Pressan - 16.11.1989, Blaðsíða 15

Pressan - 16.11.1989, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 16. nóv. 1989 15 Um þessar mundir er að koma út bók með smásögum eftir Hrafn Gunnlaugsson. Það er Almenna bókafélagið, sem gefur verkið út, en það nefnist Þegar það gerist. í smásagnasafninu eru tólf sögur og birtum við hér upphaf einn- ar þeirra, en hún nefnist Hetjusaga. Fjallar Hrafn þar m.a. um Ekkju, Skáld og Menningarmálaráðherra, sem minna óneitanlega á Jacqueline Picasso, Halldór Laxness og Ragnhiídi Helgadóttur eða jafnvel Vigdísi Finnbogadóttur— hvort sem það er nú tilviljun eður ei. FYRIRMYNDIR? Madame var ekkjaað atvinnu. Eftir lát eigin- manns síns hafði hún ferðast vítt og breitt um heiminn og haldið sýningar á verkum hans. Á þessum sýningum lék hún ly kilhlutverkið, því öll voru verkin úr dánarbúinu sem hún hafði erft. Og nú var hún mætt til íslands, til að skoða aðstæður og athuga hvaða áhuga inn- fæddir hefðu á verkum „eins áhrifamesta list- málara aldarinnar", svo vitnað sé orðrétt í merkan listgagnrýnanda. Og Madame hafði ekki yfir neinu að kvarta, því helstu stórmenni landsins buðu heim og héldu veislur. Ráðherrann bauð til morgunverðar í ráð- herrabústaðnum. Boðsgestir voru í rauninni aðeins fjórir, en Madame mætti þreföld. í fylgd með henni voru einkalæknirinn, þunnhærður og teygður maður sem minnti á safngrip, fjár- greiðslukonan sem vár lítil og hnellin og svört á hörund, af afrísku bergi brotin. Þá mætti móttökustjóri listahátíðar ásamt Madame. Móttökustjórinn var í hlutverki eins konar leiðsögumanns og túlks fyrir hina frægu ekkju. Hinir gestirnir tveir voru Þjóðskáldið sem hlotið hafði fræg útlend verðlaun og frú. í hraðbréfi til hátíðarinnar hafði Madame sett fram þá frómu ósk, að fá að hitta Skáldið sérstaklega. Madame sagðist eiga við hann mikilvægt erindi. Móttökustjórinn hafði kom- ið óskinni á framfæri við Skáldið. Að vísu hafði hann ekki rætt við Skáldið sjálft, heldur eigin- konuna sem hafði sagt, að Skáldið myndi mæta. Og nú var sú stund runnin upp, að þetta fræga fólk hittist í ráðherrabústaðnum. Ma- dame mætti fyrst á staðinn. Hún var um fimm- tugt og fremur lágvaxin, með stílhreina and- litsdrætti sem voru svo sterkir, að þeir sem horfðu í andlit hennar, þó ekki væri nema einu sinni, gleymdu því seint: Þunglyndisleg augu, eins og nývöknuð og ennþá að dreyma. Tinnu- svart hárið lifandi og skreytt einstöku gráu hári. Með árunum höfðu einkenni andlitsins skerpst. Há kinnbein og munúðarfullar varir með óræðu brosi. Fas hennar og vöxtur bar vott um eðalborna reisn, og samt kattmjúkar hreyfingar, og stundum stútur á munninum. Yfir henni hvíldi ævintýrabjarmi. Hún geisl- aði. Ráðherrann tók á móti Madame á tröppun- um með hlýju brosi. Madame sýndi ráðherran- um meira en tilhlýðilega virðingu og laut höfði, þegar hún tók í hönd ráðherrans og sagði: — Þér eruð kona eins og ég, og mér er tjáð að þér séuð fyrsta konan á íslandi til að gegna embætti menningarmálaráðherra, og að þér hafið sigrað þrjá karlmenn samtímis í lýðræð- islegum kosningum, þess vegna votta ég yður sérstakt þakklæti mitt fyrir að vera boðin í þetta sögulega hús í dag og er það mikill heið- ur. Ráðherrann hengdi sjálf upp kápu Madame. Þegar Madame hafði skráð nafn sitt í gesta- bókina og gengið í stofu, færði hún ráðherran- um bókargjöf með eftirprentunum af þekkt- ustu verkum eiginmanns síns heitins. — Þessi mynd hangir uppi í vinnustofu Þjóðskáldsins, sagði ráðherrann og lyfti bók- inni til að sýna viðstöddum, hvaða mynd hún ætti við. Madame brosti og kinkaði kolli eins og það kæmi henni síður en svo á óvart og svaraði: — Leónardó málaði þessa mynd af mér, daginn eftir brúðkaupsnóttina. Þegar hún er ekki á sýningum, hangir hún uppi í svefnher- berginu mínu yfir hjónarúminu. Lengra varð samtalið ekki, því nú heyrðist í Skáldinu og frú frammi í fatahenginu. I gegn- um opnar dyrnar mátti sjá, að ritari ráðherr- ans hengdi upp hatt Skáldsins og frakka. Skáldið var vel við aldur, en klæddur eftir splunkunýjustu tísku og svo vel til hafður að árum saman hafði hann ekkert elst, enda löngu búinn að semja frið við þjóð sína og harðsnúinn heim. Skáldið leit inn í stofuna. Madame hafði stillt sér upp á miðju gólfi og horfði á hann eins og stjörnuleikari sem bíður