Pressan - 19.10.1989, Blaðsíða 9
9
Fimmtudagur 19. okt. 1989
mm&M,
&í
ÍSUNDUR
)IS OG
Magnús Bjarnason, framkvæmda-
stjóri ísflugs, leggur dæmið upp
þannig að yfir vetrartímann hafi
millilandaflugvélar Arnarflugs lítið
að gera og upplagt að koma þeim í
erlend verkefni.
Málið er bara að flest flugfélög
búa yfir umframgetu á veturna. Há-
annatími er yfir sumarið og á þeim
tíma liggja ekki á lausu flugvélar til
leigu. Þetta snýst við á veturna og
þá er meira framboð af flugvélum
en eftirspurn. Þetta kannast Isflugs-
menn við og stjórnarformaðurinn,
Óttar Yngvason, segir harða sam-
keppni á þeim markaði þar sem ís-
flug ætlar að hasla sér völl. „Það
stendur samt mikið til,“ segir Óttar,
„þó þetta sé allt óverulegt ennþá.“
Annað atriði gerir ísflugi erfitt um
vik. Þær tvær millilandaflugvélar
sem eru í þjónustu Arnarflugs eru
hvorugar í eigu félagsins. Önnur vél-
in er fengin á leigu frá bandarískum
aðila, Aviation Sales, og hina tók
ríkissjóður íslands upp í skuldir í
vetur. Síðarnefnda vélin gengur
undir nafninu „þjóðarskútan" í flug-
heiminum. Þá flugvél leigir ríkis-
sjóður ferðaskrifstofunni Samvinnu-
ferðum-Landsýn, sem aftur fram-
leigir Arnarflugi farkostinn. Að
fenginni reynslu treystir ríkissjóður
Arnarflugi ekki betur en svo að
ferðaskrifstofa verður að ganga í
ábyrgð fyrir ieigugjöldum. Annars
er Arnarflug þarna í hagstæðum
viðskiptum því félagið borgar að-
eins fyrir þann tíma sem „þjóðar-
skútan" er í loftinu, en þess á milli
stendur vélin arðlaus á flugstæði á
Keflavíkurflugvelli.
Arnarflugsmenn eru bjartsýnir
eins og fyrri daginn. Magnús
Bjarnason segir að takist hagstæðir
samningar um leiguflug erlendis sé
ekki að vita nema Arnarflug kaupi
„þjóðarskútuna" frá ríkinu.
Þó að Arnarflugsmenn fáist ekki
til að viðurkenna Jjað er öllu lík-
legra að það verði Isflug hf„ fremur
en Arnarflug, sem gerir tilboð í flug-
vél ríkissjóðs. ísflug er skuldlaust fé-
lag á meðan móðurfyrirtækið er
skuldsett upp fyrir haus. Ef ísflug
yki hlutafé sitt upp í tíu milljónir,
sem heimild er fyrir, er félagið í
stakk búið að taka á sig fjárskuld-
bindingar sem Arnarflug getur
ekki.
Nýtt
Siglóævintýri?
Þess eru dæmi að eigendur skuld-
ugra fyrirtækja fari með þau í gjald-
þrotaskipti til þess eins að hefja á ný
sama rekstur undir öðru heiti og án
gömlu skuldanna.
í vetur var niðursuðuverksmiðjan
Siglósíld lýst gjaldþrota og samdæg-
urs var verksmiðjan leigð fyrri eig-
endum sem stofnuðu hlutafélagið
Siglunes um reksturinn.
Þessi aðferð við að afskrifa skuldir
vakti almenna hneykslan og andúð.
I leiðara DV var skrifað um málið
12. apríl.
„Geta menn orðið gjaldþrota,
geta menn komist hjá því að greiða
skuldir sínar við ríkissjóð og fengið
fyrirtækin afhent á silfurbakka að
launum? Er allt hægt þegar pólitíkin
er annars vegar? Hefur fjármálasið-
ferðið engin landamæri?" spyr höf-
undur leiðarans, Ellert B. Schram
ritstjóri.
EFTIR: PÁL VILHJÁLMSSON — MYNDIR: EINAR ÓLA O.FL.
Freyr Þormóðsson í San Francisco
MAÐUR HÉLT
AÐ DAGAR SÍNIR
VÆRU TALDIR
Lýsing Islendings á jarð-
skjálftanum í San Francisco í
fyrradag. Húsið liðaðist
fram og aftur. Skelfilegt
hvernig skjálftinn magn-
aðist og magnaðist.
