Pressan - 17.08.1989, Blaðsíða 20

Pressan - 17.08.1989, Blaðsíða 20
2.0 fímmtudagur 1.7t ágúót 1989 kynlifsdálkurinn Bréf til kynlífsdálksins má skrifa undir dulnefni. Utanáskriftin er: PRESSAN— kynlífsdálkurinn, Ár- múla 36, 108 Reykjavík. BERIR BOSSAR í dag ætla ég að fjalla um nekt. ís- land er einungis bananalýðveldi að nafninu til og blessuð pólskiptin koma víst ekki í bráð. Veðráttan hér á landi er með því skrautlegasta sem þekkist á jarðríki. í dag skrapp ég t.d. út í Viðey með son minn og þá skein blessuð sólin, en það rigndi iíka á sama tíma. Vegna veðurs eru íslendingar yfirleitt kappklæddir, þó svo þeir séu fljótir í stuttbuxurn- ar þegar smásólarglæta skín, svona allra náðarsamlegast. Ætli kapp- klæddir íslendingar séu þess vegna bældari í viðhorfum til nektar en þegnar í suðrænum löndum? En það eru ekki bara fötin, sem firra okkur tækifærum til að sjá ólíka líkama í allri sinni dýrð og nekt. Einhver mæt manneskja sagði eitt sinn að ef fjölskyldur færu að sofa aftur í einu litlu herbergi (bað- stofu) myndi það útrýma þörfinni fyrir kynfræðslu. Ég er ekki alveg sammála þessu, en það er nú samt nokkuð til í því. í gamla daga fóru ástaleikir foreldranna ekki framhjá neinum, en nú kemur fólk af fjöllum ef það reynir að ímynda sér foreldra sína elskast uppi í rúmi. Prófaðu bara sjálf(ur) að ímynda þér þína eigin foreldra og taktu eftir við- brögðum þínum. Kynfrœösla í sundlaugum Eitt sérfyrirbæri höfum við ís- lendingar þó, sem kannski bjargar málunum í viðhorfum okkar til nektar: sundlaugar. Þar sér maður kynsystur sínar og -bræður af öllum stærðum og gerðum. Ef þú þjáist af svæði líkamans tækir þú fyrst eftir? Eru ánægð(ur) með það sem þú sérð? Sýndu foreldrar þínir hvor öðrum hlýju og ástríki i augsýn þinni? Sástu þá einhvern timann nakta? Strax sem ungbarn byrjaðir þú að móta sjálfsmynd þína og lík- amsímynd í gegnum snertingu við umheiminn. Hvort og hvernig mamma þín eða pabbi héldu á þér skiptir máli svo og öll atlot. Gastu fengið að hlaupa um ber, busla í baði og kynnast líkama þínum? Tippi og „rifa“? Það er misauðvelt fyrir stráka og stelpur að kynnast kynverunni í sér í gegnum líkamann. Kynfæri stráka eru auðsjáanleg og þegar þeir pissa snerta þeir alltaf tippið. Þeir vita strax frá unga aldri að „þetta er tippið og þetta er pungurinn". En hvað læra stelpur? Líffræðilega séð er erfiðara fyrir þær að þekkja sín eigin kynfæri með því einu að sjá sig naktar. Spegill kæmi hér að góðum notum. Stelpum er í „besta falli" sagt að þær hafi „pissugat" og „hitt gatið" (leggöngin). En þær þurfa lika að vita af snípnum, skapabörm- unum og fá að velta fyrir sér þægi- legu og fallegu nafni á kynfærunum á sér. Nýlega fletti ég kennslubók fyrir 12 ára krakka þar sem fullyrt var að orðið „rifa" væri einna al- gengasta orðið, sem notað væri yfir kynfæri kvenna! Betra kynlíf Ef stelpur og strákar læra að minnimáttarkennd yfir líkama þín- um og ert að reyna eftir fremsta megni að móta hann samkvæmt „staðalímýndinni" er heillaráð að fara í laugarnar og komast að raun um að slíkar tilraunir eru óhugsandi því hver og ein(n) hefur sinn sér- staka líkama; enginn er eins. Viðhorf þín til nektar hafa mikið að segja um það hversu vel þér líður kynferðislega. Líður þér vel þegar þú ert nakin(n) eða vildir þú helst alltaf vera kappklædd(ur)? Ef þú stæðir fyrir framan spegil, hvaða þekkja líkama sinn og sjá aðra nakta verður það ekki eins erfitt þegar fullorðinsárin nálgast að vera nak- inn í návist maka síns. Reyndar hafa rannsóknir sýnt að það hefur ekki skaðleg áhrif fyrir börn að sjá for- eldra sína bera. Þeir einstaklingar sem njóta þess að upplifa likamlega snertingu og væntumþykju koma oftast frá fjölskyldum þar sem nekt þótti ekkert tiltökumál. Við getum líka, út frá heilbrigðri skynsemi, sagt okkur það sjálf að ef foreldrar eða uppalendur líta á nekt sem ósið- samlegan hlut og forðast slíkt atferli inni á heimilinu er líklegra að börn- in fái það viðhorf í heimanmund. Sumir foreldrar gæta þess líka sér- staklega að vera ekki berir í augsýn barns síns af gagnstæða kyninu. Sifjaspellaumræðan siðasta vetur gerði marga foreldra afar meðvit- aða um málefnið, en því miður olli hún því að sumir foreldrar héldu að sér höndum hvað varðaði eðlileg at- lot og væntumþykju í garð barna sinna. Ég hef í þessum pistli bent á mikilvægi nektar og að hver og einn skoði viðhorf sín í því máli. JÓNA INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR HJÚKRUNAR- OG KYNFRÆÐINGUR Gervigæsir margar gerðir. Verð frá kr. 460 Gæsaskot í úrvali. Verð frá kr. 300 Gæsaflautur ásamt kennslusnældu. Goretex hlífðarfatnaður og gönguskór. --------------------- Landsins mesta úrval af byssum, skotfærum, byssutöskum, hleðslutækjum o.s.frv. o.sfrv. Besta verðið í bænum Nóatún 17,105 Reykjavík Síml 91-84085/622702

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.