Pressan - 04.05.1989, Síða 27
t\Yi' U'n .li u.'Qrn 1‘i'nrni-1
Fimmtudagur 4. maí 1989
sjónvarp
FIMMTUDAGUR
4. maí
Stöö 2 kl. 17.30
LITLA STÚLKAN MEÐ
ELDSPÝTURNAR**
(Little Match Girl)
Bandarísk sjónvarpsmynd. Leik-
sljóri: Michael Lindsay-Hogg. Að-
aihlutverk: Keshia Knight-Pulliam,
Rue McClanahan og William
Daniels.
Sígilt ævintýri H.C. Andersen
um litlu stúlkuna með eldspýturnar
er hér í nútímauppfærslu. Keshia
Knight-Pulliam, sem leikur yngstu
dótturina í Fyrirmyndarföður, er
umkomulausa eldspýtustúlkan. Á
vegi hennar verður ungviði úr ríkri
fjölskyldu sem býður henni heim.
Þar Iendir húri í sáftahlutverki í
deilu heimilisföðurins við son sinn.
Eins ojf við má tííiaSf fer allt vel að
lokum, en tæpast fylgir myndin
upprunalegu skáldsögunni mikið
eftir.
Stöð 2 kl. 22.20
SÍÐUSTU DAGAR
PATTONS**
(Last Days of Patton)
Bandarísk stríðsmynd frá 1986.
Leikstjóri: Delbert Mann. Aðal-
hlutverk: George C. Scott, Eva
Marie Saint, Murray Hamilton og
Richard Dysart.
George C. Scott tekur við hlut-
verki Pattons hershöfðingja sem
færði honum Öskarsverðlaunin inn
sextán árum fyrr. Myndin segir frá '
síðustu dögum síðari heimsstyrj-
aldar, og því sem á daga hins um-
deilda hershöfðingja dreif. Patton
átti eftir að ljúka sínu persónulega
stríði, þótt bardögum væri lokið
hjá öllum öðrum. Alltof langdregin
mynd, sem hefði sárlega þurft að
komast undir skurðarhnífinn til
styttingar. Óhætt er að fullyrða að-
dauðasena Pattons sé sú lengsta í
sögu kvikmyndanna.
Stöð 2 kl. 00.50
DAUÐIR GANGA EKKI
í KÓRÓNAFÖTUM**
(Dead Men Don’t Wear Plaid)
Bandarísk gamanmynd frá 1982.
Leikstjóri: Carl Reiner. Aðalhlut-
verk: Steye Martin og Rachel Ward.
Bandaríski grínistinn Steve Mart-
in hefur gert fjöldann allan af
myndum, sem hafa flestar átt það
sameiginlegt að vanta herslumun-
inn á að vera virkilega góðar.
Þessi er ein af hans bestu, en hann
er hér í hlutverki einkaspæjara á
fimmta áratugnum, sem fær dular-
fullt verkefni frá fallegri konu. Fað-
ir hennar, sem var vísindamaður,
hefur verið myrtur og hana grunar
að brögð séu rtafli. Martin kannar
málið og Iendir í hefðbundnu
klandri, sem lýkur með því að hann
er að berjast við að hefta uppgang
nasista í Suður-Ameríku. Ágætur
farsi sem gerir óspart grin að spæj-
aramyndum fimmta áratugarins, en
væri mun lakari ef Steve Martin
nyti ekki við.
FÖSTUDAGUR
5. maí
Stöð 2 kl. 21.10
LÍNUDANSINN**^
(All That Jazz)
Bandarísk mynd frá 1979. Leik-
stjóri: Bob Fosse. Aðalhlutverk:
Roy Scheider, Jessica Lange, Ann
Rainking og Leland Palmer.
Leikstjórinn og danshöfundur-
inn Bob Fosse er maðurinn á bak
við þessa mynd, sem lauslega er
byggð á hans eigin lífi. Joe Gideon,
vel metinn leikstjóri, er haldinn
fullkomnunaráráttu sem að lokum
ber hann ofurliði. Hann fær hjarta-
áfall og gengst undir skurðaðgerð,
en á meðan ímyndar hann sér Iíf sitt
sem sviðsuppfærlsu þar sem vinir
og vandamenn eru í hópi áhorf-
enda. Ágæt dansatriði og þokkaleg
mynd framan af, en fullneikvæð og
tilgerðarleg um dansheiminn á
Broadway.
Rikissjónvarpið kl. 22.25
BANVCN ÁST***4
(Dressed to Kill)
Bandarísk spennumynd frá 1980.
Leikstjóri: Brian De Palma. Aðal-
hlutverk: Michael Caine, Angie
Dickinson, Nancy Allen og Keith
Gordon.
