Pressan - 17.08.1989, Síða 13
12
Fimmtudagur 17. ágúst 1989
Fimmtudagur 17. ágúst 1989
13
★ Snobb
Siðasta kveðjan sem íslendingur fær
birtist i daablaoi. Ættingi, kunnmgi eða
vinnufóladi tekur sig til og skrifarTengri
eða styttri minningargrein þar sem sumt
er satt, annað ýkt og eittnvað þagað i
hel. Ástvinum er oftast i mun að hins
látna só minnst og ekki sakar að virðing-
armenn vitni um göfugt starf hins fram-
liðna. Í minningargreinum tvinnast sam-
an hógómi, hughreystiorð og ekki sist
hugmyndir íslendinga um dauðann og
eilifðina.
EFTIR PÁL VILHJÁLMSSON MYND: BJÖRG
Minningargreinar eru séríslenskt
fyrirbæri. Eriendis er algengt að lát-
inna sé minnst með lítilli klausu og
knöppu æviágripi. Það þekkist ekki
að ættingjar og vinir skrifi langlok-
ur um látinn mann.
Fyrir nokkrum árum birtist í
ljóð eru illa séð á minningarsíðun-
um og kann það að stafa af hnign-
andi skáldgáfu þjóðarinnar. Hér áð-
ur var það íþrótt að yrkja erfidrápu.
Þetta ljóðform var misnotað á 19du
og 20stu öld með því að skáld voru
fengin til að yrkja um sér bláókunn-
sænsku síðdegisblaði frétt með fyr-
irsögninni „Dödens tidning". Þar
sagði frá undarlegu dagblaði á norð-
urhjara veraldar sem þrifist helst á
því að skrifa um látið fólk. Dagblað-
ið sem sænskir áttu við er Tíminn,
en í mörg herrans ár hélt blaðið úti
íslendingaþáttum. Tíminn lagði ís-
lendingaþættina af og Morgunblað-
ið er eitt um að birta reglulega
minningargreinar.
Morgunblaðið hefur það fyrir
reglu að birta allar þær minningar-
greinar sem berast. Þegar mikið
gengur á getur dregist að birta öll
eftirmælin, en reynt er að koma
þeim í blaðið daginn sem jarðarför
fer fram. Greinarnar eru ekki styttar
og aðeins málvillur leiðréttar.
Það eru tvö atriði sem höfundar
minningarorða í Morgunblaði verða
að hafa í huga. Annarsvegar að
yrkja ekki til hins látna. Frumort
uga menn og fremur var litið á
samningu erfiljóða sem handiðn en
skáldskap. Hinsvegar að ávarpa
ekki hinn látna, enda hefur Morgun-
blaðið enga tryggingu fyrir því að
framliðnir lesi blaðið.
„Guðirnir
elska . .
Sökum þess að eftirmæli i Morg-
unblaðinu eru ekki ritskoðuð eða
stílfærð af ritstjórn blaðsins, heldur
birt óbreytt, eru þau merkileg heim-
ild um þær hugmyndir sem íslend-
ingar gera sér um líf og dauða. Ekki
er að efa að langflest minningarorð-
in eru skrifuð af heilu hjarta og
fölskvaleysi þess sem kemst í kynni
við dauðann, jafnvel þótt óbeint sé.
Lausleg athugun blaðamanns
benti ekki til að fræðileg athugun
hefði verið gerð á innihaldi minn-
t Saluhjalp
undar eftirmæla grípa stundum til
þess ráðs að svara spurningunni
með orðtakinu „þeir sem guðirnir
elska deyja ungir".
Frá kristnu sjónarmiði er tvennt
athugavert við þetta svar. í fyrsta
lagi er guð hér í fleirtölu og það
samrýmist illa eingyðistrú krist-
inna. í öðru lagi er langlífi löngum
talið mikil guðsblessun í kristnu
samfélagi. Það er meira í ætt við
heiðni að fegra ótímabæran dauð-
daga. Þeir höfundar minningarorða
sem vitna til latneska orðskviðarins
hafa ábyggilega annað í huga en
fjölgyðistrú, sumsé þetta: „Menn-
irnir elska þá sem ungir deyja.“
í sumum eftirmælum eru tilfærð-
ar vísur úr Hávamálum. En Háva-
mál koma úr heiðnum sið og eru
gegnsýrð lífsviðhorfi víkingaaldar
þar sem megináherslan er á þetta
líf. Algengt er að hafa yfir vísuorðið
um að orðstír sé það eina sem aldrei
fyrnist. í kristni er orðstír aftur á
móti forgengilegur eins og annar
veraldlegur hégómi. Það er eins og
íslendingar treysti almættinu ekki
fyllilega fyrir velferð hins látna.
