Pressan - 01.02.1990, Síða 16

Pressan - 01.02.1990, Síða 16
16 Fimmtudagur 1. febr. 1990 sjúkdómar og fólk Blóðnasir Ragnar P. kom til mín á stofuna einn mánudaginn. Hann var þekktur slagsmálamaður í plássinu og gekk undir auknefninu Raggi rot. Ég hafði áður haft með hann að gera á helgarvakt og búið um aðra hönd- ina, en hann hafði meitt sig þegar hann lét hnefann vaða í andlitið á fé- laga sínum á balli. Þeir komu saman á slysamóttökuna þessa nótt, báðir hálfvolandi, Raggi hélt um höndina en hinn um nefið. Tilefni átakanna var löngu gleymt og þeir höfðu sam- einast í reiði og hneykslun yfir því að þurfa að bíða eitthvað á biðstof- unni. Þeir létu því ófriðlega, bölv- uðu og rögnuðu og gáfu hvor öðrum að drekka úr séneverbrúsa. Eftir langa mæðu tókst mér að róa þá, gera að sárum þeirra og þeir gengu út í faðmlögum sveiflandi sénever- flöskunni og sungu saman; I can’t get no satisfaction. — Jæja, sagði ég, þegar við Raggi vorum sestir, hvað get ég gert fyrir þig? Raggi var klæddur í bláar gallabuxur með breiðu belti, í támjóum rauðbrúnum stígvélum og rauðleitum bol með áletruninni Photographers do it in the dark. Hann var í slitnum leð- urjakka með kögri. Um hálsinn bar hann eftirlíkingu af þýskum járn- krossi í leðurreim og í vinstra eyr- anu var litill gullhringur. — Ég er alltaf að fá blóðnasir, sagði hann, mamma sagði að ég ætti að fara til þín og láta brenna að innan á mér nefið. — Já, sagði ég og virti hann fyrir mér, en ertu ekki alltaf að slást? Hann var bólginn á nefinu og með hrufl á enninu. — Jú, sagði Raggi rot, og þessi helgi var alveg ferleg, ég lenti í djöfuls fæting við brjálað- an Akureyring sem skallaði beint í nefið á mér og ég er búinn að vera með blóðnasir síðan. Þeir eru alveg ferlegir þessir utanbæjarmenn. — Láttu mig kíkja á þetta, sagði ég og við fórum inn á skoðunarstofuna. Hann var svo marinn og aumur í nefinu að ég sendi hann í mynda- töku vegna gruns um brot en sem betur fer var allt óbrotið. Ég hreins- aði nefið að innan eins og best ég gat, sá blæðingarstað i miðsnesinu og brenndi fyrir æðina. Síðan tróð ég grisju í nefið og sagði Ragga að koma til eftirlits eftir 2—3 daga. — Svo verðurðu að hætta að slást, sagði ég. — Já, sagði hann, þetta er alveg ferlegt. Hann vaggaði út með þessu skemmtilega göngulagi is- lenskra slagsmálamanna. Hann kom ekki aftur, en seinna frétti ég af Ragga rot á loðnubát austur á fjörð- um. — Aumingja dreifbýlið, það á ekki af þvi að ganga, hugsaði ég með mér, nú fá þeir Ragga rot ofan á alla aðra óáran! Algengur kvilli Flestallir fá blóðnasir einhvern tímann á lífsleiðinni en sjaldnast valda þær neinum meiri háttar vandræðum. Algengast er að ungt fólk fái blóðnasir, annaðhvort lítil börn eða táningar, svo og rosknir einstaklingar. Hjá ungum börnum er yfirleitt um að ræða endurteknar sýkingar í efri loftvegum, sem valda því að slím harðnar og safnast fyrir í nefinu. Börnin eiga erfitt með að snýta þessu út, en reyna að losa um það með fingrunum, og það veldur blæðingum frá slímhimnum nefsins. Kvef og aðrar endurteknar sýkingar í efri ioftvegum virðast veikja slím- himnurnar svo hættara er við blóð- nösum. Það er mikilsvert að halda nefinu hreinu hjá þessum krökkum og stundum þarf að gefa þeim bakt- eríudrepandi og mýkjandi krem í nefið. Hjá táningum og yngra fólki eru blóðnasir tíðar og þá eru slys ein algengasta orsökin. Fólk fær högg á nefið í íþróttum, bílslysum eða í áflogum. í Gísla sögu Súrsson- ar er fræg frásögn um blóðnasir eftir átök, þegar Gísli skellir Þorgrími svo fast niður á is að blóð-stökk úr nösum, skinnið gekk af hnúunum og kjötið af hnjánum. Svo Raggi rot er ekki fyrsti ofbeldismaðurinn á ís- landi sem fær blóðnasir eftir áflog. Stundum eru æðarnar í nefslím- himnum sérlega viðkvæmar og út- þandar og þá þarf lítið að koma fyrir svo af hljótist blæðing. Hjá rosknu fólki eru orsakir blóðnasa oft aðrar, eins og háþrýstingur og æðakölkun, sem valda því að æðarnar verða viðkvæmar og blóðnasir geta haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Algengast er hjá yngra fólki, að blóðnasir eigi upptök sín