Pressan - 19.10.1989, Qupperneq 23
Fimmtudagur 19. okt. 1989
23
BÍLAKYIMIMIIMGAR BÍLAKYIMIMIIMGAR BÍLAKYIMIMIIMGAR
Helstu punktar vegna
BX ’90
BX er fáanlegur í mörgum mismunandi útfærslum.
BX 14E, 1360 cc vél — 70 hö. — BX 16 TRS, 1580 cc vél
— 94 din hö., BX 19 TRS, 1907 cc vél — 107 hö„ BX 19
GTi 1905 cc vél — 125 hö„ BX 19 GTi 16v. 1905 cc vél
fjölventla — 160 hö. og BX 19 4x 4 1905 cc vél — 107
hö.
Fastur búnaður samkv. verðlista.
BX 19 4 x 4 er nýjasta trompið frá Citroén og er hann
fáanlegur bæði í 5 dyra útfærslu og station (Break).
Helstu kostir þessa bíls eru þeir að hann heldur ávallt
sömu hæð frá jörðu, burtséð frá hleðslu. Hægt er að
hækka bílinn upp með einu handtaki inni í bílnum.
Venjuleg akstursstaða: 14 sm undir lægsta punkt frá
jörðu, akstursstaða 2:22 sm undir lægsta punkt. Akst-
ursstaða 3: (hám. 15 km hraði á klst.) 25 sm undir lægsta
punkt. (Engin fjöðrun.)
BX 19 4x4 er með mjög öflugum driflæsingum.
Hægt er að læsa átaki milli fram- og afturhjóla og þá um
leið læsist átak út í afturhjól og á framhjólum er átaks-
dreifing. (Byrji bíllinn að spóla að framan leitar átakið út
í það hjól sem hefur spyrnu hverju sinni.) Læsingin er
einungis sett á við erfiðustu aðstæður.
BX 4x4 er með sítengdu aldrifi og er 53% átak á
framhjólum en 47% á afturhjólum, sé læsingin ekki á.
Þetta gerir bílinn frábæran í utanbæjarakstri. Engu er
líkara en hann sé límdur við veginn í beygjum og á
slæmum vegum. Þar koma eiginleikar vökvafjöðrunar-
innar best í Ijós, að ógleymdu því að hann heldur alltaf
jafnri hæð frá jörðu.
BX 19 4x4 5d. kostarfrá um það bil 1.350.000 á göt-
una kominn (fastur bún. sjá verðlista).
BX19 4 x 4 Station (Break) kostar frá um kr. 1.462.000
á götuna kominn (fastur búnaður sjá verðl.).
Lánakjör sbr. Féfangsskilmálar (25% út, afgangur á
allt að 30 mán.).
Algengustu kjör þó um 40—60% útb. og afg. á 8—18
mán. á hæstu lögl. vöxtum. samkv. lánskilmálum
Globus (hæstu lögl. vextir að 18 mán.).
PEUGEOT
Snjórinn nálgast og því verður nýr fjórhjóladrifinn
Peugeot 405 GR 4x4 fáanlegur á næstu vikum hér-
lendis. Bíllinn er sídrifinn með læsanlegum drifbúnaði.
