Pressan - 21.09.1989, Side 9

Pressan - 21.09.1989, Side 9
Fimmtudagur 21. sept. 1989 9 Sameinaður rekstur Stjörnunnar og Bylgjunnar fyrir bí: Mánudaginn 11. september, nákvæm- lega hálffu ári efftir að útvarpsstöðvarnar Bylgjan og Stjarnan sameinuðust, bauð Jón Olaffsson, stjórnarformaður íslenska útvarpsfélagsins, starfsmönnum á Stjörnunni starff hjá íslenska útvarpsffé- laginu, með öðrum orðum á Bylgjunni. EFTIR ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR MYNDIR EINAR ÓLASON Þá hafði íslenska útvarpsfélagið tekið ákvörðun um einhliða riftun á samningi þeim sem gerður var um sameiningu útvarpsstöðvanna 11. mars sl. Lögmönnum og stjórn Hljóðvarps hf., sem rak Stjörnuna, hafði ekki borist formleg vitneskja um þessa riftun þegar þeir heyrðu um hana í tvö-fréttum ríkisútvarps- ins þriðjudaginn 12. september, enda höfðu stjórnarmenn Hljóð- varps í íslenska útvarpsfélaginu ekki verið boðaðir til fundar þar sem ákvörðun um einhliða riftun var tekin. Meðal þeirra sem Jón Ólafsson bauð vinnu voru þrír af aðaleigend- um Stjörnunnar, þeir Jón Axel Ólafsson, Gunnlaugur Helgason og Þorgeir Ástvaldsson. Þeir þrír munu hafa tekið sér þann umhugs- unarfrest sem Jón bauð þeim, tvær eða þrjár klukkustundir, og eftir því sem heimildir okkar herma munu þeir hafa íhugað af alvöru að þiggja atvinnutilboðið. Hafði þeim verið bent á að við Stjörnunni blasti ekk- ert annað en gjaldþrot. í fréttaflutningi af gjaldþroti Stjörnunnar hafa ýmsar tölur ver- ið á lofti. Einhver nefndi sjötíu millj- ónir, annar níutíu. í fréttatíma ríkis- útvarpsins á þriðjudagskvöldið, 19. september, var sagt að skuldir þrotabúsins næmu tugum milljóna króna og fréttastofunni væri kunn- ugt um að ,,um vanskil hefði verið að ræða hjá Lífeyrissjóði verslunar- manna. Að sögn bústjóra skuldaði Hljóðvarp um tvær og hálfa milljón í lífeyrissjóðsgjöld samkvæmt milli- uppgjöri í mars. Skuldir við ríkissjóð vegna ógreidds söluskatts voru þá tæpar ellefu milljónir og skuld við Menningarsjóð útvarpsstöðva rúm- ar þrettán milljónir. Langtímaskuld- ir og gjaldfallnar afborganir lang- tímaskulda námu samkvæmt milli- uppgjöri 23 milljónum", sagði í frétt ríkisútvarpsins. Brynjólfur Kjartansson, bú- stjóri þrotabús Hljóðvarps hf„ sagði í samtali við PRESSUNA í gær að ekki væri nákvæmlega ljóst hversu miklar skuldir Hljóðvarps væru: „Ég get ómögulega sagt til um hversu miklar skuldirnar eru,“ sagði Brynjólfur. „Ég hef fyrir mér reikn- ingana eins og fyrirtækið stóð í árs- lók 1988 og eins og það stóð 10. mars 1989. Síðan þá hefur ýmislegt gerst, meðal annars það að Ólafur Laufdal og aðrir eigendur lögðu inn 13 og hálfa milljón í hlutafé." Á þrotabúið þá kröfur á hendur Is- lenska útvarpsfélaginu um að endurgreiða þessa peninga? „A.m.k. verður íslenska útvarpsfé- lagið að gera grein fyrir því hvað varð um þessa þrettán og hálfu milljón," sagði Brynjólfur. „lslenska útvarpsfélagið tók einnig að sér inn- heimtu á útistandandi kröfum Hljóðvarps hf. og allan rekstur; sá um sölu á auglýsingum og fleira. Ég veit ekki hyersu mikið af þessum peningum íslenska útvarpsfélagið greiddi til skuldheimtumanna. Ég hef í rauninni ekkert um þetta mál og þarf að fá skýrslu um það frá ís- lenska útvarpsfélaginu hvernig þessu fé var ráðstafað. Hljóðvarp hf. hefði haft tekjur og útgjöld í þessa sex mánuði, hefði Stjarnan verið starfrækt ein og sér. Þarna koma líka inn þessar þrettán milljónir, sem hljóta að hafa létt á einhverju. Þetta uppgjör liggur því ekki fyrir." Miklu moldviðri hefur verið þyrl- að upp í kringum yfirtöku Ólafs Laufdal á kaupleigusamningi um tæki Stjörnunnar við fjármögnun- arfyrirtækið Lýsingu. í frétt ríkisút- varpsins á þriðjudagskvöldið var sagt um þann þátt að þremur dög- um áður en Ólafur Laufdal hefði far- ið fram á það við borgarfógeta að Stjarnan yrði tekin til gjaldþrota- skipta hefði hann gert samning um yfirtöku kaupleigusamningsins og greitt inn á hann fimm milljónir