Pressan - 31.05.1990, Qupperneq 9
Fimmtudagur 31. maí 1990
HAGRÆÐINGARBYLTING
9
LANDSBANKINN SELUR ÚTIBÚ
OG KÚNNA!
Bankamálarádherra finnst Landsbankinn vera of stór
og nú ræöir bankinn viö Búnaöarbanka og íslandsbanka um sölu á útibúum þar sem viöskiptin eiga aö fylgja.
Um leid liggur fyrir útibúa- og starfsmannafœkkun
hjá íslandsbanka.
Landsbankinn hefur hafið viðræður við
Búnaðarbankann og í kjölfarið fylgja við-
ræður við íslandsbanka um að þessir
bankar komi inn í kaup Landsbankans á
Samvinnubankanum. Hugmyndin að baki
er sú að Búnaðarbanki og íslandsbanki
kaupi útibú af Landsbankanum þar sem
hann og Samvinnubankinn eru báðir með
afgreiðslustaði — og yfirtaki viðskiptin.
Pá stendur fyrir dyrum hjá Islandsbanka
tilfinnanleg fækkun á útibúum með til-
heyrandi fækkun starfsfólks — líklega um
liðlega 200 manns.
EFTIR: FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON - MYND: EINAR ÓIASON
gegn því að nafn Samvinnu-
bankans hverfi er að hann
hefur lagt mikla áherslu á
viöskipti við einstaklinga og
spurning hvort þau haldast
öll ef nafnið leggst niður.
,,Það eru fjölmargir sem
kjósa að eiga viðskipti við
minni og persónulegri banka
með styttri boðleiðir, þ.e.
sneggri ákvarðanatöku,"
sagði heimildamaður úr Sam-
vinnubankanum.
Jón Sigurðsson viðskipta-
ráðherra er talsmaður þess
að ríkisbönkunum verði í ná-
inni framtíð breytt í hlutafé-
lagsbanka. Kkki náöist í ráð-
herra, sem er erlendis, en það
um of mikill stærðarmunur á
hlutafélagsbönkum.
Um leið liggur fyrir að und-
anfarna mánuði og ár hefur
Landsbankinn verið í sókn, í
innlánum mælt. I mars 1988
var markaðshlutdeild hans
32,7% og hefur hann styrkt
stöðu sína um 1,8 prósentu-
stig á tveimur árum. I mars
1988 var samanlögð mark-
aðshlutdeild bankanna fjög-
urra sem nú mynda Islands-
banka 25,6% en i marslok sl.
23,2% og hefur hún |tví
minnkað um 2,4 prósentu-
stig.
Innlán Islandsbanka hefðu
þurft að vera 2,7 milljöröum
banka, í samtali við PRESS-
UNA.
Fyrirsjáanleg
fækkun á Akureyri
og í Keflavík
Hann sagði að viöræöurn-
ar myndu fyrst og fremst snú-
ast um viðskiptin, fasteign-
irnar sjálfar væru ekki aöalát-
riðið. „Að því leyti er þetta
vandasamara mál og verður
að gerast í samráöi við við-
skiptavinina — enda er þetta
ekki laust viö viökvæmni."
Valur viðurkenndi að Is-
landsbanki stæöi nú frammi
fyrir fækkun útibúa hjá sér á
I samtali við PRESSUNA
staðfesti Sverrir Her-
mannsson, bankastjóri
Landsbankans, aö viðræöur
þessar ættu sér stað.
,,Þar sem bæði Landsbank-
inn og Samvinnubankinn eru
verður auövitaö sameinað og
lagt niður. En það þarf að
skoða þetta vel, því aðstæður
eru misjafnar á hinum ýmsu
stöðum. Samvinnubankinn
er vel rekinn og mikið slátur
í honum. Við leggjum höfuð-
áherslu á að þessi sameining
geti orðið án þess að koma of
mikiö við hagsmuni starfs-
fólksins og svo að viðskipta-
vinirnir fái áfram góða og
batnandi þjónustu."
Sverrir segist ekki eiga von
á því aö nafn Samvinnubank-
ans hverfi, ekki í bili aö
minnsta kosti.
