Pressan - 17.08.1989, Blaðsíða 5
.RiTyntgqlagur 17. ágúst 1989
5
ÁHUGAHÓPUR UM BÆTTA UMFERÐARMENNINGU:
IIMFERÐARSLYS KOSTA
TVO MILLJAROA Á ÁRI
í Reykjavík eru þrjátíu og sex hættulegir staðir, ■ svokallaðir
„svartir blettir“. Oskað var eftir tuttugu og fimm milljóna króna
framlagi borgarinnar til að lagfæra þessar slysagildrur. Borgin
reiddi fram fjórar milljónir. Áhugahópnum var meinað að senda
áheyrnarfulltrúa á fundi Umferðarnefndar Reykjavíkur þar sem
til dæmis Kaupmannasamtökin hafa áheyrnarfulltrúa. Ragnheið-
ur Davíðsdóttir er ein þeirra sem starfa með áhugahópnum og
hún hefur frá mörgu að segja ... I II ; 1
„Það hefur mikið verið hamrað á orð-
um eins og tillitssemi og náungakœrleika
baráttunni fyrir bœttri umferðarmenn-
ingu. Við viljum hins vegar höfða til öku-
manna með sterkari oroum en hingað til
hafa tiðkast. Við notum harðar stað-
reyndir til að koma áréðri okkar á fram-
færi. Sumir hafa viljað kalla Jþetta
hræðsluáróður, sem „sjokkeri" félk, en
meðan hann gerir gagn er tilganginum
náð."
EFTIR: ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR — MYND: EINAR ÓLASON
Þetta segir Ragnheiður Davíðs-
dóttir, fyrrum lögreglukona, núver-
andi ritstjóri tímaritsins „Við sem
fljúgum". Ragnheiður er ein af þeim
tíu konum sem mynda kjarna
Áhugahóps um bætta umferðar-
menningu. Starfsemi hópsins hefur
vaxið mikið á þvi rúma ári sem
hann hefur starfað og nú er svo
komið að aðstandendur hans sjá
fram á að verða að halda almennan
borgarafund og virkja það fólk sem
þegar hefur boðið fram krafta sína.
Kjarni áhugahópsins samanstendur
aðallega af leikkonum og fjölmiðla-
konum, konum sem allar eru í fullu
starfi á öðrum vettvangi og starfa
fyrir hópinn af einskærum áhuga.
Sjálf situr Ragnheiður þessa dagana
við að ljúka handriti að viðtalsbók
við Laufeyju Jakobsdóttur, ömmuna
í Grjótaþorpinu, en það er greinilegt
að bætt umferðarmenning á hug
hennar allan, því ekki lét hún bók-
ina stöðva sig í að segja okkur nánar
frá þessum hópi og markmiðum
hans.
Akstur er
dauðans alvara
„Þetta eru óformleg samtök
áhugamanna um bætta umferðar-
menningu og voru stofnuð í fyrra-
sumar eftir að ung kona lét lífið í
umferðarslysi hér í borginni. Öku-
maðurinn var rétt indalaus og ölvað-
ur. Okkur, eins og öðrum, ofbauð
þær hörmungar sem fylgja umferð-
inni og í þetta skipti ákváðum við að
sitja ekki auðum höndum.“
Fyrsta verkefni hópsins var aug-
lýsingaherferð þar sem kvað við
nýjan tón. Auglýsingarnar þóttu
harðar, jafnvel svo harðar að ein-
hverjir álitu að þær gætu haft slæm
áhrif á börn. Ein auglýsingin var
þannig að byssu var beint að höfði
lítillar stúlku og textinn var: „Ölvun-
arakstur er eins og rússnesk rúlletta
— nema þú leggur aðra undir líka.“
Ragnheiður segir auglýsingarnar
hafa verið hannaðar af Auglýsinga-
stofu GBB, þar sem ein úr hópnum,
Ólöf Þorvaldsdóttir, starfar: „Fram
að þessum tíma hafði hið opinbera
séð um allan auglýsingaáróður og
við vildum kveða sterkar að orði.
Við hræddumst ekki að koma við
kaunin á fólki eins og kom kannski
best í ljós í auglýsingunni þar sem
dúkka lá sundurtætt á götunni.
Textinn var: „Ert þú vaxinn upp úr
að leika þér á götunni?" Þessi aug-
lýsingaherferð var sett fram undir
kjörorðinu „Akstur er dauðans al-
vara“ og við merktum ekki auglýs-
ingarnar því að okkar mati skipti
ekki máli hvaðan þær komu. En
þær fóru fyrir brjóstið á mörgum.
Einn af frammámönnum í umferð-
armálum i Reykjavík hringdi til
dæmis niður á Morgunblað eitt sinn,
gagngert til að sverja af sér alla að-
ild að þessum auglýsingum. Við lét-
um líka gera auglýsingatexta í út-
varp, stuttan og hnitmiðaðan eins
ráða ferðinni
og: „Hann var að beygja sig eftir
sígarettu. Það var það síðasta sem
hann gerði." í fyrrasumar fækkaði
ölvunaraksturstilfellum samkvæmt
skráðum tölum og þótt ég vilji ekki
fullyrða að það hafi verið vegna
þessara auglýsinga þá held ég ekki
að tilviljun ein hafi ráðið."
Synjað um
éhey rna rf ulltrúa
hjá umferðarnefnd
Reykjavíkur
Ragnheiður segir ýmis samtök
ökukennslu her á
landi...
sem beiti sér á sviði umferðarmála
hafa boðið áhugahópnum að taka
þátt í ráðstefnum og fundahaldi um
þau mál. Á einni slíkri ráðstefnu,
sem umferðarráð boðaði sveitar-
stjórnarfólk til, hafi þær hins vegar
fengið að heyra að þær væru á villi-
götum hvað umferðaráróðurinn
Oft virðast gródasjónarmiðin ein