Pressan - 16.11.1989, Side 32

Pressan - 16.11.1989, Side 32
PRESSU I^Éúna stendur yfir í Reykjavík landsfundur Alþýðubandalags- ins. Hugsanlega verða einhverjar breytingar í stöðum helstu forsvars- manna flokksins, því heyrst hefur að Alþýðubandalagsfélagar, aðallega af höfuðborgarsvæðinu, hafi skorað á Steingrím J. Sigfússon að gefa kost á sér í eitt af æðstu embættun- um. . . 1| þessar mundir er verið að breyta skipulagi á heimahjálp á vegum Reykjavíkurborgar, m.a. þannig að hún verði hverfaskipt, en mikil áhersla var lögð á nauðsynleg- ar endurbætur á starfsemi heima- hjálparinnar í kjarasamningum árið 1988. Ekki hefur verið auðvelt að fá fólk til að starfa við heimahjálp, en síðustu vikur hefur það þó ekki ver- ið jafnerfitt og oft áður. Lágmarks- tímakaup' í þessari starfsstétt mun vera tæpar 290 krónur. . . HÉýverið lagði Þóra Einars- dóttir í Vernd upp í ferðalag, sem hún segir sjálf að verði hennar sið- asta ferð til Indlands. Meðferðis hafði Þóra skólabúninga, sem not- aðir verða í skóla fyrir börn holds- veikra Indverja. Skólabúningarnir eru saumaðir upp úr sloppum, sem pantaðir höfðu verið fyrir ákveðna ríkisstofnun hér á landi. Þegar til kom þóttu þeir hins vegar ekki not- hæfir og þess vegna fékk Þóra þá. Ríkisstofnuninni líkaði nefnilega ekki liturinn á sloppunum. . . a næsta ari hyggst Penninn hætta starfsemi í húsi því við Aust- urstræti sem áður hýsti verslunina Torgið. Það er þó ekki þar með sagt að Penninn hverfi gjörsamlega úr götunni, því við höfum frétt að verslunin muni hreiðra um sig í kjallaranum hjá Sigfúsi Eymunds- syni. Þar mun Penninn sem sagt bjóða upp á ritföng, en Eymundsson halda áfram að selja bækur á hæö- unum fyrir ofan. Ekki vitum við hvort eitthvert samkrull er fyrirhug- að hjá þessum fyrirtækjum í Kringlunni, en nýverið opnaði Ey- mundsson útibú þar. Verslun Penn- ans í Kringlunni hefur hins vegar gengið afar vel, svo ekki er víst að þeir kæri sig um samstarf við kolleg- ana á þeim vettvangi... ^Félagar í Starfsmannafélaginu Sókn munu eignast nýtt orlofshús næsta sumar, en sú staðreynd gleð- ur raunar fleiri en fólk innan þeirra vébanda. Forráðamenn Sóknar hafa gengið frá kaupum á landi und- ir tvo sumarbústaði við Hæða- garðsvatn nálægt Kirkjubæjar- klaustri og um þessar mundir er verið að semja við heimamenn þar um að smíða húsin tvö. Það ku falla í afar góðan jarðveg meðal manna fyrir austan að fá þetta verkefni, en síðara húsið á að afhendast sumarið 1991... n ^^^ft heyrast sögur um að menn reyni að koma lánsloforðum sem þeir hafa fengið hjá Húsnæðis- stofnun í sölu. I vikunni var einum heimildamanni okkar boðið há- markslánsloforð að upphæð 4,2 milljónir til kaups á kr. 500 þús- und, staðgreitt. A ^^nn hefur ekki verið gengið endanlega frá því hvernig umhorfs verður í Fossvogsdalnum í fram- tíðinni, þó sættir hafi tekist til mála- mynda með Reykjavíkurborg og Kópavogsbæ. Tveir fundir hafa verið haldnir um málið nýverið, en engin niðurstaða fengist ennþá. Munu fulltrúar Reykjavíkurborgar hafa lagt fram hugmyndir um fram- tíðarskipulag dalsins, sem m.a. fólu í sér að hraðbrautin yrði að hluta til niöurgrafin. Kópavogsbúar voru engan veginn sáttir við tillöguna og því virðist ekki lausn á næsta leiti að svo stöddu. Deiluaðilar munu þó hittast aftur innan skamms og reyna að finna málamiðlun. . . 