ípottinum staðir
með tvö útibú
,,Viö erum byrjaðir á við-
ræðum við Búnaðarbankann
og byrjum öðru hvoru megin
við næstu helgi á viðræðum
við íslandsbanka, um hugs-
anlega sölu á einhverjum úti-
búum eða aðstöðu úti á landi.
Og ef til vill í höfuðborginni.
Eg vil ekki nefna einstaka
staði, en vissulega vilja þeir
kannski kaupa annað útibúið
þar sem Landsbankinn og
Samvinnubankinn eru báðir
á staðnum. Það er ekki hægt
á þessu stigi að segja hversu
mikið við viljum láta af
hendi, en lunganum af Sam-
vinnubankanum höldum við
og öllu sem við getum hag-
rætt með.“
Þeir staðir á landinu þar
sem Landsbankinn og Sam-
vinnubankinn eru báðir með
útibú eru Keflavík, Akra-
nes, Patreksfjörður Húsa-
vík, Vopnafjörður, Höfn,
Breiðdalsvík og Selfoss.
í Reykjavík er Landsbank-
inn t.d. með útibú (ásamt veð-
deild og verðbréfamarkaðin-
um Landsbréfum) á Lauga-
vegi 24, en þremur húsum frá
eða í Esso-húsinu er Sam-
vinnubankinn með útibú. Þá
er Landsbankinn m.a. með
útibú í Aðalverktakahúsinu
Með sameiningunni í Islandsbanka hvarf óhagræði hinna smáu eininga. Ef íslandsbanki ætlar að ná sambærilegri
„framleiðni" og Búnaöarbankinn þyrfti starfsmönnum íslandsbanka að fækka um nálægt 230 manns á landinu öllu.
við Höfðabakka, en Sam-
vinnubankinn með útibú
skammt frá, á Bíldshöfða 14.
Loks má telja nokkuð stutt á
milli afgreiðslustaða Lands-
bankans á mótum Grensás-
vegar og Miklubrautar og
Samvinnubankans í Austur-
veri.
Ráðherra finnst
Landsbankinn
of stór
Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR hefur engin
ákvörðun verið tekin um
framtíðarstöðu Samvinnu-
bankans almennt, að öðru
leyti en því að hlutafélagið
um hann hefur verið lagt nið-
ur. Landsbankinn er smám
saman að eignast allan bank-
ann og eignast hann væntan-
lega 100% um mánaöamótin
júní/júlí.
Það sem mælir einkum
sem mun valda honum
áhyggjum er að með hreinni
yfirtöku Landsbankans á
Samvinnubankanum veröi sá
fyrrnefndi of stór, miöaö við
íslandsbanka og Búnaöar-
banka. Ef miðað er við innlán
og almenn útlán þegar mark-
aðshlutdeild er metin (og
sparisjóðir teknir með) var
Landsbankinn með 33,8%
heildarinnar í apríllok og
Samvinnubankinn með 6,4%
eða þeir samtals með 40,2%.
íslandsbanki var hins vegar
með 24,2%, Búnaðarbank-
inn með 18,8% og sparisjóð-
irnir með 16,7%.
íslandsbanki hefur
mestan áhuga á
Austurlandi
Með öðrum orðum yrði
Landsbankinn hátt í tvöfalt
stærri en íslandsbanki sam-
kvæmt þessu. Það finnst ýms-
hærri nú til að markaðshlut-
deildin frá 1988 héldist.
Islandsbanki er einmitt sá
banki sem hvað mest ræðir
um hagræöingu þessar
stundirnar um leið og hann
hyggst ræða við Landsbank-
ann um möguleg útibúa- og
viðskiptabýtti.
