Pressan - 17.08.1989, Page 17
Fimmtudagur 17. ágúst 1989
17
brídge
krossgátan
Það er ástæðulaust að fara á
taugum þótt útlit sé fyrir að and-
staðan sé að sækja sér stungu í
upplögðum samningi.
Það er uppörvandi að þú hefur
séð vandann og þá er bara að
skoða hvort hægt sé að finna lausn
á honum.
♦ ÁKD1072
V 1093
♦ K2
4»'82
4 G
y KG75
4 865
4 KG943
N
V A
S
498643
VÁD862
♦ -
41076
4 5
y 4
♦ ÁDG109743
4ÁD5
S gefur, allir á. S hefur sagnir á
1-tígli, 1-spaði í N og suður á fyrir
3-tíglum. N stekkur í 4-spaða til að
sýna sjálfspilandi lit og eftir fyrir-
stöðusagnir í láglitunum endar
suður í 6-tíglum.
Það hefði verið klókt af vestri að
leggja niður hjartakóng til þess að
fá tækifæri til að skoða blindan og
íhuga framhaldið, því ljóst var af
sögnum að félagi átti þar fyrstu
fyrirstöðu. En vestur kaus að spila
út spaðagosa.
Það blasti við suðri að gosinn
væri einspil og stunga því yfirvof-
andi. Hann stakk upp ás og spilaði
trompi á ásinn, sem er í himnalagi
ef trompin hefðu legið 2—1, en
áætlunin þoldi ekki 3-0- skipting-
una og suður fór að lokum tvo nið-
ur.
Suður var í hálfslemmu og hann
hefði átt að einbeita sér að 12 slög-
um. Fyrst vestri var svona umhug-
að að sækja sér stungu var mátu-
legt á hann að fá hana; fyrsta og
síðasta slag varnarinnar!
í 2. slag heldur suður áfram með
spaðann og kastar hjarta heima og
3—0-legan í trompinu er ekkert
vandamál lengur. Neiti vestur sér
um trompun er spaðanum spilað
áfram og laufi kastað að heiman.
skák
Taflvél Kempelens
Wolfgang von Kempelen var
mikill trúnaðarmaður yfirvalda í
austurríska keisaradæminu á átj-
ándu öld. Hann sá um byggingar
og önnur mannvirki, stjórnaði
verkum, skipulagði og teiknaði —
var eins konar húsameistari ríkis-
ins. Ekki lék vafi á því að maður-
inn var snillingur, allt lék í hönd-
unum á honum og hugmyndaflug-
ið var frjótt.
Það var árið 1769 að Kempelen
hvarf um sex mánaða skeið, lokaði
sig inni á verkstæði sínu, og fékk
enginn að vita við hvað hann
fékkst. En að lokum birtist hann
aftur og hafði þá kjörgrip að sýna:
vélmenni sem gat teflt skák. Við
sæmilega stórt borð sem var að
miklu leyti lokað eins og skápur
sat brúða í fullri líkamsstærð,
klædd eins og Tyrki með túrban á
höfði. Á borðinu var fast skákborð
með stórum og gerðarlegum tafl-
mönnum. Hirðin með Maríu Ther-
esíu í fararbroddi starði undrandi á
þetta furðuverk þegar borðinu var
ekið inn í salinn. Kempelen bauð
hverjum sem vildi að koma og
tefla við Tyrkjann, en menn voru
hikandi og hissa. Einhver hafði
orð á því hvort ekki væri maður
falinn inn í vélinni. Kempelen tók
þeirri spurningu vel, opnaði þegar
tvær hurðir á skápnum svo að allir
gætu séð hið flókna gangverk,
bað meira að segja um kerti til að
lýsa inni í skápinn. Síðan var hurð-
unum lokað og sú þriðja og
stærsta opnuð. Þá var opnuð hurð
hinum megin á skápnum og loks
voru allar þrjár hurðirnar sömu
megin opnaðar og höfðu þá allir
sannfærst um að enginn maður
var í skápnum. Þá gat taflið hafist.
