Pressan - 01.02.1990, Page 12
r r r r . I
I
12
TÁKNIN EIGA AÐ MINNA
OKKUR Á STRÍÐIÐ
segir Dalli auglýsingateiknari sem hefur hannab
merki á póstkortog boli, sem hann mun uœntan-
lega setja á markab erlendis.
Á 45 ára affmœli Myndlista- og hand-
iðaskóla Íslands árið 1985 tók einn nem-
andi skólans sig til og hannaði merki i til-
effni áfangans. Frá þeim tima heffur merki
þetta legið niðri i skúffffu og beðið ann-
arra merkra áffanga. Einn slikur er ffram-
undan: i vor eru liðin 45 ár ffrá striðslok-
um.
EFTIR: ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR - MYND: EINAR ÓIASON
Hönnuðurinn heitir Dalli og er
auglýsingateiknari; einn af mönn-
um Kátu maskínunnar. Auk 45
ára-merkisins hefur hann hannað
fleiri sem tengjast stríðinu, til dæmis
mynd af Adolf Hitler í sínu einfald-
Dalli i bol með lykiftákninu; hakakrossinn sveigður í form tölustaf-
anna 4b. Viö hlið hans: Adolf Hitler í sínu einfaldasta formi.
Fimmtudagur 1. febr. 1990
asta formi, en hugmyndin er að
koma upp seríu sem tengist stríðinu
þar sem koma fram önnur merki,
eins og Davíðsstjarnan, Volkswag-
en-merkið og friðarmerkið. Dalli
segir lykiltáknið vera hakakrossinn,
tákn þriðja ríkisins, sveigðan í form
tölustafanna 45 og segist sjá þessi
merki fyrir sér jafnt á póstkortum
sem stutterma-bolum.
„Þessar hugmyndir mínar slá fólk
misjafnlega," sagði Dalli og lyfti upp
bol með Davíðsstjörnunni: „Þessi
þykir til dæmis mjög smekklaus...
Sumum finnst eins og þetta sé nýtt
útlit fyrir einhvern fasistaflokk, en í
rauninni er ég að búa til ákveðinn
myndheim. Stríði tengjast miklar
hörmungar og það má því segja að
myndformin tengist mjög alvarlegu
máli en eru samt með gamansöm-
um undirtóni — eða öfugt. Þessi
sería á að minna okkur á stríðið. Á
baki bolanna verða ýmsar áletranir
á nokkrum tungumáium, til dæmis
„War is over", fleyg orð sem féllu á
dögum stríðsins, spakmæli og mór-
alskar ábendingar um stríð og frið.
Það má alveg eins reikna með bol
með mynd af Winston Churchill
framan á og áletruninni „Aldrei
hafa jafnmargir átt jafnfáum jafn-
mikið að þakka“.“
Ástæðuna fyrir erlendu tungu-
málunum segir Dalli vera þá að
Smekkleysa hf. sé að kanna mögu-
leikana á að setja bolina á markað
erlendis: „Það er verið að kanna þá
möguleika um þessar mundir," segir
hann. „Ég ætlaði upphaflega bara
að setja þetta á markað hér innan-
lands, en ég held að í Ijósi þeirra at-
burða sem eru að gerast í Evrópu
eigi þetta erindi út fyrir landstein-
ana. Þetta er í sjálfu sér ekkert stór-
mái og ég geri mér engar vonir, en
ég hef gengið svo lengi með þessa
hugmynd í maganum að ég vil helst
ekki að hana dagi uppi.“
Hann segir hugmyndina hafa
fengið misjafnar undirtektir fyrir
fimm árum, þar sem lykiltáknið var
sett á tillögu að veggspjaldi: „Sumir
eru hræddir við tákn og litu á þetta
sem merki hins illa sjálfs. En mér
finnst mjög gaman að velta mér upp
úr ýmsum táknum þótt ég viti líka
að maður verður að fara varlega. Ég
myndi til dæmis ekki senda Davíðs-
stjörnuna úr landi þótt hún gæti ver-
ið gott söluefni á Vesturbakkanum
þar sem Palestínuarabarnir gætu
veifað því framan í hermenn. Néi,
maður verður að taka tillit til um-
hverfisins."
Dalli segist hafa ákveðið að end-
urvekja þessa fimm ára gömlu hug-
mynd núna, þegar 45 ár eru liðin frá
stríðslokum: „Við sjáum hvað er að
gerast um alla Evrópu. Öll landa-
mæri eru að opnast eða brotna og
þar sem ég lít á sjáifan mig sem frið-
arsinna og er á móti stríði er þetta
mitt framlag í tilefni 45 áranna. Frá
Austur-Þýskalandi berast okkur
fréttir af uppgangi nýnasista og í
Frakklandi rísa nýnasistar líka upp.
Þessar gömlu hugmyndir eru ennþá
við lýði í Evrópu og við verðum að
minna okkur á þær. Það er svo stutt
síðan stríðinu lauk, bara 45 ár. Und-
irtónninn i verkunum mínum er
móralskur og á að minna okkur á að
við getum forðast að harmleikir af
þessu tagi endurtaki sig."
BÍLALEIGA
meö utibu allt i knngurr,
landiö. gera per mogulijgt
aö leigja bil a emurn staö
og skila honum a oörum
Reykjavik
91-31615/31815
Akureyri
96-21715723515
Pöntum bíla erlendis
inierRent
Btlaieiga Akureyrar