,,Við höfum ákveðið að það
veröi viðræður um útibúa-
kerfiö, hvort einhver breyting
á því gæti oröið til hagræð-
ingar. Það er ekki tímabært
að velta vöngum yfir hvaða
útibú eru í myndinni af okkar
hálfu, menn verða fyrst að
ræða hvernig eða hvenær
þeir vilja taka á þessu. En það
er nokkuð augljóst að ís-
landsbanki mun meðal ann-
ars ræða um Austurland. Við
erum mikill íslandsbanki
nema hvað Austurland varð-
ar, annars erum við staðsettir
um land allt,“ sagði Valur
Valsson, bankastjóri íslands-
ákveönum stöðum og að
óhjákvæmilega myndi fylgja
fækkun starfsfólks.
,,Við höfum metið það svo
að með sameiningu fjögurra
banka í íslandsbanka hafi
gefist tækifæri til hagræðing-
ar, sem mun hafa í för með
sér að færra fólk þarf til að
sinna viðskiptavinum en áð-
ur var. Það hefur þegar orðið
nokkur fækkun hjá okkur og
við reiknum með að hún
haldi áfram eftir því sem end-
urskipulagningu á útibúun-
um, þ.e. fækkun útibúanna,
miðar áfram. Við höfum alla
tíð gert ráð fyrir að þetta
gerðist skref fyrir skref og að
ekki yrðu tekin stór skref.
Auk þess að gæta að hags-
munum starfsfólks þurfum
við að gæta hagsmuna við-
skiptavina vel.“
íslandsbanki hefur að sögn
Vals þegar tekið ákvörðun
um að fækka afgreiðslustöö-
um á Akureyri í haust, úr fjór-
um í tvö, og í Keflavík úr
tveimur í einn. „Þessar að-
geröir hafa í för meö sér
nokkru minni þörf á starfs-
fólki en áður. Síöan erum við
áfram aö skoða möguleik-
ana, það má t.d. fækka í
Reykjavík líka. Það er þó ekk-
ert augljóst hvaða afgreiðslu-
staöir þar gætu veriö á ferð-
inni, þetta eru flókin mál.“
„Framleiðni“ lítil
miðað við
Búnaðarbanka
Valur vildi ekki tjá sig um
hversu mikil fækkunin á
starfsfólki Islandsbanka
kæmi til með að verða, en
þörfina má meta á sinn hátt
með því aö bera saman starfs-
mannafjölda og innláns- og
útlánsupphæöir hjá ísiands-
banka og Búnaðarbanka,
sem eru þokkalega sambæri-
legir bankar.
Hjá Islandsbanka starfa nú
916 manns í 850 stööugildum ,
(og er þá verðbréfamarkaö-
urinn ekki talinn meö, þar
sem starfar 31), en heildar-
innlán í lok apríl námu
26.498 milljónum króna. Þaö
gera 28,9 milljónir króna á
hvern starfsmann. Almenn
útlán voru 27.194 milljónirog
til samans er upphæðin á
hvern starfsmann 58,6 millj-
ónir.
Hjá Búnaöarbanka starfa
nú (utan tveggja manna í
verðbréfadeild) 530 manns í
489 stöðugildum, en heildar-
innlán í lok apríl námu 21.960
milljónum króna. Þaö gera
tæplega 41,4 milljónir króna
á hvern mann. Útlán voru
19.666 milljónir og til samans
er upphæðin á hvern starfs-
mann 78,2 milljónir.
Með öðrurn orðum eru
stöðugildi 74% fleiri hjá ís-
landsbanka en heildarinnlán
aðeins 21% meiri og almenn
útlán 38% meiri.
Fækkar starfsfólki
lslandsbanka um
fjórðung?
Til að ná sambærilegri
„framleiðni" og í Búnaðar-
bankanum þyrfti íslands-
bankinn því að fækka starfs-
mönnum sínum niður í um
640. En þegar tillit er tekið til
blutfallslega meiri útlána ís-
landsbankans og meiri er-
lendra viðskipta er réttara að
miða við að sambærileg
„framleiðni" næðist með þvi
að íslandsbankinn fækkaði
starfsmönnum sínum úr 916 í
um 685—690, um 225—230
eða um 25%.
Samkvæmt upplýsingum
starfsmannahalds Islands-
banka hefur ekki orðið um
neina fækkun að ræða fyrstu
fimm mánuði ársins, heldur
hefur starfsmönnum fjölgaö
um sjö.