Pressan - 21.09.1989, Page 4
4
Fimmtudagur 21. sept. 1989
litilræði
af kynlifi breta
Viö Margaret Thatcher erum dálítið gömul í
hettunni hvaö varðar kynferöismál, enda erum
við á svipuðu reki, með svipaðan kynferðis- og
félagslegan bakgrunn, þó ég hafi að vísu ekki
komist jafn langt og Margrét félagslega.
Þegar við Margrét vorum krakkar voru kyn-
ferðismál flokkuð undir „feimnismál", nokkuð
sem ekki var haft í flimtingum, nema þá í
þröngum hópi stelpna og stráka, og bólfarir
þóttu svona frekar einkamál þeirra sem þær
voru farnir að stunda.
Ekki þótti hæfa að æpa mikið á torgum um
slíka hluti.
Þá var sérfræðileg kynfræðsla ekki til á ís-
landi, enda ekki búið að finna upp félagsráð-
gjafa, atferlisfræðinga, sálgreinendur eða kyn-
lífsfræðinga.
Þessvegna mætti ætla að kynslóð okkar
Margrétarstæði á bóla bullandi gati í kynfræð-
um og að við héldum að ónefnd líffæri væru
aðeins til að pissa með þeim, en það var nú
eitthvað annað.
Þó merkilegt megi virðast urðum við strák-
arnir hérna í vesturbænum furðufróðir um lífs-
ins gang strax uppúr sexára aldri, enda engum
námsleiða fyrir að fara þegar stelpurnar voru
með okkur að húsabaki að miðla okkur af þeirri
kynvisku sem þær höfðu komið sér upp.
Ég hef sagt það áður og segi það enn, að ég
held að ég hafi verið orðinn doktor í uppáferð-
um og afleiðingum þeirra, þegar ég var búinn
að vera einn vetur í Grænuborg og minnist
þess þó ekki að prófessorarnir við þá mennta-
stofnun eyddu miklum tíma í kynfræðslu.
Grantham á Mið-Englandi er smábær minni
en Reykjavík, kannske af svipaðri stærð og
vesturbærinn.
Þar er Margaret Thatcher fædd og uppalin.
Og líkt og við strákarnir hérna í vesturbæn-
um vorum í læri hjá stelpunum, alltaf þegar
færi gafst, voru stelpurnar í telpnaskólanum í
Grantham ólatar við að miðla strákunum af
þekkingu sinni dægrin löng.
Þegar pabbi og mamma Margrétar héldu að
hún væri að leika sér að dúkkunum sínum var
hún að sjálfsögðu, einsog hinar stelpurnar af
okkar kynslóð, í læknaleik einhvers staðar bak-
við hús.
Þetta var kynvísinda-akademía barnanna og
sá stúdentum fyrir hámenntun í kynfræðum
með svo fullnægjandi hætti að ekkert kom flatt
uppá kandídatana, þegar kom að því að fara að
gera do-do verklega.
Af þessum sökum skilur kynslóð okkar Mar-
grétar ekki til fullnustu hvílíkt svartnætti fá-
fræðinnar hinir yngri búa við þegar kemur að
kynferðismálum í dag.
Hvað þá að við skiljum hvers vegna sífellt er
verið að gera kynlífskannanir.
Á sokkabandsárum okkar Margrétar, fyrir
stríð, voru verkin látin tala en þagað yfir því
hvenær fólk lét til skarar skríða, hvers vegna,
hvað oft og með hvað mörgum.
Tilefni þessararhugleiðingarerfrétt frá Eng-
landi sem birtist í Morgunblaðinu í fyrradag.
Þar er frá því skýrt að Margaret Thatcher
krefjist þess að opinberum stuðningi sé hætt
við kynlífskönnun á vegum Gallup-stofnunar-
innar.
Þessa ákvörðun tók járnfrúin þegar hún var
búin að lesa Sunday Times og þótti nóg um.
En hvað ég skil hana.
Niðurstöðurnar úr könnun Sunday Times á
kynhegðan breta eru í sem stystu máli þær:
... að fjórir af hverjum tíu karlmönnum
hefðu ekki haft samfarir vikuna áður (það
fylgir ekki sögunni „áður" en hvað) og þriðj-
ungur allra eiginmanna ekki heldur, en einn
af hverjum sex samfarir oftar en þrisvar í síð-
ustu viku og einn af hverjum fimmtíu hafði
haft samfarir tíu sinnum eða oftar eða að
meðaltali 1,51 sinni.
Á meðalævi breta getur hann búist við því
að samrekkja með 6,81 konu en fjórar af
hverjum tíu konum höfðu ekki haft samfarir
í síðustu viku og 30 eiginkvenna sögðust
ekki hafa notið mannsins síns og þó hafði ein
af hverjum sex átt samfarir þrisvar sinnum
eða oftar í síðustu viku. Engin aðspurðra
kvenna kvaðst hafa átt samfarir tíu sinnum,
en höfðu hinsvegar átt samfarir að meðaltali
1,26 sinnum í síðustu viku og má þessvegna
gera ráð fyrir því að á meðalævi geti kona bú-
ist við því að eiga sér 2,72 rekkjunauta ef þær
leggist með fleirum en einum manni.
Þessi könnun virðist ekki gefa neina vís-
bendingu um það hvernig stendur á munin-
um á körlum og konum.
Þetta varsemsagt meginefni Morgunblaðs-
fréttarinnar í fyrradag um það hvers vegna
Margaret Thatcher snerist öndverð gegn kyn-
lífskönnun Gallups.
Þó ég sé nú að vísu ekki upphafinn aðdáandi
Margrétar þessarar í öllum efnum, þá verð ég
að segja, að nú stend ég með henni.
Og það er aðallega vegna þess að ég er svo
logandi hræddur um að ég verði náttúrulaus
þegar ég les svona glórulaust píp.
Taktu lífið ehhi of alvarlega, þú hemst
hvort setn er ehhi lifandi frá því.
wi: imxvniin: i midbæm
OPERUKJALLAHINIV ER OI'IiVX
til kl. 3 e.m. fostudags- og laugardagskvöld
Ilrerfisgötu S—10 S//#//' ISSJJ