Pressan


Pressan - 01.02.1990, Qupperneq 28

Pressan - 01.02.1990, Qupperneq 28
PRESSU l<Sn Óttar Ragnarsson, fyrrver- andi sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, ætlar að skrifa sögu Stöðvarinnar og hefur gert samning við bókaforlag- ið Iðunni um útgáfu. Jón Óttar segir að í bókinni verði sagan á bak við stofnun, uppgang og yfirtöku Stöðv- arinnar sögð eins og hún raunveru- lega var. Bókin kemur út fyrir næstu jól og PRESSAN spáir góðri sölu . .. landgræðsla ríkisins rekur nautaeldisstöð í Gunnarsholti þar sem afrakstur landgræðslunnar nýtist sem fóður. A sama stað fara fram fóðurtilraunir sem Rannsókna- stofnun landbúnaðarins sér um. Nautin eru af Galloway-stofni og ræktuð í samvinnu við nautaéldis- stöðina í Hrísey. Framleiðsla bús- ins er um hundrað skrokkar á ári og er seld til áskrifenda sem eru á annað hundrað að sögn Sveins Runólfssonar landgræðslu- stjóra. Meðal áskrifenda eru veislusalir ríkisins og Steingrím- ur Hermannsson forsætisráð- herra, en Sveinn bendir á að áskriftarhópurinn sé breiður hópur, þverskurður af fólki í þjóðfélaginu, og áskrift sé öllum opin. Aðeins er slátrað á haustin en væntanlega er tekið við pöntunum meðan birgðir endast. . . að í stað sokkabandanna komi þátt- ur af sama toga, nema hvað honum muni verða stýrt af dagskrárgerð- armönnum á Stjörnunni. Margrét er dagskrárstjóri Aðalstöðvarinn- ar, eins helsta keppinautar útvarps- stöðva íslenska útvarpsfélagsins . . . I Kringlunni 4 eru fáar verslanir starfandi um þessar mundir. Herra- deild P & Ó, barnafataverslunin Endur og hendur, Heimaland og Sparta hafa allar hengt upp tilkynn- ingu um að verslanirnar verði opn- aðar að nýju þegar endanlega hef- ur verið gengið frá húsinu ... A ^ÉFigendur sendiferðabila eru óhressir með reglur um álagningu virðisaukaskatts því þær geta leitt til ójafnrar samkeppni við leigubíla. Lögum samkvæmt skal greiða virð- isaukaskatt af vöruflutningi en ekki af fólksflutningum. Leigubílar til fólksflutninga eru því undanþegn- ir virðisaukaskatti enda eiga þeir ekki að flytja pakka og bréf. Sam- kvæmt reglugerð mega leigubilar þó flytja sendingar án farþega í undantekningartilvikum. Þegar um er að ræða flutning á varningi fyrir einstaklinga geta því leigubílar sloppið við virðisaukaskatt og þannig náð lægri gjaldskrá en sendi- ferðabílar. Sendiferðabílstjórar reyna nú að fá bót á þessu. Þeir leggja áherslu á það við stjórnvöld að þessi undantekningartilfelli séu ekki misnotuð, en þeir telja það sér- staklega mikilvægt með tilliti til þess að varningur er virðisauka- skattsskyldur. Málið virðist hins vegar stopp í kerfinu. Bílstjórarnir ræddu fyrst við fulltrúa fjármála- ráðuneytis. Hann vísaði á sam- gönguráðuneyti sem vísaði aftur á fjármálaráðuneytið og enginn vill gangast við barninu . .. c ^vamkvæmt heimildum okkar keyptu fleiri en Sveinn Úlfarsson hlut í Óperukjallaranum um síð- ustu áramót. Einn af nýju eigendun- um ku vera Þorleifur Björnsson, fyrrum togaraeigandi og eigandi verslananna Stefanel og Skæða í Kringlunni. Þorleifur er einnig eig- andi nokkurra skemmtistaða og kráa í Reykjavík, en seldi nýverið Sportklúbbinn við Borgartún . . . Islenskar konur komust eins og kunnugt er í heimsfréttirnar, þegar þær tóku upp á því um árið að halda kvennafrídag. En við fréttum af því nýverið að konur í norðurhluta Grikklands eiga kvennafri á hverju einasta ári. Kallast dagurinn Gynaikocrateia (kvennaríki eða kvennastjórn) og er ævagömul há- tíð, en þá verður jafnrétti kynjanna að raunveruleika. Konurnar fara á veitingahús og sitja þar við spjall og drykkju fram eftir degi, á meðan karlarnir hugsa um heimilið og börnin, en um kvöldið dansa kon- urnar síðan fram á nótt. . . Þ að er kreppa víðar en á ís- landi. Nýverið var t.d. gerð könnun á því á Bretlandi hve margir hygð- ust fara í sumarleyfi til útlanda í ár og kom í ljós að sjötti hluti þeirra, sem venjulega fara utan, neyðist nú til að hætta við ferðalagið vegna fjárhagserfiðleika. Ferðaskrifstofu- fólk hér á landi hefur þó litlar áhyggjur af því að mikill afturkippur komi í Islandsferðir Breta, þar sem breskir ferðalangar sem hingað koma hafi yfirleitt nokkuð góð fjár- ráð. Það er mun líklegra að ferðum Breta til sólarlanda fækki áberandi mikið . . . I tímaritinu Heimsmynd, sem kemur á götuna um helgina, birtist safarík 20 bls. úttekt á sögunni á bak við Stöð 2 og sölu sjónvarpsstöðvar- innar. Þar ku margt nýtt koma fram s.s. varðandi leikfléttur á bak við hlutafjárútboðið, bruðl í kringum toppana á stöðinni og hugsanlegan brottrekstur starfsmanna af frétta- stofunni, sem Jón Óttar á að hafa lofað ákv. stjórnmálamanni... A ^^inn þeirra sem keyptu hlut í Stöð 2 um áramótin er Jón Ólafs- son í Skífunni. Jón er einn hluthafa í íslenska útvarpsfélaginu og fyrrum stjórnarformaður þar, en ís- lenska útvarpsfélagið rekur eins og kunnugt er tvær útvarpsstöðvar, Bylgjuna og Stjörnuna. Eitt af fyrstu verkum Jóns í lykilstöðu inn- an Stöðvar 2 var að láta rifta samn- ingi þeim sem Margrét Hrafns- dóttir, umsjónarmaður þáttanna Sokkabönd í stíl, hafði til loka marsmánaðar og er henni gert að hætta innan mánaðar. Við heyrum Vandaður veitingastaður - þægilegt umhverfi og þjónusta eins og hún gerist best. Á matseðli er lögð áhersla á tilbrigði við hefðbundna matargerð, sem byggð er á reynslu frönsku meistaranna. Þú getur valið um þrjá mismunandi matseðla. í fyrsta lagi hinn hefðbundna „a la carte“, í öðru lagi 3ja rétta matseðil og í þriðja lagi svokallaðan „smökkunarseðil11, þar sem valdir eru 8 réttir með tilheyrandi úrvals víntegundum. OPNUNARTÍMÍ Setrið er opið á fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöldum frá kl. 19.00. Vinsamlega pantið borð tímanlega í síma 84168. ASGEIR HELGI ERIiNGSSON nam matargerðarlist bæði hérlendis og í Frakklandi. Hann vann í tvö ár hér heima, undir handleiðslu Frangois Fons og í Frakklandi vann hann á þekktum veitingastað í borginni Nime. -^píjLAay Swa: • SIGTÚNI 38 • SÍMI: 91-689000

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.