Pressan - 17.08.1989, Blaðsíða 18

Pressan - 17.08.1989, Blaðsíða 18
18 Fimmtudagur 17. ágúst 1989 Það er tiltölulega auðvelt að komast i sviðsljósið ó íslandi og verða umtalaður, jafnvel frœgur, ,,inni## eins óg sagt er. Fólk snýr sór við ó götu þegar það mætir frægum manni og hann fær betri af- greiðslu i þvottahúsinu en bara einhver Pótur eða Póll. Frægðin ó þó ef laust sinar skuggahliðar. Frægu fólki er t.a.m. ekki talið ráðlegt að láta mikið sjá sig á skemmtistöðum; það skilur á milli feigs og ófeigs i frægð hvort kássast er upp á menn þegar þeir láta sjá sig opinberlega eða hvort þeir kássast upp á aðra. Dæmi- gerður fferill frœgs íslendings er að hann skilur við maka sinn, verður þvi næst áfenginu svo gott sem að bráð, hverfur svo i nokkrar vikur og birtist loks aftur i forsiðuviðtali i glanstimariti þar sem fyr- irsögnin er: „Á timamótum## — og undir- fyrirsögnin: „Nú er mér ekkert að van- búnaðil## TEXTI: ÞÓRHALLUR EYÞÓRSSON MYNDIR: BJÖRG O.FL. Trausti Jónsson vedurfrœdingur: LEIÐUR Á BULLINU „Ég var orðinn ákaflega leiður á því að vera talinn vera annar en ég er. Það er í rauninni ótrúlegt að í gegnum það eitt að segja veðurfrétt- ir í sjónvarpi verði maður að ai- menningseign. Það væri villandi að segja að persóna mín hafi verið á milli tannanna á fólki; það var frem- ur hugtakið „Trausti veðurfræðing- ur“ eins og fólki fannst að hann ætti að vera sem kjaftasögurnar mögn- uðust um. Þessar ranghugmyndir um mig voru orðnar mjög þreytandi — það var farið að biðja mig um að koma fram á þorrablótum og grín- samkundum eins og ég væri ein- hver atvinnugamanleikari þótt ekk- ert væri mér í rauninni eins fjar- lægt.“ Þrátt fyrir að Trausti veðurfræð- ingur yrði allhvekktur á því að vera í sviðsljósinu á sínum tíma er hann nú aftur mættur í veðurfréttirnar í sjónvarpinu eftir nokkurt hlé. Er hann ekkert hræddur um að sagan endurtaki sig og þjóðin taki hann aftur með trompi? „Nei, ég held að þjóðin sé orðin fjölmiðlavanari en hún var fyrir nokkrum árum. Sem betur fer hef ég enn ekki verið beð- inn að koma fram á neinni skemmt- un það sem af er sumri,“ segir Trausti Jónsson veðurfræðingur sem finnst íslenska þjóðin hafa farið offari í dálæti sínu á sér og kann því vel að vera að mestu kominn út úr sviðsljósinu. Hitt er annað mál að sumir, sem hefur skotið upp á stjörnuhimininn með heilmiklum hvelli og gný þann- ig að þeir hafa verið óskaplega mik- ið „inni“ um skeið, verða aftur ,,úti“ eiginlega án þess að nokkur taki eft- ir því. Það er kannski ekki fyrr en menn spyrja: „Hvar er þessi eða hinn nú aftur?" að þeir átta sig á því að hlutaðeigandi er horfinn af sjón- arsviðinu eins og jörðin hafi gleypt hann: Frægur í gær, gleymdur í dag. Ut af fyrir sig er eðlilegt að frægð- arsól manna dvíni þegar þeir eldast. Það er varia hægt að ætlast til að skemmtikraftar og íþróttamenn, til dæmis, fari ekki úr tísku eða haldi óskertum æskuþrótti fram yfir miðj- an aldur, hvað þá lengur. Einstaka tekst það þó, t.d. Ómari Ragnars- syni, Ríótríóinu og Valbirni Þor- lákssyni. En hvar eru nú skemmti- kraftarnir Bjarki Tryggvason í Póló og Bjarka, EUen í 04U, Halli (sbr. Laddi), Bergþóra Arnadótt- Sverrir Stormsker tónlistarmaöur: SKALLA- POPP ARI... ? „Nei, þó það sé náttúrlega á hreinu að líftími flestra í poppbrans- anum er örskammur. Þegar menn eru komnir yfir þrítugt í poppinu fá þeir óskaplegá minnimáttarkennd. Mér finnst ég vera orðinn allgamall sjálfur og samt er ég ekki nema tutt- ugu og fimm." Sverrir viðurkennir að íslendingar séu miklir keppnis- menn og að sama skapi tapsárir. Hann segist þó ekki fallast á að þjóð- in hafi snúið við sér baki út af frammistöðunni í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. „Ef lag- ið mitt tapaði þá tapaði þjóðin því að hún var búin að velja það og ís- lenska þjóðin er óskaplega vitlaus þótt hún sé ágæt. Ég var T rauninni bara senditík íslendinga, þessara feluhomma með minnimáttar- kennd. Að vísu hætti Steinar við að gefa út plötu með okkur Stefáni Hilmarssyni rétt eftir keppnina — en það var vegna þess að ég nennti ekki að standa í neinu veseni þá. Hins vegar ætla ég að gefa út plötu nú fyrir jólin — hún á að heita Sverr- ir Stormsker í auga eða eitthvað svoleiðis. „Sker í auga“ ... skil- urðu?' £f: ■ * t’- . * i **f,. lr>j ir vísnasöngkona, Rannveig og krummi og Sigurður Bjóla tón- listarmaður? Eða Savannatríóið og Sverrir Stormsker? Eða Halla Margrét og aðrir sakleysingjar sem hafa brugðist islensku þjóðinni með því að sigra ekki í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva? Éða íþróttagarparnir Hreinn Halldórs- son kúluvarpari, Skúli Óskars- son kraftakarl, Pétur Guð- mundsson körfuboltamaður, Sigurður Dagsson markvörður og Hrafnhildur Valbjörnsdóttir vaxtarræktarkona? Sjónvarpsfrœgö er hverful Fjölmiðlafólk, einkum það sem kemur fram í sjónvarpi, verður iðu- lega frægt á einni nóttu. En til lengd- ar er tvennt til í dæminu um örlög þess: annaðhvort verður það að mublum sem enginn tekur í raun- inni neitt sérstaklega mikið eftir

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.