Pressan - 26.04.1990, Blaðsíða 8

Pressan - 26.04.1990, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 26. apríl 1990 I Reykjavík er ástandið sérlega slæmt og þess eru dæmi að eftirliti með íbúðarhúsum hafi ekki verið sinnt svo áratugumskiptir og í sum- um tilfellum hefurþað aldrei átt sér stað. Iðnaðarmenn sem PRESSAN hafði samband viö töldu að eftirlit með gömlum íhúðarhúsum í Reykjavík væri nánast ekkert. Dauðaslys hafa hlotist af völdum hil- aðra lagna í heimahúsum. Húseig- endur bera sjálfir áhyrgð á að raf- lagnir í húsum þeirra séu í lagi. Raf- magnseftirlit ríkisins hefur lagt áherslu á að kynna almenningi ábyrgð hans í þeimefnum og meðal annars gert fræðslukvikmyndir, en samkvæmt lögum ber almennings- rafveitum að sinna eftirliti með raf- lögnum í íbúðarliísum og kynna eigendum hvert ástandið sé. Bergur Jónsson, rafmagnseft- irlitsstjóri ríkisins, staðfestir að ástandið í eldri hluta Reykjavíkur sé afleitt og þörf á stórátaki og aukn- um mannafla til að fylgja lögunum eftir. Vanþekking Almenningur hefur ekki mikla þekkingu á rafmagni. „Rafföng eru ekki algengt umraeðuefni hjá fólki. Sumir eru lafhræddir við rafmagn og aðrir eru alltof kærulausir og hvorugt er gott," segir Bergur. Það er mælt með því og víða skylda að hafa lekastraumsrofa í íbúðarhúsum — sumir vita ekki einu sinni hvað lekastraumsrofi er — en hann slær út rafmagninu ef rafmagn lekur og leiðir út. Ójarðbundnir tenglar í eld- húsum eru ólöglegir en þeir fyrir- finnast ennþá víða í gömlum hús- um. Þeir geta verið stórhættulegir og dauðagildrur í sumum tilfellum. Biluð raftæki í notkun í ójarð- bundnu eldhúsi, þar sem leka- straumsrofa vantar, eru alhættuleg- ust. Vitað er til þess að kona hafi lát- ist af raflosti í slíku eldhúsi. Margir kunna lítil skil á þessu og virðast treysta á guð og lukkuna eða opin- bert eftirlit. I húsum með lítilli áraun á að framkvæma eftirlit á 12—24 ára fresti eftir því hvert húsnæðið er. Atvinnuhúsnæði á að skoða mun oftar. I skýrslu Rafrnagnseftirlits rík- isins segir um forstöðumenn al- menningsrafveitna að þeim sé „skylt að ráða nægilegan fjölda eft- irlitsmanna til að annast eftirlitið á hverjum tíma“. Mikið vantar á að þetta eftirlit sé fullnægjandi . . .“ Reykjavík er sek Bergur Jónsson telur brýnt að fleiri menn verði ráðnir til eftirlits hjá Reykjavíkurborg og reyndar víð- ar. Hann minnir á að margir elds- voðar verða á hverju ári af völdum rafmagns. „Iðnskólinn við Tjörnina var sorglegt dæmi um bruna út frá rafmagni. Það dæmi sýnir vel nauð- syn þess að opinberu eftirliti sé Rafmagnsstjóri Reykja- víkur, Aðalsteinn Guö- johnsen, segir að reglurnar um skoðun á íbúðarhúsnæði séu úreltar, óraunhæfar og helst til þess fallnar að veita falskt öryggi. framfylgt. Við skoðun á söfnum í Reykjavík í vetur kom í Ijós að opin- herar byggingar geta einnig verið í slæmu ástandi livað varðar raf- magn. Það er augljóst að mikil verð- maeti eru í hættu‘,‘ segir Bergur. Óskar Hallgrímsson hjá Raf- magnseftirliti ríkisins hefur umsjón með þessum málum. Hann segir að húseigendur verði sjálfir að taka á þessu og biðja umskoðun og eftirlit. „Rafmagnsveita Reykjavíkur er sek og hefur ekki farið að lögum. En það er lítið gagn í að leita að sökudólgi, húseigendur bera ábyrgð á að raflagnir séu í lagi eins og ann- að í húsunum. Fað er slæmt að treysta á föðurlega umhyggju hins opinbera og gera ekkert í málun- um,“ segir Öskar. Hann bendir áað Rafmagnsveita Reykjavíkur sé ekki eini sökudólg- urinn, því fleiri rafveitur bregðist eftirlitsskyldunni. En það eru líka til rafveitur sem standa sig. Óskar