Pressan - 21.09.1989, Qupperneq 20
20
Fimmtudagur 21. sept. 1989
brfdge
krossgátcm
Það er æði dularfullt hvernig
spilin gefast á hendurnar i tví-
menningskeppni. Það er ekki
lengra síðan en vika að ég fjallaði
um slemmu þar sem trompliturinn
var D1093 á móti Á8764 í spaða.
(Vandinn var þá að gefa aðeins
einn slag á litinn og varnarkænska
varð sagnhafa að falli.)
Ég var varla búinn að skila af
mér greininni þegar ég varð vitni
að spili með nákvæmlega sama
trompi milli handa NS. En tilbrigði
við stef; vörnin hafði þegar hirt á
ás og það má aðeins gefa einn slag
ef vinna á slemmu.
* D1093
y KDG7
. ♦ DG
4»ÁKD
♦ G
V1062
♦ Á87632
4*862
♦ K52
V9843
♦ 94
4*9754
* Á8764
V Á5
♦ K105
4* G103
S gefur, allir á. Sagnir voru væg-
ast sagt afleitar. Opnunin var I-
spaði, norður krafði með 3-hjört-
um og 3-spaðar í suður (?). Norður
skellti sér í ásaspurningu, með
þessi óhentugu spil, og endaði í
6-spöðum þegar hann uppgötvaði
aðjrað vantaði ás.
Ut kom tígulás og meiri tígull.
Tvær leiðir blöstu nú við suðri:
Kóngur stakur í austur; leggja nið-
ur ás og svína fyrir gosann, eða
gosinn blankur í vestur; leggja af
stað með drottningu úr blindum.
í líkindafræðinni vega mögu-
leikarnir jafnt, en það var enginn
efi í huga sagnhafa. Hann vann
tígulslaginn í borði og bað um
spaðadrottningu.
Sagnhafi skýrði að spilinu loknu
hvað hefði ráðið ferðinni; sagnir
hefðu verið svo „sannfærandi" að
jafnvel þótt austur hefði átt t.d. K2
og vestur G5 var hugsanlegt að
austur legði ekki á.
Af sjónarhóli austurs gat suður
átt ÁG87654 og þá eru aftur jafnar
líkur að fella kónginn stakan fyrir
aftan.
Rökrétt.
skók
Bréfskákir
í bréfskák senda menn leiki sína
í bréfum eða á póstkortum. Nú á
dögum eru gerð sérstök bréfspjöld
til þessara nota og þúsundir
manna nota sér póstkerfið til að
hafa samband við fjarlæga skák-
vini á þennan hátt.
Til eru sagnir um bréfskákir fyrr
á öldum, meðal annars frá 17. öld,
þar sem Feneyingar áttu hlut að
máli. En fyrsta bréfskák sem vitað
er um með fullri vissu var tefld rétt
eftir aldamótin 1800. Annar tefi-
endanna bjó í Haag en hinn í
Breda, en þar eru um 60 km á
milli.
Fyrri hluti nítjándu aldar er
blómaskeið bréfskákanna. Þá tefl-
ir London við Edinborg
(1824—'28, fimm skákir samtímis),
París við London (1834—'36, tvær
skákir) og Pest við París
(1842—'46, tvær skákir). Þessir
kappleikir vöktu mikla athygli,
ekki síst vegna þess hvernig úrslit
urðu: Edinborg sigraði London,
Frakkar sigruðu Englendinga og
Ungverjar sigruðu Frakka. Tvær
þekktar taflbyrjanir eiga nöfn sín
þessum viðureignum að þakka:
Edinborgarmenn beittu
byrjuninni 1 e4 e5 2 Rf3 Rc6 3 d4,
en hún hefur heitið skoskur leikur
síðan. Skákfélagið í París svaraði 1
e4 með I — e6 og er það kallaður
franskur leikur enn í dag.
Ég hef mestar heimildir um bréf-
skákirnar milli Edinborgar og
London er stóðu í fjögur ár. Fjar-
lægðin milli London og Edinborg-
ar er um 650 km. Bréfin voru flutt
með póstvagninum er fór reglu-
lega milli þessara borga, eins hratt
og auðið var á þeim tíma. Ferðin
tók um þrjá sólarhringa og 30
sinnum var skipt um hesta á leið-
inni. Burðargjald bréfa var þá hlut-
fallslega miklu hærra en nú, eins
og eðlilegt er þar sem svo mikið
var haft fyrir því að koma bréfum
áleiðis. Burðargjald bréfs frá Lond-
on til Edinborgar nam þá meiru en
daglaunum verkamanns. Af þess-
um sökum voru það skákfélög
sem stóðu fyrir keppninni en ekki
einstaklingar og tefldar voru
margar skákir í senn. Bréfskákirn-
ar vöktu mikla athygli, leikirnir
voru birtir í blöðum jafnharðan og
þannig gat almenningur fylgst
með tafimennskunni. Fimm skák-
ir voru tefldar samtímis í keppn-
inni, Skotar unnu tvær, Lundúna-
búar eina, en tveimur lauk í jafn-
tefli.
Úr þessari keppni er þetta enda-
tafl einna frægast:
Svartur er að vinna biskupinn,
en hvítur nær hættulegri sókn.
40 g5 (rýmir fyrir kónginn og hót-
ar sjálfur g6 mát) 40 — Hhxh2 +
41 Kg4 h5+ 42 Kf3 Hhf2+ 43
Ke4 g6 44 Hc7+ Kg8 45 Ke5!
(Kóngurinn tekur sjálfur þátt í
sókninni!) 45 — Hc5+ 46 Kf6
Hxf5+ 47 Kxg6 Hf8 (Hrókurinn
komst í vörnina í tæka tíð) 48
Hg7+ Kh8 49 Kh6! (Kóngurinn
heldur för sinni áfram 49 Hee7
nægir ekki nema til jafnteflis
vegna Bc3) 49 - Bb4 50 He6 Hf5
(Hvítur hótaði máti í 2. leik) 51
Hh7+ Kg8 52 Hg6+ Kf8 53
Hxc6 Hc5 (Taflið er tvísýnt og
vandteflt: 53 - Kg8 54 g6 h4! 55
Hg7+ (En hvorki 55 g7 Hh5+ né
55 g4 H5xf4) 55 - Kh8 56 Hxa7
hg3 57 g7 + Kg8 58 Hc8+ og vinn-
ur) 54 Hf6+ Ke8 55 g6 Hc3 56
g4 (lokar dyrunum!) Bf8+ 57
Hxf8+ Kxf8 58 g7+ Kf7 59 Hh8
Hc6+ 60 Kh7 og nú gafst svartur
upp.
GUÐMUNDUR
ARNLAUGSSON
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11
17 18 19 20 21
Verdlaunakrossgáta nr. 52.
Skilafrestur krossgátunnar er til 3. október. Utanáskriftin er: Press-
an, verðlaunakrossgáta nr. 51, Ármúla 36, 108 Reykjavík.
I verölaunin aö þessu sinni er bókin Villtír matsveppir á íslandi
eftir Ásu M. Ásgrímsdóttur og Guðrúnu Magnúsdóttur. Fróöleg
bók um sveppi og notagildi þeirra í matseld.
Dregiö hefur veriö úr lausnum 50. krossgátu. Lausnaroröin voru:
Hart bíta hundar kóngs. Hinn lukkulegi vinningshafi aö þessu
Sinni er Jóhanna S. Thorarensen, Gjögri, 522 Strandasýslu. í
verölaun fœr hún bókina Refurinn eftir D.H. Lawrence. Skjald-
borg gefur bókina út.
16