Spennumyndaleikstjórinn Brian
De Palma sló í gegn með þessari
hárbeittu mynd um sálsjúkan
morðingja, sem eltir uppi unga
símavændiskonu sem verður óvart
vitni að einu morða hans. Michael
Caine leikur sálfræðing sem eitt
sinn hafði morðóðu konuna til
meðferðar en aðstoðar nú við að
handsama hana. Líklega besta
mynd De Palma að verkum eins og
Scarface meðtöldum. Banvæn ást
sleppir ekki takinu á áhorfendum
fyrr en eftir blóðug leikslok. Ómiss-
andi fyrir þá sem elska að láta
hræða úr sér líftóruna, en alls ekki
við hæfi barna.
Stöð 2 kl. 23.40
í STRÁKAGERI*
(Where The Boys Are)
Bandarísk kvikmynd frá 1982.
Leikstjóri: Hy Averback. Aðalhlut-
verk: Lisa Hartman, Lorna Luft,
Wendy Schaal og Howard
McGUlin.
Hryllileg della um fjórar ungl-
ingsstelpur (þrjár kynóðar og ein
óspillt), sem ferðast til Flórída til að
leita sér að rúmhæfum karlpeningi.
Þetta er léleg endurgerð myndar frá
1960, þar sem'Connie Francis var í
aðalhlutverki. Þessi hefur ekkert
erft af sjarma fyrirmyndarinnar og
skal forðast hana með flestum til-
tækum ráðum.
Stöð 2 kl. 01.15
ÓGNIR GÖTUNNAR*** ’
(Panic in the Streets)
Bandarísk sakamálamynd frá 1950.
Leikstjóri: Elia Kazan. Aðalhlut-
verk: Richard Widmark, Jack Pal-
ance og Paul Douglas.
Magnþrungin sakamálamynd
um byssuóða afbrotamenn sem eru
eltir af lögreglunni. Einn þeirra er
haldinn banvænum sjúkdómi, sem
ógnar nærstöddum og eykur á
vanda bófanna. Myndin er öll tekin
í New Orleans og nær andrúmslofti
þessarar sérkennilegu borgar.
Handritshöfundar myndarinnar
unnu Óskarsverðlaunin fyrir hana.
LAUGARDAGUR
6. maí
Stöð 2 kl. 21.45
FORBOÐIN ÁST**
(Love on the Run)
Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1985.
Leikstjóri: Gus Trikonis. Aðalhlut-
verk: Slephanie Zimbalist, Alec
Baldwin, Constance McCashin og
Howard Duff
Ungur lögfræðingur á erfitt með
að sætta sig við lífið og tilveruna
þar til hún kynnist skjólstæðingi
sínum, sem er fangi. Hún verður
ástfangin en lendir í siðferðislegu
klandri þegar hún uppgötvar að
kærastinn á ekki langt líf fyrir
höndum ef hann ílengist öllu lengur
í fangelsinu. Samfangarnir vilja
hann feigan en lögfræðingurinn
ákveður að hjálpa honum við flótt-
ann. Lögreglan kemst fljótt á hæla
þeirra og villtur eltingaleikur er
tíafinn. Miðlungs sakamálamynd
byggð á sannsögulegum atburðum
sem voru líklega meira spennandi.
Ríkissjónvarpið kl. 22.45
ÆTTARMÓTIÐ**
(Family Reunion)
Kanadísk sjónvarpsmynd frá 1987.
Leikstjóri: Vic Sarin. Aðalhlutverk:
David Eisner, Rebecca Jenkins,
Henry Backman og Linda
Sorensen.
Ungur maður snýr heim til for-
eldrahúsa í Toronto í tilefni afmælis
afa síns. Hann er nýbúinn að slíta
trúlofun sinni en fyrir hreina tilvilj-
un lendir hann með ókunnugri
27
stúlku í afmælinu sem ættingjar
hans halda að sé unnustan. Hann
getur ekki annað en haldið blekk-
ingunni áfram og stúlkan ókunn-
uga nýtir sér þessar óvenjulegu
aðstæður til hins ýtrasta. Málin
fara fyrst að vandast þegar hin
raunverulega kærasta birtist á
svæðinu. Lunkin gamanmynd, sem
flækir málin í hnút eins Og venjá er
með svona myndir.
Stöð 2 kl. 00.15
FURÐUSÖGUR I** ’
(Amazing Stories I)
Bandarísk kvikmynd frá __ 1987.
Leikstjórar: Steven Spielberg,
William Dear og Bob Zemeckis.
Aðalhlutverk: Kevin Costner, Kie-
fer Sutherland, Tom Harrison,
Christopher Lloyd o.fl.