í fremri og neðri hluta miðsnessins (Little- svæðið), en hjá eldra fólki er blæð- ingin oft aftar í nefinu og því erfiðari viðfangs. Þetta gerir hana hættu- legri enda getur stundum reynst erf- itt að stöðva hana. í Sturlungu seg- ir frá Einar nokkrum Skemm- ingi sem þótti hinn röskasti maður. Hann er sagður hafa dáið úr nef- dreyra eða blóðnösum en tildrögin ekki skýrð nánar. Medferd blóönasa Meðferð blóðnasa er yfirleitt ein- föld. Þar sem blæðingin kemur langoftast frá fremri og neðri hlut- um miðsnessins er nóg að þrýsta þéttingsfast um nefið frá hliðunum í 3—5 mín. Gott er að láta sjúklinginn sitja með svamp eða tusku gegn- vætta í köldu vatni og halda að nefi og enni til að minnka blóðstreymið. Ef þetta dugar ekki þarf að troða í nefið. Best er að deyfa slímhimnurn- ar fyrst með deyfiefni, síðan er grisju sem búið er að maka í bakt- eríudrepandi og mýkjandi smyrsli troðið upp í nefið þannig að góður þrýstingur komi á blæðingarstað- inn. Ef þessar aðgerðir stöðva ekki blæðinguna og sjúklingnum finnst blæða stöðugt aftur í kok kemur blæðingin sennilega úr aftari hluta nefsins og þá þarf sérstakar aðferðir til. Best er að slíkt sé framkvæmt af háls-, nef- og eyrnalækni því oft get- ur reynst vandasamt að stöðva slíka blæðingu, sérlega í þeim sem hafa iélegar æðar. Einar Skemmingur hefur sennilega haft slika blæðingu frá aftari hlutum nefsins og sam- tímamenn hans ekki ráðið við hana vegna tækjaskorts og kunnáttuleys- is. Hættulegar blóðnasir geta komið hjá fólki sem af einhverjum ástæð- um hefur minnkaða storkuhæfni í blóði vegna sjúkdóms eða lyfja en þá blæðir yfirleitt víðar en úr nef- inu. En hvað á að gera við Ragga rot og allar þær blóðnasir sem hann fær og veldur öðrum? Skásti kosturinn er auðvitað sá, að hann fari í áfeng- ismeðferð og hætti að stunda böll og fljúgast á, en fram að þeim sinna- skiptum þarf að lappa upp á hann eftir bestu getu, stöðva blæðingar, brenna fyrir æðar og gera við nef ef það brotnar. ÓTTAR GUÐMUNDSSON JT pressupenm Pressupennar eru Guðmundur Arni Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnar- firði, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagnfræðingur, Jón Ormur Hall- dórsson stjórnmálafræðingur, séra Sigurdur Haukur Guðjónsson, Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, og Lára V. Júlíusdóttir, fram- kvæmdastjóri ASÍ. Konur verða ekki barðar til ásta Að undanförnu hef ég orðið þeirr- ar blendnu ánægju aðnjótandi að nafn mitt hefur verið nefnt í tengsl- um við þær umræður sem nú eru í gangi um sameiginlegt framboð til borgarstjórnar Reykjavíkur. Ef því er að skipta má vel láta slikt kitla hinar hégómlegri stöðvar í mið- taugakerfi sínu en mér er einhvern veginn þannig farið nú um stundir að þetta vekur fremur með mér ugg og óróleika. Ugg vegna þess að mér finnst eins og ég og nafn mitt höfum orðið viðskila, óróleika vegna þess að ég hef verið í hlutverki þolanda en ekki geranda í undarlegri og flókinni atburðarás og það hlutverk er mér ekki að skapi. Hið fyrr- nefnda er ekki á valdi mínu en hið síðarnefnda er sjálfskaparvíti. Stærsta ævintýri lífs míns Fyrir átta árum var ég gerandinn í stærsta ævintýri lífs míns til þessa. Ég var ein í hópi fjölmargra kvenna sem ákváðu að slíta pólitískri sam- búð við karla og láta reyna á eigin mátt og megin í sérstöku kvenna- framboði til borgarstjórnar vorið 1982. Ástæða þess að við stigum þetta skref var sú að við vildum hrinda af stað atburðarás sem gerði konur, stöðu þeirra, hugmyndir og heimsmynd sýnilega. Við vildum freista þess að fá allt fullvaxið fólk til að taka afstöðu til þess sem konur í krafti sameiginlegrar reynslu sinnar hafa fram að færa. Þetta var aðgerð og hún tókst — um það getur enginn efast lengur. En hún tókst aðeins vegna þess að við sem að henni stóðum vorum ákveðnar í því að láta hana takast og unnum að því af heilum hug. Þetta var þá en nú liggur önnur aðgerð í loftinu sem enginn veit enn hvort gufar upp eða fær á sig fast form og lendir — mjúklega eða með braki og brestum. Umræður um sameiginlegt borgarstjórnarfram- boð allra þeirra sem vilja sjá nýtt gildismat, breytta stjórnarhætti og annan forgang í borgarmálum hafa oft og víða komið upp á undanförn- um fjórum árum. Voru margir þeirr- ar skoðunar að gott samstarf minni- hlutans í borgarstjórn væri frjóangi sem slíkt framboð myndi vaxa upp af í fyllingu tímans. Margt hefur hins vegar unnið gegn þeim vexti og nægir í því sambandi að nefna stjórnstíl, launastefnu og ýmsar að- gerðir ríkisstjórnar „félagshyggju og jafnréttis” sem hafa vakið litla hrifningu hjá fjölmörgum konum. Þá lofaði yfirlýsingagleði kratanna í „Sjafnarmálinu” sk. ekki góðu og stöðvaði raunar allar framboðsum- ræður um tíma. Ósammála niðurstöðu stallsystra minna í haust sem leið komst aftur hreyf- ing á framboðsmálin þegar Birting- arfélagar tóku upp þráðinn þar sem kratarnir höfðu skilið við hann um vorið. Eftir að umræðan hafði verið þæfð innan og á milli flokka og sam- taka í nokkurn tima virtist hún kom- in í þrot. Þá var það sem einstakling- ar innan og utan flokka tóku sig saman, lögðu hina tæknilegu hlið framboðsmálanna á hilluna og fóru að ræða þann lágmarksmálefna- grundvöll sem hægt væri að sam- einast um. Var hugmyndin sú að boða til almenns borgarafundar um málið og kanna hvaða undirtektir það hlyti meðal Reykvíkinga að vinna að stofnun sameiginlegrar framboðshreyfingar flokka, sam- taka og einstaklinga á þeim grund- velli. Þar sem Ijóst var að andstaðan við sameiginlegt framboð var hvað mest innan Kvennalistans var hann sérstaklega um það beðinn að taka þátt í undirbúningi og framkvæmd fundarins. Bréf þessa efnis var tekið fyrir á félagsfundi í Kvennalistanum og rætt mjög ítarlega. Varð niður- staðan sú að standa utan við fyrr- nefndan fund og voru meginrökin þau að hvers konar samruni við aðra flokka væri í andstöðu við eðli og tilurð Kvennalistans. Hann hefði orðið til á sínum tíma sem andóf við karlaflokkana og sameiginlegt framboð til borgarstjórnar væri yfir- lýsing um að því andófi væri lokið. Kvenfrelsisröddin myndi kafna í ósamhljóma samfylkingarkór. Ég er ekki sammála þessari niður- stöðu og það vita stallsystur mínar í Kvennalistanum. Það er mitt mat að Kvennalistinn hafi þarna verið í óvenjugóðri aðstöðu til að hafa mót- andi áhrif á það hvernig samfylking í borgarmálum liti út og hvaða mál hún setti á oddinn. Hugmyndir okk- ar, málflutningur og starfshættir eiga fylgi að fagna langt út fyrir okk- ar eigin raðir og ég hefði talið það ómaksins vert að láta reyna á styrk okkar í nýrri borgarmálahreyfingu. Ég er þeirrar skoðunar að frum- kvæði okkar í slíkri hreyfingu hefði skilað Kvennalistanum og kvenna- hreyfingunni í heild sinni auknum liðsafla og eflt okkur til nýrra átaka. í mínum huga hefði þetta getað orð- ið ný aðgerð sem enn á ný gerði þá kröfu til kjósenda að þeir tækju af- stöðu sína og gildismat til endur- skoðunar. En eins og fyrir átta árum þá er það forsenda þess að slík að- gerð heppnist að þeir sem að henni standa séu ákveðnir í að iáta hana heppnast og vinni heilshugar að því. Bónorðið Og þar stendur hnifurinn í kúnni. Meirihlutinn í Kvennalistanum trúir ekki á aðgerðina, Framsóknarflokk- urinn vill og vill ekki og ef marka má orð formanna A-flokkanna þá vinna þeir ekki heilshugar að henni. Þeir bjóða með annarri hendinni og slá með hinni. Það var vissulega fal- legt af þeim að játa Kvennalistanum ást sína og rausnarlegt að bjóða okkur Guðrúnu Agnarsdóttur borg- arstjórastólinn í tilgjöf ef til brúð- kaups kæmi. Orðin sem gjöfinni fylgdu tóku þó af henni mesta glans- inn. Það kann ekki góðri lukku að stýra þegar bónorði er fylgt úr hlaði með orðum eins og þeim að „niet frá einhverri fimmtán kvenna gras- rót” verði ekki tekið sem nei og skella að auki viðurnefni á hina væntanlegu brúði. Það er ekki hægt að þvinga fólk til fylgilags við hugmyndir og konur verða ekki barðar til ásta. Ef flokks- formennirnir hafa hugsað sér að gerast sporgöngumenn Magnúsar i Bræðratungu er rétt að benda þeim á viðbrögð Snæfríðar sem sagði: „Berðu mig ekki meira núna Magn- ús minn, — þú grætur annars þeim mun meira þegar þú vaknar.”

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.