eftir að tjaldið sé dregið frá í leikhúsi. Andlit Skáldsins Ijómaði upp og hann gekk rakleiðis inn í stofuna til Ma- dame. Hún rétti honum höndina eins og konur gera í bíómyndum um riddara og fljóð sem sitja í festum. Skáldið tók hönd hennar, kyssti hana margsinnis og hélt henni upp að vörum sér og sagði lágum rómi á útlensku: — Þetta er stór stund fyrir mig og gleður mig innilega að fá að hitta yður. Ég hef svo oft horft á yður í stórbrotnu málverki. Ég á að vísu aðeins ósköp ómerkilega eftirprentun af þessu snilldarverki sem hangir uppi á vinnustofunni minni, en þótt eftirprentunin sé ómerkileg, er myndin svo stórkostleg og hefur verið slíkur hluti af mínum hvunndegi í mörg ár, að ég veit að þér fyrirgefið mér, þótt ég tali við yður eins og gamlan vin. Madame kinkaði kolli og í þunglyndislegum augunum fæddist bros sem virtist breiðast út um allan líkamann og sendi frá sér rafmagn- aða strauma og svo rafmagnaða að Skáldið festist við hönd hennar og kyssti hana aftur og lækkaði róminn svo engu var líkara en skrjáf- aði í orðunum: — Fegurð yðar sem er varðveitt í málverki er mikil og stórbrotin, en miklu meiri er sú feg- urð sem mætir mér núna, þegar ég lít yður augliti til auglitis. Þetta var hátíðleg stund í febrúar, þegar sól- in kemur næstum því ekki upp og rauðir og hálfkulnaðir geislarnir seytluðu í gegnum gluggatjöldin og brotnuðu í kristalglösum eða björmuðu á veggjunum og þögnin og hátíð- leikinn í stofunni voru slík, ef frá er skilið hjal Skáldsins, að engu var líkara en vetrarkyrrðin handan gluggans gerði einmana álft, sem gargaði á ísa grárri spöng, að stórsöngvara. Loks opnaði Madame munninn og setti stút á varirnar um leið og hún sagði lágt: Mér finnst ég líka vera að hitta gamlan vin. Vin sem ég þekki gegnurn ótal bækur, og góðir vinir þurfa ekki að þérast. Þú ert vinur og þetta er endur- fundur. Skáldið tók undir þessi orð með nokkrum lágværum jáum sem hljómuðu eins og sönglag sem hækkar sig frá einni áttund upp í aðra án þess að breyta um tón. Aðrir í stofunni steinþögðu og horfðu lotn- ingarfullir á þessar tvær manneskjur sem virt- ust svo hugfangnar hvor af annarri. Allt í einu kallaði hvell rödd frammi úr fata- hengi: — Snorri, þú ert ekki búin n að skrifa í gesta- bókina. Skáldið virtist ekki heyra, en Madame leit rannsakandi í gættina, þar sem kona Skáldsins stóð og hélt báðum höndum um töskuna stna. Skáldið missti augnsamband við Madame og leit í sömu átt og hún. Skáldið virti fyrir sér konuna í gættinni, eins og hann hefði aldrei séð hana áður, og tók um hökuna og hugsaði eitt andartak alvarlegur á svip, en svo leit hann aftur á Madame og brosti sínu blíðasta. Eiginkonan endurtók ögn hærra: — Snorri, þú ert ekki búinn að skrifa í gesta- bókina. — Gestabókina, át Skáldið upp og kallaði yfir öxl sér: Geturðu ekki bara skrifað fyrir mig? Konan í gættinni hristi töskuna sína eins og aktygi og gaf skipun: — Komdu og skrifaðu í gestabókina og vertu ekki með þennan leikaraskap. — Ég skrifa í bókina, þegar ég fer, sagði Skáldið og sneri sér heilshugar að Madame um leið og hann bætti við: — Etikettur, etikettur, hvers vegna alltaf að eltast við etikettur ... Við sem elskum listina, eigum aðeins eina etikettu, og það er listin sjálf. En Skáldið komst ekki lengra, því eiginkon- an strunsaði yfir gólfið, greip í öxl hans og dró hann af stað í áttina að fatahenginu. Skáldið ætlaði ekki að sleppa hönd Ma- dame, og nú togaði Einbjörn í Tvíbjörn og Tví- björn í Þríbjörn og Madame fylgdi með fram í fatahengið, dregin á útréttri hendi af Skáldinu sem Einbjörn ætlaði að pína til að skrifa í gestabókina. Skáldinu hitnaði í hamsi við þessa uppá- komu. Þegar eiginkonan sleppti af honum tak- inu, snerist hann um sjálfan sig í fatahenginu, og fann engan penna og spurði ásakandi: — Hef ég ekki sagt þér að vera með penna? Þú átt alltaf að vera með penna. — Það er penni þarna á borðinu, hjá bók- inni, svaraði konan hans kalt. Madame losaði sig út úr þríeiningunni og hvarf aftur til stofu, án þess svo mikið sem taka eftir eiginkonunni. Skáldið greip pennann og skrifaði fljótaskrift í gestabókina og var þotinn aftur inn í stofuna eins og fluga sem flýgur blindandi á ljósker. Hann tók aftur í höndina á Madame.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.