Aflið skiptist þannig að 53% fara íframhjól en 47% í aft-
urhjól. Peugeot hefur unnið fjölmarga rallsigra á fjór-
hjóladrifsbílum og nýi 405-bíllinn nýtur þekkingar úr
rallheiminum. GR 4x4 verður með 110 hestafla vél,
fimm gíra gírkassa og sjálfstæð fjöðrunin er m.a. búin
hleðslujafnara. Afturhlutinn heldur sömu hæð frá jörðu
þó farangur sé óvenjuþungur og mikill í bílnum. Fyrir þá
orkuglöðu verður 160 hestafla MI16 með fjórhjóladrifi
fáanlegur að utan. GR-útgáfan fjórhjóladrifna mun
kosta nærri 1,6 milljónum króna. Helmingi minna kostar
Peugeot 205 Rally, sem fæst nú í umboðinu. Sá bíll var
valinn sportbíll ársins í Frakklandi af þekktu tímariti þar
í landi og sló stærri bíl við sökum léttleika. Nokkrar
breytingar hafa verið gerðar á Peugeot 309-línunni,
sem fæst með 60—160 hestafla vél. Nærri milljón ein-
tök þessa bíls hafa selst í heiminum. 1990-árgerðin er
með nýju grilli, er straumlínulagaðri og fáanleg í mörg-
um útfærslum bæði þrennra og fimm dyra. Rúsínan í
pylsuendanum hjá Peugeot ersvo glæsivagn sem kem-
ur á næsta ári, 605-lúxusbíllinn framdrifni. Hann verður
fáanlegur með 115—170 hestafla vél, tölvustýrðri fjöðr-
un og hlaðinn aukabúnaði, sem jafnvel Bandaríkjamenn
myndu klökkna yfir. Sá bíll kemur með vorinu.
MERCEDES
BENZ
Ekki er um stórvægilegar breytingar að ræða frá fyrri
árgerð. Helst eru sjáanlegar breytingar á millistærðinni,
þ.e. í gerðum Mercedes Benz 200 E til 300 E.
T.d. eru komnir breiðir hlífðarlistar sem ná vel upp á
hurðirnar og vindskeiðum undir stuðurum hefur verið
breytt. Einnig er ánægjulegt að sjá að krómlistar eru
komnir á stuðara og á hliðarlistana. Innréttingar hafa
einnig tekið breytingum. Nú má sjá viðarlista í mæla-
borði og í hurðum.
Af þessu sést að Mercedes Benz breytist ekki stór-
vægilega milli árgerða, einungis breytinganna vegna.
SUBARU LEGACY
KOMINN TIL LANDSINS
Nú um næstu helgi, laugardaginn 21. og sunnudag-
inn 22. október, verður frumsýndur samtímis í Reykja-
vík og á Akureyri nýr og gjörbreyttur Subaru. Þessi nýi
Subaru gengur undir nafninu Legacy, í lauslegri þýð-
ingu „arfleifðin". Þessa dagana er verið að kynna þenn-
an bíl víðsvegar í Evrópu en sala er nýhafin á bílnum á
Japans- og Bandaríkjamörkuðum.
Eins og mörgum er e.t.v. kunnugt, þá voru í janúar sl.
sett ný og glæsileg heimsmet í 100.000 kílómetra og
50.000 mílna hraðakstri á hinum nýja Legacy auk þess
sem 13 alþjóðleg met voru slegin. Höfðu sum hver
staðið óhögguð síðan 1967, þá sett af ekki ómerkari bíl
en Porsche 911R. Þremur Legacy-bílum var ekið að
heita má viðstöðulaust í 18 daga og 15 klukkustundir
sem eitt og sér fellir frábæran dóm yfir hinum nýja
Subaru-bíl. Meðalhraði var rúmlega 223 kílómetrar á
klukkustund.
Helstu nýjungar í Subaru Lagacy er gjörbreytt,
straumlínulagaðra útlit. Bíllinn er hannaður í tveimur
meginútgáfum, 4ra dyra, sem oft hefur verið kallaður
fólksbíll, og skutbílsútgáfu. Hann verðurseldur í þremur
mismunandi verðflokkum, DL, GL og GX.
Allir ofangreindir bílar eru með nýrri og gjörbreyttri
vél. Þó að enn sé byggt á „boxer"-vélinni er nú um að
ræða gjörbreytta, 16 ventla vél, 1800 eða 2200 rúm-
sentimetra. Hingaðtil lands verðurSubaru Legacy flutt-
ur með beinni innspýtingu, sem kemur mjög skemmti-
lega út með nýju vélinni. Búast má við að sala á hinum
nýja Subaru Legacy verði komin í fullan gang í byrjun
nóvember. Sýningar helgarinnar verða því tileinkaðar
hinum nýja Subaru Legacy hjá aðalumboði Ingvars
Helgasonar hf. á Sævarhöfða í Reykjavík og á Bifreiða-
verkstæði Sigurðar Valdimarssonar á Akureyri.