Þeir sem tefldu við vélmennið
voru beðnir að gæta þess að setja
taflmennina ávallt nákvæmlega á
miðja reiti. Tyrkinn gat hreyft aðra
höndina og leikið þannig. Hann
hreyfði sig hægt og settlega og var
býsna kurteis: ef hann setti á
drottningu hneigði hann sig tvisv-
ar, en þrisvar ef hann skákaði. Ef
mótleikandinn braut reglur um
manngang hristi Tyrkinn höfuðið,
færði manninn til baka og lék sjálf-
ur. Það var refsing hans fyrir ólög-
legan leik. Öðru hverju dró Kemp-
elen upp gangverkið.
Þetta vakti feikna athygli og
þótti með ólíkindum. Sumir höfðu
þrátt fyrir allt grun um að maður
væri í skápnum, en hann var þá
furðu vel falinn. Einhverra hluta
vegna var Kempelen ekki áfjáður
í að sýna þennan merkilega grip
of oft. Sú saga komst á kreik að
vélmennið væri bilað og var það
ekki sýnt um sinn. En þegar Jósep
annar hafði tekið við völdum af
móður sinni og átti vin á rússn-
eskum stórfursta í heimsókn
komst Kempelen ekki hjá því að
sýna tækið að nýju. Það vakti
mikla athygli eins og fyrr og keis-
arinn sendi Kempelen víða um
Evrópu til að sýna þetta furðu-
verk, meðal annars til Parísar og
Lxjndon.
GUÐMUNDUR
ARNLAUGSSON
VIÉLUIÍV
AflOLir
&WTPIIZ-1/
T, LOKA
TÍT
GYA.ru
WffiTP1 k
HOUT
samtok
JLoíiue/
P/KKAtl
f/Ou-M
þftíLL
M/U/HUR
ItYriú
MYMufZ
TlAfJG-A
f&l-Ð-
StlfíÐA
GRPLti-
METi
6
HTlMSKA
OMll-'T
£kD-
£TÆSI
J-/AT
fUCrL
II
öEismt
WRE'Yf-
167
15
)8
TOGi
UTA/Y
S%6-
Afír/AS
g‘ap/
‘AGt-tYG
fOTTAR
E/rJfJlG
BATI
¥—
HluiJ/y-
iiJoi
Kolo
OÐLAST
KELOA
HUG-
LSiOlK
SKtlbTi
Mfcð/
PiPufí.
flTHUGfl
%-------
fíLLTflh
Lf-LtG
/ÍSAST
)6
REfSiriGc
HRF-imn
UPÚGcl
G'alqi
HPAOI
fu&L
I?
Bú'ALfAfl
KATARI
P'lLfl
10
f/tODU
hLP/sr
fiflR-
Ofl&i
1
KEYPBl
H'flVAY-
irJrY
KOSTuP-
SM'flli
STPlf
oARMiaR
Yfcð
13
skyh-
h/ífi
&
tom
f0l<-
fkfluf
'gu6
HLbMI
TYWAKA
TTo&Z
UTflrl
DfYKKUt
%
Llflufl
S'fl-P
ír!/Bu(l
riL
HRíYfDl
H
SF.fl
ÍZ
KONU-
r/flfH
3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16
Krossgáta nr. 47.
Skilafrestur krossgátunnar er til 29. ágúst. Utanáskriftin er: Pressan, kross-
gáta nr. 47, Ármúla 36, 108 Reykjavík.
I verdlaun er bókin Uppgjörið eftir rithöfundinn Howard Fast og fjallar
hún um örlagaatburdi sem veröa í lífi öldungadeildarþingmanns í Banda-
ríkjunum. Dregiö hefur verid úr lausnum á 45. krossgátu. Vinningshafinn
er Brynjar Halldórsson, Gilshaga 2, 671 Kópaskeri.
Hann fœr senda bókina Viðsjái er vagga iífsins eftir Mary Higgins
Clark. Skjaldborg gefur báöar bœkurnar út.