Pressan - 16.11.1989, Side 9

Pressan - 16.11.1989, Side 9
Fimmtudagur 16. nóv. 1989 9 Byggingarframkvæmdir Júlíusar Hafstein borgarfulltrúa við Lágmúlann EFTIR PAL VILHJALMSSON Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, Júlíus Hafstein, fékk úthlutað eftir- sóttri lóð í Lágmúla. Framkvæmdir hófust fyrir nokkrum vikum án þess að teikningar væru samþykktar, en það er brot á lögum. Þá eru ógreidd gatnagerðargjöld og byggingarleyf- isgjald en vanalega heimilar bygg- ingarfulltrúi ekki framkvæmdir fyrr en öll gjöld eru greidd. Starfsmaður byggingarfulltrúa hannaði burðar- þolið, en það er óheimilt nema í undantekningartilfellum. Borgarráð úthlutaði litlu innflutn- ingsfyrirtæki Júlíusar, Snorra hf., lóðinni í Lágmúla 6 fyrir fjórum ár- um, en þá var hann varaborgarfull- trúi. Júlíus fékk lóðina í félagi við Ólaf H. Jónsson hf., kennt við Ólaf H., fyrrum landsliðsmann í hand- knattleik og aðstoðarsjónvarps- stjóra Stöðvar 2. Þó nokkur eftirspurn var eftir lóð- um við Lágmúla sem borgarráð út- hlutaði síðsumars 1985. Þeir voru samt ekki margir sem vissu af þeim. Jón Þór Hannesson, framkvæmda- stjóri Saga Film, fékk úthlutað lóð við Lágmúla 2—4 og hann segist hafa frétt af lóðunum fyrir tilviljun. „Það var dálítill slagur um lóðirnar og þær margþvældust í kerfinu áður en þeim var úthlutað," segir Jón Þór. Meðal annars varð að breyta skipulagi til að gera lóðirnar bygg- ingarhæfar. Aður var gert ráð fyrir að ekki yrði byggt á svæðinu og það flokkað sem „grænt svæði". Um sinn gerðu þeir Júlíus og Ólaf- ur ekkert með lóðina. Vorið 1986 náði Júlíus kjöri sem aðalmaður í borgarstjórn, en hann er bróðurson- ur Jóhanns Hafstein, fyrrum for- manns Sjálfstæðisflokksins. Davíð Oddsson borgarstjóri fól Júlíusi for- mennsku í umhverfismálaráði, íþrótta- og tómstundaráði og ferða- málaráði. Júlíus stendur ofarlega í metorðastiga Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og stundum nefndur lík- legur arftaki Davíðs í borgarstjóra- stól.

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.