Pressan - 19.10.1989, Síða 25
Fimmtudagur 19. okt. 1989
25
pHUNN
UNDANHALDI?
Bíllinn hefur étt undir högg að sækja að und-
anförnu. Innflutningurbílahingaðtillandshefur
dregist stórlega saman á síðastliðnum tveimur
órum svo mjög að þeim sem nærri þessum við-
skiptum koma líst ekki orðið á blikuna.
Menn hafa haft á orði að ríkissjóð-
ur kæmi alltaf auga á leiðir til að
skattleggja bifreiðaeigendur, jafnvel
í þeim tilfellum sem þeim er alls
ekkert skyldara að láta fé af hendi
rakna til ákveðinna málefna en
þeim sem ekki eiga bíla.
Einhverja rekur ef til vill minni til
þess að árið 1982 var sett reglugerð
sem kvað á um sérstakt gjald af bif-
reiðum og bifhjólum, þannig að
gjald var lagt á bifreiðir í sjö flokk-
um, miðað við eigin þyngd eða
sprengirými bílvélar. Þetta þýddi
verulega breytingu og mismun á
gjaldi eftir þunga og vélarstærð,
þannig að nokkur munur varð á að-
flutningsgjöldum minni og léttari
bíla og hinna sem stærri eru og
þyngri. Svo dæmi séu tekin um þá
þróun sem átt hefur sér stað í að-
flutningsgjaldatöku ríkisins af al-
gengustu stærðum fólksbíla var bíll
með vél á bilinu 1.300 sm3 til 1.600
sm3 með 79% aðflutningsgjöld frá
og með 28.6.’83. Frá og með 11.3.’86.
er gjaldið orðið mun lægra, eða ekki
nema 19%! Það var einmitt þetta ár,
1986, sem hin gífurlega þensla átti
sér stað í innflutningi bifreiða hing-
að til lands, sem fræg er orðin. En
hvað um það, árið 1987, nánar til
tekið þann 9. október, eru gjöldin
komin í 30%, og enn er verið að taia
um bíl með 1.300—1.600 sm3 vél.
Hér að framan var aðeins stiklað
á stóru hvað varðar breytingar á að-
flutningsgjöldum bifreiða og þess ber
aö geta að sú breyting sem átti sér
stað árið 1986 varð í kjölfar kjara-
samninga í febrúar. Eins og sást á
prósentutölunum voru gjöldin farin
að hækka á ný árið 1987 o£ hafa
reyndar hækkað enn frekar. I reglu-
gerð sem Ólafur Ragnar Grímsson
skrifaði undir þann 30. desember á
liðnu ári eru gjöldin svo hækkuð
enn frekar og er þá svo komið að
bíllinn sem um er rætt hér að fram-
an má þola aðflutningsgjöld sem
hljóða upp á 41%. Með þeirri þróun
sem lýst er hér sést að við stefnum
hraðbyri í þá átt að verða á ný fram-
arlega í röð þeirra landa þar sem
hlutur ríkisins af útsöluverði bíla er
hvað hæstur. Nú þegar erum við
orðin mun hærri hvað þetta varðar
en nágrannalönd okkar, mörg hver.
Eins og áður sagði hélst þenslan í
bílainnflutningi nokkurn veginn í
hendur við lækkandi verð og árið
1986 voru fluttir inn til landsins
13.352 bílar, höfðu verið 5.655 árið
áður. Flestir höfðu innfluttir bílar
orðið árið 1982 eða 8.574, en eins
og sjá má er sú tala ekki nema svip-
ur hjá sjón, þegar miðað er við inn-
flutninginn 1986. Árið eftir, 1987,
eykst fjöldi bílanna enn nokkuð og
þeir urðu 18.081. Með öðrum orð-
um, nokkru fleiri en árin 1983,1984
og 1985 samanlagt! Þegar þarna var
komið sögu fór heldur að halla und-
an fæti og í fyrra urðu bílarnir „ekki
nema" 12.258, eða meira en helm-
ingi fleiri en 1985. Þrátt fyrir þá
staðreynd að salan væri mun meiri
en hún var nokkrum árum áður var
hún mun minni en undanfarin tvö
ár, og þessi samdráttur varð nokk-
urt áfall fyrir bílamarkaðinn. Um-
boð sameinuðust og gamalgróin
fyrirtæki eins og Veltir urðu að sjá á
eftir umboðum sínum. Árið í ár hef-
ur svo verið kallað ár hrunsins í bíla-
viðskiptum og í yfirlýsingu sem Bíl-
greinasamband Islands sendi frá sér
á fyrrihluta þessa árs segir að ,,verði
bílainnflutningur svipaður það sem
eftir er ársins verði hann minni en
BIFREIÐAEIGENDUR!
SPARIÐ TÍMA - SPARIÐ FYRIRHÖFN
Rennið bílnum í gegn hjá Bón- og þvottastöðínní, Sigtúni 3.
Óhreinn bíll er leiðinlegur - hreinn bíll er augnayndi. Margir bíleigendur hafa ekki
tima til þess að þvo og bóna bila sina en flestir hafa 12-15 min. aflögu (sem þarf til
að fara með bil gegnum Bón- og þvottastöðina, Sigtúni 3). Bilarnir eru tjöruhreinsað-
ir, siðan háþrýstiþvegnir og um leið fer fram undirvagnsþvottur. Þessu næst er bi!I-
inn þveginn með mjúkum vélburstum og einnig fer fram handþvottur sem er nauð-
synlegur (hægt er að fá bilinn eingöngu handþveginn). Siðan fer billinn gegnum
bónvélina og Ioks fer hann gegnum heitan blástur og er snyrtur.
Það tekur ekki míkinn tíma að Iáta þvo og bóna reglulega en það eykur endingu
bílsins og ánægju bileigandans.
Ath. Vegna afkastagetu stöðvarinnar, sem er yfir 40 bilar á klst., er biðtími stuttur,
nánast enginn. Tima þarf ekki að panta.
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 8.00-18.40.
OPIÐ LAUGARDAGA KL. 9.00-16.40.
Bón- og þvottastööin hf.
Sigtúni 3,
Sími 14820.
Önnumst allar almennar
boddyviðgerðir
og málningavinnu.
SÆVAR HREIÐARSSON
hs. 45701
SÍMI82080
Smiðshöfða 15 — Póstnúmer 112 — Reykjavík
Skelltu hvorki
skuld á hálku
eða myrkur.
Það ert /tú. sem situr við stýrið.
Il
UMFEROAR
RÁO
BOSCH
Diesel- og rafmagnsverkstæöi
• LJÓSASTILLINGAR
• MÓTORSTILLINGAR
• RAFVIÐGERÐIR
• DIESELVERKSTÆÐI
• VARAHLUTAVERSLUN
BRÆÐURNIR
(©)ORMSSONHF
Lágmúla 9. Sími 38820