Pressan - 16.11.1989, Blaðsíða 21
Fimmtudagur 16. nóv. 1989
21
KÝRKJÖT HORFIÐ
og smygí á skinku nánast heimskuiegt
Það er ekki svo ýkja langt síðan kjötborð í matvöru-
verslunum voru líkust illa heppnuðum abstraktlistaverk-
um og ekki ætlaður annar tilgangur en só að vera
geymslustaður matvæla. Þarna ægði saman kjötfarsi,
ýsu, kinda-, nauta- og folaldahakki og kannski, ef neyt-
andinn var heppinn, fóeinum vörutegundum í viðbót.
Sem betur fer hefur þarna orðið
mikil breyting á undanfarin ár. Um-
sjónarmenn kjötborða hafa í aukn-
um mæli orðið meðvitaðir um að
kjötborðið er í raun ekkert annað
en umbúðir vörunnar sem þeir eru
að selja, nokkurs konar sýningar-
gluggi, og ef þar ægir öllu saman í
óskipulögðum hrærigraut er það
ekki til að vekja aðdáun viðskipta-
vinarins, hvað þá að innihaldið
freisti bragðlauka hans.
Samkvæmt heimildum Pressunn-
ar er þó lítil sem engin áhersla lögð
á útstillingar í kjötborð í námi kjöt-
iðnaðarmanna hérlendis, sölu-
mennskan virðist einhverra hluta
vegna verða útundan. Samt er það
svo að margir þeirra virðast hafa
næmt auga fyrir því hvað heillar
neytendur og því má nú sjá listilega
skreytt borð í fjölda verslana. Auk
þess eru margir kjötiðnaðarmenn
líka kokkar og það ýtir enn frekar
undir þá hvöt hjá þeim að láta mat-
inn líta girnilega út, þótt hrár sé.
Þrátt fyrir að ekki sé boðið upp á
kennslu í útstillingum í því námi
sem kjötiðnaðarmönnum er skylt
að stunda hefur félag þeirra á und-
anförnum misserum boðið upp á
námskeið þar sem þessir hlutir eru
meðal annars teknir fyrir. Síðastlið-
in ár hafa komið hingað til lands
menn frá Danmörku og Þýskalandi,
á vegum þýska fyrirtækisins India,
og hafa þeir meðal annars miðlað ís-
lenskum kjötiðnaðarmönnum af
þekkingu sinni. Meðal þeirra nýj-
unga sem þetta hefur haft í för með
sér eru tilbúnir kjötréttir sem nú má
víða sjá í kjötborðum verslana.
Þetta eru ýmist pönnu- eða pottrétt-
ir sem taka sáralitla stund í mat-
reiðslu og innihalda næringarríkt
hráefni. Þess lags réttir eiga nú
miklu fylgi að fagna í Evrópu, álíka
miklu kannski og örbylgjuréttir í
Bandaríkjunum. Örbylgjuréttirinir
hafa aftur á móti ekki átt upp á pall-
borðið hjá Evrópubúum í neinni lík-
ingu við það sem gerst hefur vestra.
Auk þess að vera fljótlegir í mat-
reiðslu hafa þessir „pott- og pönnu-
réttir" þann stóra kost að hægt er að
kaupa nákvæmlega það magn sem
neytandinn kýs hverju sinni.
Jreyttaráherslurí
fæðuvoli'Islendinga"
Þegar vinnsla þessa aukablaðs hófst og menn fóru að
velta vöngum yfir því hvar ætti að bera niður við gerð
blaðs sem fjallaði um mat og matarvenjur komu strax
upp tillögur um að sjónum skyldi beint að breytingum
sem hafa orðið í þessum efnum á undanförnum órum.
Sú leið var enda farin og hér birt-
ist viðtal við næringarfræðing þar
sem meðal annars er borin saman
neysla í dag og áður fyrr. Er matur
nútímamannsins hollari en sá mat-
ur sem neytt var fyrir fáeinum árum
og áratugum? Hvað ber að varast og
hvað ber að leggja áherslu á í fæðu-
vali? Vissuð þið til dæmis að smá-
skammtur af kokkteilsósu inniheld-
ur drjúgan hluta af dagsþörf fullvax-
innar konu, hvað hitaeiningar varð-
ar? Eða að óvíða finnast aðrir eins
gosþambarar og hér á landi?
