Pressan - 21.09.1989, Blaðsíða 23

Pressan - 21.09.1989, Blaðsíða 23
sjálf. Hún hafði samband við eig- endur mexíkansks veitingastaðar í Amsterdam og fékk leyfi til að dvelja þar í eldhúsinu í nokkurn tima til að læra listina: „Mexíkönsk matargerð er mjög stílhrein og ein- föld og hefur ekkert breyst í gegnum aldirnar," segir Einar. ,,Það er hægt að búa nánast hvað sem er til á franska vísu, en mexíkönsk inat- reiðsla er aðgreind frá öllu öðru.“ O nei góði! Fjögur- hundruð og sextíu — og þoð hjó heildsala! Anna Peggy er greinilega komin vel inn í íslenskt samfélag. Hún fylg- ist með öllu. Ekki bara hvernig gengið er um á stöðunum þeirra, hvernig matreiðslan fer fram eða hvernig gestunum líkar. Þegar Einar nefnir hversu miklu ódýrara hráefn- ið er erlendis, til dæmis í Amster- dam, er auðheyrt að Anna Peggy veit nákvæmlega hvernig verðlagi er háttað hér. Dæmi: „Kílóið af kjúklingum kostar 100 krónur í Amsterdam en um 300 krónur hér .. ." byrjar Einar þegar Anna Peggy grípur fram í: „ÞRJÚHUNDR- UÐ?! O nei góði minn, fjögurhundr- uð og sextíu, og það hjá heild- sala. . .!!“ Islenskir gestir veitingahúsa eru sjálfsagt ekki þeir auðveldustu í heimi að eiga við. Þeir vilja fá sinn mat hér og nú, enga bið og borga lít- ið, ekki satt? „íslendingar eru tilætl- unarsamir," það viðurkenna þau. „Þeir geta fjasað yfir engu. Ef það er einhver bið eftir þjónustu vilja þeir fá irish coffee sem afsökun eða af- slátt af matnum. Við bendum á að við rekum ekki skyndibitastaði og gestir verða alltaf að reikna með að það taki einhvern tíma að framreiða matinn." Anna Peggy segir okkur líka vera kröfuhart fólk og hún hafi haft orð á því í Amsterdam að ef hún leyfði sér að bjóða upp á þjónustu eins og þar tíðkaðist þá hefði hún aldrei rekið nema einn matsölustað hér, og hann ekki lengi: „Og svo er óþolar.di þegar fólk flautar á þjón- inn,“ segir Einar líffræðikennari, sem hefur tekið að sér þjónshlut- verkið af og til í mörg ár. „Það er af- skaplega ruddalegt að flauta á fólk til að vekja á sér athygli. Einhverju sinni þegar maður flautaði á mig gekk ég að honum og beit hann. Sagði honum svo að nákvæmlega þetta gerðu hundar sem flautað væri frekjulega á. ..“ Sá maður hefur líklega ekki verið í hópi þeirra viðskiptavina sem hafa fylgt Önnu Peggy og Einari milli veitingastaða á þeim fjórum árum sem þau hafa staðið í veitingahúsa- rekstri. Þau segjast eiga marga fasta viðskiptavini sem gaman sé að sinna: „Það er skemmtilegt að um- gangast þetta fólk og kynnast því,“ segja þau og eru síður en svo á því að nú sé tímabært að hætta. Þau eiga marga leynda drauma sem þau eru staðráðin í að láta rætast ein- hvern tíma. Hverjir þeir eru er enn- þá leyndarmál, en sjálfsagt verða þeir allir að veruleika einhvern dag- inn. „Við erum að minnsta kosti komin með reynsluna!" segja þau brosandi. „Nú eigum við líka eigið húsnæði við Hverfisgötuna, fjórar hæðir, og það er hægt að láta ýmsa drauma verða að veruleika í slíku húsnæði...“ Indversk-kínverski efnafræðingurinn Anna Peggy Friðriksdóttir sem sér Reykvíkingum fyrir japönskum, mexíkönskum, ftölskum og indverskum mat Kíkfru „aðeins" í Morgunblaðið. . . Þau voru ákveðin í að taka það ró- lega. Síðustu fjögur árin höfðu farið í mikla vinnu við veitingahúsarekst- urinn, og nú voru þau ákveðin í að lifa rólegu lífi. Það leið þó ekki á löngu uns þau voru farin að kíkja í Morgunblaðið: „Aðeins til að vita hvort nokkur veitingastaður væri til sölu. ..!“ segja þau brosandi. Svo reyndist vera. Það var veitingastað- urinn Ítalía sem var auglýstur og fyrr en varði höfðu þau ekki aðeins fest kaup á honum heldur einnig á veitingahúsi við Laugaveginn. „Mig langaði svo til að setja aftur upp ind- verskan veitingastað," segir Peggy. þá svara ég bara NEI! Ef fólk nennir ekki að vinna, þá eru dyrnar þarna.Einar segir að þótt hún sé ákveðin sé hún sanngjörn, enda fylgi þeim ennþá fastur kjarni starfs- fólks, sem hafi unnið hjá þeim í mörg ár. Anna Peggy er mjög hugmynda- rík og fylgist vel með. Hún réð tilsín indverska matreiðslumenn, en þeim leist ekki á sig hér. Hún dó þó ekki ráðalaus; sendi Ólaf Harðarson matreiðslumann til London þar sem hann lærði indverska matargerðar- list á veitingahúsi þar í borg: „Við Óli vitum miklu meira hvað Islend- ingarnir vilja heldur en indverskir kokkar!" segir hún brosandi. En hver ætlar að elda matinn á nýja veitingastaðnum? Jú, Anna Peggy „Viðskiptavinirnir gömlu voru sífellt að spyrja hvort Taj Mahal kæmi ekki aftur. Mér datt í hug að hafa bland- aðan stað, kannski kínverskan og indverskan, en hér var komið nóg af kínverskum stöðum. Og með ís- lenskan fisk sem hráefni var auðvit- að ákjósanlegt að opna sushi-bar.“ Þau létu ekki þar við sitja. í fyrra- dag opnuðu þau þriðja veitingahús- ið, Bandidos við Hverfisgötu, sem er mexíkanskur staður. Mamma Önnu Peggyar hefur dvalið hér hjá þeim um tíma og saumað allan einkennis- klæðnað á starfsfölk: „Þetta er ekta mexíkanskur staður!" segja þau. „Tónlistina fengum við frá Sigurði Hjartarsyni sem bjó lengi í Mexíkó og á hér mesta plötusafn á landinu með tónlist þaðan." Ef fólk nennir ekki að vinna, þó eru dyrnar þarna Veitingahúsareksturinn hefur í för með sér mikla vinnu: „Eigendur þurfa að vera sem mest á staðnum sjálfir," er skoðun þeirra hjóna. Þeim finnst viðhorfið „ég vinn bara hérna" vera alltof ríkjandi hjá ís- lendingum: „Peggy er miklu harð- ari en ég!,“ segir Einar. „Ég gef meira eftir." Peggy viðurkennir fús- lega að hún sé harður húsbóndi: „Ef einhver biður mig um frí og ég segi nei þýðir ekkert að fara til Einars og fá hann til að segja „já“,“ segir hún. „Þegar fólkið kemur til mín aftur og segir „Einar segir að ég megi frá frí“

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.