nefnir Rafveitu Húsavíkur sem dæmi um rafveitu sem sinni skyld- um sínum á fullkominn hátt. Raf- veitan á Sauðárkróki sömuleiðis og á Suðurlandi eru rafveitur í mikilli framför. Lögum ekki framfylgt Tíu manns vinna við eftirlit fyrir Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Á svæðinu eru að minnsta kosti 50.000 húsveitur. Til þess að halda Tryggingafélög krefjast ekki skýrslu um ástand rafmagns í íbúðar- húsum. Því ræður sam- keppni og hafa félögin ekki náð samstöðu um að gera slíkar kröfur. Fullar bætur eru greiddar þó íbúðir brenni vegna þess að raflagnir eru ekki í lagi. uppi góðu eftirliti þyrfti fimmtíu manns, ef farið er eftir þeirri reglu að einn eftirlitsmaður sé á hverjar þúsund íbúðir. „R^kjavík er stór og byggist hratt. Þess vegna verður vandamálið meira áberandi hérna," segir Guðbjartur Gunnarsson, fræðslufulltrúi rafrnagnseftirlitsins. Guðbjartur er ekki bjartsýnn á að lögunum verði framfylgt á komandi árum. „Það þýðirekki að biðja um aukið opinbert efdrlit ef það virkar ekki. Nýjar aðgerðir þurfa að koma til. Tryggingafélögin eiga eftir að auka afskipti sín af raflögnum." „Eftirlitið er nauðsynlegt. Ábyrgðartilfinning fólks er oft lítil og margir eru skussar og trassar, enda er þriðjungur allra bruna af völdum rafmagns," segir Bergur Jónsson. Það þarf að ljúka skoðun og endurbótum á öllu íbúðarhús- næði sem er eldraen frá 1960 sem fyrst. Það er óþarfi að mikla þetta fyrir sér, það á að vera hægt að sinna því eftirliti sem krafist er. Það hefur verið slakað á kröfunum, en ég get ekki séð að þær reglur sem gilda í dag séu óeðlilegar. Það er vafasamt að mennskuli geta fengið fullar tryggingabætur þegar bús brenna vegna þess að raflagnir eru ekki í lagi.“ Falskt öryggi „Reglurnar varðandi íbúðarhús- næði eru úreltar, óraunhæfar og helst til þess fallnar að veita falskt öryggi,“ segir Aðalsteinn Guð- johnsen, rafmagnsstjóri Raf- magnsveitu Reykjavíkur. „Það er ekki skemmtilegt að þurfa að tala um lög og reglurá þennan hátt. En það hefur víða komið fram, meðal annars í sjónvarpsmynd Rafmagns- eftirlits ríkisins, að húseigandi ber einn ábyrgð á eigin raflögn, þrátt fyrir skyldur okkar um eftirlit. Þeir eru eiginlega sjálfir að segja að laga- bókstafurinn sé úreltur. Okkar eftir- lit er aðeins leiðbeinandi og ekki tryggt að húseigandi taki tillit til skoðunarskýrslu. Við söknum tryggingafélaganna sem ættu að taka þátt í að vekja athygli á þessu," segir Aðalsteinn. Tryggingafélög krefjast þess ekki að rafmagn í íbúðarhúsum sé í lagi áður en tryggt er. Þessu veldur sam- keppni milli félaganna, að sögn Hreins Úlfarssonar hjá VÍS. „Það er ekki samstaða milli félaganna um að gera kröfur um rafmagnseftirlit og brunavarnir. Auðvitað vildum við gjarnan að svoværi. Það myndi skila sér í færri tjónum pg lægri ið- gjöldum," segir Hreinn Úlfarsson. Vanræksla? Aðalsteinn telur ekki að Raf- magnsveita Reylqavíkur vanræki Gamlar raflagnir geta verið stór- hættulegar slysagildrur. Samkvæmt lög- um eiga rafveitur á hverjum stað að sinna eftirliti með rafmagni. Enginn skyldi þó treysta þvi. Eftirlitið virkar ekki i raun og þvi verða húseigendur að eiga frumkvæðið að þvi að lagfæra raf- magn i húsum sinum. Annars geta úrelt- ar og ónýtar lagnir fengið að vera i friði um ókominn tima — eða þangað til slys eða tjón hlýst af. EFTIR: BJÖRGU EVU ERLENDSDÓTTUR „Mikið vantar á að eftirliti sé sinnt sem skyldi. Rafmagn er víða í ólagi og þaö giidir meira að segja um ýmsar opinberar stofnanir," segir Bergur Jónsson hjá Rafmagnseftirliti ríkisins.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.