SUZUKI
YITARA
VERÐUR FÁANLEGUR
MEÐ SJÁLFSKIPTINGU
SNEMMA Á NÆSTA ÁRI
ISUZU
TROOPER
STERKBYGGÐUR SPORTJEPPI
Árið 1981 var Isuzu Trooperfyrst fluttur til íslands, þá
nýkominn af færibandi Isuzu-verksmiðjanna í Japan.
Hugsunin á bak við Trooper-jeppann var að framleiða
rúmgóðan og sterkbyggðan ferðabíl, til að þjóna hinum
vanþróaðri ríkjum, en í þeim löndum er markaðshlut-
deild Isuzu mikil. Þessara bíla biðu því ferðalög yfir
óbyggðir og úlfaldaslóðir svörtustu Afríku.
Þessar þrautir hefur Trooperinn leyst mjög vel og
hlutur hans og hróður aukist með ári hverju.
Frá því 1981 að Isuzu Trooper kom fyrst á markaðinn
hafa verið gerðar á honum margar endurbætur án þess
að hið stílhreina útlit hans hafi breyst mikið.
í dag er Isuzu Trooper fáanlegur sem þrennra dyra af
styttri gerð, 5 dyra DLX og 5 dyra LS Luxus Wagon. Vél-
arnar eru 2,6 ltr„ 100 hö turbo diesel.
Isuzu Trooper hefur unnið til margra viðurkenninga á
sl. árum. Nú þriðja árið í röð hefur Trooper verið valinn
einn af 10 bestu í Bandaríkjunum og sá bíll þar sem
kaupandinn fengi mest fyrir peninga sína.
í V-Þýskalandi, þar sem menn gera miklar kröfur til
farartækja sinna, hefur Isuzu Trooper einnig verið kos-
inn besti fjórhjóladrifni bíllinn á markaðnum þar í landi.
Þetta sannar margvíslega yfirburði Isuzu Trooper
framyfir keppinauta sína. Þessir yfirburðir felast einkum
í styrkleika bílsins sem byggður er á heilli grind, miklu
rými bæði fyrir fólk og farangur, mýkt og mjög góðum
aksturseiginleikum og því sem ekki vegur minnst að
Isuzu Trooper er samkvæmt mælingum sparneytnasti
jeppabíllinn í sínum stærðarflokki á markaðnum í dag.
Isuzu Trooper hefur reynst mjög traustur ferðabíll og
hagkvæmur í rekstri enda bilanatíðni mjög lág.
Fyrir þá sem vilja komast leiðar sinnar á hagkvæman
og öruggan hátt hefur Isuzu Trooper margsannað að
hann verðskuldar athygli þeirra.
Helstu staðreyndin
Hæð undir lægsta punkt
Eigin þyngd
Lengd
Breidd
Hæð
Beygjuradíus
Eldsneytisgeymir
MITSUBISHI
LANCER
HLAÐBAKUR
í Lancer-hlaðbak með sítengt aldrif og 1,8 lítra vél
(ECI-MULTI) kemst maður eins nálægt því, sem kallað
er „öruggur akstur", og unnt er. Með Mitsubishi-seigju-
tengslinu (VCU), sem vinnur svipað og olíutengsli milli
mismunadrifs í gírkassa og afturáss, er aflinu dreift jafnt
á fram- og afturás bifreiðarinnar. Þessi búnaður felur í
sér ótvíræða kosti, svo sem: Betra viðbragð úr kyrr-
stöðu, meiri möguleika á að komast leiðar sinnar í hvers
konar ófærð, meiri rásfestu og betri stýrissvörun í
beygjum. Á Lancer hlaðbak með sítengdu aldrifi (4WD)
kemst þú ætíð á áfangastað.
225 mm
1415/1545 mm
4120/4470 mm
1650 mm
1800 mm
5,4 m