Pressan - 21.09.1989, Side 18
18
Fimmtudagur 21. sept. 1989
PRESSU
^■vavar Egilsson, sá sem keypti
hlut í Ferðamiðstöðinni Veröld í
gær, hefur komið víða við og fest
kaup á mörgu. Meðal þeirra fyrir-
tækja eru Naustið og íslenska
myndverið. Fyrir skömmu ætlaði
Svavar að kaupa sig inn í auglýs-
inga/kvikmyndagerðarfélag í borg-
inni. Þegar til kom reyndist framlag-
ið ekki vera beinharðir peningar
heldur auglýsingatími á Stöð 2. . .
idaup Svavars Egilssonar á
Ferðamiðstöðinni Veröld,, hafa
vakið mikla athygli. Svavar keypti af
Sigurði Garðarssyni og Sigurði
Erni Sigurðssyni, en raunar er því
fleygt að til hafi staðið að rifta sölu-
samningnum við þá tvo vegna va-
nefnda. Veröld er sögð styrkjast
verulega í sessi með innkomu Svav-
ars. Samkeppnin hefur verið hörð
sem aldrei fyrr í ferðaskrifstofu-
bransanum og staða margra þeirra
sögð vera tæp. Er m.a. sagt að
Ómar Kristjánsson sé ekkert
mjög áfram um að halda áfram með
Útsýn og má rifja upp að á sínum
tíma var sagt að viðræður væru í
gangi á milli hans og sambands-
manna um að Samvinnuferð-
ir/Landsýn yfirtækju Útsýn, en
Ómar nældi í Byggingarvöruversl-
unina í staðinn. Samvinnuferð-
ir/Landsýn eru sagðar standa nokk-
uð sterkt í dag og þá hefur heyrst að
ferðaskrifstofurnar Polaris og Atl-
antik standi í viðræðum um sam-
starf eða sameiningu. Frekari svipt-
ingar gætu því orðið í bransanum í
vetur og má minna á yfirlýsingar
framkvæmdastjóra Útsýnar fyrr á
þessu ári þar sem hún spáði að fáar
ferðaskrifstofur myndu ná að lifa út
árið. ..
v
msir verkalyðsforingjar
hém miklar áhyggjur af því að Ein-
ar Oddur Kristjánsson skuli vera
orðinn formaður Vinnuveitenda-
sambands íslands. Segja þeir
hann alversta andstæðing sem
verkalýðshreyfingin hafi nokkurn
tíma fengið. Astæðan: Jú, hann tali
nefnilega mál sem allir skilja!.. .
Hlýjar innréttingar í Hallar-
garðinum í Veitingahöllinni hafa
vakið athygli. það var þó enginn
innanhússarkitekt seni gerði tillög-
ur um hvernig breyta skyldi salnum
heldur Birna Sigurðardóttir, fyrr-
um auglýsingastjóri hjá ýmsum
tímaritum, þeirra á meðal Húsum
og híbýlum.. .
L
■luthafarnir í Ferðamiðstöð-
inni Veröld sem Svavar Egilsson
keypti af, þeir Sigurður Garðars-
son, og Sigurður Örn Sigurðsson
eru ekki hættir í viðskiptalífinu þótt
þeir hafi sagt skilið við ferðabrans-
ann. Sigurður Garðarsson keypti
nýverið Kaffi Hressó og Sigurður
Örn Sigurðsson hefur nú fest kaup
á versluninni Parísartískunni. . .
Þrekhjól í miklu úrvali,
verð frá kr. 10.900.-
staðgr. kr. 10.355.-
ÆFINGABEKKIR OG LÓÐ
Æfingabekkir, verð frá kr. 6.210.-
Lóðasett
Handlóð, 0,5 kg, 1,5 kg og 5 kg,
einnig 8 kg og 10,4 kg raðsett
Fót- + handlóð, 1,2 kg og 2,3 kg.
Æfingastöðvar margar gerðir,
Fit for Lrfe
Heimsþekkt
æfingatæki
FJÖLNOTATÆKI -16 ÆFINGAR
Róður, bekkpressa. armréttur, arm-
beygjur, hnébeygjur o.fl. Verð frá kr.
13.373.- staðgr. kr. 12.704.
Ármúla 40
Sími 35320
l/érslunin
postkrofu - kreditkortaþjonusta
Sendum
Gættu heilsunnar - komdu þér í æfingu
Landsins mesta úrvai æfingatækja
V-þýsk gæðatæki
SKRIFSTOFA NORRÆNU RÁÐHERRANEFNDARINNAR
óskar að ráða:
Norræna ráðherra-
ncfndin er samvinnu-
stofnun ríkisstjórna
Norðurlanda.
