Pressan - 21.09.1989, Blaðsíða 3

Pressan - 21.09.1989, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 21. sept. 1989 3 Guðjón B. Ólafsson farinn til San Francisco: Á SAMKOMU MEÐ FORSTJÓRUM RISA- FYRIRTÆKJA HEIMSINS Gudjón B. Ólafsson, forstjóri Sam- bandsins, fór utan um siðustu helgi. Ferðinni var heitið til San Francisco ó vesturströnd Bandarikjanna þar sem Guðjón settist ó raðstefnu með forstjór- um margra helstu og stærstu fyrirtækja heimsins. EFTIR ÓMAR FRIÐRIKSSON Hér er um að ræða nokkurs konar klúbb toppanna í viðskiptalífi heimsins og eru fundir haldnir á fjögurra ára fresti. Á þessum fund- um hafa m.a. verið forstjóri General Motors, aðalbankastjóri Citibank, háttsettur viðskiptafulltrúi frá Sov- étríkjunum og auðjöfrar frá Suð- ur-Ameríku, svo fátt eitt sé nefnt. Fyrst og fremst sitja þessar ráðstefn- ur forstjórar leiðandi fyrirtækja í heiminum, en einnig má þar finna virta vísindamenn og háttsetta embættismenn og dæmi eru um fulltrúa frá smærri fyrirtækjum sem hafa átt velgengni að fagna. Það eru Stanford-háskóli og Con- ference Board, sem er gömul og virt stofnun í New York, sem standa á bak við þessar samkomur. Ráðstefnur þessar hófust árið 1971. Þar er oft rætt um afmörkuð mál s.s. þróun efnahagsmála í heim- inum, verðbólgu, orkumál o.fl. Forstjórar Sambandsins hafa sótt þessar ráðstefnur frá árinu 1977. Er- lendur Einarsson, forveri Guðjóns, fór þrívegis á slíka fundi en upphaf- lega mun það hafa verið aðalbanka- stjóri Citibank sem bauð Erlendi þátttöku í samkomunni. Auk þeirra Erlendar og Guðjóns mun Jónas Haralz a.m.k. einu sinni hafa setið Forstjórar Sambandsins hafa sótt þessar ráðstefnur frá 1977 en þær eru haldnar á fjögurra ára fresti. þessar samkomur á meðan hann var bankastjóri í Landsbankanum. Heimildarmenn PRESSUNNAR í SÍS kváðust furða sig mjög á því að Guðjón skuli verja heilli viku í að ferðast á samkomu sem þessa á sama tíma og Sambandið berst fyrir lífi sínu. „Ég er satt að segja undr- andi á Guðjóni, þegar svona stendur á og Sambandið er að berjast fyrir lífi sínu,“ sagði háttsettur sambands- maður í samtali við PRESSUNA í gær. Guðjón mun vera væntanlegur heim næstkomandi sunnudag. b ■Vessi Bjarnason leikari hef- ur verið fastráðinn á Stöð 2 og þar af leiðandi sagt upp störfum í Þjóð- leikhúsinu. Hefur Bessi þegar tek- ið að sér þátt á móti Bryndísi Schram, Kynin kljást, en hann mun einnig sinna öðrum tilfallandi verkefnum s.s. talsetningu á barna- efni... L Heyrst hefur af nýrri útvarps- stöð sem nokkrir núverandi og fyrr- verandi starfsmenn Bylgjunnar hyggjast setja af stað. Hafa í því sam- bandi heyrst nöfn á borð við Valdísi Gunnarsdóttur og Bjarna Ólaf Guðmundsson og að dagskrár- stjóri verði Þorsteinn J. Vil- hjálmsson. Stöðin mun eiga að heita Nýbylgjan... I setningarræðu sinni sagði Þor- varður Elíasson, skólastjóri Verzl- unarskóla íslands, að nemendur mættu búast við að lagðir yrðu dráttarvextir á vangoldin skóla- gjöld. Þorvarður segir enga stefnu- breytingu vera hér á ferðinni; áminningin hafi öllu heldur verið ábending til nemenda um að semja við gjaldkera skólans um greiðslur fyrir veturinn. Dráttarvextir munu verða sama prósenta og Seðla- banki íslands boðar hverju sinni... AFMÆLISUTGAFA AUKABUNAÐUR FYRIR KR. 35.000 - OKEYPIS í tilefni 35 ára afmælis BIFREIÐA & LANDBÚNAÐAR- VÉLA, gefur fyrirtækiö nú aukabúnaö aö verðmæti kr. 35.000, meö hverjum 5 dyra Lada Samara 1300. Opið kl. 10-14 laugardag. Aukabúnaður: Stereo útvarps- og segulbandstæki, ^ hátalarar, límrendur á hliöar, 1 1 ■ Allt þetta ókeypis í afmælisútgáfunni.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.