Pressan - 21.09.1989, Page 25
Fimmtudagur 21. sept. 1989
25
spáin
18.—25. september
(21. mars—20. april)
Þaö getur verið aö þú fáir óvæntan glaðning
i gegnum póstinn. Ekki fyllast ofsakæti og
passaöu tilfinningahitann. Ástamálin eru i
fínu lagi og einhver af gagnstæða kyninu i
vinnunni gæti kveikt áhuga þinn.
(21. apríl—20. mai)
Þaö er eitthvað rosalega mikiö aö gerast hjá
þérá tilfinningasviöinu. Þérfinnst hlutirsem
öðrum finnst einfaldir gifurlega flóknir.
Reyndu aö taka það rólega og haltu matar-
æöinu í föstum skoröum, ekki reyna neitt
nýtt um þessar mundir.
(21. mai—21. júní)
Tappaðu af reiöi sem hlaðist hefur upp hjá
þér þessa vikuna. Það eru margar leiöir til
þess og ef þú átt maka er kjöriö að fara i ein-
hverskonar likamsrækt með honum. Sunnu-
dagurinn er fínn fyrir áhugamálin.
(22. júní—22. júli)
Það er fólk í kringum þig sem er aö reyna aö
hafa áhrif á gerðir þinar. Láttu sem þú sjáir
þaö ekki og farðu algerlega eftir þínu.höfði.
Frelsi er einkunnarorð þin þessa dagana, og
þaö á við um öll svið lifs þins.
(23. júlí—22. ágúsl)
Líttu til framtíðarinnar með bjartsýni og
láttu smávægilega hluti eiga sig. Einbeittu
þér að mikilvægum verkefnum um þessa
helgi og láttu ekki ráðskast meö þig.
(23. ágúst—23. sept.)
Þér hættir til að d æm a aðra ranglega og hafa
rangar hugmyndir um þá. Leiðréttu þetta og
þá líður þér betur. Vinur eða kunningi gæti
þurft á smáhjálp og uppörvun að halda frá
þinni hendi. Burtséð frá þessu ætti helgin að
vera í rólegri kantinum.
(23. sept.—24. okt.)
Áætlanir sem þú ert með i gangi núna kunna
að tefjast og því er þolinmæði mikilvæg
þessa dagana. Gerðu bara eitthvað annað í
staðinn, þá gleymiröu þér. Einhleypir ættu
kannski að huga að makavali.
"L' (24. okt —22. nóv.)
Jafnvægi er það sem sporðdrekar ættu að
hugsa mikið um þessa dagana. Það er nefni-
lega ekki óliklegt að óvæntur fundur með
þér hærra settum beri ríkulegan ávöxt ef þú
neldur rétt á spilunum. Láttu dagdrauma
ekki ná valdi á þér.
(23. nóv.—2\. des.)
Óvænt útgjöld setja strik í reikninginn. Þess
vegna ættirðu að hafa augun opin hvað
varðar aukavinnu. Gakktu samt ekki of nærri
þér á þvi sviði, því heilsan er dýrmætari en
peningar.
(22. des.—20. jan.)
Einhver vandamál eru likleg til að koma upp
á yfirborðið á laugardag. Hafðu i huga að oft
er sókn besta vörnin. Á sunnudaginn er gott
að hugsa aðeins um framtiðina hvað varðar
fjárfestingar og annað slikt.
(21. janúar—19. febrúar)
Ef þú flýtir þér of mikið við það sem þú ert
að gera er liklegt að þú gerir eitthvað vit-
laust. Slíkt borgar sig ekki. Timinn er nógur
og fjölskyldan á lika að fá sinn tima. Lausir
og liðugir ættu að fara út að skemmta sér.
(20. febrúar—20. mars)
Tilfinningar sem hafa kraumað undir niðri
aeysast nú upp á yfirborðið af miklum krafti.
Ovæntar fréttir sem þú færð eru ekki góðar
fréttir að þinu mati. Reyndu að slita þig frá
neikvæðum hlutum og gera eitthvað
skemmtilegt
i framh|áhlaupi
Ásgeir Tómasson
blaðamaður
Undir éhrifum fra
umsiónarmanni
helgarblsðs ÞV!
— Hvaöa persona hefur haft
mest áhrif á þig?
„Fjöldinn allur, en þó flestar
aöeins um skamma hríö. Ætli ég
sé ekki einna helst undir áhrifum
frá umsjónarmanni helgarblaðs
DV."
— Hvenær varöstu hrædd-
astur á ævinni?
„Þegar viö Holberg Másson
svifum á loft í loftbelgnum hans
frá Seltjarnarnesi einhvern sum-
ardaginn fyrir 12—13 árum.
Skömmu áöur haföi ég horft upp
á Ómar Ragnarsson flengjast
um stóran hluta Álftanessins, yf-
ir urð, grjót og gaddavír og enda
úti á sjó án þess að komast upp
í körfuna. Fljótlega eftir mitt
flugtak fór skrekkurinn þrátt fyrir
aö nokkur brunagöt væru á
belgnum. í nokkur ár á eftir var
ég hins vegar talsvert skelkaður
í litlum eins og tveggja hreyfla
flugvélum, sem ég tel vera beina
afleiðingu þessa flugs."
— Hvenær varöstu glaðast-
ur?
„Því miður, afar ófrumlegt
svar: Þegar ég horfði á krakka-
ormana mína koma í heiminn og
sá að þeir voru eins og fólk er
flest."
— Hvers gætiröu síst verið
án?
„Þess að fá að heyra það með
reglulegu millibili að ég sé besti
pabbi í heimi. Það er auðvitað al-
gjört rugl en gott að fá að heyra
það samt."
— Hvaö finnst þér leiðinleg-
ast að gera?