Einnig er hér rætt við konu sem
fyrir 12 árum ákvað að gera þá meg-
inbreytingu á lífsmynstri sínu að
hætta algjörlega að neyta kjöts og
fiskjar. I heila viku svelti hún sig og
hreinsaði með því líkamann. í dag
heyrir hún líkamann þakka fyrir
fæðu sem hún segist vera sannfærð
um að sé manninum mun eðlilegri
en hugsandi ferfætlingar! Hún hikar
hvergi þegar hún er spurð hvort
hana langi aldrei í safaríka steik?
Þrátt fyrir breytt mataræði er varla
hægt að segja að hún viti mun á
potti og pönnu!
I þriðja lagi er hér að finna grein
sem snertir kjötvinnsluna í landinu.
Hvað hefur breyst á því sviði að und-
anförnu? Hvað hefur batnað og
hvað mætti betur fara? Vissir þú til
dæmis að vinnuaðferðir starfs-
manna verðlagsstofnunar hefta að
vissu leyti kjötiðnaðarmenn í þeirri
viðleitni að bæta vörur sínar? Eða
að spægipylsa er á undanhaldi? Eða
að skinkusmygl þykir orðið
heimskulegt og að kýrkjöt kostar í
rauninni ekkert minna í innkaupum
fyrir kaupmanninn en kjöt af ný-
slátruðum úrvalstudda?
Ofangreint kemur fram í þessu
blaði, auk margra annarra forvitni-
legra atriða. Þetta er ekki einungis
blað um mat, heldur eins og til var
ætlast, blað um breyttar venjur.
Framleiðsla gosdrykkja á íslandi
1977-1988
DÚsund tonn
. .11
1 1 1 B 1 1 1 ■ 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1
1977 1979 1981 1983 1985 1986 1987 1988
Neysla gosdrykkja í ýmsum löndum
20
00
80
60
40
20
0
— Lítrar/mann/ári
mu p PRW Tyri i
I || 1 11 B y
1 i 1 ■ . I:. l
l|| ii i i
liland Danmork Finnland Frakkland Þýskaland íialia Noregur Svíþjóð Brelland
I Kóladrykkir |$|§íí£j Aðrir drykkir
Kýrkjöt — nokkurs konar
köttur í sekk
Óhætt er að segja að gjörbylting
hafi orðið í kjötvinnslu hérlendis á
undanförnum 6—7 árum. í dag er
mikil áhersla lögð á það af flestum
kjötiðnaðarmönnum að bjóða að-
eins úrvalshráefni og heimildamað-
ur Pressunnar fullyrðir að vart
þekkist að keypt sé kýrkjöt og kall-
að nautakjöt þegar í kjötborðið er
komið, eins og nokkuð mun hafa
verið um hér áður fyrr. Slíkt mun
einnig vera vafasamur sparnaður
því holdfyllingin á kúnni er mun
minni en á nautinu og beinin vega
hlutfallslega þyngra, svo að eigin-
legt verð kjötsins er svipað fyrir
hvert kíló þegar öll kurl eru komin
til grafar. Enn þekkist það þó í
nokkrum verslunum að þar er ekki
um 1. flokks hráefni að ræða og er
slíkt vitanlega mjög bagalegt. Gæði
vörunnnar hefur neytandinn þó að
nokkru leyti í hendi sér, því með því
að veita kaupmönnum aðhald og
versla aðeins þar sem boðið er upp
á gott hráefni er hinum gert erfiðara
fyrir, sem halda að þeir græði með
því að kasta krónunni og hirða aur-
inn.
Auk þess sem kýrkjöt mun að
mestu eða öllu leyti horfið úr kjöt-
borðum verslana, þ.e.a.s. í dulbún-
ingi nautakjöts, herma heimildir
Pressunnar að smygl á skinku til
landsins sé í dag að mestu eða öllu
leyti óþekkt fyrirbæri. Ástæðurnar
eru einkum þær að í dag er hér boð-
ið upp á vörur sem standast fyllilega
Frh. á næstu síðu
ttur veislusalur
Afmselisueislur
Árshátíöir
Bíaöarnannafuu ir
Brúökaupsueislur
ö Dansleikir
Danssýningar
Erfidrykkjur
Eermingameislur
Fundir
Qrímudansleikir
jólaböll
jvjatarboö
Ráös tefnur
Sumarfagn^jr
Vetrarfagnaöir
porrablót
Ættarmót
u,ra Stutt og taggo11
Eðam frá a-ö. fullkomta
hljóökerfi semnen«r
Eitt símtat-
„eisla" í »0?n-
1 1 fifl6880.