöðust þegarég
eignaðist fyrsta barnabarnið.
Kannski sterkustu tilfinning-
arnar < gleði hafi brotist fram
við þær aðstæður.“
— Hvers gætirðu síst verið
án?
„Fjölskyldu og vina.“
— Hvaö finnst þér leiðin-
legast aö gera?
„Mér finnst engin verkefni
leiðinleg. Hins vegarþykirmér
kannski leiðinlegast þegar ég
er föst í umferðarhnút eða ein-
hverju slíku sem ég ræðekkert
við og þarf að una einhverjum
ytri aðstæðum."
— Hvaö finnst þér
skemmtilegast aö gera?
„Mér finnst langskemmti-
legast að vera í góðum vina-
hópi. í sambandi við vinnu þá
fannst mér ákaflega gaman —
meðan ég hafði tíma — að
sitja við saumavél og skapa
nýja flík. Það var verkefni sem
ég hafði mikla ánægju af, en
þeir hlutir eru fyrir bí í bili!“
— Hvaö fer mest í taugarn-
ar á þér?
„Rolugangur."
— Ef þú yrðir aö skipta um
starf, hvað vildirðu þá fara að
vinna viö?
„Ég vann við tölvuforritun
áður. Það fannst mér heillandi
starf og hef oft séð eftir því.
Hins vegar veit ég að ég myndi
ekki hverfa í slikt starf aftur
eftir að hafa verið frá því árum
saman, eins mikil þróun og
hefur orðið þar. Ef ég ætlaði
mér að hverfa alveg úr stjórn-
málunum og gæti valið um
hvaða starf sem er myndi ég
líklega velja mér einhverja úti-
vinnu.“
— Manstu eftir pínlegri
stööu sem þú hefur lent í?
„Ég er óskaplega ómann-
glögg og hef oft lent i pínlegri
stöðu vegna þess. Ég minnist
atviks þegar ég var á stödd á
flugvelli og við mér brosti svo
hlýtt kona sem þar sat með
manni sínum. Ég hugsaði með
mér að þessa konu hlyti ég að
þekkjaog ætlaði nú einu sinni
að láta ekki sjást hvað ég var
ómannglögg. Ég settist hjá
henni og spuröi hana hvað
væri að frétta. Þá spurði hún:
„Þekkjumst við?“ Við hlógum
dátt þegar við fundum út
hvernig staðan var og þetta
hef ég ekki reynt aftur!“
(23. ágúsl — 23. sepl.)
Notaðu helgina til að hugleiða nýjar
brautir i vinnu þinni og starfsframa.
Grein sem þú lest eða samtal sem þú
heyrir gæti gefið þér nýjar hugmyndir i
sambandi við vinnuna. Stutt ferðalag
gæti haft góð áhrif og kvöldin eru tilvalin
fyrir samsæti i vinahóþi.
(24. sepl. — 23. okl.)
Fréttir frá fólki á fjarlægum Stöðum
gætu orðió tilefni til mikillar bjartsýni af
þinni hálfu. Notaðu simann til að ná sam-
bandi við slikt fólk og enn betra væri ef
þú gætir skotist i heimsókn. Notaðu
næstu kvöld til að slaka á og lesa góða
bók.
fffu-
(24. okl. — 22. nóv.)
Vertu ekkert að stressa þig á stórfram-
kvæmdum áheimilinu. Létt heimilisstörf
henta betur um helgina og raunar veröur
allt sem tengist félagslifi mun ánægju-
legra en nokkur vinna á næstu dögum.
Láttu það eftir þér.
(23. nóv. — 21. des.)
Verslunarferó um helgina gæti komió
séreinstaklegavel. Vertuáhöttunum eft-
ir góðum afslætti á þvi sem þú ætlar að
kaupa. Vinnuálag eykst stöðugt og þú
þarft örugglega að vinna mikla yfirvinnu
til að hafa undan á næstunni. Ekki ör-
vænta, þvi vinnan mun borga sig marg-
falt i næstu viku.
(22. des. — 20. janúar)
Helgin er kjörin fyrir stórfellda til-
raunastarfsemi af þinni hálfu. Losaðu
þig við hlekki vanans og prófaðu eitthvaö
sem er mjög ólikt þér. Ástamálin þurfa
einmitt á góðum skammti af imyndunar-
afli að haldaum helgina. Ekki látaþitt eft-
ir liggja.
21. janúar — 19. febrúar)
Leitaðu uppi fólk sem lífgar upp á til-
veruna. Börn gætu verið tilvalin i þetta
hlutverk, ef þú gefur þér góðan tima fyrir
þau. Fljót hugsun af þinni hálfu gæti
tryggt þérfjárhagslegt öryggi um langan
tíma, ef þú notar tímann vel.
(20. febrúar — 20. mars)
Hugmyndir munu Sþretta upp hjá þér
hraðar en nokkru sinni fyrr. Hrintu þeim
i framkvæmd. sérstaklega þeim hug-
myndum sem tengjast daglegu lifi þinu.
Auglýsing i þlöðunum gæti skilað góð-
um árangri, bæði i einkalífi og vinnunni.
Breytingar gætu átt sér stað í ástalífinu
yfirhelgina. Vertu samt ávarðbergi gagn-
vart þeim.
(kona, fædd 12.1.1951)
TILFINNINGALÍNAN (1):
Þetta er frekar sjálfstæð per-
sóna, dagfarsprúð og jafnlynd,
sem vandar mjög vel allt sem
hún gerir. Hún er allvarkár í til-
I þessari
E.H.
viku:
lófalestur
tinningamálum eða beitir a.m.k.
skynseminni og raunsæinu,
þegartilfinningarnareru annars
vegar.
ALMENNT:
Það ríkti svolítil óvissa í lífi
þessarar konu á tímabilinu frá
1984 og fram undir 1988. Ýmsum
framkvæmdum hefur þá seink-
að og hún hefur verið í nokkurs
konar biðstöðu.
Sem heildarmynd gætu árin
framundan reynst þessari konu
hagstæð, en hún kemst lengst í
þjóðfélaginu fráseinni hlutafer-
tugsaldurs og eftir þann tíma.
Það erekki ólíklegt að hún vinni
einhvern tímann hjá opinberum
aðilum eða bindist manni, sem
þyrfti að starfa í þágu hins opin-
bera. Þetta er nákvæmnismann-
eskja, sem gerir oft strangar
kröfur til sjálfrar sín. Hún hefur
tilhneigingu til að slíta sér út.
En seiglan og úthaldið drífa
hana áfram.
VILTU LÁTA LESA ÚR ÞÍNUM
LÓFA?
Sendu þá TVÖ GÓÐ LJÓSRIT
af hægri lófa (nema þú sért örv-
hent/ur) og skrifaðu eitthvert
lykilorð aftan á blaðið, ásamt
upplýsingum um kyn og fæð-
ingardag. Utanáskriftin er:
PRESSAN — lófalestur, Ármúla
36, 108 Reykjavík.
Því miður er þó ekki nokkur
leið að lesa úr öllum þeim lóf-
um, sem berast blaðinu, þar
sem þeir skipta hundruðum á
mánuði.
AMY
ENGILBERTS
^ )
(i. ■