Minningargrein í Mogga um eilífan
orðstír er öruggari leið til ódauð-
leika; skrifað orð stendur.
Þau semja
fyrir þig
eftirmælin
Ný þjónusta er í boði: Sértu í erfiðleikum með að
koma saman minningarorðum um látið skyld-
menni eða kunningja, en vilt engu að síður senda
kveðju, eru þau Einar og Jóna í Ritvali hf. tiibúin að
hjálpa þér.
Maður .getur slegið á þráðinn eða heilsað upp á
Einar og Jónu þar sem þau halda til á Skemmuveg-
inum í Kópavogi og látið þau fá helstu upplýsingar
um hinn látna. Einar semur textann og Jóna sér um
uppsetningu og frágang. Verðið ætti ekki að fæla
neinn frá, það kostar á milli 2.000 og 3.800 krónur
að fá fullfrágengin eftirmæli.
„Fyrirmyndin er frá Bandaríkjunum,” segir Einar
Jónsson. í Fíladelfíu þar vestra kynntist hann fyrir-
tæki sem sérhæfði sig í því að semja líkræður. Útfar-
arræðurnar voru samdar að ósk ættingja og komu
fullbúnar í hendur prestinum sem lagði til guðsorð-
ið. Ameríkanar kunna til verka í færibandavinnu.
Einar segir enga hættu á því að minningargreinar
sem hann semur verði hver annarri líkar, enda
vinni hann í nánu samstarfi við kúnnann.
„Við erum nýbyrjuð með þessa þjónustu og bú-
umst ekki við að þetta verði neinn gróðavegur.
Þetta kemur sem viðbót við þá ritvinnslu sem við
erum með,” segir Jóna Jóhannesdóttir.
„Fyrirmyndin er frá Bandaríkjunum." Einar Jónsson og Jóna Jóhannesdóttir.
Gamall siður
Sennilega eru minningaskrif leif-
ar af þeim sið að við jarðarfarir
mæltu sveitungar hins látna nokkur
orð þegar rekunum var kastað. Þeg-
ar dagblöð komu til sögunnar var
tilvalið að festa minningarorðin á
blað og koma þeim á framfæri við
fleiri lesendur. Ríkisútvarpið lagði
líka sitt af mörkum og útvarpaði
jarðarförum um árabil til allra lands-
manna. Gátu menn borið líkræðu
prestsins saman við umsögnina sem
hinn látni fékk í dagblöðum.
Það er eftirtektarvert að við frá-
fall barna og unglinga finna tiltölu-
lega margir sig knúna til að skrifa
eftirmæli. Það virðist ekkert sam-
ræmi milli aldurs og lífshlaups hins
látna annarsvegar og lengd og
fjölda minningargreina hinsvegar.
Gunnar Kristjánsson, prestur á
Reynivöllum í Kjós, telur minninga-
skrif um ungt fólk oft vera aðferð
kunningja og vina til að samhryggj-
ast foreldrum hins láta ungmennis.
„íslendingar eiga svo erfitt með að
tjá tilfinningar sínar og vita illa
hvaða atferli hæfir á sorgarstundu.
Margir leysa úr þeim vanda með því
að skrifa minningargrein,” segir
Gunnar.
{ svo gott sem öllum eftirmælum
er þeim látna gefin lyndiseinkunn.
Sömu lýsingarorðin koma fyrir aft-
ur og aftur. Um konur er gjarnan
fjölyrt að þær hafi verið blíðlyndar
og umhyggjusamar, en karlar eru
oftast traustir, duglegir og gefast
ekki upp þótt á móti blási.
ingargreina, hvorki þekktu menn í
guðfræðideild Háskóla íslands til
þess né aðspurðir sagnfræðingar.
Þegar ungt fólk fellur frá með
sviplegum hætti er það alltaf jafn-
óútskýranlegt. Þeir sem trúa á al-
mættið standa einatt frammi fyrir
þessari spurningu: Hvers vegna er
lífið hér á jörð ekki algott fyrst upp-
hafið og endirinn er hjá algóðum
guði? Þrátt fyrir tvöþúsund ára við-
leitni er ekki til einhlítt svar. Höf-
Frómir gófumenn
Þótt eftirmæli séu hugsuð af hálfu
höfunda sem álitsgerðir um ein-
staklinga, sem eru eins misjafnir og
þeir eru margir, segja þau ýmislegt
um þær dyggðir sem helst þykja
prýða menn og konur. Og ekki síður
gefa slíkar umsagnir góða hugmynd
um þá lesti sem landlægir eru á ís-
landi.
