Pressan - 17.08.1989, Blaðsíða 2

Pressan - 17.08.1989, Blaðsíða 2
ijNpimmtudagur 17. ágúst 1989 fatnaði á staðinn og væntanlega hafa menn orðið við því eins og vant er. Ekki gat að líta undirfatnað fyrir karlpeninginn en eins og myndir Einars ljós myndara bera með sér var það einkum hann sem veitti sýningarstúlkunum athygii. .. EINAR ÓLASON LJÓSMYNDARI PRESSU OMAR FRIÐRIKSSON -.. A undir fatnaði í Tunglinu Dóra Steinunn Ástvaldsdóttir lék undir söng í afmælinu. Jóhanna Á. Þorvaldsdóttir, tengdadóttir afmælisbarnsins, Halldóra Rannveig og tengdasonurinn Theodór Blöndal. Áttræður áhugaljósmyndari Það varfjölmenni, góðmennt og mikil glaðværð þegar Halldóra Rannveig Guð- mundsdóttir hélt upp á áttræðisafmæli sitt í sal Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands þann 18. júlí sl. en Halldóra varð áttræð þann 21. júlí. Halldóra fæddist í Reykjavík en bjó um 20 ára skeið á Eskifirði. Var hún gift Sig- urði Magnússyni skipstjóra, en hann léstfyrir nokkrum árum. Halldóra stundaði fimleika á árum áðu r og sýndi í flokki Bjöms Jakobssonar sem frægur var á sínum tíma og er Halldóra heiðursfélagi í ÍR auk þess sem hún er heiðursfélagi í Thor- valdsensfélaginu. Halldóra er áhugaljósmyndari og á gott safn mynda eins og sjónvarpsáhorf- endur fengu að kynnast á dögunum þegar rætt var viö hana í þættinum Fólkið í landinu. Þar kom m.a. fram að Halldóra var einmitt að fylla sitt áttugasta mynda- albúm fyrir skömmu. Gamlar vinkonur og félagar úr fimleikunum: María Tryggvadóttir, af- mælisbarnið, Halldóra Rannveig Guðmundsdóttir, Hrefna Lang-Jensen og Laufey Einarsdóttir. (Pressumyndir: Ari) „Vel af sér vikið, Ámi," gæti Bryndís Schram verið að segja við Ámunda Ámundason, sem sá um alla kynningu og „markaðs- setningu" Óperukjallarans. Hljómsveit Eddu Borg leikur í Óperukjallaranum um helgar en síðustu kvöld hefur Ríó tríóið skemmt gest- um á píanóbarnum. Nýr veitinga- og skemmtistaður, ÓPERUKJALLARINN, var opnaður sl föstudag. Óperukjallarinn er t/lhúsa ÁNEÐRI HÆÐ ARNARHÓLS. Annars vegar er um að rœða PÍANÓBAR MEÐ LIFANDI TÓNLIST og svo dansstad semOPINN ERÖLLFÖSTUDAGS-OGLAUGARDAGSKVÖLD.Matargest- ir á Arnarhóli hafa adgang að Óperukjallaranum, sem er innréttaður með frjálslegum blœ, ogþegar P R E S S A N leitþar inn opnunarkvöldið varþar margt manna ogsýnilegt að fólkilíkaðiprýðilega ÞESSI NÝI DANSSTAÐUR ímið- bœnum. . . Jón Ársæll Þórðarson útvarps- maður og Steinunn Þórarinsdótt- ir myndlistarmaður á skrafi við Salvöru Nordal.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.