„Petta var alveg hrœdilegt. Á tímabili hélt maöur
aö dagar sínir vœru taldir, þarna vœri stóri skjálftinn
kominn og alltþaö. Ég var nýkominn inn, haföi verid
niöri í bœ, stód á midju stofugólfinu meö disk og glas
í höndunum. Þá kom smáhristingur og ég gerdi mér
grein fyrir hvaö var á seyöi og lagdi allt frá mér. Var
varla nema rétt búinn aö því þegar allt byrjaöi aö
dansa. Húsiö liöaöist fram og til baka og þetta gekk
örugglega í einar 15 sekúndur og magnaöist og
magnaöist. Maöur stirönaöi. Þaö fór allt á fleygiferö
og standlampi á gólfinu hentist fram og til baka. Svo
datt allt í dúnalogn og strax á eftir fylltist bœrinn af
sírenuvœli. “
Svo fórust
Frey Þormóðs-
syni, náms-
manni í San
Francisco, orð
þegar Pressan
hafði samband
við hann í gær
og forvitnaðist
um reynslu hans af jarðskjálftan-
um sem reið yfir Kaliforníu í fyrra-
dag. Klukkan var sjö að morgni og
að baki hans suðaði sjónvarpið
þar sem þulurinn gerði grein fyrir
stöðu mála í borginni. Eldar loga
enn í miðbænum var sagt, en búið
er að ná valdi á þeim. Fjögurra
hæða hús hrundi við ... götu,
veggur hrundi ofan af húsi og
kramdi fimm manns, glerbrotum
rigndi úr skýjakljúfunum í mið-
bænum sem svignuðu eins og tré
í vindi, verslunareigendur þustu
niður í miðbæinn að verslunum
sínum með skotvopn í hendi til að
verja þær fyrir ósvífnu fólki sem
hugsanlega vildi notfæra sér
ástandið, maður fékk rúðu í háls-
inn og dó, þeir sem hafa orðið fyrir
tjóni eru beðnir að snúa sér til
Rauða krossins, fólk er beðið að
láta fé af hendi rakna til þeirra sem
eiga í erfiðleikum, fólki er ráðlagt
að standa ekki undir húsveggjum
heldur finna sér skjól í steyptum
inngöngum og fara ekki nærri raf-
magnsstaurum . ..
. . . eins og
stórslysamynd
í Candlestick Park hófst kl.
17.00 úrslitaleikurinn í Baseball
World Series. Til úrslita léku ann-
arsvegar Oakland Athletics og
hinsvegar San Francisco Giants.
Oakland er borg handan San
Francisco-flóans og mikil stemmn-
ing var í tengslum við leikinn. Og
sjónvarpið var á staðnum eins og
alltaf. Bein útsending frá leiknum
um öll Bandaríkin. 65.000 manns
sátu í stúkunni og fylgdust með
þegar skjálftinn kom rétt eftir
klukkan fimm. Stúkan gekk í
bylgjum en hélt, og troðningurinn
varð gífurlegur þegar fólk reyndi
að komast í burtu. Og allt í beinni
útsendingu, sjónvarpið lét ekki að
sér hæða. Þetta var víst eins og
stórslysamynd að mati sjónar-
votta. Fólkið komst út af vellinum
en ekki lengra og sumir voru
tepptir þar langt fram á nóttina því
hraðbrautirnar suður úr San Fran-
cisco gengu allar úr lagi. Um
40.000 manns sátu í bílum sínum
við völlinn yfir nóttina. Við borg-
ina Santa Cruz, þar sem skjálftinn
varð dýpstur, hentust bílar af hrað-
brautunum og út í buskann eins og
kubbar eða kappakstursbílar á
leikfangabrautum. í Oakland
gengu fjögurra hæða hús til, hús
sem standa þrjá til fjóra metra
hvert frá öðru svignuðu svo þak-
skeggin kysstust.
Borgin í lamasessi
Freyr: „Rafmagnið fór af, raf-
stöðvar brunnu yfir og það komst
ekki á fyrr en í tvö í nótt hjá okkur.
Eg veit ekki hvernig það var í öðr-
um borgarhlutum. Samgöngu-
kerfið er allt lamað, sporvagnar
stóðu fastir vegna þess að þeir
fengu ekki rafmagn og skólinn er
lokaður í dag og verður sennilega
eitthvað áfram því það þarf að
kanna allar gas- og rafmagns-
leiðslur í húsinu. Allt athafnalíf er
meira og minna lamað, flugvöllur-
inn er enn lokaður og þar fram eft-
ir.“
— Hefurðu haft samband við
aðra íslenska námsmenn í San
Francisco?
„Já, fólk hefur verið að hringja
sín á milli til að athuga hvort menn
séu örugglega ekki heima við.
Einn vinur minn var á ferð yfir
Bay-brúna skömmu áður en
skjálftinn kom. Hann var rétt bú-
inn að skipta yfir á aðra hraðbraut
þegar hann fann sig eins og í stór-
sjó og réð ekkert við bílinn og allir
hægðu á sér. Það var blankalogn
og sólskin en trén sveifluðust samt
til og frá eins og í stólparoki. Ann-
ar sat á bókasafni og las og þegar
fyrsti hristingurinn kom hélt hann
bara að þetta væri þessi venjulegi
San-Francisco-hristingur og sat
sem fastast. Áttaði sig ekki á hvað
var að gerast fyrr en fólk byrjaði
að hlaupa öskrandi út af bókasafn-
inu. En annars held ég að allir hafi
það gott.
Eftir á fer maður að hugsa; ég
var nýkominn heim en maður
hefði getað verið staddur í neðan-
jarðarlest og þá er aldrei að vita
hvað hefði getað gerst. Kona mín
var komin heim af safni sem hún
hafði verið að skoða í miðborg-
inni, en þar hafði hún upphaflega
hugsað sér að vera til klukkan
fimm ... Það er auðvitað stórund-
arlegt að ekki skuli fleiri hafa farist
en mér skilst á fréttum hér að búið
sé að staðfesta að þetta hafi verið
mesti jarðskjálfti sem hér hefur
mælst síðan 1906.
Það sem var „kelfilegast við að
upplifa þennan jarðskjálfta var
hvað hann stóð lengi og hvernig
hann magnaðist stöðugt, varð allt-
af sterkari og sterkari," sagði
Freyr Þormóðsson við Pressuna í
gær. Kristján Kristjánsson