Pressan - 21.09.1989, Page 12

Pressan - 21.09.1989, Page 12
12 Fimmtudagur 21. sept. 1989 IPRESSU MOJLAR s ^^öfnunin fyrir SEM-hópinn gekk vonum framar. Ekki aðeins söfnuðust tæpar 13 milljónir í pen- ingaframlögum, heldur annað eins ef ekki meira í vinnuframlögum hvers konar. Þessar upphæðir komu inn á aðeins fjórum klukkustund- um. Þeir sem velta þessum hlutum fy rir sér og bera saman við 12 miilj- óna króna söfnun Sjálfsbjargar á fjórum dögum skrifa árangurinn al- gjörlega á það hversu mannlegur og hlýr þátturinn hafi verið. Áhorfend- ur hafi hrifist svo með að þeir hafi ósjálfrátt gripið símtólið og hringt inn framlag sitt. Forsvarskonur Áhugahóps um bætta umferðar- menningu og SEM-hópurinn segja engan vafa leika á að fjárframlögin skili sér. . . 1| ^^^mfang í kringum endur- vinnslu dósa þykir orðið í meira lagi. Nú eru þegar komnar í notkun vélar sem taka við áldósum og kosta þær um 380 þús. kr. stykkið en vél- ar fyrir plastdósir eru að koma á markaðinn og eru öllu dýrari eða nálægt einni milljón hver. Þess má geta að kaupmaður sem tekur við umbúðum fær 75 aura pr. dós og gefur augaleið að fjárfesting í slík- um tækjum borgar sig varla upp á skömmum tíma. .. Góð orð duga skammt. Gott fordæmi skiptir mestu máli Karlmannsrödd tvísaga um sprenging- arnar í Reykjavík í símtali við PRESSUNA MÁLIÐ UPPLÝST FfílElE KAFFI Mi sérö muninn! HANN FINNST Á BRAGÐINU.... HEILDSÖLUB. JOHN LINDSAY HF. Mmm... EN HRINGINGAR HALDA AFRAM Eftir hádegi í gær, miðviku- dag, hringdi ungur karlmaður í PRESSUNA og kvartaði sáran. Sagðist hann vita fyrir víst að maður, sem hringdi í síðustu viku til DV, hefði alls ekki hótað að sprengja upp ráðhúsbygging- una í Tjörninni, þrátt fyrir frétt blaðsins þess efnis. Karlmaður- inn ungi sagðist hvorki játa því né neita að hann væri sá hinn sami og hringdi til DV, en fullyrti að hann þekkti vel tii máisins og vildi þess vegna koma leiðrétt- ingu á framfæri. EFTIR JÓNÍNU LEÓSDÓTTUR Aðspurður staðfesti maðurinn að viðmælandi DV hefði lýst spreng- ingunum í Reykjavík um daginn á hendur öfgahópi, sem væri á móti ráðhúsbyggingunni. Hann hefði hins vegar alls ekki minnst einu orði á áð sprengja ráðhúsið. Þetta hefði verið orðað á þann veg að hópurinn myndi „einskis svífast til að standa fyrir fleiri sprengingum í miðbæri- um til að mótmæla byggingu ráð- hússins í Tjörninni". Þegar maðurinn var spurður hvort þetta þýddi að búast mætti við fleiri sprengingum á næstunni svar- aði hann með því að þylja orðrétt 120. grein a. úr refsilögunum frá 1940: „Nú veitir maður vísvitandi rangar uppiýsingar eða lætur uppi vísvitandi rangar tilkynningar, sem eru fallnar til að vekja ótta um líf, heilbrigði eða velferð manna eða um atriði, sem varða loftferðaör- yggi, og varðar það sektum, varð- haldi eða fangelsi allt að 3 árum. Sömu refsingu varðar að útbreiða þess konar orðróm gegn betri vit- und.“ Síðan sagðist hann verða að ljúka samtalinu og lagði á. í framhaldi af þessu símtali hafði PRESSAN samband við Gísla Páls- son, lögreglufulltrúa hjá RLR. Hann tjáði blaðinu að upplýst hefði verið hverjir stóðu að hringingunni til DV í síðustu viku og myndi málið verða sent ríkissaksóknara á næstu dög- um. Um leið og samtali okkar við Gísla var lokið hringdi nafnlausi maður- inn hins vegar aftur — og hafði þá algjörlega tekið annan pól í hæðina. Sagði hann að símtalið til DV hefði bara verið ,,gabb“, sem fundið hefði verið upp á í fylleríi, og að „öfga- samtökin á móti ráðhúsinu" hefðu aldrei verið til. Viðkomandi hefðu líka gefið sig fram við lögregluna. „Já, þetta var afdrifaríkt fyllerí. . .,“ sagði röddin að lokum og kvaddi. „Þú œttir nú að koma ogsmakka - þetta er örugg/ega besti kjúklingurinn í bænum. “ •^fAs vj- HraÖrétta veitingastaður íhjarta borgarinnar áhomi Tryggvagötu og Pósthússtraetb Si'mt 16480 J Samkeppni um íslenskt nafn! Eins og kunnugt er hefur Reykjavíkurborg keypt veitingahúsið „Broadway“ við Álfabakka í Reykjavík. íþrótta- og tómstundaráð mun taka við rekstri ■ hússins frá og með 1. nóvember n.k. Hér með er auglýst eftir tillögum um íslenskt nafn á staðinn. Tillögum skal skila á skrifstofu íþrótta- og tómstundaráðs Fríkirkjuvegi 11 fyrir 15. október n.k. merkt ÍTR - hugmyndasamkeppni. Tillögur afhendist í lokuðu umslagi undir dulnefni og með fylgi annað umslag með nafni höfundar. íþrótta- og tómstundaráð skiparfimm manna dómnefnd með fulltrúum frá ÍTR og unglingum. Veitt verða ein verðlaun kr. 50.000,-fyrir bestu tillöguna. Ef fleiri en ein tillaga með sama nafni berst verður dregið á milli höfunda um 1. verðlaunin. Niðurstöður í samkeppninni verða kynntar í nóvember. íþrótta- og tómstundaráð óskar einnig eftir tillögum og hugmyndum barna, unglinga og foreldra um starfsemi í húsinu fyrir börn og unglinga. ^ Tillögur sendist ÍTR Fríkirkjuvegi 11 merkt - starfsemi - fyrir 15. október. Þeir aðilar sem óska eftir afnotum af húsnæðinu fyrir fundi, ráðstefnur og skemmtanir er bent á að hafa samband við skrifstofu ÍTR i síma 622215.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.