Pressan


Pressan - 17.08.1989, Qupperneq 6

Pressan - 17.08.1989, Qupperneq 6
6 Fimmtudagur 17. ágúst 1989 varðaði: „Á þessum fundi stóð upp Harald- ur Blöndal, formaður Umferðar- nefndar Reykjavíkur, og lýsti þvi yfir að allur umferðaráróður væri einsk- is virði. Hann fullyrti að það eina sem dygði í þessum efnum væri að herða viðurlögin og auka löggæsl- una. Hugsaðu þér, formaður um- ferðarnefndar leyfir sér að halda því fram að allur áróður, þar með tal- inn okkar, sé út i hött. Mér fannst þetta gjörsamlega ábyrgðarlaust tal af manni í hans stöðu og varpaði fram þeirri spurningu til hans hvort starf ^ umferðarráðs, Slysavarnafé- lags íslands og þjóðarátaksnefndar væri þá ekki bara tímasóun og pen- ingaeyðsla? Jafnframt spurði ég full-. trúa fjármálaráðuneytisins sem þarna var staddur hvort þeim pen- ingum sem varið hafði verið til Þjóð- arátaks 1988 hefði ekki eins verið hægt að fleygja út um gluggann. Ég fékk engin svör nema þau að for- maðurinn væri ekki svara verður." Henni verður heitt í hamsi þegar hún rifjar upp þennan fund: „Það er ekki við góðu að búast hjá umferð- arnefnd Reykjavíkur þegar maður með svona skoðanir situr sem for- maður. Á þessari ráðstefnu orðuð- um við þá ósk okkar við Harald Blöndal að við fengjum að hafa áheyrnarfulltrúa hjá umferðar- nefnd Reykjavíkur. Hann lýsti því yf- ir í heyranda hljóði að hann myndi gera allt sem i hans valdi stæði til að hindra að af slíku yrði. Við sóttum um til borgarráðs að við fengjúm áheyrnarfulltrúa og vísuðum til þess að leigubílstjórar, strætisvagnabíl- stjórar og Kaupmannasamtökin hafa sinn áheyrnarfulltrúa hjá um- ferðarnefnd. Þetta var í fyrsta skipti sem hinn almenni borgari óskaði eftir að sitja fundina og við hefðum ekki haft atkvæðisrétt, aðeins tillögu- rétt. Þessi beiðni okkar var felld í borgarráði og fór fyrir borgarstjórn Reykjavíkur. Þar studdi minnihlut- inn þessa tillögu eindregið, en meiri- hlutinn felldi hana. Þar með var málið endanlega afgreitt. Þetta er gott dæmi um að það ríkja ekki lýð- ræðisleg sjónarmið hjá Umferðar- nefnd Reykjavíkur, en það sem kom okkur þó mest á óvart var að Katrín Lífsreynsla sem aldrei gleymist En Ragnheiður þekkir slysin af öðru en frásögnum. Hún starfaði í níu ár sem lögreglukona hjá slysa- rannsóknardeild og kom á þeim ár- um oft að umferðarslysum: „Ég kom að fjölda umferðarslysa og horfði upp á mikið slasað eða látið fólk. Eitt af því hræðilegasta sem hægt er að upplifa er að verða vitni að því að móðir eða faðir kastar sér Ragnheiður Davíðsdóttir er þeirrar skoðunar að umferðarmál eigi að ' yfir barn sitt á götunni, viti sínu fjær vera þverpólitísk. af skelfingu. Það er lífsreynsla sem Sú lífsreynsla ad sjá foreldri kasta sér yfir barn sitt á götunni gleymist aldrei... Formaður Umferðarnefndar Reykjavíkur hélt því fram að allur áróður væri út í hött... Alvarlegt umferðarslys kostar þjóðina 40—50 milljónir Hún segir liggja nokkuð ljóst fyrir hvar helstu slysagildrur borgarinn- ar séu: „Hjá Umferðardeild Reykja- víkurborgar hefur verið gerð úttekt á helstu slysastöðum í borginni sam- kvæmt tölum um umferðarslys. Þar hefur einn ágætur maður, Gunnar Gunnarsson verkfræðingur, sent frá sér svokallaða „svartblettaskýrslu" þar sem hann bendir á hættulega staði í borginni, kemur með tillögur til úrbóta og hvað þær muni kosta. Auk þess bendir Gunnar á í skýrslu sinni að þær upphæðir sem myndu sparast við fækkun alvarlegra slysa og dauðaslysa yrðu fljótar að borga upp lagfæringarnar. Eins og margir vita kostar eitt dauðaslys í umferð- inni þjóðfélagið að meðaltali 15 milljónir króna í beinhörðum pen- ingum. Það hefur verið metið út frá vinnutapi og öðru. Alvarlegt um- ferðarslys sem hefur í för með sér varanleg örkuml kostar þjóðfélagið 40—50 milljónir, enda er þar um að ræða fólk sem þarf að dvelja á stofn- unum alla sína ævi og fá en3urhæf- ingu. Það má því rétt leika sér að töl- um um það hvað þjóðfélagið myndi spara mikið af peningum með því að lagfæra þessa svörtu bletti. Það eru þrjátíu og sex staðir hér í borg- inni sem aðkallandi er að laga. Minnihiutaflokkarnir lögðu fram til- lögu þegar gerð var fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir þetta ár um að borgin legði fram tuttugu og fimm milljónir til að gera við þessa staði. Niðurstaðan varð sú að borgin veitti fjórar milljónir." Hún segir að umferðarmál hafi alltaf flokkast undir að vera „annars flokks mál“ þegar til kosninga kæmi: „Að minnsta kosti hef ég ekki orðið vör við að neinn af pólitísku flokkunum hafi sett umferðar- eða skipulagsmál á oddinn þegar í