Hér eru þrjár mismunandi sögur,
gerðar af þrem mismunandi leik-
stjórum. Hver mynd spannar helstu
flokka kvikmyndanna; spennu,
grín og hrylling. Ágæt samsetning
þótt framlag Spielbergs skari nokk-
uð fram úr. Ekki við hæfi barna.
SUNNUDAGUR
7. maí
Stöð 2 kl. 23.10
ÓHUGNAÐURí
ÓBYGGÐUM****
(Deliverance)
Bandarísk spennumynd frá 1972.
Leikstjóri: John Boorman. Aðal-
hlutverk: Jon Voight, Burt Reyn-
olds, Ned Beatty og Ronny Cox.
Ein besta mynd Johns Boorman
og tilnefnd til Óskarsverðlauna á
sínum tíma. Myndin segir frá ör-
lagaríkri kanó-ferð fjögurra kaup-
sýslumanna í óbyggðum Austur-
Bandaríkjanna. Þeir verða fljótt
varir við að íbúar svæðisins hafa
vægast sagt horn í síðu þeirra. Jon
Voight og Burt Reynolds slógu báð-
ir í gegn í þessari óhugnanlegu
mynd. Alls ekki við hæfi barna.
dagbókin
hennar
Ég er stíft að hugsa um að setja
upp hauspoka. Mamma er sko búin
að gera mig að fullkomnu fífli fyrir
lífstíð og þetta er sá mesti bömmer,
sem nokkur getur nokkurn tímann
lent í út af nokkru.
Þetta byrjaði með því að foreldr-
ar krakkanna í mínum bekk og
nokkrum öðrum ætluðu að stofna
samtök út af kennaraverkfallinu.
Svona til að berjast fyrir rétti fram-
haldsskólanemenda og þannig. En
það varð ógeðslegt uppistand á
Undirbúningsfundinum af því að
mamma mætti og var á móti þessu.
Henni var hvorki meira né minna én
hent út! Hún heldur sko með kenn-
urunum, sem er nú alveg týpískt
fyrir hana... (Amma á Einimelnum
er alveg hörð á því að mamma sé
komin á einhvern yfirgöngualdur.
Hún segir, að pabbi verði að fá
mömmu til að fá sér plástur við
þessu. Ég sagði henni að við ættum
nóg af plástrum, en það eru víst til
spes plástrar fyrir konur sem alltaf
eru uppi á háa-c. Amma las um það
í blaði um daginn.)
Það var rosa feill hjá liðinu að
reka mömmu af fundinum. Þeir
hefðu heldur ekki átt að kalla hana
útsendara og skæruliða og svoleið-
is. Það er akkúrat leiðin til að gera
hana brjálaða. Og sú varð líka held-
ur betur galin, maður. Hún tók sig
til og skrifaði um þetta grein í
Moggann (þó hún geri venjulega
ekki annað en skíta blaðið út!) og
eftir það var hún fengin í tvo út-
varpsþætti og einn sjónvarpsþátt —
bara til að rífast. Móðir manns er
sem sagt orðin allsherjar viðundur,
sem öll þjóðin þekkir.
Það var ferlega fljótt að fattast
að þetta væri mamma min og sum-
ar stelpurnar í bekknum mega ekki
lengur vera með mér eða neitt. Mér
líður eins og ég sé með einhverja
ofsa smitandi veiki... Það vilja hins
vegar allir vera með Maju í mínum
bekk, en pabbi hennar er sko for-
maður FFF (Félags foreldra frani-
haldsskólanema). Mamma kallar
þetta Félag fordómafullra fasista.
Hún segir, að ég eigi að þakka Guði
fyrir að þurfa ekki að umgangast
stelpur frá svona þröngsýnum og
heimskum heimilum, þar sem fólk
skilji ekki að verkföll beri engan
árangur nema þau séu óþægileg
fyrir einhverja. Éins og mér sé ekki
skítsama um öll verkföll! Mín alein-
asta ósk í heiminum er að mamma
mín sé venjuleg, en ekki kolbrjálað-
ur kverúlant. Eg lifi þetta ekki af...
PS Nú fyrst dey ég! Ég hitti Sigga
(sæta) í mínum bekk úti í sjoppus
áðan og hann sagði að mamma mín
væri með ofsalega réttlætiskennd.
Ég hélt að það væri eitthvað nei-
kvætt, ullaði á hann og strunsaði
út, án þess að kaupa neitt. En svo
fletti ég orðinu upp og fattaði að
hann var að hrósa henni! Annað-
hvort hefur hann dottið á höfuðið
eða foreldrar hans eru kennarar...
Það er hins vegar á tæru að ég get
aldrei horft framan í Sigga aftur á
meðan ég lifi. Ég verð að fá mér
hauspoka. Það er sko engin spurn-
ing lengur.