Pressan - 26.04.1990, Blaðsíða 11
11
Fimmtudagur 26. apríl 1990
in. Erfitt er að sjá aö það samræmist
hagsmunum og tilgangi Eignar-
haldsfélagsins og almennra hlut-
hafa í félaginu s\o og sparifjáreig-
endum að halda í hlutabréf Stöðvar
2 þar sem um áhættusaman rekstur
er að ræða. Innan viðskiptalífsins
halda menn því fram að það þjónaði
best Eignarhaldsféiaginu að losa sig
við hlutabréfin í Stöðinni sem fyrst
og einbeita sér að aðalhlutverki fé-
lagsins, sem er að eiga hlutabréfin í
Islandsbanka og leysa svo Eignar-
haldsfélagið upp innan tíðar og
skipta bréfunum niður milli hlut-
hafa félagsins.
Ljóst er að fyrmrn aðaleigendur
Stöðvarinnar hafa orðið undir þegar
lá fyrir að Eignarhaldsfélagið tæki
ekki tilboðinu í 100 milljónirnar. Um
það segir Jón Óttar Ragnarsson í
viðtali við PRESSUNA: „Með því að
ganga ekki að kauptilboðinu nú í
vikunni rann út síðasta tækifæri
Verslunarbanka fclands til þess að
komast frá bessu máli með hreint
borð. Með pví að ganga ekki að
þessu kauptilboði er ljóst að einka-
sjónvarp á íslandi er liðið undir lok,
að minnsta kosti næstu árin. Upp-
hefst nú blóðug samkeppni í einka-
geiranum sem eingöngu kemur rík-
issjónvarpinu til góða. Þar með ger-
ist það sama í sjónvarpi og hefur
gerst á útvarpsmarkaðnum."
— Er það rétt að fyrri aðaleig-
endur Stöðvar 2 hafi verið búnir
að gera samning við SÝN fyrr í
vetur?
„Það er rétt, já.Sá samningur var
tilbúinn til undirskriftar í nóvem-
ber," segir hann.
„Þetta kauptilboð var fyrst og
fremst gert í þeim tilgangi að koma
á friði í félaginu og fá menn til að
vinna saman og að mínum dómi var
þetta síðasta tækifeerið til þess. Hlut-
hafar hefðu getað samið við Sýnar-
menn og opnað Stöð 2, vegna þess
að það er lykilatriði fyrir hlutafjár-
kaupendur í þessu landi að geta
keypt sig inn í fyrirtæki án þess að
lúta stjórn einhvers meirihluta sem
síðan er ráðskast með af valdaklík-
um úti í bæ.“
Nýir hluthafor
skulda enn hlutafé
I hugum þeirra sem vildu tryggja
sér Stöð 2 til frambúðar mátti alls
ekki fallast á tilboðið í hlutabréfin í
Stöð 2, því þá þurftu nýju eigend-
urnir að mæta því tilboði og útvega
sjálfir 100 milljónir króna til að
missa ekki tökin í Stöð 2, þar sem
þeir áttu fjórtán daga forkaupsrétt á
hlutabréfunum. Á þetta vildu þeir
ekki láta reyna, þar sem þeir höfðu
átt í miklum vandræðum með að
fjármagna 250 miDjóna króna hluta-
bréfakaupin. Þama var hætta á
ferðum fyrir þá því núverandi
meirihluti í stjóm Eignarhaldsfé-
lagsins, Gísli V. Einarsson, Þor-
valdur Guðmundsson í Síld og fisk
og Orri Vigfússon í Gliti, höfðu all-
ir lýst því yfir að þeir vildu selja
þessi bréf í Stöð 2 og skila félaginu
í besta lagi á næstaaðalfundi. Minni-
hlutinn í stjórn Eignarhaldsfélagsins
voru þeir Guðmundur H. Garð-
arsson alþingismaður og Þorvarð-
ur Elíasson, sjónvarpsstjóri Stöðv-
ar 2.
Orri í formennsku í
íslandsbanka?
Þegar tilboðið um staðgreiðslu á
100 milljóna króna hlut Eignar-
haldsfélagsins var lagt fyrir stjórn-
ina síðastliðinn mánudag var Orri
Vigfússon orðinn tvístígandi í mál-
inu. Gegndarlaus þrýstingur mun
hafa verið í gangialla helgina um að
fella tilboðið í bréfin og hafði aug-
Ijóslega verið legiðí Orra Vigfússyni
að breyta um skoðun og fella tillög-
una um kaupin. Á mánudaginn
gerðist það svo aðOrri, ásamt vara-
mönnum Guðmundar H. Garðars-
sonar og Þorvarðar Elíassonar,
þeim Hilmari Fenger og Hannesi
Þ. Sigurðssyni íSjóvá-Almennum,
neitaði að taka afstöðu til tilboðsins
nema upplýst yrði hverjir stæðu að
baki því. Á þessum fundi voru Gísli
V. Einarsson og Þorvaldur Guð-
mundsson bornir ofurliði og fresta
varð afgreiðslu málsins um sólar-
hring og fara framá að fá uppgefin
nöfn tilboðsgjafanna. Á þriðjudag-
inn var málið aftur tekið fyrir hjá
stjórn Eignarhaldsfélagsins. Þá brá
svo við að Orri og félagar höfðu
engan áhuga á aðfá að heyra hverjir
stæðu að baki tilboðinu, heldur
lýstu því yfir að þeir legðust gegn
sölu á hlutabréfunum. Ákvörðun
hafði verið tekin og Orri Vigfússon
snúist á sveif með stórfyrirtækjun-
um sem sælast tiláhrifa innan Eign-
arhaldsfélagsins þ.e. Eimskip, Sjó-
vá-Almennum, Sameinuðum verk-
tökum, Haraldi Haraldssyni í Andra
og hinum nýju hhithöfum í Stöð 2.