kosn- aldrei gleymist og lætur engan ósnortinn. Það er líka skelfilegt að horfa upp á marga þeirra sem ég kom að rúlla sér nú áfram í hjóla- stólum. Margt af þessu fólki slasað- ist vegna aðstæðna í skipulagsmál- um í vegagerð; í mörgum tilvikum var þetta fólk sem ók á brúarstólpa eða fór út af í hættulegum beygjum, sem gert var við í kjölfar slysanna. En það er aldrei hugsað fyrr en skaðinn er skeður. Hér á landi eru margar varhugaverðar blindhæðir sem hægur vandi á að vera að laga, en það er alltaf eins og það þurfi ein- hver ósköp af slysum áður en eitt- hvað er gert. Ég var nýlega á ferð norður í landi og þar bentu lög- reglumenn mér á fjölmargar slysa- gildrur þar sem fjöldinn allur af slys- um verður á hverju einasta ári. Lög- reglan sagði mér að þeir væru búnir að argast í Vegagerðinni og þeim sem eiga að sjá um þetta, en það væri sjaldnast nokkuð gert.“ Þriðjungur lótinna I umteréarslysum ó aldrinum 15—25 óra Hún segir að því miður virðist of staklingar um ökukennslu og það virðist lítið sem ekkert eftirlit haft með því hversu fáa tíma krakkar sleppa með. Við vitum dæmi þess að 17 ára strákar hafi fengið öku- skírteini í hendur eftir fimm til sex kennslustundir. Það er dýrt að taka ökupróf, það kostar frá tuttugu upp í þrjátíu þúsund krónur, og krakk- arnir eru fegnir að sleppa með sem fæsta tíma. Sem betur fer er þetta ekki algiid regla meðal ökukennara, en þó alltof algengt. Eitt af því sem við viljum að verði gert er að koma upp æfingasvæði fyrir þá sem eru að taka bílpróf þar sem þeir geta æft sig að aka við mismunandi aðstæð- ur. Þeir sem sitja á peningunum hafa ekki viljað eyða þeim í slíkt svæði. Krakkar sem læra að aka á sumrin vita ekkert hvernig það er að aka í hálku en þeim er hleypt út í umferð- ina eigi að síður." Rangar áherslur á störf lögreglunnar Ragnheiður er heldur ekki sátt við þann niðurskurð sem orðið hef- ur hjá lögreglunni. Hún segir að þeirrar tilhneigingar hafi gætt und- anfarin ár að skera niður löggæsl- Þridjungur alira alvarlegra umferðarslysa hendir fólk á aldrinum 15—25 ára. . . ingabaráttu er komið. Og ég er al- veg sannfærð um að sá flokkur sem myndi beita sér fyrir þessum málum og kæmi með raunhæfar tillögur í umferðarmálum í borginni færi ekki halloka í næstu borgarstjórnar- kosningum. Það er eins og hlutirnir þurfi alltaf að höggva nærri fólki til að það skilji. Það væri kannski ráð að bjóða þessum aðilum inn á Grensásdeild og sjá fólkið sem hefur lamast og þarf að eyða ævinni í hjólastól? Það væri líka kannski ráð að bjóða þeim að horfa upp á hörm- ungar þeirra sem séð hafa á eftir ást- vinum sínum á vígvelli umferðar- innar? Ég vona bara að ráðamenn í þjóðfélaginu þurfi ekki að upplifa slíka sorg sjálfir til að augu þeirra opnist." Alvarlegt umferðarslys sem hefur varanleg örkuml í för með sér kostar 40—50 milljónir... Fjeldsted, fulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins í borgarstjórn, skyldi greiða at- kvæði gegn okkur. Katrín hefur gef- ið sig út fyrir að vera mjög afgerandi í umferðarmálum; hún hefur barist mjög fyrir umbótum á gatnakerfinu og beitt sér fyrir því að hraðahindr- unum væri komið upp. En þarna sá- um við að það er aldrei á vísan að róa í þessum málum. í okkar huga eru umferðarmál málefni allrar þjóðarinnar og ættu því að vera þverpólitísk með öllu." Þarna voru því furðuleg sjónarmið á ferðinni að okkar mati. Hjá Umferðardeild Reykjavíkurborgar hefur verið gerð úttekt á helstu slysastöðum borgarinnar.... ríkjandi það viðhorf að „ekki sé við öðru að búast, ökumaðurinn hafi verið að fá bílpróf": „Þriðjungur allra alvarlegra umferðarslysa hendir fólk á aldrinum 15—25 ára,“ segir hún. „Á þessu ári var helm- ingur látinna af völdum umferðar- slysa á þessum aldri. Það er kannski ekki við góðu að búast eins og stað- ið er að ökukennslu hérlendis. Þar virðast því miður oft gróðasjónar- miðin ein ráða ferðinni. Okkur í þessum áhugahópi langar til að beita okkur í þeim málum sem lúta að ökukennslu. Hér á landi sjá ein- una og nú sé umferðardeildin ekki svipur hjá sjón hjá því sem áður var. Skýringin sé sögð sú að ekki fáist fjárveiting til aukinnar löggæslu: „En mín skoðun er sú að það séu ekki réttar áherslur á störf þeirra manna sem til staðar eru,“ segir hún. „Lögreglan hefur ákveðinn mannafla, en áherslurnar liggja á öðrum sviðum en þeim að sinna umferðinni. Það er sífellt verið að taka menn úr umferðardeildinni til að takast á við önnur verkefni og núna eru til dæmis aðeins tveir lög- reglumenn við umferðarfræðslu í

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.