Pressan - 01.02.1990, Síða 21
Fimmtudagur 1. febr. 1990
21
I^Éýja áfengisútsalan á Eiðis-
torgi á Seltjarnarnesi verður áfram
„dálítið rússnesk" um óákveðinn
tíma. Verslunin var opnuð til bráða-
birgða rétt fyrir jólin og hefur nú op-
ið eftir hádegi á fimmtudögum og
föstudögum. Öll innréttingavinna í
húsnæðinu er ógerð og væntanlega
verður útsölunni lokað aftur þegar
sú vinna hefst. Sem stendur fást að-
eins fáar tegundir í útsölunni, aðal-
iega bjór og léttvín en einnig eitt-
hvað af íslensku sterku víni. Að
sögn Þórs Oddgeirssonar, fram-
leiðslu- og sölustjóra ÁTVR, er búð-
in vel sótt miðað við úrval tegunda
og léttir töluvert á hinum afgreiðsl-
unum. Næsta fullbúna áfengisútsala
verður opnuð í Miklagarði, senni-
lega í febrúar. Af öðrum stöðum þar
sem íbúar vilja fá áfengisútsölu má
nefna Egilsstaði, Garðabæ og Kópa-
vog, en engin ákvörðun hefur verið
tekin um að opna útsölur á þessum
stöðum á næstunni...
^Fyrir skemmstu ákvað borgar-
ráð að breyta lokunartíma sölu-
vagna í miðborginni um helgar.
Leyfilegt hefur verið að hafa opið til
klukkan fjögur að nóttu, en eftir
breytinguna átti að loka fyrir sölu á
mat og drykk í miðbæ Reykjavíkur
eftir klukkan tvö. Eigendur sölu-
vagnanna voru afar óhressir með
þessa breytingu og nú virðist sem
þeim hafi orðið eitthvað ágengt í
baráttunni. Að minnsta kosti hefur
ákvörðun borgarráðs verið frestað í
mánuð, svo það verður þrátt fyrir
allt áfram hægt að kaupa kók, pyls-
ur og annað matarkyns í miðborg-
inni til kiukkan fjögur næstu vik-
ur...
1»
rátt fyrir rúmlega 230 pró-
senta álagningu kveðst Bifreiða-
skoðun Islands ekki græða neitt á
því að selja nýju skiltin á bíla lands-
manna. Hver bíleigandi þarf að
borga 5.000 krónur fyrir tvær núm-
eraplötur á bíl sinn. Bifreiðaskoðun-
in kaupir plöturnar fyrir um það bil
1.500 krónur af Bíinúmerafram-
leiðslunni við fangelsið á Litla-
Hrauni. Mismunurinn er 3.500
krónur á hverjar tvær plötur. Áður
en annar kostnaður er með talinn
myndi umskráning eða nýskráning
15.000 bíla gefa 52,5 milljónir í
kassa bifreiðaskoðunarinnar. Allt
árið í fyrra voru skráðir um 15.000
bílar. Þó álagningin virðist rífleg á
hún samkvæmt útreikningum bif-
reiðaskoðunarinnar að vera nauð-
synleg til þess að standa undir
kostnaðinum við nýja kerfið. Af
þessari upphæð þarf að greiða virð-
isaukaskatt, flutningskostnað, af-
greiðslukostnað og afföll. Karl
Ragnarsson í Bifreiðaskoðun ís-
lands heldur því fram að fyrirtækið
hafi engar tekjur af þessari sölu, þó
að þeir tapi kannski ekki beinlínis á
henni. Hann kvaðst ekki hafa ná-
kvæmar tölur fyrir hvern útgjalda-
lið, en benti á að bifreiðaskoðunin
hefði átt við kostnaðarsama byrjun-
arörðugleika að stríða. Sem dæmi
um það nefndi hann að þurft hefði
að setja rangar stærðir númera á
ýmsa bíla og skipta þeim aftur þeg-
ar réttu stærðirnar komust í fram-
leiðslu á Litla-Hrauni...
b
ifreiðaeigendur ættu að at-
huga að mæta á réttum tíma með
bíla sína í skoðun. Ef þeir koma
tveimur mánuðum of seint hækkar
verð skoðunarinnar hjá Bifreiða-
skoðun íslands um 20 prósent.
Leyfi fyrir álagningu eða sekt af
þessu tagi felst í gjaldskrárákvæði
frá dómsmálaráðuneytinu. Án þess
gæti einkafyrirtæki ekki sektað fólk
með þessu móti. Ákvæðinu var ekki
beitt í fyrra til þess að fólk fengi
tækifæri til að átta sig á nýja kerf-
inu. Ennþá er öllu óhætt, en það var
að heyra á Karli Ragnarssyni í bif-
reiðaskoðuninni að fólk mætti fara
að vara sig þegar líða fer á vetur-
inn ...
M
undanförnum árum hefur
framboð á hótelrými í Reykjavík
aukist töluvert og líkur eru á því að
svo verði áfram á næstu árum. Við-
byggingarnar á Hótel Sögu og
Holiday Inn eru dæmi um hótel,
sem þegar eru komin í gagnið, og á
næstu árum má m.a. búast við að
Hótel ísland og hótel Eimskipafé-
lagsins bætist við. Þetta er auðvit-
að gott og blessað, en fólk í ferða-
þjónustunni hefur þó áhyggjur af
því að þetta eru allt hótel í hæsta
verðflokki. Engin aukning hefur
hins vegar orðið á gistirými fyrir þá,
sem ekki vilja dvelja á svo dýrum
hótelum . . .
MEIRIHÁTTAR SKEMMTISTAÐUR
HLATUR
ÞJOÐBJÖRG
OG
GRIN
Margrét Guðmundsd.
Bcssi Bjarnason
Jóhanna Þórhallsd.
Reykvíkingar og aðrir
landsmenn, útvegum
gistingu á sérkjörum.
LEIKENDUR OG AÐRIR:
Þjóðbjörg
Doddi
Sissa
Söngkona
Pianóleikari
Dansarar
Búningar og smink: Guðrún og Hildur
Höfundar og Ieikstjóri: Hlin Agnarsdóttir
Bessi Bjarnason
Rúrik Harldsson
Margrét Guðmundsdóttir
Jóhanna Þórhallsdóttir
Bjarni Jónatansson
Astrós og Hrafn
BORÐAPANTANIR 1 SÍMUM 23333 0G 29099
ÞAR SEM FJÖRIÐ ER MEST SKEMMTIR FÓLKIÐ SÉR BEST
/ v
Rýmingarsala
Sturtuklefar og hurðir,
baðker og blöndunartæki
á rýmingarsölu.
Mjög takmarkað magn.
Lýkur nk. laugardag.
kM VATNSVIRKINN HF.
~ ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966
LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416
Tökum hunda í gæslu til
lengri eða skemmri dvalar
Hundagœsluheimili
Hundarœktarfélag íslands og
Hundavinafélag íslands
ARNARSTÖÐUM, Hraungeröishreppi
801 Selfossi - Símar: 98-21031 og 98-21030