1» _að er ekki ofsögum sagt af áhuga Islendinga á dulrænum mál- efnum. Við höfum þegar flutt fréttir af nokkrum bókum um slík fræði, sem væntanlegar eru fyrir jólin, og nýverið fréttum við af enn einni til viðbótar. Það er Skuggsjá, sem gef- ur bókina út, en hún heitir Duiræn reynsla: Frásagnir af dulskynj- unum sjö íslenskra kvenna. . . L I Heyrst hefur að Þorleifur Jónsson, eigandi Tunglsins við Lækjargötu, hafi áhuga á að kaupa Hressingarskálann. Það fylgir sögunni að hann hugsi sér að tengja með einhverjum hætti starfsemina í Tunglinu, Bíókjallaranum og Hressó... Íeikfangatíska breytist líkt og annað og leikfang sem spáð er mikl- um vinsældum fyrir jólin er ný teg- und af Barbie-dúkku. Sú hefur það fram yfir þær „gömlu" að vera þeim eiginleikum búin að í hári hennar litast einn lokkur bleikur fái sólar- Ijós að skína á hárið... 1» að hefur ekki farið framhjá mörgum að Magnús Hreggviðs- son hefur stofnað almenningshluta- félagið Fróða hf. um útgáfuveldi sitt. Meðal þeirra sem við heyrum að hafi verið boðinn hlutur eru Sjó- vá/Almennar og Vífilfell, en án árangurs að því er okkar heimildir herma. . . o ^fFnn bætist við ísiensku fjöl- miðlaflóruna, því á allra næstu dög- um mun væntanlegt á markað nýtt menningartímarit. Hefur það hlotið nafnið Rómur og í fyrsta tölublað- inu verður m.a. ítarlegt viðtal við ís- lenskan myndlistarmann, sem kall- ar sig Zator. . . Það er þetta með að létta sér lífið og nýta frftímann vel. Hver kannast ekki við að eiga von á áríðandi símtali og neyðast til að hanga heima í biðstöðu. Óþolandi. Fá svo kannski símhringingu frá gömlum vini sem hefur réttu hugmyndina um hvernig hægt sé að verja kvöld- inu, eða helginni og verða að hafna boðinu vegna þess að maður á von i símhringingu! Ha. Svarti síminn náði feykilegri útbreiðslu hérlendis í gamla daga eins og allir vita. Hversu margir skyldu hafa lent í því að vera nýlagstir ofan í heitt og notalegt bað þegar sá svarti lét í sér heyra? Vafalaust margir. Þetta hvimleiða vandamál er úr sögunni: Komið er á markaðinn afburða nett tæki, GoldStar heimilissímsvarinn. Símsvari og nútímalegur sfmi í einu tæki. Allt þetta nýja. Minni, fjarstýring, hátalari o.s.frv., o.s.frv. en fyrst og fremst alveg hreint frábær gripur sem léttir Iffið. Eigi maður von á símtali en verði einhverra hluta vegna að bregða sér frá er einfaldlega hægt að hringja í heimilissímsvarann, stimpla inn lykiltöluna og hlusta á þau skil- aboð sem á bandinu kunna að vera. Ekkert mál. r WUm j I simsya^in^i er loksins fáanlegur á íslandi - teknlbyiting á heimilinu Gripurinn fæst á ótrúlega góðu verði eða kr. 14.800.- stgr. Svo er boðið uppá kjör sem allir eiga að ráða við, þ.e. greiðslukortasamninga til allt að 6 mánaða. Nákvæmar leiðbeiningar á íslensku fylgja, fullkomin viðhaldsþjónusta og ársábyrgð. Verið velkomin. TRÖNUHRAUNI 8 . 220 HAFNARFIRÐI . SÍMI 91-652501

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.