„Að fara í jarðarfarir. Þarna
þurfti ég að hugsa mig verulega
lengi um."
— Hvaö finnst þér skemmti-
legast?
„Hitt og þetta. Aðallega hitt."
— Hvaö fer mest í taugarnar
á þér?
„Nokkuð margt. Til dæmis
það að hafa ekki sama minni,
ímyndunarafl og sköpunarkraft
og ég hafði þegar ég var átján."
— Manstu eftir neyöarlegri
stöðu sem þú hefur lent í?
„Ég er alltaf að lenda í því að
heilsa fólki sem ég held að ég
þekki en þekki ekki, og strunsa
síðan framhjá fólki sem ég ætti
að heilsa en kem ekki fyrir nokk-
urn mun fyrir mig. Þetta er afar
hvimleitt."
— Ef þú værir ekki í núver-
andi starfi, við hvaö vildirðu
helst vinna?
„Ég gæti vel hugsað mér að
vinna sem útvarpsstjóri Ríkisút-
varpsins eða ritstjóri Morgun-
blaðsins. Sér í lagi er útvarps-
stjórastaðan spennandi. Þar þarf
maður engar áhyggjur að hafa af
peningum, hvorki tekjum né út-
gjöldum, að því er virðist."
— Áttu þér leyndan draum?
„Nei, þótt skömm sé frá að
segja. Hins vegar á ég mér þann
opinbera draum að geta losnað
við að greiða tugi ef ekki hundr-
uð þúsunda króna i dráttarvexti
af alls kyns leiðindalánum — eða
ránum — á hverju ári. Og því fyrr,
þeim mun betra."
lófalestur
draumar
Draumablóm
blómstrandi eða með ávexti er
manni sjálfum og fjölskyldu manns
fyrir góðu. En að dreyma tré visnað
eða horfið þaðan sem það átti að
vera er fyrir missi. Tengt þessu er
orðið ættartré. Nú á dögum fást í
mörgum verslunum myndaslíður
sem hanga í litlu silfurtré er tákna
skal ættartréð. Þegar búið er að
setja myndir í slíðrin er ættartréð
hlaðið ávöxtum. Skemmtileg hug-
mynd byggð á fornu minni.
Dreymi konu ávöxt er það mjög
oft tákn barns. Stundum finnst okk-
ur slíkir draumar undarlegir. Kunn-
ingjakonu mína dreymdi stóran og
litfagran ávöxt. Hann var gegnsær
og inni í honum voru mörg fögur
augu sem horfðu á hana. Hún sagði
mér þennan draum þegar hún var
orðin roskin kona og taldi að sig
hefði þarna dreymt fyrir börnunum
sínum.
Og að endingu, ef mann dreymir
fögur og gróskuleg blóm eða tré á
leiði vina sinna — þá hefur lífsstarf
þeirra orðið til góðs. þannig fylgja
draumablómin okkur á leiðarenda.
Og taka sjálfsagt á móti okkur hin-
um megin. En það er önnur saga.
Steinunn Eyjólfsdóttir
Fá draumtákn eru eins margræð
og blóm. Ýmsir merkisatburðir
mannsævinnar virðast táknaðir
með blómum, einnig í vökunni.
Blómin eru fegurstu lífverur sem
maðurinn þekkir. Úr draumheimum
flytja þau honum boð og sjálfur
reynir maðurinn að túlka tilfinning-
ar sínar með blómum. Jafnvel
mestu skálkar fyllast mildi í félags-
skap blóma. Sumt skyggnt fólk
kveðst hafa heyrt blómin syngja. En
við, sem ekki er gefin skyggnigáfan,
skulum nú hyggja nokkuð að
draumablómunum okkar.
Pottablóm — þ.e. rótföst blóm —
eða blóm sem fest eru í föt
manns, barm eða hár tákna afkom-
endur eða skjólstæðinga. Litirnir
geta sagt til um kyn væntanlegs
barns. En eins og flestir vita er blátt
táknlitur drengja en bleikt stúlkna
frá fornu fari. Rauð og hvít blóm
eru talin tilheyra telpum. Stundum
eru þó hvít blóm sögð boða feigð.
Hvítt táknar þá hreinleika annars
heims. Og margir segja rauð blóm
tákn ástar. Dreymi stúlku að piltur
gefi henni blóm eða ef pilt dreymir
hið sama um stúlku, boðar það vís-
ast annað af þessu eða jafnvel bæði
ást og börn.
Dreymi mann hinsvegar afskor-
in blóm þar sem maður er staddur
í draumnum er það oft fyrir dauðs-
falli. Tré og runnar tákna einnig oft
persónur. Að dreyma tré og blóm
Þessi maður er í eðli sínu vilja-
sterkur, en hann skortir svolítið
sjálfstraust. Hann er jákvæður og
allsveigjanlegur og lætur tilfinn-
ingarnar oftast ráða ferðinni.
Hann hefur þörf fyrir menningu.
Ef hann vinnur ekki sjálfur á slíku
sviði er a.m.k. jákvætt fyrir hann
að vera innan um menningarlega
sinnað fólk.
Upp úr þrítugu hafði maðurinn
nokkuð góða möguleika til að
komast áfram og aftur á aldrinum
frá 45 til 55 ára. Einhverjar breyt-
ingar tengdar starfi hans eða lifn-
aðarháttum eiga sér stað á næst-
unni eða hafa nýverið orðið. Það er
AMY
ENGILBERTS
þó ekkert, sem hann þarf að kvíða
fyrir. Þessi karlmaður gæti orðið
þekktur á ákveðnu tímabili í lífinu.
Eftir sjötugt þyrfti hann að fara
vel með sig, því þá getur hann náð
háum aldri.
í þessari viku:
Vördur
(karl, fæddur 5.10.
1927)