Samvinnan snertir flcst
meginsvið samfélags-
ins. Skrifstofan hefur
frumkvæði að verkefn-
um og sér jafnframt um
aðákvörðunum ráð-
herranefndarinnar sé
hrint i framkvæmd.
Skrifstofan skiptist í
fimm sérdeildir, fjár-
hags- og stjórnsýslu-
deild, upplýsingadeild
og skrifstofu fram-
kvæmdastjóra.
2 RAÐUNAUTA
Annan á sviði jarðyrkju
og skógræktar og hinn
til menningarkynning-
arí öðrum löndum.
Tveiraf ráóunautum
okkar láta af störfum
og við leitum annarra
í þeirra stað.
Ráðunautur á sviði
jarðyrkju og skóg-
ræktar
Hinn nýi ráðunautur á
að taka að sér fram-
kvæmdastörf fyrir ráð-
herranefndina (land-
búnaðarráðherrana) og
norrænu embættis-
mannanefndina varð-
andi jarðyrkju- og skóg-
ræktarmál. Unnið er i
samvinnu við norrænar
stofnanir, samvinnu-
nefndir og vinnuflokka
ásamt þjóðlegum stofn-
unum á viðkomandi'
starfssvæði. í starfmu
felst einnig áætlanagerð
ogleiðbeiningísam-
bandi við ýmis aðkall-
andi vandamál um
jarðyrkju- og skógrækt-
armál á Norðurlöndum
og á alþjóða vettvangi.
Ráðunauturinn má bú-
ast við að fram-
kvæmdanefndin feli
honum einnigönnur
verkefni._
Ráðunautur til
menningarkynningar
i öðrum iöndum
Hinn nýi ráðunautur á
að annast ýmis konar
áætlana- og stjórnunar-
leg mál á sviði norr-
ænnar samvinnu um
menningarkynningar.
Framkvæmdanefndin
vinnur núna að menn-
ingarkynningu í lönd-
um utan Norðurlanda
með sýningarhaldtog
kynningu á norrs^nni
menningu.
Nefndin hefir t.d. borið
ábyrgð á norrænu sýn-
ingunni Scandinavia
Today í Bandaríkjun-
um 1982/83, með fram-
haldi í Japan 1987/88.
Sýningá norrænni
aldamótarlist í Lon-
don, Dusseldorf og
París 1986/87.
Fyrirhuguð starfsemi á
næstunni er m.a. sýning
á norrænni nútímalist -
frá öðrum tug aldarinn-
ar - í Sovétríkjunum í
júní-sept. 1990.
Umsækjandi þarf
þannig að hafa stað-
góða þekkingu á mis-
munandi tegundum
lista ásamt störfum við
norrænar menningar-
stofnanir.
Reynsla af stjórnun
þjóðlegra og alþjóð-
legra menningarstofn-
ana eræskileg.
Ráðunauturinn má bú-
ast við að fram-
kvæmdanefndin feli
honum einnig önnur
störf.
Sameiginlegt fyrir
báðar stöður:
Störfin gera miklar
kröfur til samstarfs-
hæfni og sjálfstæðis
jafnframt því að geta
tjáð sig skýrt bæði skrif-
lega og munnlega á einu
af þeim tungumálum
sem notuð eru, en þau
eru danska, norska og
sænska.
Störfin fela í sér (tals-
verð) ferðalög. Ráðning
ertímabundin með
samningi til 4 ára með
nokkrum möguleikum
á framlengingu.
Ríkisstarfsmenn eiga
rétt á fríi frá stör.fum á
ráðningartímanum.
Skrifstofa ráðherra-
nefndarinnar erí
Kaupmannahöfn og
aðstoðar hún við að
útvega húsnæði. Á vett-
vangi norrænnar sam-
vinnu er lögð áhersla á
jöfnuð ogjafnrétti og
eru því konur jafnt sem
karlar hvattartilað
sækja um stöður þessar.
Nánari upplýsingar
varðandi stöðu ráðu-
nautsá sviði jarðyrkju
og skógræktar veitir
Poul Andersen ráðu-
nautur.
Nánari uDplýsingar um
stöðu ráð unauts til
menningarkynningar í
öðrum löndum veitir
Tryggvi Gíslason deild-
arstjóri.
Harald Lossius starfs-
mannaráðunautur
svarar fyrirspurnum
um ráðningarskilmála.
Sími í Kaupmannahöfn
er 9045-33 114711.
Umsóknarfrestur renn-
urút l.október.
Skriflegar umsóknir
skal senda til:
NORDISK
MINISTERRÁD,
Generalsekreteraren,
Store Strandstræde 18,
DK-1255
Köbenhavn K.