Trúverðugar heimildir herma að
Orri hafi snúið við blaðinu eftir að
honum hafi verið boðin bankaráðs-
formennska í íslandsbanka i
næstu viku, fyrir hönd Eignqr-
haldsfélags Verslunarbanka Is-
lands, en eins og fyrr segir er sam-
komulag um að Eignarhaldsfélagið
fái stjórnarformennskuna á mánu-
daginn. „Ég kannast ekki við
þetta," sagði OrriVigfússon þegar
PRESSAN bar þessa fullyrðingu
undir hann.
Tilboðið um kaup á hlutabréfun-
um rann út á hádegi á miðvikudag
og þar með var þetta tækifæri um
sölu hlutabréfanna í Stöð 2 úr sög-
unni og kaupmennirnir, ásamt Eim-
skip og fleirum, búnir að koma í veg
fyrir að nýr meirihluti myndaðist í
Stöð 2. Bréfin áfram í höndum Eign-
arhaldsfélagsins.
í fréttum hefur Orri Vigfússon
sagt að rétt hefði verið að bíða með
sölu hlutabréfanna fram yfir aðal-
fund. Heimildir herma að tilboðs-
gjafarnir hugleiði að endurnýja til-
boðið í næstu viku. Þá hefur Orri
einnig haldið því fram að annað
óformlegt tilboð hafi borist en sterk-
ar heimildir herma að það sé rangt.
Leiða má getum að því að slíkt til-
boð kunni að koma frá kaupmönn-
unum, en þá aðeins í lítinn hluta
þeirra, til að tryggja öruggan meiri-
hluta þeirra í Stöð 2. Alla upphæð-
ina, 100 milljónir króna, vilja þeir
ekki þurfa að gneiðaj samkvæmt
heimiídum blaðsins. Á þeirri einu
viku, sem Orri Vigfússon segist vilja
fresta ákvörðun um sölu hlutabréf-
anna um, mun það gerast að ný
stjórn tekur vóldin í Eignarhaldsfé-
laginu,
Rekstur Stöðvar 2 er sagður vera
í járnum og litlar aðhaldsaðgerðir
farið þar fram. Óstaðfestar heimildir
telja heildarskuldir nálgast 2 millj-
arða og að tap á nekstri Stöðvarinn-
ar á síðasta ári séá bilinu 150—200
milljónir. Þeir tuttugu og fimm
starfsmenn Stöðvarinnar sem sagt
var upp störfum 1. desember síðast-
liðinn hafi allir verið endurráðnir.
Hins vegar hefur stjórn Stöðvar 2
sagt Jónasi A. Aðalsteinssyni,
lögfræðingi Stöðvarinnar, upp störf-
um og jafnframt endurskoðunarfyr-
irtækinu Endurskoðun hf. Telst sú
ákvörðun sérstök fyrir þær sakir að
ákvörðun um ráðningu eða brott-
rekstur endurskoðanda og lögfræð-
ings fer jafnan fram á aðalfundum
eða hluthafafundum fyrirtækja. í
staðinn mun hafa verið ráðinn
Gestur Jónsson lögfræðingur og
Símon Gunnarsson hjá N. Man-
scher sem verið hefur endurskoð-
andi fyrir Jón Ólafeson, einn af aðal-
eigendum Stöðvarinnar. Þá heyrum
við að dregið hafi verulega úr völd-
um Jóns Sigurðssonar fram-
kvæmdastjóra.
HMNMMMf)
KÖLN
195 km
LUXEMBORG *
FLUG OG BÍUÆm
í eina viku
frá kr. 24.270-
BRÚSSEL
222 km
PARÍS
339 km
NICE
980 km
FRANKFURT
231 km
PRAG
730 km
GENF
489 km
Við fíjúgum þér til Lúx.
Par tekur þú við stjórninni.
VfSA
* Miðað er við bíl í A-flokki, 2 fuilorðna
|| og 2 börn yngri en 12 ára.
FLUGLEIÐIR
Þegar ferðalögin liggja í loftmu
Söluskrifstofur Flugieiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Krtnglunni.
Upplýsingar og farpantanir » síma 690 300.
Allar nánari uppiýsingar færðu A söluskrifstofum Flugleiða,
hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum.