Pressan - 17.08.1989, Page 11
Fimmtudagur 17. ágúst 1989
mann með tóman bensínbrúsa og
hjólaði með hann á bensínstöð. Og
ein besta sagan af honum er þegar
hann hringdi í vin sinn, ritstjóra á
dagblaðinu E1 Pais í Madrid. Blaða-
maður sem svaraði sagði að ritstjór-
inn kæmist ekki í símann og Juan
Carlos bað fyrir skilaboð: „Viltu
gjöra svo vel að biðja hann að
hringja í mig. Þetta er Juan Carlos —
konungur." „Já ég geri það,“ svaraði
blaðamaðurinn. „Eg er Napóleón
Bonaparte!"
Þegar ég spyr Maríu Önnu hvort
hún hafi ekkert verið í vafa um
hvernig hún ætti að klæðast í sam-
fylgd konungborinna svarar hún
skellihlæjandi: „Jú ég var nú tauga-
óstyrk yfir því! Fyrsta daginn ákvað
að fara í gráa dragt — og var með
forljótt veski! Hins vegar skipti ég
miklu oftar um föt en þau, því ég fór
ekki með til Vestmannaeyja og gat
því farið heim á milli. Síðdegis á
fimmtudeginum var móttaka fyrir
spænskumælandi fólk og þá fóru
konungshjónin beint úr bílnum í
móttökuna, en ég hafði fengið
klukkutíma heima til að hafa mig til!
Það er greinlega miklu auðveldara
að vera undirmanneskja ...!“
Það kvöld var haldin konungs-
veisla og þar sögðu öryggisverðirnir
Maríu Önnu að henni væri velkom-
ið að fljúga með konungsvélinni til
Madrid daginn eftir: „Ég varð hins
vegar að gefa upp nöfn þeirra sem
myndu sækja mig á flugvöllinn, því
konungsvélin lendir á afgirtu her-
svæði. Ég rauk í símann og hringdi
í Jesus, svona rétt til að tryggja að
systir hans og mágur kæmu út á
völl!"
Um borð í einkaþotu
konungshjónanna
Henni var sagt að koma með tösk-
urnar sínar á Hótel Sögu fyrir klukk-
an níu næsta morgun. Þar uppgötv-
aði María Anna sér til mikillar skelf-
ingar að hún hafði farið í háhælaða
skó — en ferðinni var fyrst heitið á
Nesjavelli og þaðan til Þingvalla:
„Ég hljóp því inn í gestamóttökuna
og spurði hvort einhver þar gæti
lánað mér lágbotnaða skó!“ segir
hún hlæjandi. „Það var minnsta
mál, svo ég gat gengið um á Þing-
völlum..
Síðdegis var haldið út á flugvöll.
Það var í fyrsta og líklega síðasta
skipti sem María Anna hefur farið út
úr landinu og inn í Spán án þess að
framvísa vegabréfi: „Konungshjón-
in sátu fremst í vélinni, ásamt hæst-
settu mönnunum í konungsráðu-
neytinu, en ég var með öryggisvörð-
unum aftan til. Auk mín var aðeins
ein önnur kona þar. Rétt áður en við
lentum í Madrid bað ég um leyfi til
að fara fram í og kveðja konungs-
hjónin. Ég var nú svo dauðfeimin að
ég þakkaði þeim bara fyrir samver-
una og góð kynni... Maður er aðal-
lega í því að vera taugaveiklaður og
feiminn í návígi við svona háttsett
fólk, þótt það sé í rauninni engin
ástæða til. Og mér fannst gaman að
sjá töskurnar mínar í Madrid,
merktar með konunglegu
spjaldi... Það sem ég sé einna mest
eftir er að hafa ekki haft kjark í mér
til að biðja einhvern að taka mynd af
mér með drottningunni í
Kringlunni. Myndavélin lá í veskinu
mínu, en ég þorði ekki...! Þetta
var ævintýri sem maður lendir
örugglega ekki í nema einu sinni á
ævinni."
PRESSU
MfeL&JR
’ðinair — flugfélag Helga
Jónssonar, sem sérhæft hefur sig i
Grænlandsflugi — mun vera að
hefja sölu á nýjum hreindýraveiði-
ferðum til Austur-Grænlands. Þetta
eru fimm daga ferðir og eiga að kosta
hátt á þriðja hundraðþúsund, en þá
er líka allt innifalið. Islenskir veiði-
menn sem bregða munu sér til
Grænlands fá þó ekki leyfi til að
koma með kjötið heim. Lög hér á
landi banna slíkt. Heimildir okkar
segja hinsvegar að veiðiferðir til
Grænlands séu kærkomin nýjung
fyrir tannlækna og aðra hátekjuúti-
vistarmenn, sem fái þarna nýjan
kost í „leikjasafnið”...
b
“einar útsendingar frá skák-
mótum þykja takast misvel. í þeim
efnum þótti Stðð 2 skara framúr
þegar Heimsbikarmótið var hald-
ið í Borgarleikhúsinu í fyrrahaust.
Stórmeistarasambandið með Kas-
parov í fararbroddi hreifst svo af
vinnubrögðum Stöðvarmanna að
óskað var eftir aðstoð þeirra við út-
sendingar frá heimsbikarmótinu
sem nú er haldið í Sviþjóð. Það er
Maríanna Friðjónsdóttir sem
stjórnar beinum útsendingum það-
an og henni til aðstoðar er Birna
Björgvinsdóttir. Búast má við að
áhorfendur skipti tugum þúsunda,
enda Rússar meðal þeirra sem
njóta útsendinga sænskra sjónvarps-
stöðva. Og hver haldið þið að segi
fréttir af mótinu? Jú, enginn annar
en Páll Magnússon, fréttastjóri á
Stöð 2...
^^amtök gjaldþrota einstaklinga,
G-samtökin, eru um þessar mundir
að opna skrifstofu þar sem forráða-
11
menn þeirra telja mikla þörf fyrir
upplýsingamiðlun og ráðgjöf fyrir
fólk í fjárhagsvanda. Skrifstofan
verður líklega opin tvisvar í viku, en
hún er til húsa í Bæjarhrauni 16 í
Hafnarfirði. Enn hafa forsvars-
menn samtakanna þó ekki leyst eitt
vandamál í tengslum við skrifstofu-
haldið. Þeir eiga ekki svo mikið sem
einn stól á skrifstofuna, hvað þá
skrifborð...
m íi
xíkóför Ólafs Ragnars
á dögunum vakti athygli vegna yfir-
lýsinga hans um möguleika á út-
flutningi íslendinga til landsins. Það
fylgdi hins vegar ekki fréttunum að
Mexíkó telst í hópi skuldugustu
þjóða heims og kannski ekki svo
feitan gölt að flá þegar litið er á
mögulegar útflutningstekjur frá
Mexíkönum .. .
RYMINGAR
1
Við eigum til nokkra MAZDA og LANCIA bíla árgerð 1989, sem við seljum í dag og
næstu daga á sérstöku verði til að rýma til fyrir 1990 árgerðunum, sem eru væntanlegar
í haust.
Dæmi um verð: Fullt verð Verö nú Þú sparar
MAZDA 323 3 dyra LX 1.3L 5 gíra Super sport 727.000 662.000 65.000
MAZDA 323 3 dyra GLX 1.51 sj.sk. vökvast. Super Special 856.000 757.000 99.000
MAZDA 323 5 dyra LX 1.3L sj.sk. Super Special 801.000 718.000 83.000
MAZDA 323 4 dyra GLX 1.5L sj.sk. vökvast. Super Special 929.000 827.000 102.000
MAZDA 323 3 dyra GTi 1.6i 5 gíra m/vökvast./álfelgum/vindsk. 1.049.000 927.000 122.000
MAZDA 323 4 dyra TURBO 5 gíra 150 hö. m/vökvast./álfegum/vindsk. 1.236.000 1.093.000 143.000
MAZDA 626 4 dyra GLX 2.0L m/sj.sk./vökvast. 1.198.000 1.103.000 95.000
MAZDA 626 5 dyra Station GLX 2.0L m/sj.sk./vökvast. 1.300.000 1.181.000 119.000
MAZDA 626 2 dyra Coupe GLX 2.0L 5 gíra/vökvast. 1.150.000 1.026.000 124.000
MAZDA 626 2 dyra Coupe GTi 2.0L 148 hö. m/vökvast./álfelgum/vindsk. 1.415.000 1.270.000 145.000
MAZDA 929 4 dyra GLX 2.2L m/sj.sk./vökvast. 1.550.000 1.357.000 193.000
LANCIA SKUTLA Deluxe (’88 árg.) 501.000 416.000 85.000
LANCIA SKUTLA „FILA“ (’88 árg.) 515.000 425.000 86.000
(Qreiðæiliiisjör \úi® aHlea HnacAi — ILanætfrmi afltt :npp íí 2% át!!
Þetta eru án efa bestu bílakaup ársins. Tryggið ykkur því bíl strax, því aðeins er um tak-
markað magn að ræða!
BILABORG HF.
FOSSHÁLSI 1, S. 68 12 99