króna. Heimildir PRESSUNNAR herma að ástæðan fyrir því hversu Ólafur brá skjótt við hafi verið sú að þegar hafi legið fyrir tilboð um yfir- töku samningsins frá Jóni Ólafs- syni, enda hefði íslenska útvarpsfé- lagið ekki greitt neitt inn á samning- inn frá því útvarpsstöðvarnar voru sameinaðar og Islenska útvarpsfé- lagið yfirtók reksturinn. „Það mið- aðist allt að því að koma Ólafi Lauf- dal á kné," segir heimildamaður okkar. „Með því að standa ekki í skilum með greiðslur vissi fslenska útvarpsfélagið að verið væri að koma Ólafi Laufdal út í horn, þar sem hann var í persónulegum ábyrgðum fyrir kaupleigunni. Ég held að hinir eigendurnir þrír hafi gert sér grein fyrir þessu persónu- lega stríði af hálfu Jóns Ólafssonar og því ekki tekið atvinnutilboðinu. Enda skilst mér að gagnkvæmt traust milli „strákanna" og Ólafs Laufdal hafi ríkt frá fyrsta degi. En þegar Jón Ólafsson og Ólafur Lauf- dal voru komnir í viðskipti saman mættust stálin stinn." Ekkert ólögleat við yfirtöku kaupleigu- samningsins Að mati Brynjólfs Kjartanssonar bústjóra er ekkert ólöglegt við yfir- töku Ólafs Laufdal á þessum samn- ingi, jafnvel þótt hann hafi verið gerður áður en að gjaldþroti kom: „Ég get ekki séð neitt ólöglegt við það," segir Brynjólfur. „Það að hann hafi gengið frá greiðslum sem hann er ábyrgur fyrir og hefur samið um, það er ekkert ólöglegt. Ólafur Lauf- dal er þarna í persónulegum ábyrgðum og því eðlilegt að hann semji um þær ábyrgðir. Það væri skrýtið, ef hann gerði það ekki. Eftir því sem ég best veit var kaupleigu- samningurinn gerður milli Hljóð- varps hf. og Lýsingar hf. í upphafi. Lýsing hf. rifti þessum kaupsamn- ingi með bréfi dagsettu 14. septemb- er. Ólafur Laufdal er persónulega ábyrgur fyrir þessum samningi. Hann náði síðan samningi við Lýs- ingu um að halda áfram greiðslu á samningnum, eftir því sem ég best veit." í frétt ríkisútvarpsins kom jafnframt fram að „bústjóri hefði ekki lagt blessun sína yfir samning Ólafs og Lýsingar, þar sem hann var gerður áður en til gjaldþrots kom. Þrotabúið hefði því ekki afsalað sér neinum rétti og bústjóri gæti, ef honum sýndist svo, rift þessum samningi". Er það rétt? „Það er skiptafundur sem ákveður hvort riftunarmál skuli höfðað. Ef skiptafundur telur að fara skuli í rift- unarmál er tillaga þess efnis borin fram á skiptafundi og skiptafundur samþykkir eða synjar." En getur skiptafundur farið fram á að rift sé persónulegum samningi Ól- afs Laufdal við Lýsingu hf.? „Nú er stórt spurt. Af hverju ætti það endilega að vera hægt? Það er a.m.k. ljóst að sé um vanskil að ræða á fjármögnunarleigusamningi er almennt um riftunarheimild af hálfu fjármögnunarfyrirtækisins að ræða. Það ráðstafar síðan tækjun- um til annarra. Ef hins vegar kemur í ljós að hluthafi gjaldþrota fyrir- tækis hagnast eða nær verulegum hagnaði út úr fyrirtækinu er hægt að ímynda sér að þrotabúið fari í riftunarmál. Riftunarmál, sam- kvæmt íslenskum rétti, er almennt alltaf fjárkrafa; það er ef einhver hefur náð undir sig óeðlilegri greiðslu eignast búið fjárkröfu, en það myndi ekki geta gengið inn í samninginn í sjálfu sér heldur yrði það fjárkrafa. Til þess að ganga inn í þennan samning yrði viðkomandi að geta uppfyllt hann og geta sagt við fjármögnunarfyrirtækið að hann myndi greiða áfram af samn- ingnum og vildi eignast þessi tæki." Heimildir okkar herma að Ólaf- ur Laufdal hafi komið þessum samningi í skil. „Mér skilst að hann hafi samið um þessar greiðsl- ur, já.“ Meðan tækin eru ekki greidd að fullu eru þau eign Lýs- ingar, ekki rétt? „Jú, þau eru eign Lýsingar hf.“ Stjarnan á óbyrgð Ólafs Laufdal Brynjólfur Kjartansson var spurð- Það hefur verið tómlegt um að litast í húsakynnum Stjörnunnar siðustu daga. Allir starfsmenn hennar þágu boð Jóns Ólafssonar um starf á By Igjunni. Þrír eigendur Stjörnunnar sjá um að halda úti 24 klukku- stunda dagskrá á sólarhring.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.