Það er varla tilviljun hversu oft
höfundar minningargreina gefa
þeim látna þau eftirmæli að „hon-
um/henni lá aldrei illt orð til nokk-
urs manns”. Baktal og rógur þrífast
vel í fámennu samfélagi og gömul
saga að íslensk eyru fýsir illt að
heyra. Þegar skráð eru eftirmæli
verður það mælikvarði á frómt líf-
erni hvort viðkomandi hafi staðist
þá freistni að tala illa um náungann.
Önnur algeng einkunn lýtur að
gáfum þess látna. Orð eins og „gáf-
aður, skarpur, bráðgáfaður og
greindur” má víða lesa í eftirmæl-
um.
Sigurður Nordal gerði einu sinni
grín að gáfumannakomplexum ís-
lendinga. Hann tók dæmi af 1000
mannlýsingum opinberra starfs-
manna þar sem rrieira en helftin
fékk þá umsögn að vera gáfuð.
Ádeiluna flutti Sigurður haustið
1942 í Menntaskólanum í Reykjavík
en hún birtist í fyrsta skipti á prenti
fjörutíu og fimm árum síðar, í útgáfu
AB.
Niðurstaða Sigurðar er þessi: „Sé
gáfumannahjalið okkar brotið til
mergjar, stappar það háskalega
nærri því, að við höfum viljað virða
sem mest þá menn, sem allt var
sjálfrátt illa gefið . .. Því meira sem
hér yrði af heilbrigðri skynsemi og
siðferði, því færri gáfumenn mundu
verða hér í þeim rangsnúna og dap-
urlega skilningi, sem eymdarkjör og
vanmetakennd hafa innrætt þjóð-
inni að leggja í það orð.“
Drýgið tekjumarí
Endurvinnslan hf. tekur við einnota öl- og
gosdrykkjaumbúðum gegn skilagjaldi.
Á móttökustöðum er skilagjaldið greitt út í
hönd. Til að flýta fyrir afgreiðslu eru menn beðnir
að flokka umbúðir og setja áldósir í einn poka,
plastdósir og -flöskur í annan og einnota gler-
flöskur í þann þriðja. Móttökustaðir eru opnir
virká daga frá mánudegi til föstudags.
Á söfnunarstöðum er tekið við óflokkuðum
umbúðum. Þær eru merktar og fluttar til Endur-
vinnslunnar í Reykjavík sem sendir eiganda ávísun
fyrir skilagjaldinu í pósti. Miðað er við að menn
safni a.m.k. 100 umbúðum í einn poka áður en
honum er skilað á söfnunarstað. Upplýsingar um
afgreiðslustað og tíma eru auglýstar á hverjum
stað.
Sö/hunantaðin
Borgarnes
Ólafsvík
Grundarfjörður
Stykkishólmur
Búðardalur
Patreksfjörður
Tálknafjörður
Bíldudalur
Þingeyri
Flateyri
Suðureyri
Bolungarvík
Súðavík
Hólmavík
Hvammstangi
Blönduós
Skagaströnd
Sauðárkrókur
Siglufjörður
Ólafsfjörður
Dalvík
Húsavík
Kópasker
Raufarhöfn
Þórshöfn
Vopnafjörður
Egilsstaðir
Seyðisfjörður
Neskaupstaður
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Búðir
Stöðvarfjörður
Breiðdalsvík
Djúpivogur
Höfn
Kirkjubæjarklaustur
Vík
Hvolsvöllur
Hella
Hveragerði
Laugarvatn
Stokkseyri
Þorlákshöfn
Grindavík
Endurvinnsla stuðlar að hreinna umhverfí,
heilbrigðara verðmætamati og er auk þess dágóð
búbót fyrir duglega safnara.
[mRvimun HF
Nýtt úr notuðu
Móttökustaðir:
Reykjavík: Dugguvogur 2, opið kl. 13-18.
Við Jaðarsel (hverfisstöð Gatnamálastjóra), opið
kl. 13-18.
í skemmu við Eiðisgranda, opið kl. 13-18.
Kópavogur: Við Fífuhvammsveg, opið kl. 13-18.
Hafnarfjörður: Vinnuskóli við Flatahraun, opið
kl. 13-18.
Akranes: Smiðjuvellir 3, opið kl. 9-12.
ísafjörður: Hjallavegur 11, opið kl. 20-22.
Akureyri: Við KA-heimilið, opið kl. 13-18.
Vestmannaeyjar: Kaupfélag Vestmannaeyja, opið
á verslunartíma.
Selfoss: Vörumóttaka Kaupfélags Árnesinga, opið
kl. 13-17:30.
Keflavík: Iðavellir 9B, opið kl. 14-18.
YDDA Y30. 3/SlA